Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Side 26
74
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984.
Edda og Helga-
og karlmannslausar
Allra nýjasta uppátæki Islendinga í
feröamennsku eru hinar svonefndu
kvennaferðir til Parísarborgar undir
leiösögn þeirra stallsystra Henríettu
og Rósamundu, öðru nafni Helgu Thor-
berg og Eddu Björgvinsdóttur.
Þær Edda og Helga eru svo þjóö-
kunnar af leiklist og allskonar
skemmtilegheitum að það væri aö bera
í bakkafullan lækinn að kynna þær
hérna, en kvennaferðir þeirra til
hinnar sögufrægu stórborgar eru
merkileg nýjung sem vert er að greina
frá.
Kvennaferðirnar eru — eins og
reyndar nafnið ber með sér — þess-
háttar feröalög, að eintómar konur eru
meö í förinni en engir karlmenn,
hvorki leiðbeinendur né farþegar.
Það hefur ekki staðið á margskonar
góðu gríni varðandi þessi Parísar-
ferðalög fósturlandsins Freyju —
menn þykjast sjá fyrir sér linnulaus
ástarævintýri, framhjáhald og daður,
og til eru þeir karlmenn sem finnst þaö
ganga skilnaði næst að sjá á bak sinni
heittelskuðu í slagtog með þeim Henri-
ettu og Rósamundu og hver veit nema
tiihugsunin um vöxtulegan franskan
karlpening hafi oftar en ekki kveikt
ferðalöngunina hjá hinu ljósa kyni.
Menning og afþreying
En hvaö í ósköpunum hafast þær aö
þama syðra, Rósamunda og Henríetta
og allar hinar? Og hvernig datt þeim
eiginlega í hug, þeim stöllum, að fara
þetta karlmannslausar út í veröldina
— hvað höfum við karlamir eiginlega
til saka unnið að sitja eftir með sárt
ennið meöan þær valsa um París og
skemmta sér ósleitilega?
Það kemur á daginn, er við spyrjum
þær Eddu og Helgu, að tilgangur ferð-
anna er fyrst og fremst sá að gefa
örþreyttum, íslenskum konum kost á
menningarlegri afþreyingu —
einhverjum kann að finnast menning
og afþreying útiloka hvort annað en
það finnst ekki þeim stöllum, nema
síður væri.
Sem sagt: ógleymanlegt
Parísardvölin hefst á því að farið er
með allan kvennafansinn í skoðunar-
ferð um Parisarborg þvera og endi-
langa til þess að veita þátttakendum
einskonar heildarsýn yfir hina sögu-
frægu menningarborg. Það er farið
með konumar í hinar og þessar ginn-
helgar kirkjur, svo sem Notre Dame,
Sacre Coeur. Það er ekið með þær eftir
breiögötunni miklu frá Concorde-torgi
til Sigurbogans. Þær sigla saman á
Signu og plampa um stærsta flóa-
markaðí Paris.
Það er farið með þær til Mont-
martre, listamannahverfisins fræga,
og síöan verja þær heilum degi í
Pompidousafninu.
Pompidousafnið er liklega sú bygg-
ing heimsins sem flestir gestir koma
til, og þar getur aö líta hér um bil alla
þá nútímalist sem mannsaugaö þolir
að skoða; þar eru bókasöfn, leiksvið,
hljómleikasalir og tölvubúin hljóöver
af fremstu gerð; þar eru stanslaust í
gangi ljósmyndasýningar, kvikmynda-
BALDUR HERMANNSSON RÆÐIR VIÐ EDDU BJÖRGVINSDÓTTUR OG HELGU THORBERG