Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Blaðsíða 2
24 DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. Sjónvarp Sjónvarp Stjórn upptöku: Þráinn Bertels- son. Áöur sýnt í sjónvarpinu á ný- ársdag 1980,. 16.10 Tommi og Jenni. Aðfangadag. Bandarísk teiknimynd. 16.15 Hlé. 22.00 Aftansöngur jóla í sjónvarps- sal. Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, predikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn og Skóla- kór Kársness syngja undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Mar- teins H. Friðrikssonar sem einnig leikur á orgel. 22.50 Jólaljóð eftir Peter Cornelius. Olöf Kolbrún Haröardóttir flytur sex jólaljóð eftir Peter Cornelius. Guörún A. Kristinsdóttir leikur á píanó. Söngkonan kynnir efni Ijóð- anna en þau eru um fæðingu Jesú- barnsins og jólahátíðina. Upptöku stjórnaði Tage Ammendrup. 23.15 Dagskrárlok. Sjónvarp aðfangadagskvöld kl. 23.00: ÓLÖF KOLBRÚN í SJÓNVARPSSAL Olöf Kolbrún Harðardóttir syngur einsöng í sjónvarpi á aöfangadags- kvöld og syngur þar jólalög. Oþarfi er að kynna Olöfu fyrir Islendingum, hún hefur nú um skeið verið ein þekktasta og vinsælasta söngkona hér á landi og viröist einu gilda hvort hún leggur fyrir sig óperusöng eöa ljóðasöng því allt gerir hún jafnvel. Það veröur eflaust hugguleg stund framan við sjónvarpstækið þegar Olöf syngur á aðfangadagskvöld. Sjónvarp aðfangadag klukkan 14.15: BEÐIÐ EFTIR JÓLUNUM Á meðan börnin bíða þess á aðfangadag aö fá að taka upp pakkana mun sjónvarpiö hafa ofan af fyrir þeim meðýmsumóti. Barnaefni í sjónvarpinu hefst þann dag klukkan 14.15 með svokallaðri aö- fangadagssyrpu þar sem endursýnt verður innlent og erlent barnaefni úr Stundinni okkar. Fyrst er þar að nefna mynd um Strumpana góökunnu og heitir þátturinn Haraldur í Skrýpla- landi. Er það brúðuleikur með söngv- um og um brúöurnar sjá þær stöllur Hallveig Thorlacius, Helga Steffensen og Helga S. Harðardóttir, að ógleymd- um Haraldi Sigurðssyni sem leikur sjálfansig. Á eftir Strumpunum koma tvær þýskar teiknimyndir sem nefnast sögumar hennar Siggu og Bósi. Þá veröur sýndur brúðuleikurinn Sigga og skessan eftir Herdísi Egilsdóttur. Glámur og Skrámur í Sælgætislandi koma næst en þaö er brúðuleikur með söngvum. Andrés Indriðason samdi textana en tónlistina þau Ragnhildur Gísladóttir og Þórhallur Sigurösson. Gunnar Baldursson gerði brúðurnar en leikararnir Róbert Arnfinnson, Halli og Laddi fara með stærstu hlutverkin. Klukkan 14.45 veröur sýnd kín- verska teiknimyndin Fiskimaöurinn og fuglinn Matgoggur. Aö því loknu kemur mynd um Paddington og nefnist hún Paddington fer í skóla. Klukkan 15.20 veröur svo endursýnt meira af íslensku efni en það er Gauksklukkan, sovéskt brúðuleikrit í sviðsetningu Leikbrúðuiands. Bríet Héðinsdóttir er leikstjóri, Atli Heimir Sveinsson sér um tónlistina og um brúðurnar sjá Helga Steffensen og Hallveig Thorlacius. Að síðustu verður jólamynd með Tomma og Jenna þar sem þeir félagamir verða í sannkölluðu jóla- skapi. Sjónvarpid verður með sérstaka barnadagskrá isjónvarpinu á aðfangadag. Þessi mynd er úr kinversku teiknimyndinni Fiskimaðurinn og fugiinn Mat- goggur. Rósa fngólfsdóttir teiknaði myndir sem tengjast sögu Viðeyjar. Hér sjáum við eina þeirra en við fáum að sjá margar i sjónvarpsþættinurn á jóladag. Sjónvarp á jóladag kl. 20.20: VIÐEY MEÐ SUNDUM Sjónvarpið lét gera á þessu ári mynd um sögu Viðeyjar frá upphafi til vorra daga. Greint er frá því margþætta hlutverki sem hún hefur gegnt í gegn- um aldirnar og spurt er hvert megi verða hlutskipti eyjarinnar í framtíö- inni. Saga Viðeyjar er merkileg fyrir margra hluta sakir. Þar var í eina tíð eitt merkasta klaustur á Islandi, þar áttu örlagaríkir atburðir sér stað um siðaskiptin og í Viöey var eitt helsta höfuðból Islands um langan aldur. Skúli Magnússon landfógeti reisti bú sitt í eynni og bjuggu arftakar hans í Viðey eftir hans dag. Skömmu eftir aldamót lét Milljónafélagið byggja þar fyrstu hafskipahöfnina við Faxaflóa og var hún þá helsta umskipunarhöfn landsins og miðstöð utanríkisversl- unar. Kvikmyndin er 70 mínútna löng og er myndefnið sótt til eyjarinnar og þeirra minja sem minna þar á fyrri tíma. Ljósmyndir úr safni Örlygs Hálfdánar- sonar veita innsýn í lífiö í eynni um og upp úr aldamótum og fylgst er með gömlum Viöeyingum sem heimsækja æskustöðvamar. Jón Ásgeirsson hefur samið tónlist við myndina og Rósa Ingólfsdóttir teiknaöi fjölda mynda sem tengjast sögu eyjarinnar. Þriðjudagur 25. desember JÓLADAGUR 18.00 Jólastundin okkar. Fylgst er með jólaundirbúningi og jólahaldi á heimili afa og ömmu. Þau fá þrjú barnabörn sér til aðstoðar enda er von á mörgum gestum. Þeir veröa þó fleiri en vænst var.Þama komu jólasveinninn Stúfur, Grýla gamla og fleiri boöflennur. Afa og ömmu leika Karl Guðmundsson og Soffía Jakobsdóttir en Hrannar Sigurðs- son, Sólveig Arnardóttir og Unnur Stefánsdóttir leika barnabörnin. Guömundur Ingólfsson sér um tón- listina. I jólaboðinu er líka flutt brúðuleikritið „Engillinn sem rat- aði ekki heim” sem Helga Steffen- sen bjó til flutnings. Umsjónar- menn jólastundar eru Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Mar- elsson, Gunnar Baldursson gerði leikmynd og upptöku stjórnaði Valdimar Leifsson. 19.00 Hlé. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.15 Jólahugleiðing. Þórir Kr. Þórð- arson, prófessor, flytur. 20.25 Viðey með Sundum. Heimilda- mynd sjónvarpsins um sögu Við- eyjar á Kollafirði frá upphafi til vorra daga. Greint er frá því margþætta hlutverki, sem þetta forna höfuöból hefur gegnt á liðn- um öldum sem klaustur, valda- setur og verslunarhöfn, og hugað er að hlut eyjarinnar í framtíöinni. Handrit og texti: Sigurður Gríms- son. Tónlist: Jón Ásgeirsson. Kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson. Hljóö: Böðvar Guö- mundsson. Klipping: Jimmy Sjö- land. Grafík: Rósa Ingólfsdóttir. Ráðgjöf og aðstoð við öflun heim- ilda: Ari Trausti Guðmundsson, sr. Bjarni Sigurðsson, Sigurður Líndal og örlygur Hálfdánarson. 21.35 Biáa stúlkan. Brúðulátbragðs- leikur um ástina eftir Messíönu Tómasdóttur. Tónlist: Karólína Eiríksdóttir. Stjórn upptöku: Við- ar Víkingsson. 21.55 Fanný og Alexander. Fyrsti hluti. Sænsk sjónvarpsmynd í f jór- um hlutum eftir leikstjórann Ing- mar Bergman. Aðalhlutverk: Bertil Guve, Pemilla Alwin, Ewa Fröling, Allan Edwall, Jan Malm- sjö, Gunn Waallgren, Erland Josephson og Jari Kulle. Myndin gerist í smábæ í Svíþjóð snemma á öldinni. Hún lýsir einu ári í lífi Ekdahlsættarinnar sem meðal annars rekur leikhúsið í bænum. Þetta er f jörmikið fólk og litríkt og ekki laust við mannlega bresti en miðdepill atburðanna er Alexand- er, 10—11 ára drengur með auðugt imyndunarafl. I fyrsta hluta er fylgst meö jólagleði Ekdahlsættar- innar en síöan valda óvæntir at- buröir þáttaskilum í lífi Fannýjar og Alexanders. Bíómyndin Fanný og Alexander hlaut fern óskars- verðlaun á þessu ári. Þýöandi Jó- hanna Þráinsdóttir. Annar hluti verður sýndur 28. desember. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 23.30 Dagskráriok. Miðvikudagur 26. desember 1984 ANNAR JÓLADAGUR 18.00 Þjóðlagahátíð í Munchen. Listafólk frá tíu löndum flytur þjóðlög og söngva og sýnir þjóödansa. Kynnir Petra Schiirmann. Þýðandi Veturliöi Guðnason. (Evróvision — Þýska sjónvarpiö). 19.25 Aftanstund. Barnaþáttur meö innlendu og erlendu efni: Söguhomið — Jólakötturinn bregður sér í bæinn eftir Iðunni Steinsdóttur. Höfundur segir söguna en myndirnar teiknaði Guömundur J. Guðjónsson, Tobba, Litli sjóræninginn, og Högni Hinriks. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Gullna hliðið. Leikrit eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Á undan sýningunni flytur Valur Gíslason Prologus höfundarins. Leikstjóri Ágúst Guðmundsson. Persónur og leikendur: Kerling: Guðrún Þ. Stephensen. Jón: Jón Sigurbjörnsson. Vilborg: Sigur- veig Jónsdóttir. Övinurinn: Arnar Jónsson. Lykla-Pétur: Róbert Arnfinnsson. Þjófur: Harald G. Haraldsson. Böðull: Sigurður Skúlason. Drykkjumaður: Hjalti Rögnvaldsson. Kona: Margrét Helga Jóhannsd. Ríkisbubbi: Borgar Garðarsson. Sýslumaður: Pétur Einarsson. Foreldrar kerl- ingar: Sigríður Hagalin og Guð- mundur Pálsson. Prestur: Gestur Einar Jónasson. Helga: Edda Björgvinsdóttir. Bóndinn: Þráinn Karlsson. Fiðlungur: Egill Olafs- son. Páll postuli: Steindór Hjör- leifsson. María mey: Kristín Kristjánsdóttir. Mikael erkiengill: Pálmi Gestsson og fleiri. Mynda- taka: Einar Páll Einarsson. Lýs- ing: Haukur Hergeirsson. Hljóð: Vilmundur Þór Gíslason og Bjarni Rúnar Bjarnason. Sviðsmynd: Gunnar Baldursson. Vatnslita- myndir: Snorri Sveinn Friðriks- son. Förðun og andlitsgervi: Ragna Fossberg. Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir. Stjórn upptöku: Andrés Indriöa- son. Sinfóníuhljómsveit Islands flytur tónlist eftir Pál Isólfsson. 22.40 Dómkirkjur. Kanadísk heim- ildamynd um miðaldakirkjur í gotneskum stíl. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 23.15 Dagskrárlok. Föstudagur 28. desember 19.15 Á döfinni. Umsjónarmaöur Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Krakkamir í hverfinu. 2. Kleina fer á sjúkrahús. Kana- dískur myndaflokkur í þrettán þáttum, um atvik í lífi nokkurra borgarbarna. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttirogveður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Duran Duran í sviðsljósinu. Dægurlagaþáttur með hljóm- sveitinni Duran Duran. Þátturinn var tekinn upp á þessu ári í Oak- land í Kaliforníu sem var einn við- komustaða Duran Duran í hljóm- leikaferð kringum jörðina. Þar léku þeir félagar tólf vinsælustu lög sín fyrir 60.000 áheyrendur. 21.40 Fanný og Alexander. Annar hluti. Sænsk framhaldsmynd í fjórum hlutum eftir Ingmar Berg- man. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. Þriðji hluti er á dagskrá að kvöldi nýársdags. (Nordvision — Sænska sjónvarpið).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.