Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Side 14
14
DV. ÞRIÐJUDAGDR 28. ÁGUST1984.
ðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
FRÆGAR POPPSTJÖRNUR
Grace Jones litur út eins og karl-
maður og syngur djúpri röddu.
Læknar og sálfræöingar í henni
Ameríku hafa þungar áhyggjur þessa
dagana. Astæðan er klæðaburður og
hegðan frægra poppstjarna. Ungl-
ingarnir taka mikið tillit til þess hvað
poppstjörnur gera og reyna að líkja
eftir þeim í klæðaburði. Þar sem karl-
menn í frægðarljómanum líkjast æ
meira kvenfólki og kvenfólkið karl-
mönnum þykja áhrif þessa fólks á ung-
lingana vera til skaða. Eru menn
hræddir um að kynvilla verði mun al-
gengari en ella sökum þessa háttalags
hjá poppstjörnunum.
Dæmi eru tekin af hinum mjög svo
vinsæla Boy George seni klæðir sig og
málar eins og kvenmaður. Þá þykir
Michael Jackson syngja mjög kven-
lega. Af kvenmönnunum eru tekin
dæmi af Grace Jones sem syngur og
klæðir sig eins og karlmaður og svo er
einnig aö segja um söngkonu hljóm-
sveitarinnar Eurythmics, Annie
Lennox.
— Ungt fólk verður fyrir miklum
áhrifum af aðdáendum sínum úr popp-
heiminum, segir þekktur geölæknir í
Bandaríkjunum. ■— Mörg ungmenni
hafa áhyggjur af því hvort þau séu
kynvillt og hugsa mikið um þessa hluti.
Ef átrúnaðargoð þeirra Uta út eins og
kynvillingar er ekki viö góðu að búast.
Ungir strákar klæða sig eins og
stelpur, og þykir fínt, og öfugt. Þessi
tíska á unglingsárunum getur haft
áhrif á unglinginn allt hans líf.
Klæðnaðurinn getur jafnvel orðið til aö
stofnaö verði til sambands af sama
kyni.
Annie Lennox,
söngkona Euryth-
mics, líkist karl-
i einu og
öllu.
Boy George lítur út eins og hommi.
Þekktur prófessor í Bandaríkjunum
segir að fólk þetta í poppheiminum,
sem klæði sig á þennan hátt, sé af-
brigðiiegt og spilli hugsunarhætti og
lífsstíl ungmennanna. Michael Jackson þykir hafa kvenlega rödd þegar hann syngur.
Kar/mennirn/r æt/uðu alveg að missa
augun þegar Karólína mætti á ströndina,
enda mikill kroppur a ferð.
Enn berast fregnir af Karólínu prinsessu
af Mónakó. Nú er þaö vöxtur hennar sem er
fréttaefni, en prinsessan ku hafa haldið sér
ákaflega vel eftir bamsburöinn. Eftir að
Andreas Albert fæddist þann 22. júní sl. var
Karólina átta kilóum þyngri en áður en hún
varð ófrísk, en þá var hún 58 kíló. Viku eftir
barnsburðinn var hún búin að ná af sér
fjórum kílóum og núna er Karólína aftur
orðin 58 kíló.
Hvemig stendur á því aö Karólína hefur
ekkert fyrir því aö tæta af sér kílóin eftir
meðgöngu þegar aðrar konur standa í
ströngu mánuðum saman að ná af sér slöpp-
um maga.? Ur herbúðum í Mónakó berast
þær fregnir að Królína megi hafa sig alla við
til aö halda í eiginmann sinn og útlitið verði
hún aö passa hvað sem tautar og raular.
Fyrir stuttu vakti það athygli á ströndinni
í Mónakó að þar kom Karólína ein á ferð,
klædd mini-bikini. Augu allra karlmanna
mændu á eftir henni, enda prinsessan sögð
mun meira sexí en áöur. Þó undurðust
margir að Stefanó skyldi ekki koma með
henni. Karólína á marga vini og svo virtist
sem hún skemmti sér konunglega á strönd-
inni þótt ein væri, nóg var af vinum til að
spjalla við. Ekki er enn vitaö hvemig
megrunarkúrinn hennar Karólínu er.
Karólina prinsessa i Mónakó komin i mini-bikini, aðeins tveimur
mánuðum eftir barnsburðinn.
sögurnar segja að grunnt só á því góða hjó
skötuhjúunum.
HLERAÐ
Jasssöngkonan Sarah Vaughan fékk glimrandi
móttökur þegar hún söng nokkur lög viö texta eftir
Pólverjann Karol Wojtyla. Réttur textahöfundur er
Jóhannes Páll II páfi en textana skrifaði hann fyrir
tuttuguárum.
Við sögðum frá því um daginn að Joan Collins,
aðalleikkonan í Dynastysjónvarpsþáttunum, hefði
skrifað bók um líf sitt. Nú höfum við frétt að þessa
sömu bók eigi nú að festa á filmu og aðalleikari
myndarinnar verður að sjálfsögðu hún sjálf, Joan
Collins. Þess má geta að það voru framleiðendur
Dynastyþáttanna sem keyptu kvikmyndaréttinn.
James Mason, leikarinn góðkunni, er látinn.
Mason, sem var 75 ára, hóf frægöarferil sinn heima
i Englandi en varð þó ekki heimsþekktur fyrr en
hann flutti til Ameríku og hóf kvikmyndaleik.
Hin fyrrverandi stórstjama, Marlene Dietrich, á
yfir höföi sér að verða kastaö út úr íbúð þeirri sem
hún býr í. Þó mun einhver von vera um aö úr ræt-
ist fyrir þessari 82 ára stjömu því aö nokkrir aðdá-
endur hafa tekið sig saman og ætla aö safna um
hálfri milljón króna, en svo hljóðar húsaleiguskuld-
inuppá, og greiða skuld gömlu konunnar.