Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 7. JULl 1984. Brian Talbot ft.v.l og Phil Thompson skömmu eftir komuna tillandsinsá mánudaginn. DV-myndArinbjörn. Frægir knattspyrnumenn á Ensku knattspymurnennimir Brian Talbot og Phil Thompson eru vel þekktir hér á landi. Þeir eru leik- meim meö tveimur frægustu félags- liöum á Englandi, Arsenal og Liver- pool. Báöir hafa þeir leikið meö enska landsliðinu, Talbot sex sinnum og Thompson 42 þar af sex sinnum sem fyrirliöi liðsins. Phil Thompson er fyrrum fyrirliöi Liverpool liösins og hefur meö því unnið til fleiri verðlauna en nokkur annar knattspymumaöur á Eng- landi. En nú er tekið aö halla undan fæti, hann komst ekki í liðið í fyrra og framtíð hans hjá félaginu er enn í óvissu. Brian Talbot hefur veriö aöeins hógværari hvaö verðlaunin snertir en vann þó bikarinn tvö ár i röö 1978 Texti og 79.1 fyrra skiptið með Ipswich er liöið vann Arsenal og í seinna skiptið með Areenal. Þessir tveir menn komu hingað í vikunni til að miðla ungum knatt- spyrnumönnum af reynslu sinni úr heimi knattspyrnunnar. Það er enski PGL knattspymuskólinn sem og KR sem standa fyrir komu þeirra. Ég náði spjalli af þessum tveimur vel þekktu mönnum nú i vikunni og fara viðtölinhéráeftir. SigA. Höfum getuna til að keppa við Liverpool — segir Brian Talbot, leikmaður Arsenal Er ég kem á hótelið sé ég að Brian Talbot er að sötra úr ölkrús og ég spyr hann fyrst hvernig honum finnist bjór- inn. Hann yppir öxlum og segir hann ekkert séretakan. Hann segist vita að þetta sé ekki b jór, hann sé bannaöaur. — En þið hafið vodka, viskí, gin og allt annað, allt nema bjór. Hann hrístir hausinn, greinilega gáttaður á hlutunum. Eg hristi haus- inn líka. Jafngáttaöur og bið hann um að segja mér hvemig hann hafi fyrst fengíð smjörþefinn af atvinnuknatt- spymunni. — Ég er fæddur í Ipswich og það var eina liðið sem ég kom nálægt á þessum árum. Eg var í skólaliöinu og seinna í sýsluliðinu og þegar ég var þrettán ára var mér boðið að koma og æfa með Ipswich. Þegar ég var 15 var mér boð- inn skólasamningur við liðið og þegar ég var 17 var mér boðinn atvinnusamn- ingur. Fyretu tvö sumurin var ég í Kanada og spilaði með Torontoliðinu í amerísku deildinni. Á þessum fyrstu árum mínum í alvöraboltanum fót- brotnaði ég tvisvar og var farinn að ör- vænta um framtíöina. Hvenær var svo fyrsti leikurinn fyrir aðalliðið? — Það var árið 1974, í ársbyrjun. Burnley voru mótherjarnir en við töp- uðum 1-0 á leikvelli þeirra. I ársbyrjun 1974 var Brian Talbot rúmlega 20 ára, ég spyr hvort óþolin- mæðin hafi verið farin að heltaka hann þegar tækif ærið kom. — Já, ég var búinn að vera þarna í ein 3 ár sem atvinnumaður og óþolin- mæðin var farin að segja til sín. En eft- ir þetta gekk mér vel að sleppa inn í lið- ið, var orðinn fastur leikmaður skömmu síðar. Á þessum árum var Bobby Robson framkvæmdastjóri Ipwich og á 10 ár- um náði hann því úr annarri deild og upp í annað sæti í fyrstu deild. Hvemig framkvæmdastjóri er Robson? — Honum gekk vel með Ipswich en dæmið hefur ekki gengið upp með enska landsliðið. Hann hefur verið alltof lengi að ákveöa í kringum hverja hann á að byggja liöiö. Það er ennþá í mótun.eftirtvöár. Talandi um enska landsliðið þá lékst þú eina fimm leiki með því árið 1977 en var síðan kúplað út. Hvað skeði ? — Don Revie var með liðið þegar hann valdi mig en svo var hann rekinn. Ég hélt samt að ég fengi að vera með áfram og Revie var reyndar búinn að segja að svo yrði. En þegar Ron Green- wood valdi sinn fyrsta hóp var ég ekki með. Eg spilaði reyndar einn leik undir hans stjóm, árið 1980 gegn Áströlum. Vonsvikinn? — Já, vissulega. Það er draumur sérhvers að fá að leika fyrir land sitt og mér fannst ég hafa sloppið vel frá þeim leikjum sem ég hafði spilað svo ég bjóst við að ég yf ði áfram. En Talbot fékk sína sárabót áriö eft- ir þegar Ipswich komst í úrslit FA bik- arkeppninnar og lék gegn Arsenal. All- ir veðjuðu á risana frá Lundúnum, en hinir lítt þekktu kauðar frá Ipswich, sem þá var neöarlega í deildinni, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu, 1-0. Stuttu eft- ir leikinn var gengiö frá félagaskiptum Talbot yfir I Areenal. Verðið var 450.000 pund. Eg spyr Talbot að því hvort honum hafi verið illa tekið af að- dáendum Areenal, nýbúnum að gera bikardraum þeirra að engu. — Nei, aödáendur liðsins hafa alltaf verið á inínu bandi. Þeir geta verið grimmir og virkilega farið illa með sál- arlíf leikmanna, sérstaklega þegar illa gengur en það hefur aldrei verið tilfell- ið með mig, sem betur fer. Það vora frekar aðdáendur Ipswieh sem vora sárir yf ir því að ég skyldi hafa farið f rá félaginu. Árið eftir bikarsigur Ipswich var Talbot aftur kominn á Wembley, nú með sinum nýju félögum í Areenal. Mótherjamir voru Manchester Utd, og nú veðjaði enginn á Arsenal. Þeir áttu að tapa, en gerðu þaö ekki, sigruöu 3-2 i einum mest spennandi úrslitaleik sem háður hefur verið á Wembley. Og annað áriö í röð hampaði Brian Talbot bikamum í aðstööu sem er einsdæmi í enskri knattspymusögu. Ég spyr hvemig það sé aö leika á Wembley fyr- ir framan 100.000 öskrandi hausa. — Það er stórkostlegt. Þetta er það sem allir vilja gera. Maður getur ekki gleymt því, þetta hlýtur að teljast há- mark ferils hvers og eins sem þangað kemst. Nú hefur þú farið þaðan sem sigur- vegari tvisvar sinnum auk þess að hafa tapað einu sinni (árið eftir gegn West Ham 0-1). Á hvort skiptiö lítur þú sem hámark þíns knattspyrnuferils? — Það er erfitt að segja. 1 fyrra skiptiö er maður allur uppspenntur vegna þess hversu stór þessi viöburður er. Maður hefur mikiu meiri áhyggjur og nýtur augnabliksins ekki eins vel. I annað skiptið sem ég kom var ég ró- legri og ákveðinn í því að njóta þess að vera þama, þaö var skemmtilegra að því leyti. En samt verð ég að nefna fyreta skiptiö sem hápunkt leikferils míns. Ég var þá að leika fýrir mína nánustu, vini mína og ættingja, og fólk- ið sem er úr sömu borg og ég og það er þeim mun ánægjulegra að vinna við slíkar kringumstæður. Og þetta var ekki bara mikill dagur fyrir mig, held- ur alla ættingjana líka. Hvemig gekk þér að aðlaga þig leik- stíl Arsenalliðsins? — Mér gekk vel, ég lék við hliðina á Liam Brady og að leika við hliðina á slíkum manni er ómetanlegt, við skild- um strax hvor annan mjög vel. Hver er ástæðan fyrir hinu slæma gengi Areenalliðsins undanfarin ár? — Það er erfitt að segja og ekki hægt að taka fram neina eina ástæöu. Arsen- al er stór klúbbur og hann ætti að vera á toppnum en liðinu hefur ekki tekist að framkvæma allt það sem það getur framkvæmt. Var Terry Neill ástæöan? — Það er ekki mitt að segja um það en staðreyndin er sú að liðið lék ekki þá sóknarknattspyrnu sem það hafði burði til að gera á meöan Neill var framkvæmdastjóri og það gæti vel ver- ið ástæðan fyrir slæmu gengi okkar undanfarin ár. Er Don Howe betri stjóri en Neill? — Aftur er það ekki mitt að segja til um slíkt, ég bara vinn þama. En Howe er mjög ólíkur Neill, hann reynir frek- ar að fara sáttaleiðina, er eftirgefan- legur. Neill aftur á móti stjómar með harðri hendi. Aðferðir Howe virðast hafa gefist betur því hann náði betri árangri með okkur á þessum hálfa vetri en Neill gerði. Við rétt misstum af Evrópusæti og ég held að við höfum sýnt það í lok síðasta vetrar að við höf- um getuna til að velgja Liverpool undir uggum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.