Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 17
DV. LAUGARDAGUR 7. JUL! 1984.
Næstum einn bíll á hverja tvo íbúa
Bílaeign Islendinga er nú þannig aö
næstum einn bíll er á hverja tvo íbúa
landsins. Þetta er meö því almesta
sem þekkist. Fremstir í flokki hvað
varðar bílaeign á hvem íbúa eru
Bandaríkjamenn. Næstir koma Ástral-
ir, þá Kanadamenn og Islendingar eru
ifjóröasæti.
Þaö er athyglisvert aö viö skerum
okkur nokkuö úr af Noröurlanda-
þjóðunum í bílaeign á hvern íbúa. Sú
Noröurlandaþjóö sem kemst næst
okkureruSvíar.
Á árinu 1980 vom 427 bílar á þúsund
íbúa. Talan varö enn hærri á árinu
1981, alls 437 bílar og 1982 voru bílamir
orönir 452 á þúsund íbúa.
Taliö er aö bílum hafi enn fjölgaö á
síöasta ári og séu nú tæplega 500 bílar
áþúsundíbúa.
Færa má rök fyrir því aö bilaeign sé
ekki hinn besti mælikvarði á „lífs-
standard”. Koma þar til annars konar
samgöngur, samanber lestir og lang-
feröabíla.
En mikil bilaeign viökomandi lands
er þó altént vísbending um háan „lífs-
standard”, velmegun.
Þá er líka vert aö minna á aö bílar á
Islandi era óvenjudýrir vegna mikilla
tolla á þeim. Þeir em tollaöir sem
lúxusvara.
-JGH
Sjónvarpseign íslendinga:
Meira en eitt tæki á hverja f jóra íbúa
Um eitt sjónvarp er á hver ja f jóra Is-
lendinga. Þetta hlutfall er ekki meö því
alhæsta sem þekkist á meðal annarra
þjóða, en þó mjög gott. Langflest sjón-
vörp eru á hver ja þúsund íbúa í Banda-
ríkjunum, eöa alls 635 tæki.
Á hinum Noröurlöndunum eru mun
fleiri sjónvörp á hvern íbúa, um eitt
sjónvarp á hverja þrjá. Norðmenn eru
þó á sama stigi og við hvað sjónvarps-
eignsnertir.
Það sem kemur hvaö mest á óvart er
hve Bandaríkjamenn skera sig mikið
úr í sjónvarpseign. Munurinn á þeim
og Kanadamönnum, sem eru í öðm
sæti, er næstum 200 tæki á hverja
þúsundíbúa.
—JGH
Símaeign íslendinga:
Eitt tæki á hverja tvo landsmenn
Símaeign er almennust í Bandarikjunum, Sviþjóð, Kanada og Sviss.
íslendingar geta þó vel unað við sinn hlut. Næstum einn simi á hverja tvo
ibúa.
Eitt símtæki er á hverja tvo íbúa á
Islandi. Þetta er mjög svipaö og á hin-
um Norðurlöndunum, aðeins Sviar
sem skera sig úr. Þar eru um 80 símar
á hverja hundrað ibúa.
Bandaríkjamenn, Kanadamenn og
Svisslendingar eru meö símaeign á
svipuðu stigi og Svíar. Þessar fjórar
þjóöir skera sig nokkuö úr öðmm
þjóöum.
Athygli skal vakin á því aö í tölunni
fyrir Danmörku er símaeign Græn-
lendinga og Færeyinga innifalin.
Svo viröist sem flestar vestrænar
þjóðir séu meö símaeign á sama stigi
og viö Islendingar, eöa í kringum eitt
símtæki á hverja tvo íbúa.
-JGH
Medalævi íslendinga:
Ein sú lengsta sem þekkist
Meðalævi okkar Islendinga er ern sú
allengsta sem um getur í heiminum.
Flestar Noröurlandaþjóðirnar viröast
meö svipaöa meðalævi, en engu aö síö-
ur höfum viö vinninginn, þó lítill sé. Og
af öörum þjóðum eru þaö aöeins Jap-
anir sem lifa lengur en við.
Oft er talað um meðalævúia og
bamadauöann sem besta mælikvarð-
ann á velferð fólks. Löng meöalævi og
lítill barnadauöi endurspegli aö frum-
þörfum mannsins, matur, klæöi (og
skjól),ervelborgið.
Einnig sýnú- lítill bamadauöi og
löng meðalævi aö heilsugæslu er vel
súint. Þjóöúi búi viö gott ástand i þeún
efnum. Sem dæmi má nefna marga
lækna og hjúkrunarfólk sem og heilsu-
gæslustöövar.
Meöalævi islenskra kvenna var tæp-
lega 80 ár áriö 1981. Nákvæmlega sagt
var talan 79,5 ár og aöeins japanskar
Islendingar lifa manna lengst af öllum. Það ber vott um mikla velmegun
hérlendis og endurspeglar að heilsugæslu sé vel sinnt. Á myndinni sjáum
við Landspitalann i Reykjavík.
konur voru meö lengri meöalævi, 79,6
ár. Tæpast marktækur munur.
Islenskir karlmenn lifa um sex ár-
um skemur en íslenskar konur. Meðal-
POKINN
HJÁESSO
Þrír bráðskemmtilegir
útileikir fyrir fjörmiklar fjölskyldur.
Ánægjuleg og góð hreyfing
hvar og hvenær sem er:
• í ferðalaginu
• í garðinum heima
• í sumarbústaðnum
Allt í einum, ótrúlega
ódýrum poka. Aðeins 298 kr.
Fjörpokinn fæst á bensínstöðvum
ísso
ævi íslenskra karla var áriö 1981 73,9
ár og eins og áöur, aðeins japanskir
karlar eru meö lengri meðalævi, 74,2
ár. -JGH.
OLIUFELAGIÐ HF
Bílaeign íslendinga er meö almesta móti miðað við aðrar þjóðir. Næstum einn bíll er á hverja tvo íbúa. Það
eru aðeins Bandaríkjamenn, Ástralir og Kanadamenn sem eru með almennari bílaeign.
Bflaeign íslendinga: