Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1985.
5
Áburðarverksmiðjan:
Tapið um 43
milljónir kr.
— afskriftir námu 90 milljónum
— vandinn nú talinn íkringum 100 milljónir kr.
Fjárhagsvandi Aburðarverksmiöj-
unnar er enn óleystur en rætt er um
að hann sé í kringum 100 milljónir
króna. Talið er líklegast að verk-
smiðjan fái beinan styrk úr ríkis-
sjóði. Nefnd til að fjalla um aðstoð-
ina er enn óskipuð. Hún á að athuga
hvernig og hversu mikil aöstoðin
verður.
Samkvæmt upplýsingum DV nam
tap verksmiðjunnar á síðasta ári um
43 milljónum króna. Gengistap
reyndist hins vegar vera um 191
milljón króna. Og afskriftir verk-
smiöjunnar voru 90 milljónir, bók-
færðarafskriftir.
Vandi Aburðarverksmiðjunnar nú,
eftir að áburðarverð hækkaði, er tal-
inn í kringum 100 milljónir króna.
Þaö er einmitt sú taia sem verk-
smiðjan fékk úr kjamfóðursjóði á
síðasta ári.
Nýhækkaö áburðarverö hækkar
tekjur verksmiðjunnar um 16,2%.
Verksmiðjan sjálf áætlaði hins vegar
að hún þyrfti 56% hækkun á þessu ári
svo afkoman yröi eðlileg eins og það
er kallaö.
Tekjur verksmiðjunnar á síðasta
ári voru í kringum 760 milljónir
króna. En gjöld voru um 803 milljón-
ir, þar af reiknaðar afskriftir um 90
milljónirkróna.
Verð áburðarins hefur hækkaö um
40% til bænda. Engar niðurgreiðslur
munu koma í ár, það er greiðslur úr
kjamfóöursjóði.
Til upprifjunar skulum viö segja
að verðið í fyrra hafi verið 100.
Bændur greiddu 83, kjarnfóðursjóður
17. Greiðsla bændanna hefur hækkaö
um40%,úr83íll6.
Tekjur verksmiðjunnar hækka úr
100 í 116, þaöerl6% hækkunin. Verk-
smiðjan vildi þvi fá verðið upp í 156
en það fékkst ekki fram í gegnum
áburðarverðið.
-JGH
ITT Ideal Color 3304,
-fjárfesting í gæöum
á stórlækkuöu veröi.
Vegna sérsamninga við
ITT verksmiðjurnar í
Vestur Þýskalandi, hefur
okkur tekist að fá
takmarkað magn af 20"
litasjónvörpum á
stórlækkuðu verði.
ITT
Verð á 20" ITT litsjónvarpi
Kr. 28.700,-
Sambærileg tæki fást ekki ódýrari.
ITT er fjárfesting í gæðum.
SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 8c 26800
Bjarki Elíasson um aðgerðir leigubílst jóra:
„Eru alls ekki að að-
stoða lögregluna”
„Leigubílstjórar eru alls ekki að að-
stoða lögregluna með þeim aðgerðum
sem þeir hafa haft í frammi undan-
farnar helgar til að stöðva farþega-
flutninga Sendibila hf. Við kærum
okkur alls ekkert um það. Leigubíl-
stjórar eru þarna að fara út fyrir sitt
verksvið.”
Þetta sagði Bjarki Elíasson yfirlög-
regluþjónn er DV ræddi við hann.
Leigubílstjórar hafa sem kunnugt er
haft í frammi aðgerðir undanfarnar
helgar til að stöðva farþegaflutninga
Sendibíla hf. Einn bílstjóranna sagði
nýlega í viötali við DV aö bílstjórarnir
væru með þessu að aðstoöa lögregluna
þar sem Sendibílar hf. væru að brjóta
lög.
„Eg er ekki að mæla Sendibílum hf.
bót,” sagði Bjarki, „en ef einhver er að
brjóta af sér þá eru þaö báðir aöilar í
þessumtilvikum.”
Bjarki sagði ennfremur aö mál
Sendibíla hf. hefði verið rannsakað.
Það væri nú til umfjöllunar hjá sak-
sóknara. Hann legði endanlegt mat á
meðferð þess. Þetta mál lyti sömu lög-
málum og önnur af sama toga. Það
yrði að ganga rétta boðleið.
,,Við munum grípa inn í ef til tíðinda
dregur milli Sendibíla hf. og leigubíl-
stjóra,” sagði Bjarki. ,,En við getum
ekki komið í veg fyrir svona lagaö.”
-JSS.
með Jjölda stórraviiminga
íbúðarvinningur
♦ r ♦
Vinningar tii íbúðakaupa
á 500þúsund krónur
MIÐI ER MÖGULEIKI
____ HAPPDRÆTTI________
Dvfdarheiiralis aldraðra sjómanna
tttáé VÍÐSJÁ