Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Page 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST1984.
WST UFUM WD FLOTT
—þensla hér og þensla þar
A þessu herrans ári blómstrar öll versiun og viöskipti, kannski meira en nokkru sinni
fyrr þrátt fyrir allan barlóminn. Innflutningur til landsins hefur stóraukist. Allar flugvélar
til og frá landinu eru fullbókaöar. Skemmti- og veitingastaðirnir eru sneisafullir, sumir
hverjir dag eftir dag. I tískuverslununum er nóg aö gera. Viö höfum slegiö met í innflutn-
ingi á myndböndum. Aukning hefur oröið í byggingu íbúðarhúsnæðis, sömuleiðis hefur
aukist meöalstærð íbúða. Og svona mætti lengi telja. Samt eru allir aö kvarta. DV talaöi
við ýmsa menn úr atvinnulífinu. Þau viðtöl eiga ekkert skylt viö blankheit.
-KÞ
Tekjur
ríkisins af
innflutningi
hafa aukist
um50%
„Innflutningur til landsins hefur
aukist á þessu ári,” sagöi Siguröur
Þóröarson, deildarstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, í samtali viö DV. „Þaö
fer ekki á milli mála. ”
Tekjur ríkissjóðs af innflutnings-
gjöldum jukust um 50% á fyrstu sjö
mánuðum þessa árs miöaö viö sama
tíma í fyrra eða úr 1,3 milljörðum
króna í 1,9 milljarða. Innflutningsgjöld
nema um 17% af heildartekjum ríkis-
sjóös.
Þá hafa tekjur af söluskatti og orku-
jöfnunargjaldi einnig hækkaö um 50%
en þær nema um 38% af heildartekjum
ríkissjóðs og gefa ágæta mynd af pen-
ingaveltu í þjóðfélaginu. Tekjur þessar
námu um 4,3 milljöröum króna á
fyrstu sjö mánuðum þessa árs en 2,9
milljöröum króna á sama tíma í fyrra.
Alls hafa tekjur ríkissjóös aukist um
47,6% á fyrstu sjö mánuðum ársins í ár
en gjöld um 32,5%. Framfærsluvísitala
hefur hins vegar hækkaö um 43,35% á
samatíma.
Þetta hefur m.a. leitt til þess aö rík-
issjóður er kominn meö greiösluaf-
gang upp á 900 milljónir króna eins og
greint var frá í DV um helgina. Um 350
milljónir koma til vegna þess aö tekjur
hafa hækkað meira en verölagsbreyt-
ingar en um 550 inilljónir vegna þess
aö gjöldin hafa hækkað minna.
EA
Mikil gróska í
myndböndum
Innflutningur á mynd- og segul-
bandstækjum til landsins var nánast
jafnmikill á fyrstu sex mánuðum þessa
árs og á öllu árinu í fyrra. A fyrri hluta
þessa árs voru flutt inn 35,4 tonn af
mynd- og segulbandstækjum aö verð-
mæti 29,9 milljónir króna. A öllu árinu í
fyrra voru flutt inn 38 tonn af þessum
tækjum fyrir um 30,3 milljónir króna.
I fyrra voru flutt inn 19,4 tonn af
óuppteknum mynd- og segulbandsspól-
um aö verömæti 8,9 milljónir króna og
32,4 tonn af áteknum spólum fyrir tæp-
arl5milljónir.
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
nam innflutningur á óuppteknum spól-
um 27,4 tonnum og var innkaupsverö
þeirra um 13,1 milljón króna. Á sama
tíma voru flutt inn um 18 tonn af átekn-
um mynd- og segulbandsspólum fyrir
10,5milljónirkróna.
EA
^ ' '
%fk ■ -
/r
„HRIKALEG ASOKN”
— segja f erðaskrif stof umenn
„Þaö eru allar flugvélar út úr land-
inu fullar,” sagöi feröaskrifstofumaö-
ur í samtali viö DV. „Þaö er allt fullt.
Eftirspurn eftir ferðum er mun meiri
en í fyrra. Á móti kemur aö framboö af
skipulögöum feröum til útlanda er
heldur minna en í fyrra. Þess í staö
pantar fólk mun meira ferðir meö
áætlunarflugi.”
Aðrir þeir sem starfa á ferðaskrif-
stofunum, og blaöið ræddi viö, tóku í
sama streng. „Viö urðum aö setja inn
aukaferðir til sólarlanda,” sagði einn.
„Ásóknin í ferðir til útlanda er
hrikalega mikil,” sagði annar.
Að sögn feröaskrifstofumanna er
ekkert lát á vinsældum sólarlandaferö-
anna. Þá hefur fólk notað sér mikiö
sumarbústaði sem boðið er upp á til
dæmis í Danmörku, Hollandi og Þýska-
landi. Einnig er mjög vinsælt aö kaupa
sér svokallað „flug og bíl” en þá hefur
fólk frjáls afnot af bílaleigubíl á meöan
þaö dvelur erlendis. Nokkrar feröa-
skrifstofur bjóöa og upp á ýmiss konar
ævintýraferöir til fjarlægra landa, eins
konar heimsreisur. Einnig þær ferðir
eruyfirfullar.
En hvernig hefur fólk ráö á þessu ef
trúa skal öllum barlóminum? Einn
feröaskrifstofumanna benti á aö hlut-
fallslega væru feröir til útlanda ódýr-
ari en í fyrra. Þar mætti finna hluta af
skýringunni. Hann sagöi aö rúmlega
helmingur viöskiptavinanna kysi ým-
iss konar greiöslukjör, helminginn út
og afganginn til einhverra mánaöa.
Flestar feröaskrifstofanna bjóöa slík
kjör.
„Lánshlutfalliö er þó ekki hærra en í
fyrra,” sagöi hann. ,,0g þeir eru marg-
ir sem fremur kjósa aö borga út í
hönd.”
-KÞ
INNFLUTNINGUR Á BÍLUNIEYKST
Bifreiöainnflutningur landsmanna
var mun meiri á fyrri hluta þessa árs
en á sama tíma í fyrra en svipaöur og á
næstu þremur árum þar á undan.
Á fyrri hluta þessa árs voru 4.622 bif-
reiöar fluttar inn til landsins, þar af
4.177 fólksbílar og er þaö álíka fjöldi og
fluttur var inn á fyrstu sex mánuðum
áranna 1980 til 1982. Áriö 1983 sker sig
hins vegar úr hvað bifreiöainnflutning
varðar en á fyrri hluta þess árs voru
rúmlega þrjú þúsund bifreiðar keyptar
hingaö til lands.
Aö sögn Jónasar Steinarssonar,
framkvæmdastjóra Bílgreinasam-
bandsins, ber meira á innflutningi
ódýrra bifreiöa í ár en oft áöur.
EA
Nóg að gera í tískuverslunum
„Fólk er alltaf að væla um peninga-
leysi en samt viröist þaö hafa rúm fjár-
ráð. Aö minnsta kosti hefur söluaukn-
ingin oröiö talsverö í ár miðað viö í
fyrra,” sagöi starfsmaður í tískuversl-
unísamtali viðDV.
Blaðiö ræddi við nokkra sem starfa
við tískuverslanir hér í borg. Flestir
þeirra voru sammála um það aö kaup-
geta fólks nú og í fyrra væri ósköp svip-
uö þrátt fyrir orö viömælandans hér aö
framan.
„Þó merkjum viö þaö aö fólk hugsar
meira um þaö sem það 'er að kaupa.
Þaö velur sér fatnaö sem þaö getur
notaö meira og lengur en þaö geröi
áður,” sagöi einn viömælanda blaðs-
ins.
„Hér er mikið að gera um hver mán-
aðamót en svo dettur salan niöur á
milli,”sagðiannar.
„Þótt maður finni aö sumir velti
fyrir sér hverri krónu er þaö stór hópur
fólks sem virðist eiga sand af pening-
um,”sagöi enn einn.
-KÞ