Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 26. APRIL1985. Uppsagnir á Selfossi vekja athygli: BÆJARSTJORIOG BYGGINGA FULLTRÚISEGJA UPP Stefán Omar Jónsson, sem var ráöinn bæjarstjóri á Selfossi 1982, sagöi starfi sínu lausu á bæjarstjórnar- fundi á fimmtudaginn. Áöur haföi Helgi Bergmann Sigurösson, bygg- ingafulltrúi Selfoss, sagt starfi sínu lausu. Sá orörómur hefur veriö uppi á Sel- fossi að Stefán Omar hafi sagt starfi sínu lausu vegna ágreinings í sam- bandi viö stjómun hitaveitu bæjarins. „Eg hef aldrei heyrt þetta áður og vil ekki ræða málin í f jölmiðlum. Þetta er eins og gengur og gerist, að maður skiptir um starf,” sagði Stefán Omar í viötali við DV. Stefán Omar sagði aö ekkert sam- band væri á milli uppsagnar hans og Helga Bergmanns. „Helgi sagði starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum. Eg vissi ekki um uppsögn hans og hann ekki um mína þegar ljóst var að viö værum að segja upp,” sagði Stefán Omar. Uppsögn Stefáns Omars hefur vakið mikiö umtal á Selfossi enda hefur hún komið á óvart hjá bæjarbúum. Stefán Ömar er þekktur fyrir mikla bjartsýni og trú á uppgang bæjarfélagsins. „Eg er ennþá bjartsýnn fyrir hönd bæjarfélagsins. Engarbreytingarhafa oröið þar á þó aö ég hafi sagt starfi minu lausu. Bæjarfélagið er á réttri og góðri leið. Það kemur maður í manns stað,” sagði Stefán Omar. -SOS. Stefán Ómar Jónsson. DVáReykhólum: Steypustjóri gerir klárt — kíkt inn í smiðju Guðlaugs Theódórssonar Hann er steypustjórinn á Reykhól- um, á tvo steypubíla og einn krana, selur 1500 rúmmetra af steypu á ári, þjónar þeim í Dölunum líka, og auðvitað að gera klá rt fyrir sumarið. Vertíðin er senn að byrja hjá Guölaugi Theódórssyni í Steinveri sf. Það varð maður var við þegar kíkt var inn í verkstæði hans. Það var verið að gera klárt. „Þetta er ekkert stórræði,” sagði Guðlaugur, rólegheitin uppmáluð. Ekki látunum fyrir að fara. „Dugir mérrétttilaðlifa.” Guðlaugur sagði að vertíöin hæfist hjá sér seint í maí, þá færu menn að huga að steypuvinnunni. „Annars er þetta meira leiga á tækj- unum en að ég búi sjálfur til steypuna. Þaö er mest um þaö að ég leigi út tækin.” Steypustjóri hefur Guðlaugur verið í 8 ár, hann missti af vinnu við Þörunga- vinnsluna hf. „Hún var komin áður en ég byrjaði,” eins og hann oröar það. — Ogíhverjuáður? „Já, ég var í ýmsu áður en maður fór í steypuna, fékkst þó nokkuð við við- gerðirábílum.” Hér með færð þú góðar óskir að sunnan um góð viðskipti í sumar, Guð- laugur. -JGH 92 gámar af ísuðum fiski til Englands — Þetta er mesta magn af ísuöum fiski sem hefur verið flutt með gámum til sölu á mörkuðum erlendis á svo stuttum tíma, sagði Jóhanna Hauks- dóttir, fulltrúi hjá LIU. Nú eru á leið- inni á markað í Grimsby og Hull um 1100 tonn af ísuðum fiski í gámum — mest er af kola. Það eru þrjú skip sem hafa lestað farminn í Vestmanna- eyjum og á S-Vesturiandi, alls eru þetta 92 gámar. Grundarfoss og Skeiðsfoss fóru með samtals 68 gáma og Helgey fór með 24 gáma. Lágt verð hefur verið á kola hér á landi. Hærra verð fæst fyrir fiskinn á Bretlandseyjum. -SOS Einn í smiðju sinni að gera klárt fyrir vertiðina. Steypustjórinn á Reykhól- um, Guðlaugur Theódórsson. „Þetta er ekkert stórresði, dugir már rétt til aó lifa." DV-mynd: Kristján Ari. 1 frpjjjj Nýtt leikrit hjá Leikf élagi Akureyrar: Kötturinn sem fer sínar eigin Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir heitir nýtt leikrit eftir Olaf Hauk Símonarson sem veröur frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar klukkan 17.00 á sunnudaginn. Þaö hefur sannarlega verið mikið leikritunarár hjá Olafi Hauki því ný verk eftir hann hafa verið á fjölunum í þremur leikhúsum, Þjóð- leikhúsinu, á Húsavík og nú í leikhús- inu á Akureyri. Þar aö auki hafa Blómarósirnar hans ilmað og svo er Leikfélag Reykjavíkur byrjað að æfa leikritið Ástin sigrar sem Húsvíking- arnir voru með. Þetta nýja barna- og fjölskylduleik- rit er byggt á smásögu eftir Rudyard Kipling. Þaö fjallar um það hvemig hin villtu dýr eru tamin og verða hús- dýr og hvernig siðmenningin tekur við af villimennskunni. Þarna eru saman komin f yrstu dýrin og fyrstu hjónin. Dýrin sem koma fram eru hundurinn og það sést hvernig hann verður besti vinur mannsins, villihesturinn sem veröur þarfasti þjónninn og kýrin sem verður búbót mikil. Og svo blessaður kötturinn sem fer bara sínar eigin leið- ir. Þama eru lika maðurinn, konan og bamið. Kötturinn vill auövitað halda frelsi sínu gagnvart manninum en verður á endanum að sætta sig við að taka á sig skyldur. Ölafur Haukur sagði þetta um kött- inn sinn í samtaU við DV: „Ætli þessi köttur þama fari ekki nærri eðU katt- anna. Þeir koma alltaf aftur að sækja sér fæðu og hvílast þegar þeir þreyt- ast. Eg held að kötturinn eigi eftir aö njóta hyUi hjá krökkunum eins og kett- ir yfirieitt gera. Þaö er ekki fyrr en við eldumst sem við verðum örg út í sjálf- stæöiþeirra.” Persónumar í leikritinu eru músík- alskar í meira lagi og gera verkið að hálfgerðum söngleik. Þarna em 10 söngvar sungnir, lög og textar em eftir Olaf Hauk. Gunnar Þórðarson útsetti og hljómsveit hans lék inn á band sem er notað í sýamgunni. LeUtararnir eru Þráinn Karlsson, Theodór JúUusson, Þórey Aðalsteins- dóttir, Sunna Borg, Pétur Eggerz, Marinó Þorsteinsson og Rósberg Snædal. Messiana Tómasdóttir hannaði leikmynd og búninga, Alfreö Alf reðsson lýsrngu og Sigrún Valbergs- dóttir er leikstjóri. JBH/Akureyri. Islandsmeistaramótiö í vaxtarrækt á sunnudag: SVIÐSUÓSIN OG HVATNINGARHRÓP ÁHORFENDA HEILLA I líkams- og heUsuræktarstöövum landsms er vaxtarræktarfóUc að leggja síðustu hönd á undirbúning sinn fyrir Islandsmeistaramótið í vaxtarrækt, sem fer fram í veitingahúsinu Broad- way næstkomandi sunnudag. Við brugðum okkur í Orkulmdina í Brautarholtinu, þar sem Stefán Hall- grimsson frjálsíþróttakappi ræður rUcjum, og tókum tvo af væntanlegum keppendum, sem þar æfa, tali. Eru það Olafía Svandís Grétarsdóttir og Július Ágúst Guðmundsson. Svandís Grétarsdóttir Svandis er 19 ára Reykjavíkurmær, ættuð úr Borgarfirðmum, og starfar nú sem læknaritari hjá Trygginga- stofnun ríkisins en hún útskrifaðist sem stúdent frá Kvennaskólanum um sL jól. Aðspurð um íþróttaferil sinn sagðist hún hafa byrjað að æfa frjálsar íþróttir meö UMSB þegar hún var í sveit í Reykholtsdal, 13 til 15 ára að aldri. Þá sagöist hún hafa æft hand- bolta og keppt með IR í þrjá vetur en hætti í handboltanum þegar hún byrjaði að æfa lOcamsrækt fyrir rúm- um tveimur árum. Sagðist Svandís hafa orðið vör við ýmsar breytmgar á likama srnum þegar hún byrjaði aö æfa l&amsræktma, óþarfa fita hvarf, hún varð meðvitaöri um líkama sinn og sjálfsöryggiö óx. Þaö var svo um sl. áramót sem Svandís ákvað að keppa í Islandsmeistaramótinu og hóf undir- búnrng undrn það meö erfiðum og þungum vaxtarræktaræfingum. Sagði Svandís að sig heföi langaö til að sjá hvort hún þyldi það líkamlega og andlega álag sem fýlgdi því að búa sig undir og taka þátt í keppni sem þess- ari. Sagðist Svandís hlakka til keppn- innar en sú tilhlökkun væri þó blandrn svolitlum kvíða fyrir því að standa í litlum sundfötum einum klæða í sviðs- ljósinu fyrir framan mörg hundruð manns. Júlíus Guðmundsson Hinn keppandinn, sem viö trufluðum við æfingar í Orkulindmni, var Júlíus Guðmundsson en hann er einungis 17 ára gamall. Þrátt fyrir það hefur hann æft vaxtarrækt í rúm þrjú ár og keppt sex sinnum í vaxtarrækt. Á Lslands- meistaramótmu 1982 lenti Júlíus í Svandis saglst hlakka til afl taka þátt i islandsmaistaramótinu í vaxtarrœkt en sú tilhlökkun er þó blandin kvífla fyrir þvl að þurfa afl standa fáklœdd fyrir framan fjölda áhorfenda. DV-myndir Jóhann Kristjánsson. þriðja sæti í unglingaflokki. Arið eftir varð hann einnig í þriðja sætinu í Islandsmeistaramótinu en viku eftir það keppti hann á Norðurlandsmóti á Akureyri og lenti þá í öðru sæti. I nóvember 1983 keppti Júlíus á Kefla- víkurflugvelli og lenti þar í öðru sæti. A Islandsmeistaramótinu í fyrra keppti Júlíus í 70 til 80 kg flokki og hafnaði þar í öðru sæti. Viku síðar keppti hann í Islandsmeistaramóti Július Guflmundsson æfir um þess- ar mundir sjö daga vikunnar, þrjár klukkustundlr á dag. Þessa dagana segist hann taka minni þyngdir en fleiri endurtekningar, auk þoss sem hann tekur fleiri aukaæfingar fyrir „finpússningu". unglinga á Akureyri og varð þá Islandsmeistari í -75 kg flokki. Að þessu sinni hyggst Júlíus keppa í +75 kg unglingaflokki og sagðist hann stefna að því að verða Islandsmeistari unglinga. Július sagðist hafa mikla ánægju af að keppa í vaxtarrækt og skipti þá ekki máli þótt hann ienti í neösta sætinu ef áhorfendur stæðu með honum og hvettu hann til dáða. -Jóhann Kristjánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.