Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1985.
3
Skaftamálið:
Löngbið
eftir sér-
fræðingi
Mál Skafta Jónssonar blaðamanns
gegn lögreglumönnunum er enn í
Sakadómi Reykjavíkur. Aö því er
Hjörtur Aðalsteinsson sakadómari
tjáði DV er nú beðið umsagnar sér-
fræðings í réttarlækningum.
Eins og DV hefur greint frá stóð upp-
haflega til að ljúka gagnavinnslu í
Sakadómi fljótlega eftir páska. Þá átti
að senda málið til Hæstaréttar.
Hjörtur sagði að ekki væri vitað
hvenær vænta mætti umsagnar ofan-
nefnds sérfræðings. Hann þyrfti að
lesa yfir öll málsskjöl áður en hann
gæfi umsögn sína. Það tæki væntan-
lega einhvem tíma. Því væri ljóst að
máliö yrði ekki sent Hæstarétti á næstu
dögum.
-JSS
Langlínumínút-
an tífalt
dýrari en
innanbæjar
Fimm þingmenn Alþýöubandalags
vilja fela ríkisstjórninni að gera
áætlun um uppbyggingu símakerfisins
og símaþjónustu til að jafna gjaldskrá
símans í áföngum með það að
markmiði að landiö verði allt eitt
gjaldsvæði innan 5 ára.
Þeir hafa lagt fram tillögu til þings-
ályktunar um sama gjald fyrir síma-
þjónustu á öllu landinu.
Þeir vilja einnig tryggja að
kostnaður vegna símtala við stjórn-
sýslustofnanir verði hinn sami hvar
sem er á landinu fyrir árslok 1987.
Samkvæmt mælingum Póst- og
símamálastofnunarinnar virðast 75%
skrefa á landsbyggðinni vera vegna
langlínunotkunar en aðeins 40% á
Reykjavíkursvæðinu. Miðaö við
meðalsamtalslengd, 3—5 mín. á lang-
línu, lætur nærri, að mati Pósts og
síma, að hver mínúta í langlínusamtali
kosti nú 10 sinnum meira en í innan-
bæjarsamtali. Þetta kemur fram í
greinargerð fyrir tiUögu þing-
mannanna fimm, þeirra Hjörleifs
Guttormssonar, Ragnars Arnalds,
Skúla Alexanderssonar, Steingríms J.
Sigfússonar og Helga Seljan.
-ÞG
Sporhundur-
inn Kolur
rakti slóð
hestamanns
sem villtist íþoku
fyrir ofan Haf narfjörð
15 ár piltur úr Hafnarfirði, sem fór í
útreiðartúr á þriðjudagskvöld, vUltist í
þoku. Þegar pilturinn, sem lagði af
stað i útreiðartúrinn kl. 20 um kvöldið,
var ekki kominn heim kl. 1 eftir
miðnætti var hafin leit að honum.
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði var
köUuö út. Atján manns og spor-
hundurinn Kolur lögðu af stað tUleitar
og kl. 4 fannst pilturinn uppi við Sléttu-
hUð. Það var Kolur sem rakti slóð
hestsins og pUtsins. Þetta mun vera í
fyrsta skipti sem sporhundur rekur
slóð eftir mann sem er á hestbaki,
sagði Snorri Magnússon hjá Hjálpar-
sveit skáta í Hafnarfirði í samtaU við
DV.
Snorri sagöi aö pUturinn hefði vUlst
út af veginum vegna þoku og ákveðið
að halda kyrru fyrir. „Hann var orðinn
kaldur þegar við fundum hann,” sagði
Snorri.
-sos
Leigubílstjóri ræðst á 18 ára ungmenni:
„Sparkaði hvað eft-
ir annað í mig”
„Mér brá auövitað mjög þegar leigu-
bUstjórinn henti mér í jörðina og
sparkaði hvað eftir annað í mig,
einkum fyrir neðan beltisstaö. Síðan
fór hann í jakkann minn, tók þaöan
veski mitt með persónuskilríkjum,
einhver jum peningum og ók á brott.”
Þetta sagði Gunnlaugur Marinósson,
18 ára ungmenni, sem lenti í heldur
óskemmtUegri ökuferð aðfaranótt 14.
aprUsl.
Gunnlaugur var 'að koma af
skemmtistað. Stöðvaði hann leigubU
og bað bílstjórann að aka sér í Breið-
holt. A leiðinni tóku þeir tal saman og
varðsundurorða. Þegar bUstjórinn átti
að aka inn í innkeyrslu við heimili
Gunnlaugs beygði hann í þveröfuga átt
og stöövaði bUinn.
„Ég sat í aftursæti og vissi ekki fyrr
en bUstjórinn stökk út. Hann svipti upp
afturhurð bUsins og dró mig út. Ég datt
fljótlega.
Þá hóf bílstjórinn að sparka í mig
hvað eftir annað, einkum fyrir neðan
beltisstað. Síöan fór hann í jakkavasa
minn, tók þaðan veskið mitt, ýmis
skilrUci, ökuskírteini og eitthvað af
peningum. Meö þetta hélt hann á brott.
Eg skreiddist heim, lurkum laminn
eftir meðferöina. Eg tók ekki eftir því
frá hvaða stöð bíUinn var. En bU-
stjórinn var ungur maður, rétt um
þrítugt, heldég.”
Gunnlaugur stundar nám í skóla úti
á landi og þangaö hélt hann strax
Gunnlaugur Marinósson lenti I
óskemmtilegri ökuferð.
daginn eftir atburðinn. En veski sitt og
skilrOci hefur hann enn ekki fengið. ViU
hann beina þeim tUmælum tU
viðkomandi bílstjóra að hann komi
þessum hlutum tU skila sem aUra
fyrst. -JSS
Bang & Olufsen
Danska
Einu sinni voru tveir ungir menn. Þeim
hugkvæmdist að örugglega væri hægt að
nýta tæknina betur: Tæknin ætti að þjóna
fólkinu og vera því til góða.
Félagarnir stofnuðu fyrirtæki til að vinna
að einu markmiði: Að framleiða tæki sem
ættu sér ekki jafningja, hvorki í hönnun né
tæknilegri fullkomnun. Fyrirtækið skýrðu þeir
Bang & Olufsen.
Dirfska þeirra borgaði sig. í danska ævin-
týrinu varð draumurinn um fullkomna mynd
ævintýrið
og hreinan tón að veruleika, og tækin hlutu
lof og viðurkenningu.
í gegnum árin hefur hvergi verið hnikað
frá markmiðum þeirra Peters Bang og Svend
Olufsen. Hjá B & O finnast enn úrlausnir,
þar sem aðrir sjá aðeins vandkvæði og
tormerki. Þarna liggur munurinn á venju-
legum tækjum og frábærum. Radíóbúðin
hefur Bang & Olufsen tæki á boðstólum.
Kynntu þér þau nánar. Þau eru örugglega
við þitt hæfi.