Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRÍL1985.
ÓRAUNHÆFT AÐ FARA
UNDIR 74 PRÓSENT
—- segir forstjóri Hagvirkis um tilboð í norðurveg
FÍB fagnar
tilboði
Hagvirkis
Stjórn Félags íslenskra bifreiöaeig-
enda hefur fagnaö tilboði Hagvirkis
varöandi varanlega vegagerö á leið-
inni Reykjavík—Akureyri. Treystir
FlB því aö ríkisstjórn og Alþingi taki
máliö til skjótrar athugunar og hrindi
því í f ramkvæmd nú í sumar.
„FIB telur aö athuga þurfi tilboð
Hagvirkis nákvæmlega. Vera kann aö
bjóða þurfi þessar framkvæmdir út
meö venjulegum hætti eöa kanna á
annan hátt hvort nokkrir aöilar í
landinu gætu unnið verkið skjótar og
hagkvæmar.” -KMU.
Heiðarskóli
tuttugu ára
Forráöamenn verktakafyrirtækis
noröanlands, Samtaks, hafa lýst því
yfir að hægt sé aö ljúka lagningu
bundins slitlags á þjóðveginn milli
Reykjavíkur og Akureyrar fyrir 65
prósent af kostnaðaráætlun Vega-
gerðar.
„Eg tel ekki raunhæft að fara neöar
en 74 prósent af kostnaöaráætlun,”
sagði Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis.
„Ástæöan fyrir því aö prósentutalan
er ekki lægri er sú aö í tilboðinu eru
hlutir eins og brýr og slitlag, sem geta
ekki farið mikið niður fyrir áætlun, og
þar aö auki hönnun,” sagöi Jóhann.
Ymsir hafa orðiö til aö efast um aö
prósentutala Samtaksmanna sé vel
ígrunduö. Franz Arnason hjá Norður-
verki á Akureyri, sem er með stærstu
verktökum norðanlands, sagöi að
Samtak samanstæði af einum ýtu-
stjóra á Akureyri og körlum á Sauðár-
króki. Þeir heföu aldrei lagt slitlag og
hefðu aldrei unnið saman í tilboösverki
áöur en þeir fengu Leiruveg.
„Þetta er algjört rugl,” sagöi
ráðamaöur hjá Vegageröinni um 65
prósent tölu Samtaks. „Þessir Sam-
taksstrákar ættu aö láta það vera aö
grobba sig. Þeir eru búnir meö innan
viö tíu prósent af sínu fyrsta verki,”
sagði Vegagerðarmaðurinn.
Franz Amason hjá Noröurverki
treysti sér ekki til aö áætla fyrir hve
mikla f jármuni mögulegt væri aö gera
noröurleiöina varanlega. Hann taldi
hins vegar aö öll verktakafyrirtæki í
landinu yfir meðalstærð gætu ráðið við
verkið á þeim tíma sem Hagvirki
nefnir.
„Viö höfum ekkert á móti því aö
þetta veröi boðið út,” sagði Jóhann
Bergþórsson hjá Hagvirki.
„Ef einhver treystir sér til að fara
neöar en viö græðir Vegagerðin þvi
meira,” sagöi forstjóri Hagvirkis.
-KMU.
Frá Haraldi Bjarnasyni á Akranesi.
Heiðarskóli í Leirársveit er tuttugu
ára um þessar mundir og verður af-
mælisins minnst meö hátíöarhöldum
um helgina. Heiöarskóli er grunnskóli
fyrir hreppana sunnan Skarðsheiðar
að Hvalfjaröarbotni og eru nú um 100
nemendur í skólanum og þar starfa 8
fastráðnir kennarar auk skólastjór-
ans, Siguröar Guömundssonar, sen
verið hefur skólastjóri frá stofnun
skólans.
Upphaflega var skólinn heimavistar-
skóli en heimavist þar var lögö niður
áriö 1972 og er nemendum nú ekiö dag-
legatil ogfráskóla.
Undirbúningur fyrir afmælishá-
tíðina hefur staðiö yfir aö undanförnu
og hafa nemendur haft veg og vanda af
því verkefni. Skólanefndin ákvaö að
efna til opinnar viku í 10 daga og hafa
nemendur, sem eru 10 ára og eldri,
stundað nám samkvæmt stundatöflu
hálfan daginn en unnið aö marg-
víslegum verkefnum hinn helming
dagsins.
Eitt athyglisverðasta verkefniö
hefur verið uppsetning leikvallar viö
skólann og er hann að mestu heima-
smíðaöur og úr heimafengnu hráefni.
Þá hefur veriö unnið að uppsetningu
sýninga, svo sem á handavinnu og
gömlum myndum úr starfi skólans.
Gefiö verður út nemendablað og sett
veröur upp tívolí á svæöinu.
Þá hefur Heiöarskóli nú gefið út
vandað afmælisrit þar sem rakin er
saga skólans og skemmtilegir atburöir
rifjaðir upp af nemendum fyrri ára í
rnáli og myndum.
Úrskurðaður í 30
daga gæsluvarðhald
A föstudaginn var maöur nokkur,
sem á sínum tíma kom viö sögu Karls-
efnis-fíkniefnasmyglsins, úrskuröaöur
í þrjátiu daga gæsluvarðhald. Viö hús-
leit hjá manninum fannst talsvert
magn af fíkniefnum. -SOS.
íslensk málstöð:
BaldurJónsson
forstöðumaður
Samkvæmt lögum um Islenska mál-
nefnd, sem tóku gildi 1. janúar 1985,
rekur málnefndin Islenska málstöð í
samvinnu við Háskóla Islands. For-
stööumaöur Islenskrar málstöðvar er
jafnframt prófessor í íslenskri mál-
fræöi í heimspekideild með
takmarkaöa kennsluskyldu.
Forseti Islands hefur aö tillögu
menntamálaráöherra skipaö Baldur
Jónsson, mag. art., forstööumann
Islenskrar málstöðvar og prófessor í
islenskri málfræöi í heimspekideild
Háskóla Islands frá 1. apríl 1985 að
telja. Um embættið sótti, auk Baldurs,
Eiríkur Rögnvaldsson, cand. mag.
Astrid Lindgren á kvikmyndahátíð
Kvikmyndahátíð 1985 veröur opnuö
þann 18. maí meö sýningu á kvikmynd-
inni Ronju ræningjadóttur sem gerð er
eftir hinni ástsælu bamasögu Astrid
Lindgren. Astrid hefur notiö
geysilegra vinsælda meöal íslenskrar
æsku, en hún er m.a. höfundur Línu
langsokks, Bróöur míns Ljónshjarta
ogElsku Míó míns.
Astrid mun koma til landsins og
veröa viðstödd opnunina ásamt
leiktjóranum Tage Danielsson, sem er
einn af þekktustu leikurum og leik-
stjórum Svía. Þá veröur væntanlega
dagskrá meö verkum Astrid í Norræna
húsinu á meöan á dvöl hennar stendur.
Skáldkonan og leikstjórinn koma hing-
að í sameiginlegu boöi listahátíðar og
Norræna hússins.
Viðræður ASÍ og st jórnvalda um úrbætur
íhúsnæðismálum:
Samkomulag um
greiðslujöfnun
f rumvarp lagt fyrir Alþingi í næstu viku?
I viöræðunefnd ASI og stjómvalda,
um úrbætur í húsnæðismálum, hefur
náöst samkomulag um drög að
frumvarpi um greiðslujöfnun. Nú er
verið að ræða þessi drög innan
stjómarflokkanna og innan ASI. Búist
er viö aö þessi drög veröi lögð fyrir
ríkisstjómarfund á næstu dögum.
Björtustu vonir gera ráö fyrir því, ef
aö líkum lætur, aö frumvarpiö veröi
orðiö að lögum í næsta mánuði.
DV er ekki kunnugt um efnisinnihald
frumvarpsins í smáatriðum. Þaö er þó
byggt á þeim hugmyndum sem áöur
hafa komiö f ram um greiðslujöfnun.
Greiöslujöfnun felur í sér að þegar
afborganir fara yfir ákveöiö mark
skeröast þær. Mismunurinn kemur til
greiðslu þegar lániö hefur veriö greitt
upp aö öðm leyti. Þessi aðferð felur
einfaldlega í sér að lánstíminn lengist
þegar kaupgetan minnkar.
Höfuövandamálið hefur veriö
hvemig beita eigi greiðslujöfnun á þá
sem þegar em þjakaðir af þungum
greiöslum af lánum vegna minnkandi
kaupgetu og hárra vaxta.
DV er kunnugt um að greiöslu-
jöfnunin verður látin gilda frá þeim
tíma sem lán voru almennt
verötryggö.
Greiðslujöfhunarfrumvarpið miðar
því að því aö létta raunir húsbyggj-
enda sem þeir hafa gengiö í gegnum á
síöustu misserum. Þeim gefst tækifæri
til að lengja lánin eins og greiðslu-
jöfnun heföi veriö viö lýði þegar lánin
voru upphaflega tekin. Hér er fyrst og
fremst veriö aö tala um húsnæðislán.
Þá er einnig gert ráö fyrir því að líf-
eyrissjóðslán verði felld undir sömu
reglur. Einnig er þess vænst aö banka-
lán, sem lánuð hafa verið til langs tíma
og verötryggö, geti fallið undir
greiöslujöfnunarreglumar. Hvaö
snertir skammtímalán þá getur
greiðslujöfnun lítil áhrif haft á þau.
DV er ekki kunnugt um hversu
miklar lánalengingarnar veröa. Þaö
fer eftir því hvemig kaupmátturinn
veröur. Hins vegar er ljóst aö um
allverulega lengingu getur verið aö
ræða f yrir þá sem verst hafa farið út úr
húsnæðisbraskinu. Sú upphæð getur
skipt tugum þúsunda.
Næsta verkefni viöræðunefnd-
arinnar er að finna lausn á vaxta-
málunum. ASI og Framsóknarflokkur-
inn eru hlynnt því aö vextir lækki. ASI
hefur lagt til að vextir lækki úr 5
prósentum í 3 prósent. Otreikningar
hafa sýnt aö 2/3 hlutar af aukinni
greiöslubyröi eiga rætur sínar aö rekja
til hærri vaxta. Þriðjungurinn stafar
af rýrnandikaupmætti.
Skattaafsláttarhugmyndin fyrir hús-
byggjendur og þá sem em aö kaupa
sér húsnæði er enn til umræðu í nefnd-
inni. Hún hefur þó ekki hlotið nægilega
góðar undirtektir. Menn eru sammála
um að hún verði að vera þannig úr
garöi gerð að hún íþyngi ekki neinum.
Þá er ekki lokið viöræðum í nefnd-
inni um framtíðarskipan verðtrygg-
ingar lána. Ekki hefur tekist að
komast að niðurstööu um hvemig
veröbótavísitalan á lán eigi aö vera í
framtíðinni.
-APH.
Hreinsun hafin í Kollafjarðarstöðinni. Kerin eru meðal annars gufusoðin.
DV-mynd: VHV.
Kollafjarðarstöðin:
Kerin gufusoðin
Byrjaö er aö hreinsa ker Laxeldis-
stöövar ríkisins í Kollafirði eftir aö
tveimur milljónum seiöa var slátraö
þar í síðustu viku. Kerin eru meðal
annars gufusoðin.
Seiöin, sem slátraö var í síöustu
viku, voru ÖU frá árinu 1984. Þau voru
úr mjög sýktum klakfiski, fiski sem
bar veruleg sjúkdómseinkenni nýma-
veikinnar.
Enn eru eftir í stöðinni seiöi frá árinu
1983. Sjúkleg einkenni hafa ekki
fundist í þeim, hins vegar em þau með
smit. Ákvörðun hefur ekki veriö tekin
um slátrun þessara seiöa. Sjá á til
hvemigþauþróasttUvorsins. -JGH.
▲ MITSUBISHI
^COLT
MITSUBISHI M M
MOTORS
Framdrifinn smábíll með eitthvað fyrir alla:
» Unga fólkið velur COLT vegna þess hve hann er
kröftugur, snöggur og sportlegur.
» Foreldrarnir velja COLT af pví hann er ódýr í rekstrl og
endursöluverö er svo hátt.
» Afi og amma velja COLT sökum þess hve gangviss
hann er, þýður og þægilegur í snúningum.
» Öll eru þau sammála um að krónunum sé vel varið í
Mitsubishi COLT
■SlMP83
Verð frá kr. 379.900