Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Qupperneq 29
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST1984.
29
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Áland
„Perlan í Austursjó er
Áland,” segja Álendingar. Þá
nefnum við íslendingar al-
mennt ranglega Álandsey-
inga og landið jafnranglega
Áiandseyjar. Og þar að auki
erum við með sérviskunafn á
Austursjó.
Samt cr Áland eitt af
Norðurlöndunum, sjálfstætt
ríki, að vísu í sambandi við
Finnland. En á Álandi er
samt töluð sænska og ríki
nokkurs staðar á Norðurlönd-
um sjálfstæð hugsun um þjóð-
arrcisn er það á Álandi.
Áland er vissulega eyland,
og Álendingar segja að eyj-
arnar séu 6.500. Þeir eru
sjáifir aðeins um 23.000 tals-
ins, þar af um 10.000 í Maríu-
höfn, höfuðstaðnum, sem
minuir mjög á Akureyri.
Álcndingar lifa á ýmsu,
eins og gengur. Þeir eru sigl-
ingaþjóö frá fornu fari. Og
eiga mikla skóga. En hvað
haldiö þiö að margir ferða-
menn komi þangað á ári?
Ekki 75—85 þúsund, eins og
hingað.. Nei, svona ailt aö
1.500.000 — raunar flestir
Svíar.
Yfirheyrt hjá
Samvinnutrygg-
ingum
Skrif DV um tjónbílavið-
skipti starfsmauna Sam-
vinnutrygginga hafa vakið
ýmis viðbrögð meðal forráða-
manna fyrirtækisins. Til
dæmis eru starfsmenn þess
kallaðir hver á fætur öðrum
„inn á teppið”. Þar fara fram
viðamiklar yfirheyrslur.
Nú mætti ætla að yfir-
heyrslurnar þær arna miöuðu
aö því að fiska upp hver hefði
verið umfangsmestur í tjón-
bilabraskinu. En svo er ekki.
Þær snúast emungis um að
finna þann sem ætla mætti að
lekið hefði upplýsingum um
málið í DV. Forráðamennirn-
ir telja nefnilega að með því
að finna þann aðila séu þeir
lausir ailra mála.
Starfsmenn Samvinnu-
trygginga eru lítt hrifnir af
þessum vinnubrögðum, enda
kalla sumir þeirra yfirheyrsl-
urnar...„bölvaöar gestapóaö-
ferðir”...
Seldi bílinn
í hvelli
En þótt starfsmeun Sam-
vinnutrygginga séu hvekktir
vegna ofangrehidra yfir-
heyrslna gátu sumir þeirra
ekki annað en brosað svolitið
að forstjóra fyrirtækisins er
skrif ÐV um málið hófust.
Hann hafði látið fyrirtækið
borga undir sig tvo bíla. En
um leið og DV hóf að skrifa
um tjónbílana, seldi forstjór-
inn aunan sinna bíla í hvín-
andi hvelli. Tókst honum að
losa sig við bílinn samdæg-
urs.
Og kaupandiun? Það var
ÞorstcinnÓIafsson.
auðvitað Sambandið sem
keypti bílinn, dýran Opel,
undir Þorstein Ölafsson, að-
stoðarmann Erlends Einars-
sonar. Hið nýja fyrirtæki
Sambandsins, Bílvangur,
annaðist söluna en stjórnar-
formaður þar cr téður Þor-
steinn.
Kvæði um
hest
Þaö gcrðist einu sinni á
Húsavik að maður nokkur
kom inn í hljómplötuverslun
og kvaðst ætla að kaupa plötu
með tilteknu lagi. Ekki
kvaðst hann nú muna hvað
það héti, né hvernig það væri,
en kvæðið fjallaði eittbvað
um hest.
Maðurinn stóð nú í þungum
þönkum góða stund. Allt í
einu rofaði til hjá honum og
hann hrópaði: „Nú man ég
það, lagið er: Víst ertu Jesús
kóngur klár.”
Blautur
leikur
Bikarúrslitaleikurinn sem
Fram og Akranes háðu nú um
helgina þótti haria merkilcg-
ur fyrir margra hluta sakir.
Fyrst er til aö taka að leikur-
inn fór fram í grenjandi rign-
ingu. Völlurinn var citt dý og
Icikmennirnir sjálfir reun-
andiuppfyrirhaus.
Ekkl var vætan minni hjá
áhorfendum. Þar bar nefni-
lega mjög mikið á ölvun og
Hart barist í úrslitaiciknum og
árangurinu eftir því.
lán að ckki urðu stórslys.
Nokkrir vallargestir styttu
sér stundir með því að kasta
tómum flöskum út á völlinn.
Ekki þarf að f jölyrða um slík-
an leik og þær aflciöingar
sem hanngeturhaft.
En menn voru sumsé sam-
mála um að þarna hefði fariö
fram einn blautasti úrslita-
leikur sögunnar.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
G&YfANTAR
/IEFTIRTAL
/ HVERFI
Blönduhlíð - Fitjar - Garðabæ - Lauga
veg - Efstasund - Sóleyjargötu - Sel-
braut - Skúlagötu - Langholtshverfi -
Lönguhlíð - Blesugróf - Lindargötu -
Kópavogsbraut - Fornhaga.
HAFID SAMBAND VIÐ AFGREIÐSLUNA OG SKRIFID YKKUR A BIÐUSTA.
VERKFALLSMENN
KVADDIR í HERINN
Flugvirkjafélag Islands hefur sent
ríkisstjórn Islands, Alþingi og fjölmiöl-
um bréf þar sem vakin er athygli á
mannréttindabroti í Grikklandi.
Fram kemur aö félag grískra flug-
vélstjóra eigi í kjaradeilu viö flugfé-
lagiö Olympic Airways. I stað þess aö
leysa vinnudeiluna meö frjálsum
samningum hafi forstjóri flugfélagsins
beitt sér fyrir því að flugvélstjóramir
yröu kallaðir í herinn. Meö því hafi
þeir veriö þvingaöir til að vinna störf
sín áfram en um leið sviptir öllum
áunnum kjörum og mannréttindum.
Flugvirkjafélagiö, sem er aöili aö
Evrópusambandi flugvélstjóra, heitir
á Islendinga aö þeir láti í ljós andúö á
þessu mannréttindabroti sem og öör-
um í hvaöa mynd sem þau birtast.
-KMU.
Framkvæmdastjóri
ráðinn
— hjá Sambandi íslenskra auglýsingastofa
Samband íslenskra auglýsingastofa
hefur ráöið Sólveigu Olafsdóttur lög-
fræöing framkvæmdastjóra sam-
bandsins frá 1. september nk.
Sólveig Olafsdóttir lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla Islands árið
1968, prófi frá lagadeild Háskóla Is-
lands árið 1982 og meistaragráðu frá
Harvard háskólanum í Bandaríkjun-
um ári seinna. I framhaldsnámi sínu
lagöi Sólveig megináherslu á höfunda-
rétt, samningatækni og sáttastörf.
Sólveig starfaöi hjá Ríkisútvarpinu
frá 1970 til 1975 en er lögfræðinámi lauk
hóf hún störf hjá menntamálaráðu-
neytinu. Hún á sæti í höfundaréttar-
nefnd jafnframt því sem hún er vara-
formaöur íslensku UNESCO nefndar-
innar. Þá var Sólveig Olafsdóttir for-
maður Kvenréttindafélags Islands
1975-1981.
Sólveig Ólafsdóttir lögfræöingur.
IgninaTbleian
T-lagid á bleiunum gerir það að verkum að bleian
situr á réttum stað, rennur ekki aftur eins og venju-
legar bleiur.
Lenina T-bleian erþgkkust, þar sem þörfin er mest.
Lenina T-bleian veitir lofti að líkama barnsins, þar
sem notaðar eru T-taubuxurnar í stað bleiuplasts á
öðrum bleium.
Barnsrassar þurfa á miklu lofti að halda til að líða
vel.