Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1984, Blaðsíða 7
24
DV. MÁNUDAGUR13. ÁGOST1984.
33111 999
DV. MÁNUDAGUR13. ÁGOST1984.
Los Angeles
Los Angeles
Portúgalinn Carlos Lopcs sést hér fagna sigri í maraþonhlaupinu í nótt.
voru í höfn.
Fyrstu gullverðlaun Portúgala á leikunum
Símamynd ímorgun: Þórir Guðmundsson.
LOKAHATIÐ
ÓLYSANLEG
þegar 23. ólympíuleikum sögunnar var slitið í morgun
Frá Páli Júlíussyni og Þóri Guðmunds-
syni, fréttamönnum DV í Los Angeles:
Hafi setningarhátíð ólympíuleik-
anna í Los Angeles verið stórkostleg og
vart lýsandi með orðum sló lokahátfðin
í nótt öll fyrri met.
Það var alveg ótrúlegt hvað
Bandaríkjamenn gátu boðið upp á og
Skipting
verðlauna
Lokaskipting verðlauna á álympíuleikunum
í Los Angeles varð sem hér segir:
guii silfur brons
Bandaríkin............83
Rúmenía...............20
Vestur-Þýskaiand......17
Kina..................15
Ralía.................14
Kanada................10
Japan.................10
Xýja-Sjáland.......... 8
Júgóslavía............ 7
Suður-Kórea........... 6
Bretland............... 5
Frakkland............. 5
Holland............... 5
Ástralía.............. 4
Finnland.............. 4
Svíþjóð............... 2
Mexikó................ 2
Marokkó................ 2
Brasilia................... 1
Spánn.................... 1
Belgía..................... 1
Austurríki................. 1
Portúgal................... 1
Kenýa...................... 1
Pakistan................... 1
Sviss...................... 0
Danmörk.................... 0
Jamaica.................... 0
Noregur.................... 0
Grikkland.................. 0
Nígería.................... 0
Puerto Rico................ 0
Kólombía................... 0
Egyptaland................. 0
Fílabeinsströndin.......... 0
Perú....................... 0
Sýrland.................... 0
Thailand................... 0
trland..................... 0
Tyrkland................... 0
Venexúela.................. 0
Alsír...................... 0
Island..................... 0
Kamerún.................... 0
Dóminíska lýðveldið........ 0
Taiwan..................... 0
Zambía..................... 0
47 þjóðir af 140, sem þátt tóku í k'ikuiium,
hlutu verðlaun. 93 þjóðir komust því ekki á'
blað. -SK.
61
16
19
8
6
18
8
1
4
6
10
7
2
8
3
11
3
0
5
2
1
1
0
0
0
4
3
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
0
0
0
0
0
0
0
0
30
17
23
8
12
16
14
2
7
7
22
15
6
12
6
6
1
0
2
2
2
1
2
1
0
4
3
2
2
1
1
1
0
0
0
0
0
0
0
3
3
2
1
1
1
1
1
slík var stemmningin í lokin aö flestir
þeir sem staddir voru á Memorial
Goliseum leikvanginum grétu af hrifn-
ingu þegar hátiðinni var að ljúka.
Stórkostlegar flugeldasýningar og
fljúgandi furðuhlutir fengu alla við-
stadda og mifljónir um heim allan til
að gapa af undrun. Það var sama við
hvern var talað og í hverjum heyrðist.
Enginn hafði séð neitt álíka áður.
Englendingar fylgdust að sjálfsögðu
með lokahátíðinni í beinni útsendingu
og þulir þeir er áttu að tala með út-
sendingunni komu vart upp orði. Það
eina sem heyrðist í langan tíma var ó
og æ og eftir að 23. ólympíuleikunum
hafði endanlega verið slitið sögöu þeir
ensku að þeir gætu unnað Bandaríkja-
mönnum þess að vera örlitiö montnir.
„Greatest show on earth,” sögöu allir.
I lokaatriðinu í Los Angeles í nótt-
féllust allir í faðma og skipti þá einu
hvort um íþróttafólk, starfsmenn eða
áhorfendur var að ræða. öllum bar
saman um að stórkostlegustu ólympíu-
leikum sögunnar væri lokið. Það var
síðan Spánverjinn, Juan Antonio
Samaranch, formaður alþjóðlegu
ólympíunefndarinnar, sem sleit
leikunum um klukkan sjö að íslensku
tíma í morgun.
PJ/Þó. G./SK.
Bjarni Friðriksson, hetja tslendinga á ólympiuleikunum, sést hér ganga inn á
Memorial Coliseum leikvanginn með íslenska fánann, við lokahátið leikanna i
nótt (íhvítum jakka). Símamynd ímorgun: ÞórirGuðmundsson.
Litli Portú-
galinn
— vann maraþonhlaupið á nýju ólympíumeti
★ Carlos Lopes fagnað gífurlega þegar
hann kom í mark á 2:09,21
Eftlr áratuga keppni á hlaupa-
brautunum vann litli Carlos Lopes,
Portúgal, sinn stærsta sigur þegar
hann varð ólympíumeistari i maraþou-
hlaupi, lokagreininni á 23. ólympíu-
leikunum sem lauk í nótt. Lopez var
fagnað gífurlega, þegar hann kom inn á
ólympíuleikvanginn, af yfir 90 þúsund
áhorfendum, hylltur sem mikill sigur-
vegari í mesta maraþonhlaupi allra
tima. Hann hefur komist á verðlauna-
pall áður á ólympiuleikum, varð annar
í 10000 m á leikunum í Montreal 1976.
Allir hlaupararnir, sem iuku hlaupinu,
komu i mark áður en hliðum var lokað
vegna lokahátíðarinnar.
Framan af hlaupinu hafði Nijboer,
Hollandi, forustu og hraði var mikill.
113 keppendur hófu hlaupið. Hann var
enn í forustuhópnum þegar hlaupið
var háifnað, ásamt Lopez og Robert de
Castella, Ástralíu, sem margir spáðu
sigri, enda hefur hann náð frábærum
tíma á vegalengdinni. Þar voru þeir
einnig John Treacy, Irlandi, Charles
Spedding og Takeshi So og fleiri kunnir
kappar.
Þegar fimm km voru í markið jók
Lopez mjög hraðann og hljóp frá þeim
tveimur sem lengstum höföu fylgt
honum, þeim Treacy og Spedding. Þeir
reyndu þó að fylgja honum eftir eins og
þeir gátu en de Castella varð að gefa
eftir. En Portúgalinn frægi, sem átt
hefur mörg frábær hlaup á þessu ári þó
hann hafi nokkuð staðið í skugga landa
síns Femando Namede, var mjög
sterkur á lokasprettinum og vann
öruggan sigur.
Gífurleg keppni var um annaö sætið
milli Treacy og Spedding. Irinn var
aðeins sterkari. Kom tveimur sekúnd-
um á undan í mark í hinu 42,195 km
hlaupi. Lopes hljóp á 2:09,21, sem er
nýtt ólympíumet. Það eldra átti
Waldemar Cierpinski, Austur-Þýska-
landi, 2:09,55, þegar hann sigraði í
Montreal 1976. Hann vann einnig í
Moskvu 1980. Ursiit.
1. Carlos Lopes, Portúgal, 2:09,21
2. John Treacy, lrlandi, 2:09,56
3. Charles Spcdding, Bretl. 2:09,58
4. Takeshi So, Japan, 2:10,55
5. Robert de Castelia, Astr. 2:11,09
6. Junia Ikangaa, Tansaníu, 2:11,10
7. Joseph Nzau, Kenýa, 2:11,28
8. Djama Robleh, Djibouti, 2:11,39
9. Jerry Kiernan, Irlandi, 2:12,20
10. Rodney Dixon, N-Sjál. 2:12,57
«9
Gullmet
sovéskra
slegið
— USAhlaut83
gullpeninga ÍLA
Bandaríkin hlutu 83 guliverölaun á
ólympiuleikunum í Los Angeies sem lauk i
gær. Aldrei fyrr hefur ein og sama þjóð hlotið
svo mörg gullverðlaun á ólympíuleikum.
Hæsta talan áður var 80 gull sem Sovétrikin
blutu á leikunum i Moskvu 1980. Bandaríkja-
mönnum tókst hins vegar ekki að slá út
heildartölu verðlaunapeninga sem Sovétrikin
hlutu á Moskvuleikunum. Þeir voru samtals
195 (69 silfur — 46brons). Bandaríkin hlutunú
174 verðiaunapcninga, 61 silfur og 30 brons.
Keppnisgreinar á ólympíuleikunum nú voru
fleirl en nokkru sinni áður. hsim.
Bandaríkjamaðurinn Alberto
Salazar, sem náð hefur besta tíma í
maraþonhlaupi, 2:08,13, varðí 15. sæti
,á 2:14,19. Hann setti lítil mörk á
hlaupiö. Var 23 sekúndum á eftir
forustuhópnum þegar hlaupið var
hálfnaö. Daninn Henrik Jörgensen
varð í 19. sæti á 2:15,55, Karel Lismont,
Belgíu, í 24. sæti á 2:17,09. Daninn
Allan Zachariasen kom næstur honum,
2:17,10. Norömaöurinn öyvind Dahl
varðí33.sætiá2:19,28.
Lopes er 37 ára og var elsti
keppandinn í maraþonhlaupinu og þaö
var stór stund hjá honum þegar hann
stóð efstur á verðlaunapallinum — í
fyrsta skipti sem slíkt á sér stað á loka-
hátíðólympíuleika. -hsím.
Mexíkani ólympíu-
meistariígöngu:
Helmingur
keppenda
gaf st upp
— eðavardæmdur
úrleik
Raul Gonzalez, Mexíkó, hafði
algjöra yfirburði í 50 km göngunni á
ólympíuleikunum á sunnudag. Var um
fimm mínútum á undan næsta manni,
Svianum Bo Gustafsson, og hlaut sin
önnur verðlaun á leikunum. Varð í
öðru sæti í 20 km — fyrstu grein
frjálsra iþrótta á ólympíuleikunum.
Gríðarlegur hiti var pegar gangan fór
fram og þetta varð í raun erfiðasta keppnis-
greinin á leikunum, þó ekkert biti á Mexí-
kanann í fyrsta sæti. 34 keppendur hófu
gönguna en aðeins 17 luku henni. 17 gáfust upp
eða voru dæmdir úr leik — hlupu upp.
Raul Gonzalez setti nýtt ólympíumet, ótrú-
legur árangur við hinar erfiður aðstæður.
Bætti eldra metið sem Hartwig Gauder,
Austur-Þýskalandi, setti á Moskvuleikunum,
um 1.58 min. Drsht.
1. Raul Gonzalez, Mexíkó, 3:47,26
2. Bo Gustafsson, Svíþj. 3:53,19
3. Sandro Bellucci, Italíu, 3:53,45
4. Reima Salonen, Finnl. 3:58,30
5. Raff. Ducceschi, Italíu, 3:59,26
6. Carl Schueler, USA, 3:59,46
-hsim.
999
25
999
• Síðasta skipting í 4X100 m boðhlaupinu. Heimsmethafinn Calvin Smith hefur
afhent Carl Lewis keflið og leiðin í mark er greið. Nýtt heimsmet.
Simamynd: NPS.
Heimsmet USA og
Evrópumet Breta
— ótrúlega spennandi 4x400 m boðhlaup karla
Aldrei hefur annað eins boðhlaup verið
háð í sögunni og 4 X 400 m boðhlaup karla að-
faranótt sunnudags á ólympíuleikunum.
Fjórar fyrstu sveitirnar hlupu á innan við
þrem mínútum. Bandariska sveitin sigraði á
nýju heimsmeti á láglaudsbraut. Breska
sveitin varð í öðru sæti og setti nýtt Evrópu-
met. Siðan komu sveitir Nígeríu og Ástralíu
á frábærum tíma. Ákafiega spennandi hiaup
frá byrjun til til loka.
Hlauparinn frægi, Sunday Uti, hljóp
fýrsta sprettinn fyrir Nígeríu sem hafði for-
ustu eftir hann. Sunder Nix, USA, rétt á eftir
og skammt var í sveit Ástralíu. Annan sprett
fyrir Ástralíu hljóp hinn 18 ára Darren
| Clark sem lengi hafði forustu í 400 m hlaup-
inu á leikunum. Hann gaf vel í og eftir tvo
! fyrstu sprettina var Ástralía í fyrsta sæti.
USA skammt á eftir, svo og Nígería og Bret-
j land. Gary Cook, eiginmaður Kathy Cook,
| hljóp annan sprettinn á 44,7 sek.
I Olympíumeistarinn Alonso Babers hljóp geysilega
| vel þriðja sprettinn fyrir USA. Fór fram úr Astralíu-
manninum og skilaði keflinu vel á undan til Antonio
McKay. Þá var ekki lengur spurning um fyrsta sæt-
ið en keppnin um hin verðlaunasætin mjög hörð.
Todd Bennett hljóp þriðja sprettinn fyrir Bretland
og nálgaðist mjög sveitir AstraUu og Nígeríu. Milli-
timi hans var 44,13 sek. Lokasprettinn fyrir Bret-
land hljóp Philip Brown sem sjaldan nær góðum
árangri nema í hörku-boðhlaupum. Og þarvar sama
sagan og oft áður hjá honum. Honum tókst að
tryggja Bretlandi annað sætið, fór fram úr Nígeríu
og Astralíu og hljóp þó Innocent Egbunike, úrslita-
maður í 400, lokasprettinn fyrir Nígeríu. Hins vegar
átti Brown (millitími hans var 45,31 sek) ekki mögu-
leika á að nálgast McKay. Fjórði hlauparinn í sigur-
sveit US A var Ray Armstead en Kriss Akabusi hljóp
fy rsta sprett fyrir Bretland á 45,9 sek. 0 rslit:
1. Bandaríkin
2. Bretland
3. Nígería
4. Ástralía
5. italía
6. Barbados
7. Uganda
8. Kanada
2:57,91
2:59,13
2:59,32
2:59,70
3:01,44
3:01,60
3:02,09
3:02,82
-hsím.
Bandarísku kvennasveitimar langfyrstar:
ílanga boðhlaupinu. Brisco-Hooks fékk sín þriðju gullverðlaun
Q99
QQQ
Bandarisku kvennasveitirnar höfðu
mikla yfirburði í úrslitahlaupunum í
4X100 m boöhlaupi og 4X400 m boðhlaupi
aðfaranótt sunnudags á ólympíuleikunum.
í langa boðhlaupinu setti bandariska
sveitin nýtt ólympíumet, hljóp á 3:18,29
mín. og bætti met austur-þýskrar sveitar
frá Moskvuleikunum nokkuð. Það var
3:19,23 min. Valerie Brisco-Hooks, litla
stúlkan sprettharða, hljóp þriðja sprettinn
í bandarísku sveitinni. Hlaut þar sin þriðju
gullverðlaun á leikunum. Sú fyrsta til að
sigra í 200 og 400 m á ólympíuleikum og
kemur ekki langt á eftir Carl Lewis hvað
glæsilega frammistöðu á leikunum
snertir.
I stutta boðhlaupinu hljóp bandaríska sveitin
mjög vel og var aðeins 5/100 úr sekúndu frá
ólympíumetinu. 12/100 frá heimsmeti Austur-
_ Þýskalandsávegalengdinni.
4x100 m boðhlaupið
Þegar skiptingar bandarisku sveitarinnar tók-
ust vel var aldrei spuming um það hvaða sveit
mundi hljóta gullverðlaunin. Þær Alice Brown,
Jeanette Bolden, Candra Cheesborough og Evelyn
Ashford hlupu mjög vel. Sandra og Evelyn hlutu
tvenn gullverðlaun á leikunum hvor og auk þess
Idaut Sandra silfurverðlaun í 400 m hlaupi.
Kanada náði öðru sæti og Bretland þriðja. 1
bresku sveitinni var Kathy Cook og hlaut sín
önnur bronsverölaun á leikunum. Hún keppti hins
vegar ekki í ianga hlaupinu. Bretum fannst nóg
komið um erfið hlaup hjá henni en við þaö missti
Bretland eflaust af bronsinu í langa boðhlaupinu.
Stúlkurnar frá Jamaíka, sem helst voru taldar
geta veitt sveit USA keppni í 4X100 m boðhlaupi,
urðu úr leik þegar á fyrstu skiptingu. Þær Julia
Cuthbert og Grace Jackson, sem tvívegis komst í
úrslit í spretthlaupunum, misstu keflið sín á
miUi. Jackson tók keflið að vísu upp' og hljóp á-
fram en sveitin varð langsíðust. Svona til gamans
má geta þess að þetta er í fimmta sinn sem Bret-
land hlýtur bronsverðlaun í þessari grein. Urslit:
1. Bandaríkin........................41,65
2. Kanada.................... ■ ■ ...42,77
3. Bretland..........................43,11
4. Frakkland.........................43,15
5. V-Þýskaland.......................43,57
6. Bahamaeyjar.......................44,18
7. Trinidad..........................44,23
8. Jamaíka...........................53,54
Langa boðhlaupið
Keppni var hörð framan af miili USA, Kanada
og Vestur-Þýskalands. Síðan hljóp Valerie Brisco-
Hooks þriðja sprettinn fyrir USA. Geystist fram
úr og Sandra Cheesborough jók svo forustu USA á
lokasprettinum. Fyrstu tvo sprettina fyrir USA
hlupu Ldllie Letherwood og Sherri Howard. Urslit:
1. Bandaríkin.......................3:18,29
2. Kanada.................
3. V-Þýskaland............
4. Bretland...............
5. Jamaíka................
6. Itah'a.................
7. Indland................
3:21,21
.3:22,98
.3:25,51
.3:27,51
.3:30,82
.3:32,49
Sveit Puerto Rico mætti ekki í úrslitahlaupið
eftir að hafa unnið sér rétt til þess. -hsím.
Heimsmet USA - loka-
sprettur Lewis 8,94!
— Carl Lewis hlaut
Carl Lewis hlaut sín fjórðu gull-
verðlaun á ólympíuleikunum í Los
Angeles þegar hann hljóp lokasprett-
inn í 4X100 m boðhlaupi fyrir sveit
USA. Það var ekki spurning um sigur
þegar Carl fékk keflið, fyrstur. Hann
geystist í mark og hvílíkur loka-
sprettur. MilUtími hans á siðustu 100
metrunum var 8,94 sek!! og banda-
ríska sveitin setti nýtt heimsmet, 37,83
sek. Bætti heimsmet sitt frá heims-
meistarakeppninni i Helsinki um 3/100
úr sekúndu.
Frábærir spretthlauparar í svéit
USA. Sam Graddy hljóp fyrsta sprett
með viöbragði og fyrir beygjuna á
ótrúlega góöum tíma, 10,29 sek. Tug-
þrautarmaðurinn Daley Thompson
hljóp fyrsta sprett fyrir Bretland og
var stórkostlegur. Gaf Graddy lítið
eftir. Ron Brown hljóp næstu 100 m
fyrir USA, niður beinu brautina á 9,19
sek. Millitími hans með fljúgandi
starti. Aðeins breska sveitin hélt þá
eitthvað í við bandarísku sveitina.
Það átti hins vegar eftir aö breytast.
McFarland og Allan Wells tókst ekki
að halda í við aöra. Heimsmethafinn
sín f jórðu gullverðlaun í 4x100 m boðhlaupinu
Calvin Smith hljóp þriðja sprett fyrir inn fyrir Italíu. Úrslit.
USA, geysivel beygjuna á 9,41 sek. l.Bandaríkin 37,83
Lewis fékk svo keflið vel fyrstur og 2. Jamaíka 38,62
leiöin í mark var greið. 3.Kanada 38,70
Spretthlauparamir frægu, Don 4. Italía 38,87
Quarrie, ólympíumeistari í Montreal 5. V-Þýskaland 38,99
1976, og Ray Stewart hlupu tvo síðustu 6. Frakkland 39,10
sprettina fyrir Jamaíka vel og sveitin 7. Bretland 39,13
náði öðru sæti, rétt á undan Kanada og 8. Brasilía 39,40
Italíu. Pietro Mennea hljóp lokasprett- -hsím.
[ Vainio týndur ]
Hinn hcimsþekkti finnski langhlaup-
ari, Martti Vainio, féll á lyfjaprófi í Los
Angeles í gær. I þvagprufu fundust ein-
kenni lyfja sem ekki er leyfilegt að taka.
Vainio hefur ckki enn hlotið dóm cn vist
má tclja að hann verði að skila aftur
silfurverðlaunum sinum sr hann hlaut i lð
km hlaupi á leikunum.
Carl Olaf Homen, elnn af forráða-
mönnum finnska llðsins á OL, sagði i gær-
kvöidi að hann ætti bágt með að trúa þvi
að Vainio hefði tekið ólögleg lyf en hann
tryði engu að síður niðurstöðum lyfja-
prófslns.
„Vainio vissi vcl að fjórir fyrstu menn
í hverri grein yrðu tcknir í próf.” Og hann
bætti við: „Langhlauparar hafa ekki
mikll not fyrir Anaboilc Steriod.”
Martti Vainio var mjög brugðið þegar
hann frétti niðurstöður lyfjaprófsins og
úrskurðurinn kom sem köld vatnsgusa
framan í finnska liðið og Finna almcnnt.
„Hann var síðasti maður sem mig óraði
fyrir að myndi taka inn ólögleg lyf,”
sagði Homcn.
Vainio, sem ekki var látinn blaupa í úr-
slitum 5 km hlaupsins, þrátt fyrir að hann
hefði unnlð sér rétt tll þess, var ckki í
ólympíuþorpinu í gærkvöldi. Sagt var að
hann væri einhvers staðar i KaUforniu.SK.
Sérfiaeðingar MALMIMQAR h.f.
kunna þríú láð i viðarvörn utanhúss
KJORVARI
er olíubundin gegnsæ vlðarvörn af hefðbund-
Innl gerð, sem gengur Inn í vlðlnn og mettar hann.
KJORVARI hefur skamma endlngu þar sem mlkið mæðir
á. hlann ver vlðlnn fyrlr vatni, en hlndrar ekkl nlðurbrot vlðar
af völdum sólarljóss. KJÖRV/ARI hleyplr vel I gegnum slg
raka, flagnar því ekkl 0g er auðveldur í vlðhaldl.
TRÉAKRÝL
er vatnsþynnanleg 100% akrýlbundln málnlng,
sem harðnar ekkl né gulnar. TRÉAKRÝL Innlheldur ekkl
fúavarnarefni.
TRÉAKRÝL smýgur llla og krefst því olíugrunns, QRUhh-
KJÖRV/ARA, á beran vlð fyrir yflrmálun.
TRÉAKRÝL hleypir mjög vel I gegnum slg raka, heldur mýkt
slnnl og fylglr því hreyfingum vlðarins.
TRÉAKRÝL hylur vel og ver því vlðlnn gegn nlðurbrotl af
völdum sólarljóss.
ÞEKJU-KJÖRVARI
er þekjandl vatnsþynnanleg vlðarvörn
sem Innlheldur bæði olíu og akrýl og samelnar því kostl
KJORVARA og TRÉAKRÝL5. ÞEKJU-KJÖRV/ARI hylur
flötlnn án þess að fylla hann, þannlg að vlðaræðar verða eftlr
sem áður sýnllegar. ÞEKJU-KJÖRV/ARI smýgur vel og
krefst því ekkl sérlegs grunns. ÞEKJU-KJÖRV/ARI hylur
vel og ver vlðlnn fyrlr vatnl og nlðurbrotl sólarljóss. ÞEKJU-
KJÖRV/ARI heldun mýkt slnnl og hleyþlr auðveldlega í
gegnum slc
málninghlf
Fæst i byggingavöruverslunum um land allt
999
Los