Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRIL1985.
9
Útlönd Útlönd
Nýja Kaledónía:
Kjósa um heima-
stjórn 1987
Frá Friðriki Rafnssyni, fréttaritara
DVíParís:
Franska ríkisstjórnin kom saman til
aukafundar í gær, fimmtudag, til að
taka ákvörðun um ráðstafanir í
málefnum Nýju Kaledóníu. I f undarlok
gaf forsætisráðherra, Laurent Fabius,
út tilkynningu sem kvað á um fyrir-
hugað stjórnarfyrirkomulag á eyja-
klasanum.
I máli ráðherrans kom fram að tvö
grundvallaratriði teldust vera for-
senda hvers kyns lausnar deilu-
málsins. Annars vegar þótti ráðherra
nauðsynlegt aö haldið yrði uppi reglu
og deiluaðilar ræddu málin. Hins veg-
ar taldi ráðherrann að bæði þyrfti að
taka með i reikninginn hagsmuni
hinna ýmsu þjóðfélagshópa á staðnum
sem og franska ríkisins.
Fabius tilkynnti ennfremur að
stefnt væri að þvi að veita eyjaklas-
anum sjálfstæði í framtíðinni, sjálf-
stæði sem yrði þó í beinum tengslum
við Frakkland.
Atkvæðagreiðsla um heimastjórn
mun fara fram í síðasta lagi fyrir árs-
lok 1987, það er eftir þingkosningamar
hér í Frakklandi næsta vor.
Þangað til verður eyjaklasanum
skipt í fjögur svæði, sem stjórnað
verður af beint kosnum héraðsþingum.
Gert er ráð fyrir að kosningar til þess-
ara héraösþinga fari fram í ágúst-
mánuði næstkomandi.
Áætlun stjórnarinnar gerir
sömuleiðis ráð fyrir stórauknum fjár-
framlögum til uppbyggingar atvinnu-,
þjóð- og menningarlífs á Nýju
Kaledóníu.
Ráðherrann sló svo botninn í yfir-
lýsinguna með því að ítreka nokkuð
sem ofarlega hefur verið á baugi und-
anfarið, en það er sú ætlun rikisstjórn-
arinnar að stórauka heraflann í Nýju
Kaledóníu.
Eyjaklasinn er Frökkum afar
mikilvægur hernaðarlega, því mestur
hluti kjamorkutilrauna þeirra fer
f ram á Kyrrahafssvæðinu.
MAFÍUMORÐ
Á SIKILEY
Fjárhirðir í starfi hjá einum
mafíuforingja á Sikiley og tveir 15
ára piltar voru meðal sex manna,
sem skotnir voru til bana í gær við
.Kataníu. Virðist þarna hafa verið
um hefndaraðgerðir að ræða út af
gamalli misklíð innan mafíunnar,
en foringi hinna drepnu, Francesco
Alleruzzo, er í fangelsi.
Önnur réttarhöld
yfir von Biilow
Martha „Sunny” von Bulow lá eitt-
hvert sinn rænulaus í níu klukkustund-
ir á meðan eiginmaður hennar,Klaus,
las í bók og hundsaði beiönir um aö
kveðja til lækni.
Þetta bar Maria Schrallhammer,
sem var þema Mörthu í 23 ár, fyrir
rétti í gær. Það eru önnur réttarhöldin
yfir hinum danskættaða Klaus von
Bulow, sem sakaður er um að hafa
reynt aö myröa eiginkonu sína, svo að
hann gæti erft milljónir hennar og
gengið að eiga hjákonu sina. — Haldið
er fram aö hann hafi sprautað konu
sína insúlíni, en hún hefur ekki komið
til méðvitundar síðan í desember 1980.
Viö fyrstu réttarhöldin var Klaus
fundinn sekur og dæmdur í 30 ára fang-
elsi, en áfrýjunarréttur Rhode Island
hnekkti þeim úrskurði út af tæknilegu
atriði.
Auðmanninum Claus von Biilov brá
þegar hann var fyrst dæmdur sekur
um morðið á eiginkonu sinni. Síðan
var þeim úrskurði hnekkt en nú
reynir saksóknari aftur.
Átta lögreglumenn drepnir
Atta lögreglumenn fórust og 11 að skæruliðum í norðlægum héruðum
særðust þegar sprengja sprakk á landsins. Skæruliðar hafa yfirgefið
æfingasvæði lögreglunnar í E1 bækistöðvar sínar til að forðast
Playon í E1 Slavador. árásirhersins.
A meðan sóttu um 4.500 hermenn
Gunnar Ásgeirsson hf. Fæst einnig í Blómavali v/Sigtún
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 og Alaska í Breiðholti.
GARÐURINIM ÞINN VERÐUR
„GÖTUPRÝÐI"
EF ÞÚ KLIPPIR LIMGERÐIÐ
MED
FÖSTUDAGSKVÖLD
W|Ȓ
í JIS HÚSINUI í JIS HÚSINU
OPIO I ÖLLUM DEILDUM T1L KL. 8 í KVÖLÐ
GLÆSILEGT
ÚRVAL
HÚSGAGNA
Á TVEIMUR HÆÐUM
Verslið þar sem úrvalið
er mest
og kjörin best
OPIÐ LAUGARDAG KL. 9-16
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
VISA
Jli
'A A A A. A A »■
2 CD C D d 13 nU'lO. _
:_G_i EZ ._ZZ lJ il Í-IQQJ
UUIJOO.JU
I fti Bl n SU itfl UIU U U i' i I • l n,
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
• 20 tommu fjarstýrt litasjónvarp.
• 8 stöðva val.
• Quick-start In-liner myndlampi.
• Tengi fyrir hátalara og segulbandsupptökur.
ÍH