Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 20
20 DV. LAUGARDAGUR 7. JULl 1984. SigmarB.Haukssoní framkvæmdanefnd listahátíðar: Atríöinofmörg Var of mikill meðalmennskubragur á listahátíðinni að þessu sinni ? — Það held ég ekki, öðru nær. Nú voru óvenjumörg atríði sem klikkuðu, fleiri en oft áður. Var þetta allt saman tilviljun? — Eg held að meginástæðan fyrir þessu sé t íþætt. Annar svegar voru að mínu mati of mörg atríði á hátíöinni, fólk komst hreinlega ekki yfir þau öll. Hins vegar tel ég að hin sérhæföu atriði hátiarinnar hafi ekki verið nægjanlega vel kynnt. Hverju er þar umaökenna? — Fyrir því liggja ýmsar ástæður og má þar nefna að við tókum, að mínu áliti, allt of seint til starfa. Þá hafði það sitt aö segja aö sá maður sem var faliö aö annast allar kynningar tók ennfremur að sér ýmis önnur störf og virðist því ekki, að mér skilst, hafa getað einbeitt sér sem skyldi að öllu kynningarstarfinu. Svo má vera að við höfum ekki auglýst nóg. Það virðist ekki hafa verið mikill áhugi fyrir að fá góðar rokkhljómsveít- ir á hátíðina. Er það ekki nokkuð sem er látið sitja á hakanum vegna metnaðarleysis framkvæmdanefndar- innar í þeim efnum? — Ég held að þarna hafi ekki verið um að kenna metnaðarleysi í nefnd- inni. Það var reynt æöi lengi að fá ein- hverja þekkta og góða hljómsveit en það virðist bara vera þannig að nú sé erfiðara en oft áður fyrir þessa út- kjálkastaði aö fá þessar stóru hljómsveitir. Svo hittist þannig á að þessar sex, átta hljómsveitir, sem við vorum að reyna að fá, voru ýmist ekki á hljómleikaferðalagi á þessum tima eöa þær gátu ekki komið hingað. Þar fyrir utan, og það réð kennski mestu, þá kostaði þetta svo gífurlega peninga aö við hefðum aldrei ráðið við það. Hins vegar vil ég segja fyrr mitt leyti að þaö er ekkert sem segir það aö lista- hátið geti ekki enn haldiö rokktónleika þó að sjáif hátíðin sé liöin. Hefur ekki komiö til tals aö breyta áherslupunktum eitthvað á listahátíö því að nú hefur margt breyst síöan listahátíð fór af stað? Framboð á tón- leikum er til dæmis mörgum sinnum meira en var fy rir 10—12 árum. — Það sem hlýtur að gerast núna er tvennt. I fyrsta lagi það aö listahátíö verði með mun færTÍ atriði á dag- skránni og í öðru lagi aö Ustahátíð standi í skemmri tíma en nú. Það kom til dæmis augljóslega fram núna að við vorum með of mörg atriði á boöstólum. Er athugandi að auka eitthvaö hlut léttari tónlistar á kostnað hinnar „æðri”? Hlustendahópur hinnar fyrr- nefndu er ábyggilega stærrl — Ég held að það sem máUð snúist fyrst og fremst um er að við getum boðið upp á tónlist sem fólk hefur allajafna ekki möguleika á að sjá og heyra, hvort sem það er létt tónUst eöa þyngri tónlist. Þaö er nú líka þannig að mér finnst svo gífurlegt framboð á þessari léttu tónlist í fjölmiölum. Nýverið hefur ríkisútvarpið til dæmis opnað sérstaka rás til flutnings á þess- ari tónlist. -SþS Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur: Hlutur myndlistar stærrienoftáður Hvert er þitt áUt á hlut myndlistar á Ustahátíö í ár og í hverju var mestur fengur að þínu mati? — Mér hefur skilist að fjárveitingar tU myndUstar á listahátiö hafi verið meðminna móti í ár. Hins vegar sýnist mér sem myndUst hafi aldrei leikið eins stórt hlutverk á listahátið og nú, ekki aöeins að magni, heldur Uka aö fjölbreytni og gæðum. Á þessu mis- ræmi kann ég engar skýringar. Að mínu mati munaði mest um sýn- ingu tíumenninganna að Kjarvalsstöð- um þar sem finna mátti góöa, að vísu misjafnlega góða, fuUtrúa fyrir helstu strauma í islenskri myndUst síðast- Uðna tvoáratugi. Annars staðar í bænum lukkuðust sýningar einnig vel. I Listasafninu var þekktur útlenskur stórmeistari, í Norræna húsinu sýndi ágætur finnskur listmálari, í NýUstasafninu voru þekktir jaxlar úr nýlistinni, annars staðar voru málarar, leirlistamenn, textílhönnuðir og arkitektar. Eitthvað fyriraUa. — GamaU íslenskur löstur, skipulags- og fyrirhyggjuleysi, setti engu að síður merki sitt á margar sýninganna. Hvergi í heiminum nema á Islandi eru meiriháttar listsýningar settar saman á hálfu ári eöa styttritima. Hvað aðra spuminguna varöar get ég ekki fullyrt fyrir aðra en sjálfan mig. Engin sýning fannst mér f uUkom- in. Stundum lyfti eitt verk heUU sýn- ingu. Mesta og langvarandi ánægju hafði ég af sýningu Appells í Listasafn- inu, Louisu að Kjarvalsstöðum og Hreins Friöfinnssonar á sama stað. -SþS. Páll Baldvin Baldvinsson leiklistargagnrýnandi: Vanda va/ið beturogfyrr — Ef ósk mín rættist væri lista- hátíð annaö hvert ár sérstakur vett- vangur fyrh- nýnæmi í leUdist og leik- sköpun. Hingað kæmu erlendir gestir og sýndu sumarlanga tíð margs konar sviöslist öllum þorra fóUts, ekki bara „fína pakkinu í Reykjavík”. A yfirstaöinni hátíð fór svo aö „fína pakkið” lét ekki einu sinni sjá sig. Nóg var samt í boði, en forkynning var eng- in, auglýsing takmörkuö og áhersla slök á síöustu stundu. Þrjú atriði á leiklistarsviöinu voru framúrskarandi, Stadsteatern frá Stokkhólmi, Jack Brut hópurinn frá Finnlandi og Brúðuheimilið frá Færeyjum. önnur voru þokkaleg, Hrá- skinnsleikur Olafs Hauks Símonarson- ar og Borgar Garðarsson í einleik sín- um. Þá er ótalin rest sem er strax fall- in í gleymskunnar dá, sumt sárgræti- lega slappt, svart og sykurlaust. Hvað er þá til bragðs? I framtíðinni er nauðsynlegt að vanda valið betur og fyrr, jafnvel mörg ár fram í tímann. Forðast of tíð mannaskipti í fram- kvæmdastjóm fyrirtækisins, auka kynninguna og jafnvel dreifa hátíðinni bæöi um land og borg og eins á lengri tíma þá sumardaga sem hún stendur. -SþS. Listahátið 1984 er nú nýlega lokiö en hún stóð frá 1. til 17. júní. Hún var sú áttunda í röðinni og sú umfangsmesta hingað til. En þaö er líka óhætt að fullyrða að sjaldan eða aldrei hefur listahátíðin veriö jafnumdeild og nú. Menn verða að sjálf- sögðu aldrei á eitt sáttir um val listamanna á há- tíðina. Að margra áliti var hátiðin of löng og of mörg atriði á henni. En það sem fremur öðru hef- ur vakið athygli er hinn mikli halli. Þegar í maí- mánuði var gert ráð fyrir aö tapið yrði ekki undir tveimur milljónum og er það áreiðanlega í fyrsta skipti að slíkt er látið í ljós áður en sjálf hátíðin hefst. Tap á Listahátíðinni 1982 var á aðra milljón en aðeins tvær listahátíðir hafa skilað hagnaöi, hátíöimar 1976 og 1978. Þegar leið að lokum hátíðarinnar nú í júní var orðið ljóst að tapið yrði a.m.k. þrjár milljónir. I viðtali við Þjóðviljann 15. júní sl. sagði Bjarni Olafsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, að að- sókn fram að þeim tíma hefði ekki veriö eins mikil og hann hefði óskað nema aö helstu atriðum. Þar nefnir hann tónleika bresku Fílharmóníunnar, Modern Jazz Quartet, Luciu Valentini-Terrani og tónleika Islendinganna í Bústaöakirkju. Af öðrum atriðum sem vel voru sótt má nefna sýningu tíu gesta á Kjarvalsstöðum og lokaballið í Laugar- dalshöll. Síðustu fregnir herma að fyrirsjáanlegt sé enn meira tap en áður er getið og eru þá nefndar fimm til sjö milljónir. Erfiðlega hefur gengið að fá þetta staöfest en í samtali við DV sagði Kjartan Gunn- arsson, skrifstofustjóri borgarendurskoðunar, að hallinn yrði mun meiri en á áætlun framkvæmda- nefndarinnar. Ekki hefur tekist að ná tali af Davið Oddssyni borgarstjóra en hann sagði í viðtali við Morgunblaðið 30. júní sl. að hann „yrði ekki hissa þó tapið yrði fimm milljónir eða meira”. Bráðabirgðauppgjör Að sögn Bjarna Olafssonar, framkvæmda- stjóra listahátiðar, er hann nú að vinna að bráðabirgðauppgjöri sem hann kvaðst mundu reyna að leggja fram í byrjun ágúst ef allt gengi upp. Bjarni sagðist stefna að því að hraöa verkinu sem mest en engar endanlegar tölur væru komnar enn. Greinargerð hefur verið send borgarstjóra og fjármálaráðherra um afkomu hátíðarinnar. Há- tíðin er undanþegin skemmtana- og söluskatti. Ríki og borg styrkja listahátíð með jafnháum f jár- framlögum sem aö þessu sinni voru 330.000 frá hvorum aðila. En þaö kemur lika í þeirra hlut að greiða tapið. Haft er eftir Davíð Oddssyni borgar- stjóra í Morgunblaöinu 30. júní að tapið af hátíð- inni sé meira en svo að við það verði unað og því verði að koma til einhverjar róttækar breytingar. Albert Guðmundsson fjármálaráðherra sagði í samtali við DV að hann teldi óhjákvæmilegt að taka grundvöll hátíðarinnar til endurskoöunar. „Ég tek undir það sem borgarstjóri hefur sagt um það. Það hefði jafnvel mátt gera það fyrr. Eg tel alls ekki verjandi að halda svona áfram,” sagði Albert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.