Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 35
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984.
35
ÍBK — ÍBK — ÍBK—ÍBK—ÍBK—ÍBK—ÍBK — ÍBK—ÍBK—ÍBK—IBK—ÍBK
Leikmenn ÍBK keppnistímabilið 1984.
„Aðaltakmark okkar er að
hanga í Skagamönnunr
— segir miðvallarspilarinn sterki, Sigurður Björgvinsson
Ég held að Keflvikingar séu almennt
ánægðir með frammistöðu liðsins i
sumar. Ég bjóst alveg við þessu.
Okkur hefur að visu gengið frckar iila
að skora en það á eftir að koma,” sagði
Sigurður Björgvinsson, miðvallar-
spilarinn sterki i Keflavik, í samtali
við DV.
„Það er ljóst að vörnin hefur haldiö
okkur á floti. Við fengum Valþór
Sigþórsson til liðs við okkur frá Vest-
mannaeyjum og ég tel hann vera einn
sterkasta miðvörð á landinu í dag.
Hann hefur styrkt lið okkar gífurlega
mikið. Einnig fengum við þá Guðjón
Guðjónsson og Helga Bentsson og þeir
hafa staðið sig mjög vel. Síðan
misstum við Ola
Ég tel mikilvægast að
ValþÓr. nirinir hofiir nllfgf
Sigurður Björgvinsson.
sterkan miðvörð síðan Gísli Torfa-
son hætti. Við höfum lagt mikla
áherslu á varnarleikimi á æfingum og
það hefur skilaö sér. Það má segja að
sóknarleikurinn hafi orðið útundan en
við erum að taka hann í gegn þessa
dagana. Eg er þess fullviss að við
eigum eftir að skora mikið af mörkum.
Það hefur verið mikil pressa á þeim
Ragnari Margeirssyni í f ramlínunni en
þeir eiga eftir að skora í næstu
leikjum.”
„Miklu betri knattspyrna
en í fyrra"
Hvað finnst þér um knattspymuna í
sumar samanborið við siðastliðiö
sumar?
„Mér finnst knattspyrnan ekki sam-
bærileg í sumar. Boltinn er miklu
miklu betri. Liðin eru mjög jöfn að
getu og það er ekkert lið í 1. deiidinni
sem leikur varnarleik. Leikirnir hafa
verið skemmtilegri fyrir bragöið. KR-
fótboltinn er liðin tíð sem betur fer. Að
mínu viti er knattspyman í sumar betri
en hún hefur verið í mörg ár. Það eru
alltaf leikir og leikir sem eru leiðin-
legri en aðrir og það er eölilegt.
Leikirnir sem eru mjög skemmtilegir
eru einfaldlega miklu fleiri.”
„Wð ieikum
ekki varnarleik"
Nú hefur IBK-Iiðið fengið þaö orö á
sig að vera vamarlið, leika varnarleik.
Hvað vilt þú seg ja um þetta?
„Takmark okkar
aö hanga í Skaganum"
Verður IBK meistari í ár?
„Eins og ég sagöi áöan lentum viö í
basli með varnarleikinn í byrjun móts.
Viö höfum eytt miklum tíma í að bæta
hann og það kann að vera að það hafi
bitnaö á sóknarleiknum. En ég sam-
þykki það aldrei að við spilum vamar-
leik. Ég er til að mynda eini tengi-
liðurinn í liðinu sem dregur sig aftar.
Hinir em meira í sókninni. Helgi og
Ragnar eru síðan frammi og bakverðir
okkar eru báðir sókndjarfir. Eg vil
ítreka aö viö höfum lagt mikiö kapp á
það að undanfömu aö laga sóknar-
leikinn og ég er handviss um að hann
mun lagast.”
,,Já, ég hef mikla trú á því. Skaginn
hefur að vísu nokkurt forskot en þdr
eiga erfiöa leiki framundan sem þeu-
geta hæglega tapaö. Geri þeir það og
við vinnum okkar næstu leiki gegn
Víking og Val hér í Keflavík getur allt
skeð. Það er langt í næstu liö og
stærsta takmark okkar, eins og staðan
er í dag, er að hanga í Skaganum. Það
skal takast,” sagði Siguröur
Björgvinsson.
-SK
Guðni er með flesta
landsleiki hjá ÍBK
AUs hefur 21 lelkmaéur ieikið
landsleiki fyrir íslands hönd. Sam-
tals era landsleikirnir orðnir 203.
Leikjahæstur er Guðni Kjartansson
cn hann hcfur Icikið 31 leik. Guðni
hcfur oftast verið fyrlrUði landsliðs-
ins, sjö sinnum. GisU Torfason hefur
leikið 29 landsleiki, Einar Gunnars-
son 25 og Ölafur Júlíusson 17. Þor-
stcinn Bjarnason lék sinn 25. lands-
leik gegn Norðmönnum fyrir
skemmstu.
KeflvUdngar hafa ekki skorað mik-
ið af mörkum í landsleikjum sínum.
Þeir Óli Þór Magnússon, sem í sum-
ar leikur með Þór frá Akurcyri, og
Magnús Torfason hafa skorað tvö
mörk hvor. -gg.
Guðni Kjartansson.
-IBK-IBK-IBK — ÍBK - ÍBK - ÍBK - ÍBK—ÍBK—ÍBK — IBK - ÍBK - ÍBK