Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1984, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR17. ÁGÚST1984.
7
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Glemp kardínáli, erkibiskup Póllands, skorar á ungt iólk ai þýsku bergi brotið (i
Póllandi) að láta ekki lokkast til brottílutnings úr landi.
Dæmdir til dauða
fyrir f lugránið
Fjórir ungir Georgíumenn, sem í
nóvember á síðasta ári reyndu að ræna
sovéskri farþegavél og fljúga til Tyrk-
lands, hafa verið dæmdir til dauða,
samkvæmt frásögn Tass-frétta-
stofunnar.
Einn mannanna var prestur, en
tveir bræður hans voru læknar. Fjórði
maöurinn var kvikmyndageröar-
maður. Mái þeirra var dæmt af rétti í
Tbilisi í Georgíu.
Kvenstúdent var dæmdur í 14 ára
fangelsi fyrir hennar hlut í flugráninu
sem lauk með því að s jö manns létu líf-
ið í skotbardaganum áður en flugræn-
ingjamir voru yfirbugaðir. — Starfs-
stúlka á flugvellinum, sem sögð var
hafa aðstoðað flugræningjana við að
smygla vopnum þeirra um borð í far-
þegaflugvélina, var dæmd í þriggja
ára fengelsi.
Þrír úr áhöfninni voru drepnir
ásamt einum farþega og þrem flug-
ræningjanna í bardaganum sem hófst
þegar ræningjarnir glöggvuðu sig á því
að flugstjórinn haföi leikið á þá. Hann
þóttist verða við kröfum þeirra um að
fljúga til Tyrklands en flaug í staðinn
hring aftur til Tbilisi.
Þegar flugvélin var á leið til
lendingar þekktu ræningjamir aftur
flugvöllinn. Tóku þeir fyrir gísl barn
eitt og móður þess og kröfðust þess að
eldsneytisgeymar yrðu fylltir að nýju
og vélinni heimilaö flugtak. Einn far-
þeganna réöst á þá og bardaginn hófst.
Honum lauk nokkrum kiukku-
stundum síðar þegar sérþjálfuð sveit
hermanna var send frá Moskvu og
yfirbugaði hún flugræningjana.
Þetta er f jórtánda flugránstilraunin
í Sovétríkjunum síðan 1970. I nóvem-
ber 1982 tókst þrem mönnum að ræna
sovéskri flugvél í innanlandsflugi og
neyða flugstjórann til þess að fljúga
með þá til Tyrklands. En þar voru þeir
dæmdir í níu ára fangelsi.
Leitin hafin
að tundur-
duflunum
Þrjár bandarískar þyrlur eru byrj-
aðar leit að tundurduflum í landhelgi
Saudi Arabíu en það er fyrsti áfanginn
í tilraun fleiri þjóða til þess að hreinsa
Rauðahafið og Súezflóa af tundurdufl-
um. Siöasta mánuðinn hafa að minnsta
kosti 17 skip orðið fyrir barðinu á þeim.
Engin tundurdufl hafa fundist enn-
þá í þessari nýjustu leitarlotu þyrln-
anna en fleiri þyrlur eru á leiðinni á
þessarslóöir.
Fjórir breskir tundurduflaslæðarar
hófu leit í norðurhluta Súezflóa tU
aðstoðar við egypska flotann. Tveir
franskir tundurdufiaslæðarar fóru í
gegnum Súezskurð til Saudi Arabíu
núna í vikunni og aðrir tveir eru á leið
Egyptum til aðstoðar.
Bandarísku þyrlumar eru látnar
leita á siglingaleið pUagrima til Saudi
Arabíu(til Mekka).
Egyptar eru einnig byrjaöir að leita
að sprengjum í Nasser-vatni sem er
uppistöðuvatn Aswan-stíflunnar.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
r
og Olafur B. Guðnason
Lanédifur
a'la Persillade
Fyrir einn
Matreiöslumaður
Francois Fons, Grillið Hótel Saga
Skáskerið tvaer til þrjár þunnar sneiðar af
lambalifur og veltið uppúr hveiti. Bræðið
smjör á vel heitri pönnu, kryddið lifrina á
báðum hliðum með salti og pipar og steikiö
létt beggja vegna.
Færið síðan lifrina á fat. Bætið smjöri á
pönnuna ásamt steinselju og hvítlauk. Hellið
síðan ediki á pönnuna og heyrist þá
yndislegur söngur. Eftir því sem hann er
fegurri hefur betur tekist til með réttinn.
Bragðbætið sósuna eftir smekk með salti og
pipar og hellið henni siðan yfir lifrina á
diskinum. Berið fram með soðnum
kartöflum og e.t.v. öðru grænmeti.
Þennan óvenjulega og Ijúffénga rétt tekur
aðeins nokkrar minútur aö laga.
Hversvegm
lifur?
Dr. Jón Óttar Ragnarsson, dósent
Lifur er ein þessara afurða úr lífríkinu sem
næringarfræðingar telja svo holla að hún er
oft - ásamt nokkrum öðrum - sett í
sérstakan flokk sem kallast hollustuvörur
eða bætiefnagjafar.
En hvers vegna er lifur holl? Vegna þess að
hún er að jafnaði bætiefnaríkari en flestar ef
ekki allar aðrar algengar matvörur sem á
boðstólum eru.
Lifur er t.d. frábær uppspretta járns og
kopars, fólasins og B12, A, og D-vítamíns.
Hún er einnig fremur fitusnauð og því mikið
notuð í megrunarfæði.
Fáðu uppskriftabækling í næstu verslun
Framleiðendur
Stórkostleg verðlækkun
á lambalifur!
Eftir hina stórkostlegu 35% verðlækkun á lambalifur er vart hægt
að gera betri matarkaup á íslandi. Til dæmis kostar allt hráefni í þennan
Ijúffenga franska rétt aðeins um 33 krónur.
(200 g lifur á um 18 kr. og allt meðlæti á um 15 kr.)
Glemp kardínáli beisk-
yrtur við Þjóðverja
Erkibiskup Póllands, Jozef Glemp
kardínáli, sakar félagasamtök í
Vestur-Þýskalandi um aö spilla sam-
búð ríkjanna með stuðningi við þýska
minnihlutahópa í Póllandi.
Hvatti hann unga Pólverja, sem er'u
af þýsku bergi brotnir, til þess að vera
um kyrrt í heimalandi sínu og láta ekki
„lokkast af þægindum og munaði” í
Vestur-Evrópu á krepputímum í Pól-
landi.
Þetta sagði kardínálinn við útiguðs-
þjónustu hjá Jasna Gora-klaustrinu
sem er helgidómur „svörtu madonn-
unnar”, þjóðardýrlings Pólverja.
Messan er haldin árlega til að minnast
upprisu Maríu meyjar til himna og er
helgasta hátiðin á kirkjualmanaki Pól-
lands. Um 200 þúsund manns hlýddu á
messukardínálans.