Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1984, Page 1
DV. FÖSTUDAGUR 30. NOVEMBER1984.
17
Sjónvarp
Sjónvarp
Laugardagur
1. desember
14.45 Enska knattspyrnan Everton
— Sheffield Wednesday. Bein.
útsending frá 14.55 — 16.45.
Umsjónarmaður Bjarni F elixson.
17.15 Hildur. Fimmti þáttur. Endur-
sýning. Dönskunámskeið í tíu
þáttum.
17.40 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
19.25 Bróðir minn Ljónshjarta.
Lokaþáttur. Sænskur framhalds-
myndaflokkur í fimm þáttum,
gerður eftir sögu Astrid Lindgren.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.35 í sælureit. Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í sjö
þáttum. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.10 Reykjavík er perla. Leik- og
lestrardagskrá meö söngvum um
lífið í höfuðstaðnum á þriðja ára-
tug aldarinnar. Vitnaö er í ýmsar
samtímaheimildir, ljóð flutt og
sungnir söngvar úr revíum og leik-
sýningum. Stefán Baldursson tók
saman og er leikstjóri. Tónlistar-
umsjón og undirleik annast
Jóhann G. Jóhannsson. Flytjendur
eru nemendur efsta bekkjar Leik-
listarskóla Islands. Upptöku
stjórnaði Elín Þóra Friöfinns-
dóttir.
22.10 Illur fengur.. . (Hot Millions).
Bresk gamanmynd frá 1968. Leik-
stjóri Eric Till. Aðalhlutverk:
Peter Ustinov, Maggie Smith, Bob
Newhart og Karl Malden. Svika-
hrappur í kröggum uppgötvar
nýja aðferð til aö afla skjótfengins
gróöa. Hann tekur tölvurnar í
þjónustu sína. Þýðandi Jón O.
Edwald.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
2. desember
15.00 Bikarkeppni Sundsambands
íslands. Bein útsending frá Sund-
höll Reykjavíkur.
16.00 Sunnudagshugvekja.
16.10 Húsið á siéttunni. 3. Vörður
laganna. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Öskar
Ingimarsson.
17.00 ísiand fullvaida 1918. Endur-
sýning. Dagskrá byggð á sögu-
legum heimildum um þjóðlíf og at-
burði á fullveldisárinu 1918. Berg-
steinn Jónsson sagnfræðingur og
Þorsteinn Thorarensen rithöf-
undur tóku saman. Þáttur þessi
var fyrst sýndur í Sjónvarpinu 1.
desember 1968 í tilefni af 50 ára
fullveldi Islands.
18.10 Stundin okkar. Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Valdimar Leifsson.
19.00 Hlé.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
Umsjónarmaður Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
21.10 I dagsins önn. Ull í fat — Mjólk
í mat. Lokaþáttur myndaflokks
um búskaparhætti og vinnubrögð
fyrri tíma, geröur að tilhlutan
félagssamtaka á Suðurlandi.
Handrit og umsjón: Þóröur
Tómasson. Kvikmyndun: Vigfús
Sigurgeirsson.
21.45 Dýrasta djásnið. Þriöji þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokkur
í fjórtán þáttum, gerður eftir
sögum Pauls Scotts frá Indlandi.
Myndafiokkurinn gerist á árunum
1942 — 1947, tímum heimsstyrj-
aldar og endurheimtar Indverja á
sjálfstæði sínu. Kynni breskrar
stúlku og indversks blaöamanns
reynast hafa örlagaríkar afleið-
ingar fyrir þau bæði. Þýðandi
VeturliöiGuðnason.
22.35 Tónskáldin ungu og íslenska
hljómsveitin. Fyrsti þáttur af
þremur. Islenska hljómsveitin
flytur í sjónvarpssal Davíð 116
eftir Misti Þorkelsdóttur.
Einsöngvari William H. Sharp.
Stjórnandi Guömundur Emilsson.
„Davíð 116” er samiö að tilhlutan
hljómsveitarinnar og var frum-
flutt af henni í vor. Verkiö er byggt
á Davíössálmi nr. 116 og er textinn
sunginn á latínu.
23.00 Dagskrárlok.
Mánudagur
3. desember
19.25 Aftanstund. Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni: Tommi
og Jenni, Sögurnar hennar Siggu,
Bósi, Sigga og skessan,
brúðuleikrit eftir Herdísi Egils-
dóttur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 I fullu fjöri. Fimmti þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í sjö
þáttum. Þýðandi Ragna Ragnars.
21.20 Erasmus Montanus. Endur-
sýning. Gamanleikur eftir Ludwig
Holberg. Leikstjóri Kaspar
Rostrup. Aðallilutverk: Erik Wed-
ersöe, Ole Larsen, Marie Brink og
Lone Hertz. Piltur einn snýr heim
til föðurhúsa eftir aö hafa stundaö
nám um skeið. Hann miklast mjög
af lærdómi sínum og þykir lítið
koma til flestra hluta sem hann
hefur alist upp við. Þýðandi Oskar
Ingimarsson. Leikritiö var áður
sýnt í Sjónvarpinu árið 1973 en er
nú endursýnt í tilefni af 300 ára af-
mæli Holbergs. (Nordvision —
Danska s jónvarpið).
22.55 íþróttir. Umsjónarmaður
Ingólfur Hannesson.
23.25 Fréttir í dagskrárlok.
Þriðjudagur
4. desember
19.25 Sú kemur tíð. Þriðji þáttur.
Franskur teiknimyndaflokkur í
þrettán þáttum um geim-
ferðaævintýri. Þýðandi og sögu-
maöur Guðni Kolbeinsson. Lesari
meö honum Lilja Bergsteinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Saga Afríku. 7. Þjóðernis-
stefna eflist. Breskur
heimildamyndaflokkur í átta
þáttum. I þessum þætti fjallar
Basil Davidson um sjálfstæöisbar-
áttuna í nýlendum Evrópuríkja í
Afríku. Þýðandi og þulur Þor-
steinn Helgason.
21.50 Njósnarinn Reilly. 9. Eftirmál.
Breskur framhaldsmyndaflokkur
í tólf þáttum. Sovétmenn hugsa
Reilly þegjandi þörfina eftir sam-
særið gegn Lenín sem þó fór út um
þúfur. Leynilögreglan sendir fiug-
mann á eftir honum til Lundúna.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.45 Kastljós. Þáttur um erlend
málefni. Umsjónarmaður
Ögmundur Jónasson.
23.20 Fréttir í dagskráriok.
Miðvikudagur
5. desember
19.25 Aftanstund. Barnaþáttur meö
innlendu og erlendu efni:
Söguhornið — Leikmús litla,
myndskreytt ævintýri. Sögumaður
Anna Sigríöur Árnadóttir. Litli sjó-
ræninginn, Tobba og Högni
Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Matur og næring. 4. Brauð og
kornmatur. Myndaflokkur í fimm
þáttum um næringu og hollt mat-
aræöi. Gestur: Jón Gíslason,
næringarfræöingur. Umsjón;
Laufey Steingrímsdóttir, dósent.
Stjórn upptöku: Kristín Páls-
dóttir.
21.15 Þyrnifuglarnir. Sjöundi
þáttur. Framhaldsmyndaflokkur í
tíu þáttum, geröur eftir sam-
nefndri skáldsögu eftir Colleen
McCullough. Efni síðasta þáttar:
Meggie fer með Luke, manni sín-
um, norður í Queensiand þar sem
hann fær vinnu við að skera sykur-
reyr. Vinnan verður honum svo
mikið kappsmál að hann vanrækir
konu sína. Séra Ralph er vígöur
SJÓNVARH LAUGARDAGINN 1.
DESEMBER KL. 14.45
Þá verður bein útsending frá leik-
velli Everton, Goodison Rark i
Liverpool. Þar mun Everton leika
við Sheffield Wednesday i ensku
1. deildinni i knattspyrnu. Á
sunnudaginn kl. 15.00 verður aftur
bein útsending. Hún verður úr
Sundhöllinni i Reykjavik, þar sem
fram fer bikarkeppni Sundsam-
bands íslands.
SJÓNVARR SUNNUDAGINN 2. DESEMBER KL. 18.10
Stundin okkar er þá á dagskrá. Ný stjama kemur fram i þessum þætti.
Það er hann Bjössi bolla, en hann er bráðskemmtilegur og lika mikil
bolla! Þá fáum við lika að sjá gæsirnar i Sædýrasafninu og svo verður
föndrað og ýmislegt annað.
SJÓNVARR LAUGARDAGINN 1.
DESEMBER KL: 17.15
Sjónvarpið hefur að undanförnu
verið að rifja upp dönskukunnáttu
okkar og um leið að kenna öðrum
íslendingum hana. Það gerir það
með þvi að endursýna hina ágætu
þætti „Hildur" sem nutu mikilla
vinsælda hér fyrir nokkru. HHdur
þessi er að sjálfsögðu íslensk -
öðru nafni heitir hún Lilja Þóris-
dóttir — og hressir hún vel upp á
þessa þætti með leik sínum.
SJÓNVARR SUNNUDA GINN2. DESEMBER KL. 22.35
íslenska hljómsveitin mætir i sjónvarpið og leikur mikið verk sem samið var að tilhlutan hennar. Var
það leikið i fyrsta sinn opinberlega i vor. Verkið heitir „Davið 116" og er byggt á Daviðssálmi númer
116.
SJÓNVARP SUNNUDA GINN 2. DESEMBER KL. 21.45.
Eitt það besta sem sjónvarpið sýnir um þessar mundir er breski
myndaflokkurinn Dýrasta djásnið sem er sent út á sunnudagskvöldum.
Er myndin frábærlega gerð og vönduð i alla staði. Þótt hún sé gerð af
Bretum eru þeir ekki að fela ruddamennskuna og hrokann sem þeir
sýndu Indverjum þegar þeir áttu og réðu Indlandi — djásni bresku krún-
unnar eins og það var kallað þá.
'v