Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Síða 34
34 Hverja telur þú möguleika ÍBK vera á Islandsmeistara- titli? — Liöið hefur komiö verulega á óvart og ieikiö vel en ég efast um aö Kef ivikingar haldí þetta út. Guðmundur Heiðar Frímanns- son: — Eg tel þá fremur iitla og þaö kæmi mér á óvart ef þeir næöu titlinum. Þorbcrgur Ólafsson: — Ekki nokkra, titillinn er frá- tekinn fyrir Þór, því miður. Máliö erdautt. Sigurbjörn Gunnarsson: — Allsenga. Óiafur Asgeirsson: — Keflvíkingarnir eru ekki nógu góðir til að veröa meistarar. Ragnar Sverrisson: — Enga. DV. LAUGARDAGÚr 7. JULI1984. IBK — IBK — IBK—IBK—IBK—IBK—IBK—IBK—IBK — IBK „Þeir verða áfram í toppbaráttunni” — segir Þorsteinn Ólafsson, þjálfari Þórs á Akureyri „Ég hef ekki séð mikið til ÍBK-liðs- ins, við erum að vísu búnir að spila við það og svo hef ég aðeins séð til þess þar fyrir utan,” sagði Þorsteinn Ólafsson, markvörður og þjálfari Þórs á Akur- eyri, er við báðum hann að tjá sig um ÍBK-Iiðið. Þorsteinn þekkir reyndar vel til liðsins (eða gerðij en hann lék lengi með ÍBK hér á árum áður. „Styrkleiki leikmanna liðsins felst aöallega í því hvað þeir eru líkamlega sterkir og baráttan er til staðar eins og reyndar hefur oftast verið hjá IBK. Þeir eru með menn sem hreinlega geta unnið leiki, menn eins og Þorstein Bjarnason í markinu og Ragnar Mar- geirsson frammi sem ég tel vera sterk- asta sóknarmann í íslenskri knatt- spyrnu nú. Þá eru þeir sterkir á miöj- unni, Sigurður Björgvinsson, sem held- ur spilinu gangandi og gefst aldrei upp, og Einar Ásbjörn er mjög sterkur. Og bakveröirnir litlu en knáu standa alltaf fyrirsínu.” — En veikleikar liösins? „Eg sé þá ekki svona í fljótu bragði. Þaö er þó ekki ósigrandi og ef andstæö- ingum tekst aö spila og láta boltann ganga þá er hægt aö komast í gegnum þaö eins og önnur lið.” Hvar heldur þú að ÍBK-liöið komi til meö aö hafna þegar upp verður staöiö í haust? „Þaö verður áfram í toppbaráttunni, liöid er vel mannað” — segirSamúel Örn Erlingsson „Það fer ekki milli mála að Keflvík- ingar fengu fljúgandi start í 1. deild. Eg verð að viðurkenna að í þeim leik sýndi liðið enga meistara-takta,” sagði Samúel Örn Erlingsson, íþróttafrétta- maður og ábyrgðarmaður íþróttasíðu NT, í samtali við DV. „Keflavíkurliðið er vel mannað. Vörnin er aöal liösins. Þeir Þorsteinn Bjarnason og Valþór Sigþórsson eru mjög sterkir ásamt báöum bakvöröun- um sem eru meö þeim betri hér á landi í dag. Liöið fær á sig lítiö af mörkum og það er spurningin hve sóknarmenn liösins geta skorað mikiö af mörkum. Sóknarmenn liösins eru hættulegir en hafa ekki náö sér nægilega vel á strik þaö sem af er mótinu. Þeir geta betur. Eg verö að segja eins og er aö ég hef ekki trú á aö IBK, frekar en önnur lið, blandi sér í toppbaráttu. Ég fæ ekki betur séð en Akurnesingar fari nokkuð létt með að vinna þetta íslandsmót. Hin liðin veröa í einum hnapp á eftir,” sagðiSamúelörn. -sk. Samúel örn Erlingsson. ég er ekki i nokkrum vafa um það. Eg segi þetta ekki vegna þess að ég hef taugar til liðsins heldur vegna þess aö ég lít raunsætt á máliö.” — En hverjir hampa bikarnum í lok- in? „Ég held að það veröi Skagamenn, þeir eru með þaö reynt og heilsteypt liö aö þeir ættu að geta haldið þeirri for- ystu sem þeir hafa náö. Þeir hafa hins vegar verið heppnir í nokkrum leikjum sem ég hef séð til þeirra í, en það er yfirleitt ekki spurt að því þegar frá líö- ur. Þaö verða fyrst og fremst Keflvík- ingar sem koma til meö aö veita þeim keppni og ég sé ekki aö önnur lið blandi sér af alvöru þar inn í. Eg vona þó aö Þór eigi eftir að velgja þeim undir ugg- um, þessum liðum, við viröumst vera aö komast á skriö núna.” — En hverjir falla ? „Það getur hvaöa lið sem er falliö nema Akranes og IBK. Það eru öll liðin í einum hnapp og liðin eru jöfn. Þaö virðist sem allir geti unnið alla og eng- in ieið að spá fyrir um hverjir falla í 2. deild,” sagði Þorsteinn Oiafsson. -SK Við bregðum okkur nú suður með sjó og kynnum lið Keflvík- inga. Óhætt er að segja að ekkert lið hefur komið meira á óvart í sumar en lið ÍBK. Flestir áhugamenn um knattspyrnu spáðu lið- inu lélegu gengi í upp- hafi móts en reyndin hefur orðið önnur. Kefl- víkingar höfðu um tíma forystu í 1. deild ís- landsmótsins og staða liðsins í dag er ekki slæm. Þegar þetta er skrifað skilja fjögur stig lið ÍBK og ÍA sem flestir veðja á sem meistara. Það er ekki mikill munur og Kefl- víkingar, sem hafa á að skipa miklu baráttu- liði, gætu hægiega unn- ið þann mun upp í næstu leikjum. Farið er að síga á seinni hluta kynningar- innar. Eftir að taka fyr- ir tvö lið, Víking og Val, og í næsta helgarblaði kynnum við lið Víkings. -SK. Þorsteinn Ólafsson. Leikmenn ÍBK Sjö nýir leikmenn leika með Keflvíkingum í sumar en þeir eru: Helgi Bentsson, sem lék áður með Þór Ak., Sigurjón Sveinsson, lék áður með Reyni S„ Valþór Sigþórsson, áöur með ÍBV, Kristinn Jóhannsson, áður með Grindavík, Jón Sveinsson, áður með Grindavík, Guðjón Guðjónsson, áður með KA, og Helgi Sigurbjörnsson, áður með Víði, Garði. Fjórir leik- menn hafa yfirgefið herbúðir Keflvikinga en þeir eru: Skúli Rósantsson, sem leikur með Njarðvík, Óli Þór Magnússon, sem leikur með Þór Ak., Freyr Sverrisson, sem leikur með Njarðvík, og Páll Þorkelsson, sem einn- ig leikur með Njarðvík. Leikmenn ÍBK-liðsins í sumar eru þessir: Þorstcinn Bjarnason, 27 ára lögregluþjónn. Sigurður E. Björgvinsson, 24 ára versiunarmaður. Kristinn Jóhannsson, 28 ára netagerðarmaður. Kári Gunnlaugsson, 29 ára tollvörður. Magnús H. Garðarsson, 26 ára verkstjóri. Jón Pálmi Pálsson, 19 ára nemi. Valþór Sigþórsson, 28 ára húsasmíðameistari. Gísli M. Eyjólfsson, 29 ára sölustjóri. Brynjar G. Steinarsson, 18 ára nemi. Ægir Már Kárason, 19 ára nemi. Einar Ásbjörn Ólafsson, 28 ára lögregluþjónn. Guðjón Guðjónsson, 29 ára verslunarmaður. Jón S. Ólafsson, 19 ára símsmiður. Ingvar Guðmundsson, 21 árs nemi. Helgi Bentsson, 22 ára húsasmíðanemi. Sævar Júlíusson, 24 ára verkamaður. Rúnar Georgsson, 29 ára verslunarmaður. Óskar Færseth, 25 ára verslunarstjóri. Ragnar Margeirsson, 21 árs skrifstofumaður. Sigurjón Sveinsson, 23 ára húsasmíðameistari. Gunnar Oddsson, 19 ára nemi. Þjálfari er Haukur Hafsteinsson. ÍBK - ÍBK - ÍBK - ÍBK - ÍBK - ÍBK - ÍBK—ÍBK — ÍBK - ÍBK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.