Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1985, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR1985.
Sérstæð sakamál
Anna Grimaldi varfl þekktur blaflamaflur og sand i arfifl varkefni. Þarna er
mynd af henni ásamt fanganum Raffaele Culoto sem var háttsettur mafiu-
foringi.
heiman og út um gluggann gat hún séð
hverthannfór.
Anna stóð sig ákaflega vel sem
blaöamaður. Hún var i kynnum við
marga þekkta ítalska stjórnmálamenn
úr skemmtanalifinu og hún notaði sér
þau sambönd til að verða sér úti um
fréttaefni.
Mannætan
Hæstsettu og hlédrægustu menn
landsins, sem annars töluðu aldrei við
blöð, voru barnaleikur fyrir önnu
Grimaldi.
Hún tók bara upp símann og hringdi í
þá: „Heyrðu, félagi. Það er dálítið sem
miglangartilaðspyrjaþig...”
Hún fékk fljótlega nafnið „Mannæt-
an” meöal blaðamanna. Eftir að hún
kynntist Ciro Paglia var eins og hún
slappaði aðeins af. Hún virtist fullnægð
af blaðamannastarfinu og frístundum
með honum.
Og ógæfan varð til að þeim fannst
þau enn tengdari hvort öðru.
Þau höfðu verið saman í verkefni
sem blaðamenn, Ciro og hún, og voru á
leiðinni á ritstjórn með Fiat-Panda
sem Anna stýrði. Þau lentu í árekstri.
Anna var ómeidd eftir áreksturinn
en Paglia slasaðist alvarlega, fékk inn-
vortis blæðingar. Honum var ekið taf-
arlaust á Loreto-Crispi spitalann og
lagður á skurðarborðið. Skurðlæknarn-
ir sögðu að hann væri á milli heims og
helju og efuðust um að þaö tækist að
bjargalífihans.
Þegar Elena Paglia kom á spítalann
og gekk að eins manns herberginu á
deildinni, þar sem Paglia var vandlega
gætt, gekk Anna í veg fyrir hana og
meinaði henni að komast til manns
síns. Það leiddi til heiftarlegra deilna
milli þeirra og hefði líkast til endað
með handalögmálum ef roskinn yfir-
læknir hefði ekki komið til skjalanna
og minnt þær á að það væri maður
liggjandi fyrir dauðanum innan við
dymar.
Fjögur skot
Paglia-hjónin skildu eftjr að honum
batnaði. Anna sá til þess aö Ciro Paglia
fékk endurhæfingu eftir sjúkraleguna.
Þau urðu nú fyrst óaðskiljanleg. Það
var sem sé ærin ástæöa til að ætla aö
Elena Paglia hefði ástæðu til að vilja
önnu Grimaldi feiga. En hún kvaðst
hafa fjarvistarsönnun og hana hafði
hún.
Hvernig féllu upplýsingar Elenu
saman við þá vitneskju sem lögreglan
hafði um gerðir önnu áður en hún var
myrt?
Bevilacqua og félagar hans rannsök-
uðu það.
Fyrstu klukkustundir kvöldsins var
hún aö kaupa inn í tilefni af því að Elv-
ira, dóttir hennar, átti afmæli.
Meðal þess sem Anna keypti voru
tvær portvínsflöskur og nokkrir pakk-
ar af smákökum sem hún fór með.á II
Mattino. Hún lét dyravörðinn fá þær
með þeim boðum að fara meö þær upp
á ritstjóm og gefa félögum hennar svo
að þeir gætu skálað fyrir Elviru.
Bevilacqua taldi að dyravörðurinn
hefði verið næstsíðasti maður sem sá
hana á lifi. Móðir hennar var sá síð-
asti.
Klukkan tæplega 20 kom hún heim og
setti Pönduna i bílskúrinn. Síðan fór
hún að dyrum á háum veggnum sem
umlukti garðinn sem var umhverfis
lúxusíbúöina hennar.
Þama hitti hún morðingjann. Hann
fór með henni inn í garðinn og skaut
fyrst tveimur skotum og síðan aftur
einu. Anna reyndi að flýja en var þá
skotin fjórða skotinu og féll niður.
Skömmu síðar lést hún.
Síðbúinn gestur
Lögregluforinginn lítur á það sem
gefið að það hafi verið maður sem
Anna þekkti. Annars hefði hún ekki
leyft viðkomandi að koma með sér inn í
garðinn. Enginn í íbúðinni hafði heyrt
skotin. Þar hafði verið leikin diskótón-
list. Morðinginn fór ekki út úr garð-
inum gegnum dymar sem Anna og
hún/hann komu inn um. Hann klifraði
heldur ekki yfir vegginn á stað þar sem
var tiltölulega auðvelt að stökkva nið-
ur hinum megin. Það sýndi að um var
að ræða mann sem að þekkti aðstæður
vel. Böm önnu og Ugo Grimaldi köll-
uðu þennan stað leynistaðinn.
Skotin komu úr byssu sem var 6,35
kalibera. Það var byssa af stærð sem
glæpalögregla kallaði kvennabyssu
vegna þess hve lítil hún er. Byssan
fannst ekki þrátt fyrir mikla leit.
Síðbúinn gestur fann lík önnu. Hann
kom aö aðaldyrunum og gekk upp
gangstíginn. Á leiðinni rak hann augun
i eitthvaö á milli trjánna. Þegar hann
fór til að athuga hvað þetta væri sá
hann að þetta var lík önnu Grimaldi.
Aðeins dauðinn getur
slökkt
Lögreglunni var samstundis gert
viðvart. Yfirheyrslur hófust. Ciro
Paglia viðurkenndi að hann hefði verið
með myrtu konunni fyrr um daginn.
Fjarvistarsönnun hans var í lagi á
þeim tíma sem morðið var f ramið.
En hvemig var fjarvistarsönnun
fyrrverandi eiginkonu hans. Sam-
kvæmt skilningi rannsóknarlögregl-
unnar var hún vafasamari þar sem
hún var einungis 20 mínútur.
Bevilacqua lét Elenu Paglia fara í
paraffinrannsókn. Rannsóknin reynd-
ist nokkuð jákvæð og sýndi að Elena
gat hafa skotiö af byssu nokkru áður.
En hún hafði tekið þátt í skotæfingum
ásamt manni sinum meö skammbyss-
um. Það sagði hún vera ástæðuna fyrir
því að prófunin reyndist jákvæð. Hún
neitaöi að eiga byssu en vitni voru að
því að Ciro Paglia hafði gefið henni
byssu af þessari sömu gerð nokkru áð-
ur þegar enn var gott á milli þeirra
hjóna.
Lögregluforinginn Agostina Bevilae-
qua hafði sínar hugmyndir um þetta
mál. Ef til vill hefur hann verið minn-
ugur oröa enska leikskáldsins William
Wycherleys: „Aðeins dauöinn getur
siökkt loga afbrýðiseminnar.”
Kannski hefur hann líka hugsaö um
hefnd ítölsku neðanjarðarhreyfingar-
innar.
Morðið á daðursömu yfirstéttar-
frúnnierennóleyst.
— .......
Kópavogsbúar — Kópavogsbúar.
Kristján Óskarsson leikur á orgelið í kvöld, sunnu-
dagskvöld, frá kl. 21.00.
IJcfltllUVUIlt i2óbtorui 26. 200feópai)ogiir, jfelnii42541
J íifl í
Á ÍÞRÓTTAFRÉTTIR HE
'NNAR
NÝ SÖLUSKRIFSTOFA
FYRIR
SIGLUHARÐARHÚS
Höfum opnað nýja söluskriístoíu fyrir
Siglufjarðarhús í Hamraborg 12, Kópavogi.
Símanúmerið er 641177.
Jafnframt mun Verkírœðiþjónusta Guðmundar
Óskarssonar, Laugavegi 18,
annast sölu Sigluíjarðarhúsa
til 1. maí nk.
flBfe
HÚSEININGAR HF
SIGLUFIRÐI