Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Page 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST1984.
HROLLVEKJANDISPA
UM GRÓÐUR ÍSLANDS
Skiptar skoöanir eru meðal manna um þátt sauðkindarmnar 1 groðureyðingu landsms.
DV-mynd BH.
Dæmigert fyrir suma
skógræktarmenn
— segir Ólaf ur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur
„Þetta eru mjög alvarlegar staö-
hæfingar sem þama koma fram. En
ég held aö þetta sé ákaflega mikil
einföldun á staöreyndum,” sagöi
Olafur Dýrmundsson landnýtingar-
ráöunautur er DV bar undir hann
fregnir þýska blaösins um niöur-
stöðu Rainers Glawion.
„Ég þekki ekkert til þessa manns.
Hann hefur aldrei komiö til mín til að
afla upplýsinga um beitarmál.
Þaö er alveg rétt aö sums staöar er
land í afturför, en á móti kemur aö
annars staöar er land í framför, sem
áöur var tapaö. Eg vil nefna stór
svæði sem Landgræöslan er að vinna
á og stór svæöi sem eru aö gróa upp
af sjálfu sér, eins og til dæmis sandar
á Suöausturlandi.
Menn deila um þaö hvort meira sé
aö tapast af landi eöa vinnast. Ég
veit þaö hreinlega ekki. Þaö eru eng-
artölurtil um þaö.
Kannski hefur þessi maöur ein-
hverjar slíkar tölur. Þaö væri fróö-
legt að sjá hvaöan hann hefur sínar
heimildir. Ég held aö þessi útreikn-
ingur hans sé eitthvað einfaldaöur.
Þetta er ansi gróft hjá honum.
Þetta er dæmigert fyrir suma
skógræktarmenn. Þeir draga stund-
um ansi einfaldar ályktanir,” sagöi
OlafurDýnnundsson. -KMU
Enn er sauðkindin komin í fréttirn-
ar. Nú er þaö þýskur maöur, Rainer
Glawion aö nafni, sem kveikt hefur
umræðuna.
DV sagði í síöustu viku frá frétt
þýsks blaðs um doktorsritgerö Glaw-
ions. Fram kom aö þaö væri niður-
staöa Glawions aö sauöfé væri að
breyta gróöurlendi Islands í eyði-
mörk. Meö sama áframhaldi stefndi
í þaö áö 80 af hundraði núverandi
gróöurlendis yrði á mörkum eyði-
leggingar um aldamót, eftir aöeins
sextán ár.
DV hefur undanfarna daga reynt
að komast í samband viö Rainer
Glawion til aö fá nánari skýringar
hansenekkitekist.
Hákon Bjamason, fyrrverandi
skógræktarstjóri, sagöi sitt álit á
niðurstöðu Glawions í viötali við DV
síðastliðinn föstudag. Hákon sagöi
engan vafa leika á því aö niöurstaöa
Þjóöverjans væri rétt í aöalatriðum.
Þess yröi ekki langt aö bíöa, ef of-
beitinni yröi fram haldiö, aö ekkert
nýtanlegt beitiland yröi eftir.
I blaöinu í dag er umræöunni hald-
iö áfram. Kunnir sérfræöingar segja
álit sitt á þessari hrollvekjandi spá.
EKKISVO
SVARTSÝNN
— segir Sveinn Runólf sson
landgræðslustjóri
„Þessi Rainer Glawion hefur ekki
haft samband viö Landgræösluna og
ekki kynnt sér gögn hennar varöandi
gróöureyðingu á Islandi,” sagöi
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri.
„Það er að mínu mati hæpiö aö
fullyröa út frá könnun hans á beit
sauðfjár í birkiskógi aö ofbeit sé or-.
sök gróöureyðingar á Islandi. Þó aö
plöntur eyðist og aörar komi í staö-
inn í birkiskógi er ekki þar meö sagt
aö um gróöureyöingu veröi aö ræöa.
Þaö er samspil margra þátta sem
valdið hefur þeirri gróöurrýrnun og
þeim uppblæstri, sem oröiö hefur hér
á landi síöan um landnám. Gróöur-
og jarövegseyöing er og hefur veriö
langalvarlegust á eldfjallasvæðum,
þaö er á Norðausturlandi og Suöur-
og Suövesturlandi. Á þessum svæð-
um er jarðvegur mjög gleypinn, þaö
er heldur illa í sér raka, og jarðvegs-
uppbygging er þannig aö vatn og
vindar færa hann auðveldlega til,
rofni gróöurþekjan, til dæmis af
völdum ösku- eöa vikurfalls eöa
alvarlegrar ofbeitar. Aö ræöa um or-
sök gróðureyðingar á Islandi án þess
aö nefna eldf jöll er út í hött.
Það er Ijóst aö tíðarfar hefur kóln-
aö verulega eftir landnám meö
slæmum áhrifum á gróðurfar. Vegna
áhrifa húsetunnar hefur kannski
þess vegna orðið meiri gróöureyöing
hér á landi en víða annars staöar.
Á síðustu árum hefur oröið mjög
mikil breyting á búskaparháttum til
batnaöar og hafandi í huga hiö mikla
landgræöslustarf, sem unniö hefur
veriö á undanfömum áratugum, er
ég ekki svo svartsýnn að óttast að
sauökindin breyti íslandi í eyöimörk
á næstunni.
Þaö er ekki vitaö hvort þaö eyöist
meira land en þaö sem grætt er upp.
Þaö er hins vegar ekki aöalatriðiö,
heldur hitt að viö verðum aö stöðva
þá gróðureyðingu, sem viö vitum aö
er til staðar,” sagöi Sveinn Runólfs-
son.
-KMU
■V.
Idagmælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
í daa mælir Dagfari
Eyðimörk sauðkindarinnar
Vmis óáran hefur gengið yfir
landiö á liðnum öldum. Eldgos hafa
spúð hrauni og ösku, hafís hefur
rekið á iand, tún hefur kalið af
völdum kulda.
Móðuharðindi hafa geisað, hoids-
veiki og svarti dauði, spænska veikin
og berklar hafa herjað á landsmenn
og bæði Danir og Bretar hafa reynt
að kreista úr okkur líftóruna með
yfirgangi til sjós og lands. Hingaö
hafa verið fluttir refir og minkar,
mönnum og dýrum til bölvunar, og
margoft hefur Iátið nærri að landið
legðist í auðn af völdum náttúru,
harðinda eða aumustu fátæktar.
Á meðan á öllu þessu hefur gengið
hefur ein skepna fengið að ganga óá-
reitt og eftirlitslaust um landið og
raunar verið undir sérstakri vernd-
arhendi landsmanna. Mannfólk
hefur dreift sér inn til dala og út til
nesja tíl þess eins að halda lífi í bless-
aðri sauðkindinni. t hvert skipti sem
sjúkdómar eða pestir hafa hrjáð
sauðkindina hefur verið gripið tii
meiri varúöarráöstafana en
nokkrum manni hefur dottið í hug
þegar mannslíf eru í húfi. Þegar
mæðuveikin geisaði hér um árið
voru reistar mæöuveikigiröingar
upp um fjöll og firnindi og þegar
riðuveiki verður vart eru heUu fjár-
stofnarnir fluttir landshorna á mUli.
Segja má með sanni að íslendingar
hafi lifað og þraukað um aldir og allt
fram á þennan dag tU þess eins að
sauðkindin héldi veUi og gæti étiö sig
sadda af töðu og f jallagróðri fóstur-
jarðarinnar.
Nú hafa þau tíðindi gerst að
þýskur maður, Rainer Glawion að
nafni, sem stundar doktorsnám við
Ruhr háskólann í Bochum, hefur
uppgötvað að sauðkindin sé að
breyta tslandi í eyðimörk.
Þessi þýski maður er með öðrum
orðum að upplýsa þjóðina um að
sauökindin hafí, allan þennan tíma
sem landsmenn voru að kyssa hana
'og kjassa, haft þaö eitt fyrir stafni aö
leggja landið í auðn.
Lengi hefur maður grunað
sauðkíndina um græsku. Þurfti ekki
Þjóðverja tii.
Hér hefur hún hoppað og skoppað
og kroppað í öllum kjördæmum, étið
upp skóglendi, nagað haglendi,
troðið sér inn á hvern kotbónda og
haft sjálfa sig til matar til aö efla þá
trú að þjóðin geti ekki án hennar
verið. Hún hefur eignast þingmenn
og talsmenn og hagsmunasamtök og
sporðreist þjóðarbúið með niður-
greiöslum og útflutningsbótum.
Enda hefur farið svo að meðan allt er
á hverfanda hveli í þjóðarbúinu
stendur rollau cnnþá keik og örugg í
fjárhúsinu, vel vemduð og sérlega
heiöruð af f járhirðum sínum á þingi.
Satt að segja er til efs, að áður
hafi meiri völd safnast á hendur eins
aðila og hafa bæði ráðherrar, heilir
stjórnmálaflokkar og kóngsins
sendimenn mátt sín lítils þegar
sauðkindin jarmar eftir hjálp.
Meðan flest er skattlagt, kvótar
settir á fiskveiðar, söluskattur
greiddur af hverju viðviki og stjóra-
völd fylla upp í fjárlagagöt af hrein-
ustu vanefnum, hefur sauðkindin
fengið að valsa um gróðurlendið án
endurgjalds, eins og konungur -í ríki
sínu.
Það var löngu kominn tími til að
lærðir menn í Ruhr háskólanum í
Bochum kæmust að þeirri niðurstöðu
að sauðkindin væri landsins versti
fjandi.
í Bochum skrifa þeir doktorsrit-
gerðir um kindina í stað þess að éta
hana. í Bochum sjá þeir eyðimörkina
á Íslandi í stað þess að syngja um
hana ættjarðarsöngva.
Gaman væri hinsvegar að vita
hvort doktorinn í Bochum hefur séð
sauökind. Það ætti hann að gera áður
en síðasta sauðkindin deyr úr hungri
á þessari guðs voluðu eyðimörk.
Dagfari.