Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR 26. APRIL1985. 13 Úr stöðnun til uppbyggingar? „Ýmsum á fundinum þóttu réðherrar Sjélfstœðisfiokksins undariega staðir f mörgum málum og of miklir vemdarar hins gamla „kerfis", og voru menn afl þvi leyti samméla ungum sjélfstœðismönnum & þeirra landsfundi." a „Þessar samþykktir hljóta að telj- w ast tímamótaverk þegar þess er gætt að það er flokkur forsætisráðherra sem gerir þær og það þá jafnframt haft í huga hver samstarfsaðilinn er.” Þá er lokið síðari „stórfundi” stjómarflokkanna, þaö er aðalfundi miðstjómar Framsóknarflokksins. Niðurstöður fundarins var afdráttar- laus stuðningsyfirlýsing við ráð- herra flokksins og ríkisstjórnina. Fremur lítið var deilt um stjómar- stefnuna sjálfa, helst vora það vaxtamálin, sem menn greindi á um. Ýmsum á fundinum þóttu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins undarlega stað- ir í mörgum málum og of miklir verndarar hins gamla „kerfis”, og vora menn að því leyti sammála ung- um sjálfstæðismönnum á þeirra landsfundl Ferskur andblær eða óskhyggja? I stjórnmálaályktun fundarins kennir margra grasa, sem tæplega hefði verið þar að finna fyrir nokkr- um árum. Samþykktin byggist raunar á framsöguræðu formanns- ins og forsætisráðherrans aö lang- mestu leyti, en þar hvatti hann til nýs átaks i atvinnuuppbyggingu. Meðal markverðustu atriða á þvi sviði má nefna hugmyndir um að fella niður aðflutningsgjöld og sölu- skatt vegna stofnunar nýrra fyrir- tækja sem teljast til nýsköpunar í at- vinnulifi og selja á erlendan markað, auk skattaívilnana og ivilnana i orkuverði, skattaivilnun eða styrki úr ríkissjóði vegna rannsókna- og þróunarstarfsemi fyrirtækja, örvun við þátttöku útlendinga í nýjum at- vinnugreinum, ef við getum af þeim lært, og aö aöstaða til samkeppni og á lánamarkaði verði gerð sambæri- leg við það sem erlendir keppinautar búa við. Þessar samþykktir hljóta að teljast tímamótaverk þegar þess er gætt að það er flokkur forsætisráð- herra sem gerir þær og það þá jafn- framt haft í huga hver samstarfs- aðilinn er. Sjálfstæðisflokkurinn getur vart annað en stutt þessar til- lögur í raun, hvernig svo sem gengur að framkvæma þær. Þegar tíl framkvæmdanna dregur verða menn nefnilega að gá vel að því Kjallarinn MAGNÚS BJARNFREÐSSON hvort unnt sé að setja um málin það pottþéttar og réttlátar reglur að ekki sé hætta á misnotkun, því fríðindin sem boðin era samkvæmt ályktun- inni geta verið býsna þýðingarmikil. Þá er því heldur ekki að leyna að þau geta bæði haft tímabundna tekju- rýrnun og útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð, tekjumissi, sem varla verður mætt með öðra en erlendri lántöku, þvi svo virðist sem við göng- um að mestum hluta fyrir þeim I dag. Árangurinn á hins vegar að verða stórauknar tekjur ríkissjóðs og þjóðarinnar allrar. Vonandi komast menn að þeirri niðurstöðu að unnt sé að standa við fyrirheitin, því það er algert lífsspursmál fyrir okkur að geta nú aukið framleiðslu okkar og þar með þjóðartekjur. Flókið vaxtadæmi Almennt vora menn sammála um að vextir yrðu að lækka. Sú skoðun að háir vextir auki ekki verðbólgu átti sér formælendur fáa — ef nokk- um. Er víst raunar flestum öðrum en sprenglærðum hagfræðingum orðið það ljóst. Þær raddir heyrðust á fundinum að raunvextir mættu helst ekki vera hærri en 3%. En þar er ill- vígt ljón á veginum. Meirihluti þess fjánnagns sem á boðstólum er í landinu í dag er erlent f jármagn, eða 55% að sögn forsætisráöherra. Raunvextir af því fé í nýjum lánum eru í dag um 10%. Sér þá hver maður að útilokað er að koma raunvöxtum niður í 3%, enda munu aðeins um 20% þess fjár sem falt er á lána- markaði koma í gegnum innlenda fjárveltu banka og sjóðakerfis. Þannig virðist ljóst að hin geig- vænlega skuldasöfnun okkar sé búin að taka af okkur ráðin á fjármagns- markaönum, ofan á allt annað. Ber raunar allt að sama branni að þá skuldasöfnun verður að stöðva eða stilla í hóf svo sem f rekast er unnt. Engu að síður er ljóst að vextir verða að lækka í þjóðfélaginu, og ef seðlabankamenn skilja það ekki verður aö breyta lögum um vaxta- ákvarðanir. Bættrar menntunar þörf En það er ljóst að þótt f jármagns sé þörf til þess að unnt verði að koma á nýsköpun atvinnu og efnahagslifs og nauðsynlegt sé að atvinnufyrir- tæki geti fengið það fjármagn án okurkjara, þá skiptir ekki minna máli að til sé þekking og menntun til þess að ávaxta pundiö. Því miður hefur islenska menntakerfið alls ekki brugðist rétt við þeirri þróun sem ljós hefur verið þeim sem sjá vildu í mörg ár, jafnvel áratugi. Ekki verður hjá því komist aö leita svara við því hvers vegna svo hefur farið og hvers vegna við blasir að mörg ár muni líöa áður en menntakerfið verður komið í takt við umheiminn og nútimann. Ekki kenna þeir sem ekki kunna og hræddur er ég um að fræðsla kennara um hina nýju upp- lýsingaöld, sem er þegar gengin í garð, sé raunalega lítil. Á hinum nýju tímum er meira virði aö kunna að afla sér upplýsinga en að vera gangandi alfræðibók. Þekking og kunnátta í miðlun upplýsinga og hvers kyns fjölmiðlun er mikil- vægari en að kunna formúlur utan að. Markaðssetning er mikilvægari eöa í það minnsta eins mikilvæg og framleiðsla. Á öllum þessum sviðum er menntakerfi okkar klumsa, eða því sem næst. Ekkert bendir til þess að þeir sem þar eiga að ráða ferðinni megi á næstunni vera að því að líta upp úr launaþrasi sinu til þess að aðgæta hvemig heimurinn lítur út, hvað þá að velta vöngum yfir því hvemig hann muni líta út að nokkr- um árum liðnum. Grunnskólalögin era oröin úrelt áður en þau hafa tekið fullt gildi. Nýjar námsskrár standa eins og nátttröll í vegi nauðsynlegra nýjunga. Það er vissulega ekki glæsi- legt ástand sem þarna blasir við og óhjákvæmilegt fýrir okkur að fara að taka til höndum á þessu sviöi, ef viö ætlum að teljast til velferðarþjóð- félaga í upphafi tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Vonandi beitir núverandi ríkis- stjóm sér fyrir endurskipulagningu menntakerfisins i takt við nútímann. Það væri verðugt áframhald á þeirri uppbyggingarstefnu atvinnuUfsins sem grunnur hefur verið lagður að á fundum stjórnarflokkanna að undan- förnu. Magnús Bjarnfreðsson. Rlkynjaðasta melnsemd íslensks þjóðfélags er ofþensla rikisvaldsins: Rikl sem þenst stjórnlaust yflr holt og hæðir og hefur fyrir löngu gleymt upprunalegum tilgangi. Ef allt er tíundað má ætla að allt að helmingur af allri starfsemi ríkisins brjóti í bóga við frjálslynda stjórn- arhætti og ætti því að Icggjast niður. Þeir sem álita að þetta sjónarmið eigi eitthvað skylt vlð frjálshyggju (riki = her, lögregla, löggjafar- og dómsvald) þekkja ekki mun á ósann- aðri öfgakreddu og heilbrigðri skyn- seml. (öfugt við það sem margir „hægri” menn virðast álíta eiga þessi tvö sjónarmið, frjálslyndi og frjálshyggja, fátt annað sameigin- legt en keimlíkt nafn.)' Margir hafa komið að móli við mig og sagt aö það sé slæmt að „hægri” menn séu komnir í hár samaa En frjálslynd ihaldssemi á akkúrat ekkert skylt við frjólshyggju Mikons Fried- mans. Æxlin Þau meinvörp sem rikið hefur dreift um þjóðarlíkamann skipta ekki tugum.heldur hundruðum. Hér verða þó aðeins talin nokkur þau augljósustu. Þessi æxli eiga það sameiginlegt að þau sjúga nú til sin stóra hluta af næringu þjóðarlíkamans með þeim afleiðingum að mörg líffæri hans svelta. Þessi æxli eru m.a. öll atvinnu- fy rirtæki í eigu ríkisins. öll slík fyrir- tæki geta einkaaðllar rekið betur en ríkið og eiga þvi að yfirtaka þau með manni og mús. Þetta þýðir á mæltu máll að rikið (og sveitarfélög) eiga að hætta öllum rekstrl i sambandi við sement, áburð, flskvinnslu, útgerð og þöranga svo dæmi séu nefnd. En meinvörpin eru fleiri. Ríkið ÞJÓDARMEINID „En frjólslynd ihaldsseml á akkúrat akkart skylt vifl frjálshyggju Miltons Frisdmans." a „Það sem gera þarf er að stokka w upp alla starfsemi Rannsóknaráðs og Vísindasjóðs og laða fé einkaaðila í rannsóknir með víðtækum kerfisbreyt- ingum.” JÓN ÓTTAR RAGNARSSON MATVÆLAFRÆDINGUR Frjálslyndi í framkvæmd rekur margs konar ráðgjöf, t.d. efna- tækni- og innkaupaþjónustu fyrir atvinnulifið æm einkaaðilar gætu rekið betur en rfkiö, skatt- borgurunum að kostnaðarlausu. Vanræktu sviðin Utþenslustefna íslenska rikis- valdsins hefur att því inn á fjölmörg svið þar sem það á ekkert erindi, á meðan vanræktu svlðin skipta tugum ef ekki hundruöum. Hættulegast er þó að ríkið hefur nær ekkert látið efnalega og andlega verðmætasköpun til sín taka, þótt hún stjórni því alfarið hvort hér verður búið eftir 100 ár eða ekki. Ríkið er um þessar mundir að setja 50 milljónir i Rannsóknaráð ríkislns. Þessi dúsa á að duga til að leysa vandamál rannsókna i land- inu... í bili. Þessi hlægilega ölmusa er enn ein sönnun þess að íslenskum stjórn- málamönnum ætlar ekki að heppnast að taka þetta brýnasta hagsmunamál Islendinga föstum tökum. Það sem gera þarf er aö stokka upp alla starfsemi Rannsóknaráðs og Visindasjóðs og laða fé einkaaðila í rannsóknir með víðtækum kerfis- breytingum. Niðurskurður Ætli Islendingar að lifa af sem þjóð (sem ekkert bendir til að þeim takist) þurfa þeir að skera ríkisbú- skapinn niður um hartnær helming. En jafnframt þurfa þeir að auka framlög til menningarmála um allt að 1/10 af núverandi fjárlögum. (Heildarskerðingin gæti því orðið alltað40%. Stór hluti af þessu fé þarf að fara í rannsóknir. Þarf að leggja Rannsóknaráð rikisins niður og stofna í staðinn geysiöflugan rannsóknasjóð atvinnulifsins með samstarfi einkaaðila og opinberra aðila. Þeir sem veita fé úr þessum sjóði ættu að vera „öldungar” úr rööum visindamanna og atvinnurekenda sem era fyrst og fremst þekktir af eigin afrekum. Einungis slíkir „öldungar”, sem eru sjálfir búnir að draga sig út úr „slagnum”, eru líklegir til að gæta þess hlutleysis við úthlutanir sem skipta sköpum. Lokaorð Fyrirtæki á Vesturlöndum, sem era gjaldþrota, byrja á því að skera niður kostnað og margfalda framlög til rannsókna. Nákvæmlega það sama þarf íslenska ríkið aö gera. Astæðan er ekki aðeins sú að ríkið er gjaldþrota og fleytir sér áfram á erlendum vixlum, heldur og að það sinnir ekki lengur undirstöðusviðum þjóðlífsins. Það er við þetta verkefni — öðrum fremur — sem við, sem yngri erum, verðum að berjast. Hvort það heppnast er óvíst. En ef það mistekst er hitt víst að þá er úti um þessa þjóð. Jón Óttar Ragnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.