Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Síða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST1984.
13
Minningargjöf um skógarvörð
Þann 12. júlí sl. er 100 ár voru liðin
frá fæðingu Guttorms Pálssonar, skóg-
arvarðar á Hallormsstað, afhentu böm
hans Minjasafni Austurlands til eignar
og umráða innanstokksmuni úr búi
hans. Sá hugur fylgir gjöfinni að hún
megi veröa til þess að opna augu fólks
fyrir því hvernig bænda- og embættis-
mannaheimili leit út á Austurlandi á
síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta
þeirrartuttugustu.
Alls er hér um að ræða 110 gripi,
stóra og smáa, og aö auki fylgja 8
málverk og eftirprentanir, tæplega 30
innrammaðar ljósmyndir og um 200
aðrar ljósmyndir, aðallega manna-
myndir.
Guttormur Pálsson fæddist á Hall-
ormsstað árið 1884. Hann stundaði
skógræktamám í Danmörku 1904—
1908 og nám við Lýðháskólann í Askov
veturinn 1905—1906. Guttormur varö
skógarvörður á Austurlandi 1909 og bjó
á Hallormsstaö. Vann hann mikiö
brautryðjandastarf og dafnaði Hall-
ormsstaðaskógur mjög í tíð hans. Árið
1955 lét hann af störfum skógarvarðar
en stundaöi búskap nokkur ár eftir
þaö. Guttormur lést 5. júní 1964.
Gjöfinni hefur veriö valinn staður í
safnahúsi því sem er í byggingu á
Egilsstöðum.
-EIR.
Ur búi Guttorms skógarvarðar.
Heitarrafeindir
íháskólanum
Dr. Gerhard Fason frá Mx-Planck
stofnuninni í Stuttgart heldur almenn-
an fyrirlestur um eðlisfræði þéttefnis í
stofu 158 í húsi Verkfræði- og raun-
vísindadeildar við Hjarðarhaga þriöju-
daginn28.ágústkl. 16.30.
Fyrirlesturinn nefnist Heitar
rafeindir í GaAs, efni sem m.a. ryöur
sér til rúms í síauknum mæli í örtölvu-
iðnaðinum.
MÁLMTÆKNI
flLUyHN AL-HUS
F/utningahús á
sendi- og flutningabíla
„Kit" system
— auðvelt í uppsetningu
Ótrúlega gott verð
Vagnhöfða 29. Símar 83045 og 83705
mUCAR
UNION CARBIDE
Málm-
iðnaðarmenn
Kynning á rafsuðuvélum
og tækjum frá Union Carbide
28.-29. ágúst.
Sindra-Stál hf. hefur gerst umboðsaðili á íslandi fyrir
Union Carbide. Fulltrúi þeirra, H. Koettings kemur
og kynnirframleiðslufyrirtækisins, m.a. Mig/Mag-
vélar, plasmaskurðarvélar, sjálfvirkar borðskurðar-
vélaro.fl. Sýningin verður að Borgartúni 31, þriðju-
daginn 28. ágúst og miðvikudaginn 29. ágúst kl. 10 -
12 og 14 -17, báða dagana.
Vandaðar vélar á hagstæðu verði.
SINDRA
STALHR
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, slmi: 27222.
Vegna úthlutunar úr fram-
kvæmdasjóði fatlaðra árið
1985
Með skírskotum til 27. gr. laga nr. 41/1983 um málefni
fatlaöra. Vegna úthlutunar úr framkvæmdasjóöi fatlaöra árið
1985 óskar svæðisstjórn Reykjavíkur eftir umsóknum frá
félagasamtökum í Reykjavík sem áforma framkvæmdir í
þágu fatlaöra á næsta ári. Umsóknir berist fyrir 7. sept. nk.
ásamt ítarlegum upplýsingum um framkvæmda- kostnaðar-
áætlanir.
Svæöisstjórn Reykjavíkur um málefni fatlaðra Hátúni 10,105
Reykjavík.
ELDFJALLIÐ SÉR FYRIR ORKU
Á LJÓSAPERUNA
Á Filippseyjum vinna menn orku úr eldfjalli. Með jarð-
borunum á eldvirkum svceðum hafa Fdlippseyingar
fundið nýja orkulind. Hin fdippíska jarðhitaáœtlun
hefur lœkkað stórlega oltureikning þjóðarinnar. I fyrsta
sinn er eldfjallið náttúruauðlind en ekki eyðandi ham-
faraafl. í þessari grein segir frá því hvemig Fihppseyjar
komust ífremstu sæti í nýtingú jarðhita íheiminum.
MAMMA ÆTLAR AÐ GIFTAST
Þegar hjón skilja líða bömin mest. Aðskilnaður foreldr-
anna særir þau djúpt. En tíminn líður og bömin aðlaga
sig smám saman nýjum aðstæðum. En allt í einu komast
þau að raun um að ókunnugur aðili ætlar að gerast
fjölskyldumeðlimur.
COUNTRYMAN
KAKTU S ALÖGREGLA
Eftirlitssvæði hans er Arizðnaeyðimörktn. Eftirlit hans
beinist að skemmdarvörgum sem einungis eyðileggja lif-
andi jurtir og vopnuðum þrjótum sem hafa aldargamla,
risastóra saguarokaktusa fyrir skotmark.
ÖDÝR BÍLL FYRIR
ÞRÖUNARLÖNDIN
Þrjár frumgerðir — prótótýpur — bíla, sem sérstaklega
eru hannaðir með þarfir þriðja heimsins í huga og kosta
ekki nema þriðjunginn af því sem nú er varið til inn-
flutnings bda og nauðsynlegra varahluta, eru nú komnar
af stað um vegi og vegleysur Evrópu og Afríku. Þessir
bdar komust til Nairobi fyrr í vor og enn er verið að reyna
þá viðþær krtngumstæður sem þeir eru ætlaðir fyrír.
Þetta eru aðeins örfá
sýnishorn úr tímaritinu ÚRVALI.
Þú getur lesið meira um þetta og margt fleira í nýj-
asta hefti Úrvals sem fæst á næsta blaðsölustað.
ftóóa skemmtun..