Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Page 10
58
DV. LAUGARÐAGUR 8. DESEMBER 1984.
Grísaveisla gnðanna
Um þessi jól fáift þið tækifæri til að borða grísasteik með ásum í Valhöll. Þátt-
takendur geta verið frá tveimur og upp í sex. Hver um sig er með sinn spilahund.
Teningur er notaður í leiknum og fært um jafnmarga reiti og punktarnir eru sem
koma upp á teningnum. Það hefur bæði sína kosti og sína galla að lenda á
svörtum reitum. Um það lesið þið í reglunum. Sá sem kemst fyrstur á 50 vinnur
grísasteikina.
1. Kastaðu teningnum og færðu áfram. Ef maöur fær 1 á að færa fram á reit
númer7.
5. Þú færð að keyra í vagni Þórs sem dreginn er áfram af geithöfrum. Færðu
fram á númer 10.
8. Fenrisúlfurinn fer í veg fyrir þig. Farðu fjóra reiti afturábak.
11. Dvergarnir smíða gullskart sem þú átt að hafa með til Freyju. Bíddu eina
umferð á meöan hinir kasta upp teningnum.
13. Hrafnar Oðins: Huginn og Muninn sjá allt og heyra. Þeir segja að þaö sé ekki
hægt að færa fram nema maður fái oddatölu.
17. Freyja verður svo hrifin af gullskartinu að hún lánar þér arnarham sinn.
Fljúgðu framá24.
21. Hinn lúmski Loki reynir að gabba þig. Ef það kemur upp jöfn tala á teningn-
um máttu færa fram. Ef það kemur upp oddatala verður þú að færa aftur.
26. Þú færö Sleipni, hest Oöins, lánaðan. Hann er með átta fætur svo að þú get-
ur farið helmingi lengra áfram en teningurinn segir til um.
33. Jötunn stelur Mjölni, hamri Þórs. Þú verður að hjálpa honum við að klófesta
hann aftur. Hentu teningnum upp tvisvar í röð. Færðu aftur á bak fyrir fyrra
kastið og áfram fyrir það seinna.
37. Epli Iðunnar valda því að jötnarnir eru ungir og ferskir. Þú færð epli og
aukakast.
41. Heimdallur gætir regnbogabrúarinnar Bifrastar. Hann leyfir þér að færa þig
yfir á númer 46.
45. Miðgarðsormurinn liggur í leyni. Bíða verður með að færa áfram þar til
maður fær annaðhvort 2 eða 4.
50. Þú ert kominn í mark og færð heilmikla grísasteik af Sæhrímni, svíninu sem
er slátrað á hverjum degi og vex aftur yfir nóttina. Ef teningarnir sýna fleiri
göt en maður þarf verður að telja fram á númer 50 og því næst til baka aftur.
Maður er ekki búinn að vinna fyrr en maður lendir akkúrat á 50.
___________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ .