Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 11
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1985. 11 Vöruverð og kaupmáttur Siguröur Þórðarson í Reykjavik: — Eg vildi fá að vita hvemig á að bæta úr fyrir þetta fólk sem er að missa íbúðir sínar? „Lenging lána og lækkun vaxta er mjög mikilvæg aðstoð í þessu sam- bandi. Auk þess er verið aö ræða um leiðir til að aðstoða slíkt fólk í gegnum skatta þar sem húsnæðisstyrkur yrði greiddur út. En ég vil taka skýrt fram að það er ekki búið að ákveða um það mál á þessari stundu. Mjög mikið er verið að gera í þessum málum núna. Og ég held að ég geti lofað því að í næstu viku veröi endanlega gengiö frá ákveðnum hugmyndum þessu lútandi. Sem reyndar nokkrar eru nú þegar komnar til f ramkvæmda. ” — Ertu sammáia mér um að fá vöru- verð niður og láta kaupið standa í stað? „Já, það væri ég svo sannarlega ef ég réði við það. Eg var einn af þeim sem var vantrúaður á að gefa frjálsa álagningu á vöru. En það hefur sýnt sig að þar sem samkeppni hefur verið sæmileg þar hefur vöruverð hækkað minna en framfærslukostnaður. En aðrar vörur hafa hækkað, ja, kannski óbærilega mikið, þar á meðal landbún- aðarvörur því það hefur verið dregið úr niðurgreiðslum landbúnaöarafurða og fleira. Eg veit ekki hvort við ráðum út af fyrir sig við það að lækka vöru- verð betur heldur en með því að auka samkeppnina á milli seljenda. Frá því í janúar í fyrra þar til núna í mars er ekkert misgengi á milli launa og vöru- verös þó sveiflur séu á báða bóga. Eg trúi því og treysti að framundan sé tími þar sem kaupmáttur og kauptaxt- ar hækka meira en veröbólgan. Þannig eiga kjörin smám saman aö fara batn- andi.” Söluskattur útgerðar af eigin rekstrarvörum Kristján Jónsson, Reykjavik: — Er þaö rétt aö útgerðin borgi ekki söluskatt af rekstrarvörum sínum? „Þarna kemurðu mér líklega á gat, ég veit ekki annað en útgerðin borgi söluskatt af sínum rekstrarvörum, ég held að ég megi fullyrða það, en ég verð að segja þér alveg eins og er, Kristján, að ég þyrfti nú að athuga þetta. Ástæðan fyrir því að ég held að það sé rétt er að það náðist núna samkomulag um að endurgreiða sölu- skatt í fiskvinnslu, og þar með í raun og veru sjávarútvegi, á þessu ári og sú endurgreiðsla er metin 550 milljónir króna og ef útgerðin, ég tala nú ekki um fiskvinnslan, borgaði ekki sölu- skatt hefði þetta ekki verið nauðsyn- legt.” — Astæðan fyrir spurningunni, Steingrímur, er sú að ég hef heyrt að útgerðin keypti hinar og þessar vörur og notaði svo til eigin þarfa. „Þetta hef ég líka heyrt, en ég hefði nú heldur haldið að þetta væri í sambandi við það að þá skrifuðu óráðvandir útgerðar- menn slikt á útgeröina en ekki á heim- ilið og þannig kemur útgerðin út með mikiu minni hagnað og borgar miklu minni opinber gjöld og það hefur verið kvartað undan þessu sums staðar á landinu að útgerðarmenn væru með enga skatta af þessum ástæðum, svo að ég held að það sé nú frekar það sem áttervið.” Lélegþjónusta Bifreiða- eftirlits Snæbjöm Guðnason, Reykjavík: — Mig langar að spyrja þig í sam- bandi við Bifreiðaeftirlit ríkisins. Þar hefur mikið verið talað um að breyta starfsaðferðum, maður kvíðir fyrir að fara þarna uppeftir, þeir eru lengi að' afgreiða, virðast gera í því að tefja af- greiðsluna. Er ekki á döfinni að færa starfsemi eftirlitsins meira út til bif- reiðaverkstæðanna sjálfra? „Það er satt að segja búið að vera á döfinni mjög lengi. Þegar ég var nú stuttan tíma dómsmálaráðherra hafði ég mikið samband við Bílgreinasam- bandið og þá voru gerð drög að frum- varpi um það þar sem gert var ráð fyrir að þeir hefðu nánast eftirlit með bif reiðaverkstæðunum og stöðvuðu bif- reiðar hvenær sem þeim sýndist og skoðuöu hvort þær væm í lagi. Það var nú ekki samstaöa um þetta, en mér fannst þetta út af fyrir sig vera athygl- isvert en niðurstaðan varð sú, og ný- lega búið að breyta því, að það var felld niður skoðun fyrstu tvö til þrjú ár bifreiða og reynt að draga þannig úr. En menn treystu sér ekki til aö ganga lengra sem ég hef út af fyrir sig verið 1 hlynntur. Það má kannski segja þeim ‘til afsökunar að þeir hafa árum saman vakið athygli á lélegri aðstöðu, þeir þurfa að vera aö þessu úti, stundum í slyddu og bleytu, og þaö er slæm að- staöa þama irnifrá. ” Tilboð Hag- virkis um vegalagningu Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði. — Hvað finnst þér um tilboð Hag- virkis um vegariagninguna norður í land frá Reykjavík? „Ut af fyrir sig finnst mér tilboðiö ákaflega athyglisvert en ég held að það sé mjög erfitt að ganga að því. I fyrsta lagi er auðvitaö alls ekki hægt að gera það nema veita fleirum tsdcifæri* tíl að bjóða i svona, i öðm lagi raskar það náttúrlega allri langtímaáætlum öig hugmyndum um visst jafnvægi á ‘milli kjördæma í svona framkvæmd- um og svo i þriðja lagi þá hijóta menn að spyrja að því hvar þeir ætli að fá peninga og hvemig, þannig að þetta þarf að skoðast miklu betur, að minu mati, áður en það er samþykkt og ég hefði viljað sjá svona gert í heldur smærri skömmtum heldur en aila leið tilAkureyrar.” — Eg las um það í einhverju blaði að það hefði einhver annar aðili, stór að- ili, tekið að sér að bjóða í það sem eftir varð, er eitthvað til í því? „Nei, ég hef nú ekki heyrt það en ég heyrði það í fréttum einnig að aðili á Akureyri, man ekki hvað hann heitir, Samverk held ég, hafi einmitt sagt svipaö hér, að þeir vildu fá að bjóða i l£ka, en ég hef ekki séð neitt frá þeim néöðrum. INGVAR DG GYLFI I____81144 - fírensásveg 3- 8H44_I ALLAR STÆRPIR MÓPFEROABÍLA SÉRI.EYFISBÍLAR AKUREYRAR H.F. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR H.F. RÁDHÚSTORGI 3. AKUREYRI SÍMI 25000 Blómaskreytingar við öll tækifæri LANGHOLTSVEÖ 89 - SlMI 34111 maiinia BÖXNA PRESSÖR -þústíllirbamtániann... KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. Sími 686511.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.