Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1984, Side 2
18
Los Angeles
Q$?9 il*Uík-j
Q$?9
DV. MIÐVIKUDAGUR1. ÁGUST1984.
Los Angeles
Q$?9
1
Kostnaður Rúmeníu
greiddur að mestu
— og einnigflug margra þátttakenda Afríkuþjóða
Rúmenia, eina þjóðin í Varsjár-
bandalaglnu sem mætti á ólympíu-
leikana i Los Angeles, þurfti aðeins
að greiða þriðjung af þeim kostnaði
sem það hafði í för með sér að taka
þátt í leikunum, eftir því sem
forráðamenn leikanna sögðu í Los
Angeies í gær.
Afganginn, um 120 þúsund doll-
ara, lagði ólympíska framkvæmda-
nefndin í Los Angeles og alþjóöa-
ólympíunefndin fram. Sú ákvörðun
að styrkja Rúmeníu til þátttöku
var tekin eftir að Sovétríkin og
nokkrar aðrar þjóðir höfðu hætt við
þátttöku í leikunum. Aður en til
þess kom áttu þátttakendur
Rúmeníu að vera í samfloti með
annarri Austur-Evrópuþjóð í flugi
til Los Angeles. Þegar sú þjóö
hætti viö þátttöku buöust fyrr-
nefndar óiympiunefndir til aö taka
þátt í kostnaði Rúmeníu.
Fleiri þjóðir nutu sama stuðn-
ings og Rúmenía til þess að þátt-
tökuþjóöir yrðu sem flestar. Meöal
' annars greiddi Los Angelesnefndin
kostnaö viö flug fyrir allmargar
Afríkuþjóðir. Þátttökuþjóðir í Los
Angeles eru 140 eða 18 fleiri en þátt-
tökumetið var áöur. Þaö var í
Miinchen 1972 þegar þátttöku-
þjóðirvorul22. -hsím.
• ítaiinn Cova — varð sigurvegari í 10.000 m hlaupi á Evrópumeistara-
mótinu í Aþenu 1982 (27:41,03 min.) og HM-leikunum í Helsinki 1983
(28:01,04). Vinnur hann sinn þriðja sigur í Los Angeies?
Leita að
vinnu
Meðal þess gríðarlega fjöida fóiks
sem flykkst hefur til Los Angeies
undanfarna daga eru hundruð
heimilis- og atvinnuiausra unglinga
sem eru aðallega í leit að atvinnu.
Ganga þeir á milli manna og í einu
blaðanna ytra var sagt frá því að
margir unglinganna hafðu mestan
áhuga á aö fá vinnu í Hollywood, kvik-
myndaverinu fræga.
-SK.
Spáin um lengri hlaupin á OL:
fr Kom in m it ím iti il
að légl Fa S ;ni i ■ 1 Sl igr i”
— segir Portúgalinn Mamede sem hefuraldrei unnið 10.000 m
hlaup á stórmóti
Frá Páli Júliussyni — fréttamanni DV
íLos Angeles:
— Ég hef aldrei unnið sigur í stór-
mótum og því er kominn tími til að
fagna sigri — hér í Los Angeles, sagöi
Portúgalinn Fernando Mamede sem
er heimsmethafinn í 10.000 m hlaupi —
hljóp á 27:13,81 min. í Stokkhólmi á
dögunum með aðstoð frá félaga sínum
Carlos Lopes, sem er spáö öðru sæti —
hans besti tími er 27:17,48 mín.
Það er taliö að „tvíburamir” frá
Portúgal fái keppni frá Italanum
Alberto Cova, sem á bestan tíma
27:37,59 mín. Blaðamenn spá því að ef
10.000 m hlaupið verði rólegt þá verði
Cova hættulegur, því að hann þolir illa
róleg hlaup — og gæti því stungið aöra
keppinauta af ef hlaupið þróaöist
þannig.
Moorcroft orðinn góður
Bretinn Dave Moorcroft, sem hefur
átt við veikindi að stríða, er nú búinn
Chirac býður
ÍOL1992
Frá Þóri Guðmundssyni, fréttamanni
DVíLos Angeles:
Jaques Chirac, borgarstjóri í París í
Frakklandi, hefur sótt um að fá að
halda ólympíuleikana 1992.
Borgarstjórar Barcelona á Spáni og
Amsterdam í Hollandi hafa eínnlg lýst
yfir áhuga á að fá leikana.
-þg/sk.
aö ná sér fullkomlega og er honum
spáð sigri í 5.000 m hlaupi. Hann á
heimsmetið 13:00,42 mín. Gömlu
kempunni John Walker frá N-Sjálandi
er spáð silfri, en hann á bestan tíma
13:20,89 mín. Finnanum Matti Vainio
er spáð þriðja sæti. Hans besti tími er
13:16,02 mín.
• Mamede — fagnar hann sigri að
leikslokum?
Veikindi hafa hrjáð Marsh
Það hafa fleiri átt við veikindi að
stríða en Moorcroft, því að Henry
Marsh frá Bandaríkjunum, sem keppir
í 3000 m hindrunarhlaupi, hefur verið
veikur að undanfömu. Þrátt fyrir það
er honum spáð sigri, eða svo fremi
aö heilsa hans veröi góð. Hann á
bestan tíma í 3000 m hindrunarhlaupi
8:12,37 mín. Bretanum Colin Reitz er
spáð öðrusæti (8:13,78) ogFrakkanum
Josef Mahoud því þriðja — hann á
bestan tíma 8:15,59 min.
• Rob de Castella frá Ástralíu er
spáð sigri í maraþonhlaupi (2:08,37
klst), Lopes frá Portúgal öðru sæti
(2:08.39) og Toshihiko Seko frá Japan
því þriðja. Hans besti tími er 2:08,38
klst.
-PJ/-SOS.
Fjórðu gull-
verðlaun Kína
— Yuwei Li vann öruggan sigur í skotkeppni
Kína hlaut sín fjórðu gullverðlaun,
þegar Yuwei Li sigraði í skotkeppni,
þar sem skotið er á hlut á hreyfingu.
Kínverjinn hlaut 587 stig. I öðru sæti
varð Helmut Bellingdrodt, Kolombíu,
með 584 stig, svo að sigur þess kín-
verska var mjög öruggur. Bronsverð-
launin hlaut Kinverjinn Shiping Huang
með 581. Þetta er í annað skipti i skot-
keppninni sem Kina hlýtur gull- og
bronsverðlaun.
Vestur-Þjóðverjinn Uwe Schröder
varð fjórði, einnig með 581 stig. David
Lee, Kanada, varð fimmti meö 580 og í
sjötta sæti varð Norðmaðurinn
Kenneth Skoglund með 576. 1 sjöunda
sæti varð Jorma Lievonen, Finnlandi,
einnigmeð576. -hsím.
Ingi Þór í 55. sæti
Ingi Þór Jónsson keppti í 1. riðli í 100
m skriðsundi á ólympíuleikunum í gær.
Varð sjötti i riðlinum á 56,31 sek. eða
nokkuð frá sínu besta. Keppendur voru
68 og varð Ingi Þór í 55. sæti saman-
Iagt. Úrslit í 1. riðlinum urðu þessi.
1. Alberto Sosa, Venezuela, 50,99
2. Paul Easter, Bretlandi, 51,83
3. Alex Pilhatsch, Austurriki,
4. Khai Kam Li, Hong Kong,
5. Jin-Gee Oon, Singapore,
6. Ingi Þór, islandi,
7. Rami Kantari, Libanon,
Bestum tima í riðlakeppninni náði
Mark Stockwell, Ástralíu, 50,27 sek.
-hsím.
52,25
53,48
54,17
56,31
61,96
Svfí stefnir
gullverðlaun
í nútíma f immtarþraut
Eftir að þremur greinum var lokið í
gærkvöld í nútima fimmtarþraut var
Sviinu Svante Rasmusson enn með
forustu. Hefur haft hana frá byrjun.
Hann hafði hlotið 3396 stig. Næstur
honum kom italinn Daniele Masala
með 3356 stig og Bretinn Richard
Phclps var í þriðja sæti með 3316 stig.
Ivar Sisniega, Mexíkó, hafði einnig
hlotið yfir 3300 stig eða nánar tiltekið
3302. Síöan var mikill stigamunur i
fimmta keppandann. i sveitakcppninni
Foster spáð sigri
— í 110 m grindahlaupi. Bandaríkjamönnum
spáð öllum verölaunum
Frá Páli Júlíussyni — fréttamanni
DVíLos Angeles:
— Eins og i kúluvarpi og kringlu-
kasti er Bandaríkjamönnum spáð
sigri í 110 m grindahlaupi á OL.
Blaðameun veðja á Greg Foster
sem sigurvegara, en hann á bestan
tíma 13,03 sek. Tony Campell er
spáð öðru sæti (13,23 sek.) og
Roger Kingdom er spáð þriðja sæti,
en hans besti tími er 13,32 sek. Þess
má geta að hann hljóp 110 m
grlndahlaup á 13 sek. sléttum í sl.
viku, en meðvindur var þá of
mikill.
-PJ/-SOS.
Los Angeles
Q$?9
Los Angeles
Q$?9
í fimmtarþrautinni
forustu.
hafði
Italía
-hsím.
Dino
bauð í
partí
Hinn þekkti kvikmyndaleikstjóri,
Dino de Laurentiis, bauð öllum þátt-
takendunum frá Ítaliu í „hanastél”
áður en lelkarnir hófust. Sjálfur var
kappinn ekki viðstaddur í
samkvæminu en sendi likamsræktar-
manninn heimsfræga, Arnold
Schwarzenegger, i sinn stað. Íþrótta-
mennirnir ítölsku létu ekki sjá sig en
hins vegar mætti mikill fjöldi þjálfara
og Uðsstjóra ásamt fararstjórum
ítalska liðsins. Og i lok veislunnar
sýndi Schwarzenegger, sem er einn
þekktasti likamsræktarmaður heims,
viðstöddum vöðva sina vlð mikinn
fögnuð.