Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Qupperneq 40
FRETTASKOTIÐ
• •
SIMINN
SEM
ALDRE8
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gsett. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ1984.
Skotmaður-
inn ákærður
Ríkissaksóknari hefur ákært Mar-
tein Kristján Einarsson, sjómann frá
Akranesi, fyrir aö hafa stofnað lífi og
heilsu vegfarenda, lögreglumanna og
annarra nærstaddra í augljósan háska
meö ófyrirleitnum og háskalegum
hætti.
Marteini er gefiö aö sök aö hafa
föstudagskvöldiö 4. maí síöastliöinn,
vopnaður haglabyssu og skotfærabelti,
tekiö til viö aö skjóta á bifreiöar sem
leið áttu um Vesturgötu og síðar á
undanhaldi haldiö uppi skothríö aö lög-
reglumönnum án þess aö skeyta um
hvar skotin lentu, allt þar til hann var
yfirbugaður um borö í trillu í slipp.
Hinn skotglaði Skagamaöur hefur
setiö í gæsluvarðhaldi frá því hann
framdi verknaðinn. Gæsluvaröhalds-
úrskuröur hans var framlengdur 4.
júli síöastliöinn til 1. ágúst næstkom-
andi. Framlengingin hefur verið kærö
tilHæstaréttar. -KMII.
KFUM hafnar
tilboði
um tívolí
Slitnaö hefur upp úr samningaviö-
ræöum eigenda Hótel Borgar og
KFUM um leigu á félagsaöstöðu síöar-
nefnda aöilans á horni Sunnuvegar og
Holtavegar undir rekstur tivolís.
,,Það verður ekkert úr þessu,” sagði
Siguröur Kárason, eigandi Borgar-
innar, sem leitar nú meö logandi ljósi
aö öðrum ákjósanlegum staö fyrir
tívolíið sitt. KFUM-svæðið við Siumu-
veg heföi hentað vel fyrir tívolí, þar er
ágætishús og aöstaöa til íþróttaiðkana
utanhúss. Þaö veröa því engir skot-
bakkar, parisarhjól, glaumur og gleöi í
garðinum hjá KFUM í nánustu fram-
tíö. -EIR.
Skólinn fyllt-
istaf reyk
Slökkviliöiö var kallaö út i gærdag aö
Þinghólsskóla í Kópavogi en þar
reyndist vera eldur laus í rusli fyrir
utan skólann. Rúöa á skólanum hafði
sprungið í hitanum og var skólinn þvi
fullur af reyk er slökkviliðið kom aö.
Tók drjúgan tíma aö ná reyknum úr
skólanum en slökkviliðiö notaöi tvo
blásara til þess. -FRI
LUKKUDAGAR
7. júlí
33079
LEIKFANGAVIRKI FRÁ
I.H. HF. afl
VERÐMÆTI KR. 1.000,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
1 m$iM
LOKI
Verður Haukdal ekki að
fara í guðfræðina?
Haukdal og hans menn iðnir við kolann:
Verður hempan tek-
m af sera Pali?
—52 sóknarböm í Vestur-Landeyjum hafa skrifað undir
lista varðandi ósk um að losna undan sóknarböndum
séra Páls Pálssonar
Fyrir skömmu fóru stuönings- aö fá aö sjá þessa lista en ekki sveitinni. „Ég vil ekkert láta hafa
menn Eggerts Haukdal meö undir- fengið. eftirmér,”sagðihann,þrátt fyriraö
skriftalista um Vestur-Landeyja- Snorri Þorvaldsson, bóndi i á miövikudag hafi hann farið ásamt
sveit þar sem undirritaöir óskuöu Akurey, tók í sama streng og sagöi Eggert Haukdal á biskupsstofu og
eftir þvi aö losna undan sóknarbönd- að mjög dult heföi verið fariö meö afhent listana.
um séra Páls Pálssonar á Bergþórs- listana og aöeins sumir sveitungar Samkvæmt heimildum DV er
hvoli. 52 munu hafa skrifaö undir. fengiöaðsjáþá. verið að kanna þetta mál hjá
Hafa biskupi, hr. Pétri Sigurgeirs- er alveg gáttaöur á því aö biskupsembættinu. Mun jafnvel
syni, þegar verið afhentir undir- mennskulinennaaöstandaíþessu,” fyrirhugaö aö setja nefnd í málið
skriftalistarnir. Samkvæmt heimild- sagöiSnorri. „Égheldaðfólkhafial- sem heimsæki þá er skrifuöu undir
um DV íhugar biskpusembættiö aö mennt ekki gert sér grein fyrir undir til aö spyrja þá spjörunum úr
leysa séra Pái frá störfum um 3ja hvaö það var að skrifa heldur gert varðandi deilur þessar til að komast
mánaða skeiö á meðan máliö er í þaö fyrir HaukdaL Ég veit ekki til botns i krytunum. Á meðan verði
rannsókn. nema um tvö heimili hér í sveitinni séra Páll i 3ja mánaða frii og séra
„Þetta er alveg furöulegt þar sem sem ekki hafa notað séra Pál til Sváfnir Sveinbjamarson, sóknar-
séra Páll skrifaði yfirlýsingu á prestsverkahingaðtil.” prestur á Breiöabólstaö, gegni
dögunum um aö hann drægi allar Tómas Kristinsson í Miðkoti og prestsstörfum á Bergþórshvoli á
kærur á Eggert Haukdal til baka og einn aðalforsvarsmaður undir- meðan. 1 samtali viö DV sagöist
svo kemur þetta,” sagði Haraldur skriftalistanna sagðist i fyrstu Sváfnir þó ekki hafa fengiö bréf upp
Júlíusson sem sæti á í sóknamefnd ekkert kannast við þetta mál. Með áþaðennþá.
Bergþórshvolsprestakalls. Hann eftirgangsmunum játti hann þó því Hvorki séra Páll Pálsson né Egg-
sagði að hann heföi ítrekað beöið um aö eitthvaö þessu Úkt væri í gangi í ert Haukdal vildu tjá sig um málið.-KÞ
Umferðarslys varð á mótum Hörgslands og Haðalands i Fossvogi siðdegis igær er ungur maður keyrði a
stóru mótorhjóli sinu beint framan á jeppa. Við áreksturinn kastaðist hann af hjólinu töluverða vegalengd
og er mikið slasaður. D V-m yndS
EGGJADREIFINGAR-
STÖDVUM FJÖLGAR
Um mánaðamótin tekur til starfa
eggjadreifingarstöö að Vallá á
Kjalamesi. Þar hefur veriö reist 450
fermetra bygging og á næstu dögum
verður nýjum vélum komiö fyrir á
staðnum. AÖ sögn Geirs Gunnars
Geirssonar aö Vallá hefur hann
fengið til landsins þvottavél, gegn-
umlýsingartæki og sjö flokka
flokkunar- og pökkunarvél.
„Viö veröum þá tilbúnir að
framfylgja öllum heilbrigöiskröfum
og öörum sem eggjaframleiöendum
er skylt aö framfylgja,” sagöi Geir
Gunnar í viötali viö DV. Um þessar
mundir er aö taka til starfa eggja-
dreifingarstöö í Kópavogi sem
Samband eggjaframleiöenda hefur
reist meðal annars fyrir lánsfé úr
kjamfóðursjóði. Stöðin að Vallá er
ekki reist fyrir fé úr kjarnfóðursjóði.
Gunnar Jóhannsson, eggja-
framleiöandi á Ásmundarstööum,
tjáði okkur að á þeim bæ væru menn
að velta fyrir sér aö reisa dreifingar-
stöö á höfuðborgarsvæðinu. Bændur
á Ásmundarstöðum og eigendur
Holtabúsins á Hellu hafa fengið lóö í
Garöabæ fyrir dreifingarstöðina sem
verður 500—600 fermetra bygging.
Gegnumiýsing og pökkun eggja
Holtabúsins verður fyrst um sinn á-
fram fyrir austan hvaö sem síðar
veröur. En ný flokkunar- og
pökkunarvél til búsins kemur til
landsins í haust. Til framkvæmda
hafaÁsmundarstaðabændursótt um
lán úr kjamfóöursjóði „til að sitja
við sama borð og aðilar í Sambandi
eggjaframleiðenda”.
Eggjaframleiðendur að Vallá og
Asmundarstöðum eru í nýstofnuðu
Félagi alifuglabænda, sögðu sig úr
Sambandi eggjaframleiðenda fyrir
nokkrum mánuðum. .þG.
Skrautlegir púkar og figúrur sáust á '
ferli i miðbæ Reykjavíkur ígær. Þar
voru komnir krakkar úr félagsmið-
stöðvum borgarinnar sem gerðu
sér glaðan dag og gengu frá
Hlemmi og áðu á Arnarhóli.
D V-mynd Arinbjörn.
Sumarleyfi 33
stef nt í voða
— hundóhress, segir
Karl Sigurh jartarson
r
Urvalsforstjóri
„Okkur hefur tekist aö gera gott úr
vondu máli; allir viðskiptavinir okkar
lentu þó í réttu landi,” sagði Karl
Sigurhjartarson, forstjóri ferðaskrif-
stofunnar Urvals, en minnstu munaði
að sumarleyfi 33 Islendinga rynni út í
sandinn vegna mistaka forráðamanna
sumarhúsabyggðarinnar í Daun Eifel í
Móseldalnum í Þýskalandi.
, Jláðamennirnir í Daun Eifel gerðu
alvarlegar yfirbókanir og sendu svo
frá sér neyðaróp í lok júni um aö ekki
yröi unnt aö taka á móti fleiri gestum.
Þá sátum við uppi með 33 viðskipta vini
sem búnir voru að greiða fyrir ferðina
og vorum í stökustu vandræðum. Ég
var hundóhress og er það enn,” sagði
Karl.
Málið hefur nú leyst farsællega,
helmingi hópsins var komiö fyrir í
sumarhúsum í nokkurra kilómetra
fjarlægö frá Daun Eifel en hinn helm-
ingurinn sendur i sams konar sumar-
hús í nágrenni Frankfurt. Tveggja
vikna ferö til Daun Eifel kostar um 15
þúsund krónur og voru ferðalöngunum
33 boðnar 1000 krónur í afslátt auk
ókeypis skoðunarferða og veislu.
„Það breytir ekki þeirri staðreynd
að þetta fólk fær ekki sama hlutinn og
það pantaði og nú er bara aö bíöa og
sjá hvort það verður ánægt þegar það
kemur heim,” sagöi Urvalsforstjórinn.
________________________-EIR.
Fékknú nýra
úrmóðursinni
Ingvi Steinn, drengurinn frá Akur-
eyri sem liggur á sjúkráhúsi í Boston,
fékk á þriöjudaginn nýra úr móöur
sinni. Þann 10 apríl sl. var grætt í hann
nýra úr föður hans en líkami hans
hafnaði því skömmu síðar.
Eftir þá aðgerð var ætlunin að fá
nýra úr nýrnabanka. Læknum sjúkra-
hússins þótti hins vegar ekki ráðlegt að
bíöa lengur og því var fengið nýraö úr
móðurinni. Mæðginunum heilsast ágæt-.
lega og nýrað virðist starfa eðlilega.
Hann var fluttur af gjörgæsludeild í
fyrradag,
Mikiar vonir eru bundnar við nýja
lyfjameðferð sem drengurinn fær, en á
henni verður hann að vera í sex
mánuöi. JBH/Akureyri
ViljaúrBSRB
Rafeindavirkjar innan ríkisfjöl-
miðlanna, Pósts og síma og Flugmála-
stjórnar vilja nær allir fara úr BSRB
og vera saman í einu félagi, Sveina-
félagi rafeindavirkja, en um 95%
þeirra munu hafa undirritað vfir-
lýsingu þess efnis. — FRI.