Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 22
ÐV'. LAUG'ARBAGUít 7.JGL11984.
Þótt opinberar heimsóknir séu
góíra gjalda verðar fylgir þeim ryk á
vegum eins og sýnt var í sjónvarpinu
á dögunum og þó er varla sanngjamt
aö kenna forsætisráöherra Dan-
merkur um rykiö á vegunum því aö
þeir eiga vanda til að fjúka eitthvaö
út í buskann á hverju sumri og voru
reyndar enn aö fjúka þegar ráðherr-
ann var farinn að háma í sig rækju-
kokkteil og ristaöa önd niðri við
Tjarnargötu.
Hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu
köllum viö þaö bliöviöri ef hitinn
kemst í þrettán gráöur á selsíus og ef
sést til sólar fer kvenfólkiö í sund-
skýlurnar sínar sem vemda eignina
án þess að skemma útsýniö eins og
gaddavírsgirðingar í sveitum lands-
ins og á þessum sólskinsdögum
hætta menn á mínum aldri sér ekki
niður í bæ akandi af ótta viö aö lenda
í árekstri því aö þótt Þingeyingar
hafi foröum daga ekið eftir minni
meö góðum árangri er ekki víst aö sú
aðferð dugi hér í höfuðborginni.
Eins og ég hef sagt áöur er ég dá-
lítiö áttavilltur í borginni og á því
erfitt meö að horfa í hina áttina þeg-
ar ég ek fram á allsbert kvenfólk
sem hefur þaö eitt fyrir stafni aö
iiggja í garöinum sínum og reyna að
veröa útf jólublátt um allan kroppinn
vegna þess aö því finnst svo gaman
aö vera brúnt og sætt eins og kart-
öflugarðar bændanna fyrir austan
fjall eftir uppskerubrestinn í haust.
Benedikt Axelsson
Svona veður meö sólskini og beru
kvenfólki kemur yfirleitt daginn eftir
aö veöurfræöingar hafa haldið hálf-
tíma ræðu um hvaö þaö veröi skýjaö
Fjölmennt lið skák
manna í Flatey
— á 24. helgarskákmótinu. Helgi sigraði að vanda
Aö Jóhann Þórir, ritstjóri tíma-
ritsins Skákar, skyldi láta sér detta í
hug að efna til helgarskákmóts í
Flatey. lýsir vel bjartsýni hans og
hugmyndaauögi. Heirnamenn voru í
fyrstu tregir tfl en létu þó tfl leiðast og
sjá vonandi ekki eftir neinu. Hitt er
vist aö skákmenn munu minnast
þessa móts með mikilli ánægju. Mót-
tökur heimamanna voru hlýjar og
höfðinglegar og mótiö tókst vel að
öllu leyti. Meira aö segja veður-
guðimir voru skákmönnum
hliöhollir.
Þaö voru 32 skákmenn sem þátt
tóku í þessu móti sem var hið 24. í
röðinni af helgarmótunum. Kepp-
endur bjuggu flestir í tjöldum, enda
er ekki nema rétt á annan tug manna
á íbúaskrá í Flatey. Borö og stólar
komu siglandi meö flóabátnum
Baldri en mótsstaðurinn var frum-
legur: Teflt var í frystihúsinu, sem
einu sinni var. Aö visu var sá móts-
staður ekki upp á marga fiska en þó
kvartaði enginn. Ef hroll setti að
mönnum var heitt á könnunni og
lýsingin var sjálfum Fischer sam-
boðin, eins og Jóhann Þórir komst aö
orði.
Annars er það engin nýlunda aö
tefld sé skák í Flatey. I feröabók
Eggerts og Bjama segir frá því hve
gestrisnir eyjamenn séu viö aðkomu-
menn sem leggja leiö sína yfir
Breiöafjöröinn eða koma til aö eiga
viö þá verslun. ,,Menn skemmta
gestum meö því aö fá þeim fomar
sögur til lestrar eöa tef la viö þá skák
o.s.frv., en þetta er helzta dægradvöl
manna hér í tómstundum þeirra.”
Vonandi verður þetta mót til þess aö
endurreisa skákáhugann íFlatey.
Á laugardeginum var farið i
gönguferð um Flatey og siglingu
til eyjanna í kring, undir leiösögji
Eysteins Gislasonar, Skáleyjum, og
Hafsteins Þorsteinssonar, Flatey.
Undirbúningsvinna hvíldi aö miklu
ieyti á herðum þeirra og þeir voru
keppendum og öðrum aðkornu-
mönnum mjög innan handar móts-
dagana. Fuglalíf er fjölskrúöugt
þama í eyjunum og lætur nærri
hvílíkt f oröabúr eyjarnar hafa veriö í
haröindasögu landsins. Keppendur
fengu reyndar smjörþefinn af
kræsingunum í lokahófinu: Boöið
var upp á skelfisk, lunda, skarf og
selspik og var ekki annað aö sjá en
að þetta félli skákmönnum vel í geö.
En víkjum aö sjálfu mótinu. Helgi
Ölafsson hefur veriö afar sigursæll á
helgarmótunum og brá heldur ekki
út af vananum í þetta sinn. Hlaut
6 1/2 vinning úr sjö skákum og
sigraöi örugglega. Eini keppinautur
hans um fyrsta sætiö var Jón L.
Árnason en í 5. umferö lá hann flatur
fyrir Helga í örfáum leikjum og
mátti þá gera sér 2. sætiö aö góöu.
Staöa efstu manna:
1. Helgi Olafsson 61/2 v. af 7.
2. Jón L. Ámason 6 v.
3. -6. Ásgeir Þór Árnason, Gunnar
Gunnarsson, Karl Þorsteir.s og
Tómas Björnsson 5 v.
7.-8. Guðmundur Halldórsson og
Haraldur Baldursson 41/2 v.
Bestum árangri kvenna náði
Sigurlaug Friöþjófsdóttir, sem hlaut
4 v., Sturla Pétursson var sigur-
sælastur öldunga og Þormar Jónsson
Patreksfirði varö efstur dreifbýlis-
manna.
Fyrirhugaö er aö næsta helgar-
skákmót veröi á Djúpavogi 24.-26.
ágúst og þá er ætlunin aö fara út í
Papey og tefla 1. skákina þar. Veröi
af því hafa skákmenn farið ,,út fyrir
landsteinana” í öllum lands-
fjóröungum. Já, Jóhann Þórir lætur
sér ekki allt fyrir brjósti brenna...
Frá helgarmótinu í Flatey:
Hvítt: Ásgeir Þór Árnason
Svart: Karl Þorsteins
Sikileyjarvöra.
NMí Danmörku:
SLEMMA OG GAME
HÉLT LEIKNUM Á FLOTI
Islenska kvennalandsliöinu á Norö-
urlandamótinu í bridge gekk nokkuö
vel til þess aö byrja með, en missti aö
lokum af þriöja sætinu meö litlum
mun.
I 8. umferð spilaði liðið við Dan-
mörku og tapaöi með 4 stigum gegn 16.
I seinni hálfleiknum skoraöi Island að-
eins í tveimur spilum, en þaö gerði
samt 25 impa. Halla Bergþórsdóttir
skellti sér í harða slemmu og vann,
meöan dönsku dömumar á hinu borö-
inu létu sér nægja game. Þaö vora 13
impar. Síöan vann hún fjögur hjörtu í
eftirfarandi spili, sem Daninn á hinu
borðinu tapaði.
Vestur gefur/allir á hættu.
Vmi ii
* G3
AD963
0 KDG62
* n
.N.WKI'U
* AKD1064
10
103
* 8743
......
a 98
G82
98
* AKDG62
>f»H K
* 752
K754
A754
* 105
BREYTT SÍMANÚMER
MITT EFTIR BREYTINGU ER NÚ
68-53-15.
Hilmar Jensson,
umboðssöluleyfi.
I opna salnum sátu n-s Ester Jakobs-
dóttir og Valgerður Kristjánsdóttir, en
a-v Schaltz og Dahl. Dönsku dömurnar
enduðu aö sjálfsögðu í fjórum hjörtum
og Ester byrjaöi meö því að taka tvo
slagi á spaöa og spilaöi siöan laufi.
Sagnhafi drap, svinaöi hjartagosa,
síöan hjartaáttu og spilaöi síöan meira
trompi.
, Sagnhafi haföi nú náö hjartakóngn-
um af suðri, en varð síðan að gefa tvo
slagi á tígul, einn niður.
I lokaöa salnum sátu n-s Kalkerup og
Möeller, en a-v Kristjana Steingríms-
dóttir og Halla Bergþórsdóttir.
Halla varð einnig sagnhafi í fjórum
hjörtum og nú tók norður tvo slagi á
spaöa og spilaöi síðan meiri spaöa í
tvöfalda eyðu. Halla trompaöi í blind-
um og kastaöi tígli aö heiman. Síöan
spilaöi hún hjartagosa sem átti slag-
inn.
Þá komu tveir hæstu í laufi og tígli
kastaö og hjartaáttu svínað. Nú var
einfalt aö halda áfram meö laufiö því
að suöur átti engra kosta völ. Ef hann
trompar ekki, þá hverfa tíglamir ofan
í laufið og ef hann trompar, þá missir
hann trompslaginn.
Slétt unnið og 12 impar til Islands.
MATRÁÐSKONA
Úskum að ráða konu til sumarafleysinga við að hella upp á kaffi og
smyrja brauð frá 23. júlí - 27. ágúst.
Upplýsingar gefur Ólafur Brynjólfsson.
Frjáls fjölmiðlun,
prentsmiðja,
Síðumúla 12.
I.e4 c5 2.Rf3 Rc6 3.Rc3 d6 4.d4 cxd4
5.Rxd4 Rfo 6.Í4 Db6
Svartur leggur út í ævintýri en ein-
faldasta svariö við 6. leik hvíts, sem
er harla óvenjulegur, er aö skipta
yfir í drekaafbrigöið meö 5.-g6!
Annar möguleiki er 5.-e6 sem leiöir
til margþvældrar stööu í svonefndu
Scheveningen afbrigöi.
7. Be3?!
Varla stenst þessi peösfórn
ströngustu kröfur því aö svarta
drottningin sleppur út eftir 7.-Dxb2
8. Rdb5 Db4! o.s.frv. Svartur velur
leik sem ætti aö leiða til jafnteflis.
7.-e5(?) 8.RÍ5 Dxb2 9.Rb5 Rb4?
En nú fer að halla undan fæti. Eftir
9. -Rxe4! á hvítur ekkert betra en aö
þráleika meö lO.Hbl Dxa2 ll.Hal
Db212.Hbl o.s.frv.
8
7
6
5
4
3
2
1
Sumarbridge
Þriöjudaginn 3. júlí var spilaö í
tveim 16 para riölum, sem sýnir stöö-
uga f jölgun þeirra sem taka þátt í sum-
arspilamennsku deildarinnar. Efst
uröuþessipör:
A-riðill
l.Sigm.Jónss,—Vilhj.Einarss. 247
2. Vilhj. Siguröss,—ÞráinnSiguröss. 235
3. Albert Þorsteinss.—StígurHerlufsen 234
4. Bragi Bragas.—Ragnar Hermannss. 231
B-riðili
1-2. Jón V. Jónss.—Sveinbj. Eyjólfss. 244
1.-2. Arnar Ingólfss,—Magnús Eymundss. 244
3. Oli Kristinss.—Ragna Oiafsd. 234
4. Haukur Hanness,—Valdemar Þórðars. 227
Stefán Guðjohnsen
I frétt frá 26. júní féllu niöur nöfn
Halldórs Magnússonar og Valdemars
Elíassonar, en þeir félagar voru í ööru
sæti í B-riðli meö 197 stig, era þeir
beönir afsökunar. Næst verður spilaö
þriöjudaginn 10. júlí. Til þess aö ná
skráningu þarf að mæta fyrir kl. 19.30 í
Siöumúla 35.