Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Qupperneq 7
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
55
Frá
Þýska-
landi í
Landa-
kots-
kirkju
— Mótettukór
Hallgrímskirkju
tekur lagið
ásunnudag
„Viðtökurnar í Þýskalandi voru frá-
bærar og það sama má segja um gagn-
rýni er birtist í þýskum dagblöðum,”
sagði Hörður Áskelsson orgelleikari,
stofnandi og stjómandi Mótettukórs-
ins, en kórinn hélt 8 tónleika í 7 þýskum
borgum sl. sumar. „I Heidelberg voru
viðtökumar þannig að við þurftum að
taka hvert aukalagið á .fætur öðru og
enda á því að syngja fyrir utan kirkj-
una. Fagnaðarlátunum ætlaði bókstaf-
lega aldrei að linna,” sagði Hörður í
samtali við DV.
Nú gefst Islendingum kostur á að
sjá og heyra kórinn á tónleikum í
Landakotskirkj u næstkomandi
sunnudag klukkan 17. A efnisskránni
verður aöventu- og jólatónlist eftir
Gabrieli, Lechner, Eccard, Pachelbel,
Bach, Byrd, Mendelssohn og sálma-
lagaútsetningar eftir Róbert Abraham
Ottósson. Einsöngvarar verða Sigríður
Gröndal, Elísabet Waage, Einar örn
Einarsson og Kristinn Sigmundsson.
Þá koma fram málmblásarakvintett
og strengjahljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit Islands.
I Mótettukómum eru 40 manns, allir
undir fertugu og í nafninu felst að
kórinn flytur kórverk við kirkjulegan
texta án undirleiks. Tónleikarnir í
Landakotskirkju eru fyrstu tónleikarn-
ir á þriðja starfsári Listvinafélags
Hallgrímskirkju en Listvinafélagið er
rekstrarlegur bakhjarl kórsins.
-EHt.
VIÐURKENNDIR
BARNABÍLSTÚLAR.
fflwnaust h.t
^nHBSr SÍDUMÚIA 7-9 -SIMI 67722
REYKJAVÍK
Gagnrýni birtist í fjölmörgum þýsk-
um blöðum og hóidu margir að is-
lenski Mótettukórinn væri skipaður
atvinnumönnum.
lír Þýskalandsferð Mótettukórsins.
Hörður Áskeisson stjórnar.
Ein Lied
wachst
J“»geSfimm{ausder
fus dem hohe.
iVorr?
m dW
Islander míl erlesenpr Anoiit^r
DOftmund
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um
63 nýjar íbúðir i Ártúnsholti.
íbúðir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og verða væntanlega
afhentar síðla árs 1985 og fyrri hluta árs 1986.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri ibúðir, sem koma til
endursölu síðari hluta árs 1985 og fyrri hluta árs 1986.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara ibúða gilda lög nr.
60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut
30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga — föstudaga kl. 9 —12 og 13 —16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 4. jan. 1985.
Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi.
STJÓRN VERKAMANNABÚSTAÐA í REYKJAVÍK.
Umsóknir um íbúðakaup
TRYCCIR PÍR ÞOGINDIFYRSTA SPÖUNN
Bill fra Hreyfli flytur þig þægilega og a rettum
tima a flugvöllinn.
Þú pantar fyrirfram
við lija Hreyfli erum tilbúnir að flytja þig a Keflavikur-
flugvöll a rettum tima i mjukri limosinu. Malið er
einfalt. Pu hringlri sima 685522 og greinirfra dvalarstað
og brottfarartima. Við segjum þer livenær billinn
kemur
Eitt gjalcl fyrir hvern farþega
við flvtjum þig a notalegan og odyran hatt á
flugvöllinn. Hverfarþegi borgar fast gjald. Jafnvel þott
þu sert emn a ferð borgarðu aðeins fastagjaldið.
Viö vekjum þig
Ef brottfarartimi er að morgni þarftu að hafa samband
við okkur milli kl 20 00 og 23:00 kvoldið aður. Vid
getum seð um nð vekja þig með goðum fyrirvara, ef þu
oskar Pegar brottfarartimi er siðdegis eða að kvoldi
nægir að hafa samband við okkur milli kl. 10.00 og 12:00
sama dag
UREVFILL
685522