Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST1984.
9
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Kjúklingaverð hækkar enn
— verðhrun á lambakjöti blasir við
Þegar kjúkllngar lækkuöu í verði á
síðasta ári ióru landsmenn að neyta
þeirra svo um munaði. íslendingar
kunna vel að meta þessa fuglafæðu og
hefur neysla þeirra á kjúklingum
aukist jafnt og þétt þar til í júnímánuði
síðastliðnum. Þá hafði verið gengið svo
á birgðirnar að endar náðu ekki
saman, menn höfðu ekki við að slátra.
Var þá gripið til þeirra ráða að hækka
vöruna í verði og það stig af stigi. Þeg-
ar hafa þrjár hækkanir á kjúklinga-
verði átt sér stað síöan í april og er allt
útlit fyrir að sú stefna haldi áfram.
Vegna þessa máls hafði DV
samband við Hrafn Backman,
verslunarstjóraKjötmiðstöðvarinnar.
„Birgðir af kjúklingum eru engar á
landinu. Það hefur verið meö
kjúklinga eins og svínakjöt, eftirspurn
og framboð hefur ráðið verðinu. Allt
síðasta ár voru kjúklingar ódýrari en
lambakjöt. Framleiðendur hækkuðu
síðan veröið í skjóli þess að eftir-
spumin jókst.
Hækkunin er mun meiri en fram
kemur. Vegna samkeppninnar hafa
kaupmenn lagt h'tið á kjúklingana.
Kílóverð á kjúklingum í heildsölu er
177 krónur. 95% af kjúklingasölu hjá
okkur eru kjúklingar 5—10 saman í
pakka á 172 krónur kílóið. Kjúklingar í
lausu kosta 192 krónur hvert kíló.
Til samanburðar, þá er kílóverð á
lambalæri 209 krónur sem er í heild-
sölu 185,10. Kílóverð á lambahrygg er
190 krónur en í heildsölu 185,10. Með
þessu má sjá hve lítil álagning
kaupmannsins er, hún nemur 12—15%.
Erum langt sokkin
í vitleysunni
Það er lítill sem enginn hagnaður
fyrir okkur að selja skrokk. Hann þarf
að snyrta, saga niður og pakka. Maður
leggur limi sína í stórhættu með því að
fara með kjötið í hjólsög fyrir neytand-
ann. Hagnaður kaupmannsins nemur
aðeins um 60 krónum fyrir vikið.
Svo telja sumir viðskiptavinir sig
hafa þvílík viðskipti við verslunina að
þeir halda jafnvel aö þeir fái kaffisopa
ámeðansagaðer.
Alagning hjá okkur er mun minni en
á hinum Norðurlöndunum. Verðlagn-
ing á lambakjöti hefur komið mönnum
til að neyta kjúklinga og annarra fæðu-
tegunda. Nú blasir við verðhrun á
lambakjöti en enginn vafi er á því að
verö á kjúklingakjöti heldur áfram að
hækka og aö heildsöluverð á kartöflum
sé 30 krónur, sem er 3000 gamlar krón-
ur, er hreinasta geðveiki.
Við erum langt sokkin í vitleysunni,
en það flýtur á meðan ekki sekkur til
botns,” sagði Hrafn Backman
verslunarstjóri að lokum.
-RR.
Nú fer ekki lengur kjúklingur á hvers manns disk. Allar birgðir eru löngu búnar, menn hafa ekki undan að slátra,
kaupmenn anna ekki eftirspurn og verð á kjúklingum heldur áfram að hækka.
— RÍKISSPÍTALAR —
Ibúð óskast á leigu fyrir starfsmann Landspítalans. Upplýs-
ingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
St. Jósefsspítalinn
Landakoti
S JÚKRAÞ JÁLFARI:
Sjúkraþjálfari óskast frá og með 1. september til afleysinga í 5
mánuði. Framtíðarráðning hugsanleg.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 19600.
HJUKRUNARFRÆÐINGUR:
1—2 stöður svæfingarhjúkrunarfræðinga lausar til umsóknar
nú þegar eða eftir samkomulagi.
Laus staða í vöknun, dagvinna, nú þegar.
AÐSTOÐARMAÐUR.
Laus staða við dagheimilið Litlakot, aldur barna 1—3ja ára.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störi sendist
skrifstofu hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í
síma 19600 kl. 11—12 og 13—14 alla virka daga.
Reykjavík 26. ágúst 1984.
Hjúkrunarforstjóri.
Hvað segja bændur nú?
Töðugjöld í Bournemouth,
því ekki það?
8 daga sérstaklega skipulögð ferð fyrir bændur
og aðra bústólpa frá 26. ágúst — 2. september.
Skoðunarferðir á bændabýli, bændaskóla og
gömul landbúnaðarsöfn. Ekið í hestvögnum.
Hvernig bjuggu enskir bændur fyrr á öldum?
Stórkostleg ferð. Draumur bóndans.
Verð frá kr. 15.500. íslensk fararstjórn.
Sjómenn og aðrir veiðimenn
Fyrir ykkur er sérstaklega skipulögð 8 daga ferð
til Bournemouth frá 8.—15. september
M.a. höldum við smásjóstangaveiðimót í 2
daga. Við megum ekki taka í „blökkina" í
breskri landhelgi en við megum taka í veiði-
stangirnar og róum til fiskjar fram
á hin fengsælumið.
Skoðum stærstu höfn i heimi, sem gerð er af
náttúrunnar hendi, að ógleymdum aldargömlum
sjómanna „pub"
Og samtaka nú, allir með. Verð frá kr. 15.500.
íslensk fararstjórn.
Draumaferð fyrir aidraða
Frá 15.—22. september höfum við sérhannað 8
daga ferð til Bournemouth fyrir eldri aldurshópa.
Vel skipulagðar skoðunarferðir til undurfagurra
staða. Hvar eyddu Díana og Karl hveitibrauðs-1
dögunum? Spurningunni verður svarað með ferð |
á staðinn.
Og takið nú eftir verðinu. Bara eitt verð.
Aðeins kr. 13.950.
Já, já, þetta er laukrétt, aðeins kr. 13.950 á mann
a 2 íslenskir fararstjórar.