Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 26. APRIL1985. Spurningin Hver er þín óskaríkisstjórn? Ásta Finnbogadóttir verslunarmar: Eg held bara að mér finnist þessi ágæt sem nú situr viö stjórnvölinn. Erla Ivarsdóttir tölvuritari: Þaö má margt gera betur en ég er ekki viss um að viö fáum betri ríkisstjórn en viö höf- um nú. Guðrún Eysteinsdóttir nemi: Eg veit þaö varla, ég fylgist ekki nægilega vel með stjórnmálum til aö geta svarað þessu. Hinrlk Sigurjónsson vélstjóri: Eg hef lítið spáö í þaö. Ætli ég kysi ekki sterka stjórn sem tækist á við vandann. Sigriöur Auðunsdóttir verslunarkona: Eg hef ekki hugleitt þaö mikið. Helst mæli ég meö Bandalagi jafnaðar- manna í stjórn. Halldór Gunnarsson verslunarmaður: Einna helst vildi ég hafa Sjálfstæðis- flokkinn einan að völdum. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Piltamir'hafa Ahyggjur af að fá einkunnir sinar of saint til að geta sótt um framhaldsskóla i vor. „Er kennurum illa við 9. bekkinn? — bréf tveggja skólapilta Heiðar B. Kristjánsson og Jón Þór Jónsson skrifa: Við erum hér tveir piltar í 9. bekk Héraðsskólans í Reykjanesi við Isa- fjarðardjúp og viljum koma á fram- færi óánægju okkar með þaö að kenn- arar grunnskólanna hafa neitað að fara yfir samræmdu prófin nú í vor, án sérstakrar greiðslu. Þeir vita kannski ekki hvað þetta bitnar illa á nemendum 9. bekkjar, ekki síst á þeim sem eru í skólum úti á landi. Er kennurum kannski illa við 9. bekkinn í ár? Þessi vetur hefur verið nemendum gagnslaus að öllu. Fyrst og fremst lamaðist öll kennsla í haust vegna verkfalls BSRB og svo þetta með samræmdu prófin í vor. Hvemig eigum við aö geta sótt um framhaldsskólanám fyrir næsta vet- ur? Við erum sammála því, sem Albert Guðmundsson sagði í verkfallinu í haust um vinnutíma kennara eða öllu heldur frítíma þeirra. Er ekki nóg fyrir þá að vera á launum þá þrjá mánuði ársins, sem þeir kenna ekki og geta þá unnið við annað? Ef við fengjum að vita einkunnirn- ar, viku til hálfum mánuði eftir próf- in, þá gætum við kannski haft mögu- leika til að sækja um framhalds- skólanám með góðum fyrirvara. Eins og málin standa nú getum við ekki fengið upplýsingar um niður- stöður prófanna fyrr en um mánaða- mót maí-júní eða e.t.v. seinna. Hvemig endar þetta eiginlega? Við erum vissir um að flestir í 9. bekk eru sammála okkur. Spilasafnarar Enn skrifa hingað á lesendasíðuna spilasafnarar og hvetja fólk til að senda sér einstök spil ef það á einhver aflögu. Nöfnin eru: Sigrún M. Jóhannsdóttir Eiríksstöðum, Jökuldal, 701 Egilsstaðir og Heiðar Ásgeirsson Brekkubæ Borgarfiröi eystra. Góð mynd- listarsýning Ellert Guðmundsson hringdi: Fyrir stuttu lögöum við leið okkar í Eden í Hverageröi og Utum þar augum fagra sýningu málverka hjá Magnúsi Guðmundssyni listamanni, búsettum í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Við kviðum því helst að tíminn milU rútuferöa yrði of lengi að líða þegar ekki var annaö erindi en að skoða eina málverkasýningu en svo reyndist ekki. Þama getur að líta fagrar landslags- myndir og „fantasíur” er lýsa ríkri sköpunargáfu og hugmyndaflugi mikUs drengskaparmanns. Má þar skynja mikla trú og Ufsspeki leitandi anda. Ein myndanna er mjög sérstæð að uppbyggingu og útfærslu. Spái ég að þar sé á ferð mynd sem Magnús gæti náð langt með og skapað sér verðugan sess meðal Ustamanna. Eg ráðlegg öUum að koma að skoða sýninguna og láta i ljós álit sitt á henni. Sýningin stendur tU 29. apríl. HRINGIÐ í SÍMA 68-66-11 kl. 13 til 15 eða SKRIFIÐ Tapsárindi Liver- poolaðdáanda Unlted aðdáandi skrifar: Einhver Jón G. Hauksson ryðst fram á ritvöUinn í DV mánudaginn var í pistUnum Um helgina. Þar fjaUar hann um leUt Manchester United og Liverpool í F.A bikar- keppninni sem Manchester United vann verðskuldaö. En þeir hjá Liver- pool kunna ekki að taka ósigri. I stað þess að viöurkenna yfirburði United liðsins þá er tekið til við að ausa óhróðri um United leikmenn og kenna um óheppni eða óheiðarleika. Að úrsUtamarkið hafi verið kol- ólöglegt. Nú er það svo aö hvorki línuvörður né dómari, sem báðir voru vel staðsettir til að dæma um þetta mark, gerðu athugasemdir við stað- setningu Mark Hughes. Einnig sást það greinilega í sjónvarpinu að ann- ar miðvarða Liverpool, Alan Han- sen, var fyrir innan Hughes er Strachan gaf boltann. En það er aUtaf sama sagan. I stað þess að f jaUa um ruddamennsku Liv- erpool leikrnanna þá er einbUnt á aUt annað mál. Virtist í leiknum á laug- ardagúin að leikmenn Liverpool ætl- uðu hreinlega að gera út af við nokkra leikmenn United. DalgUsh sparkaði Whiteside niður aftan frá. Hroðalegt brot og með því ljótara sem sést hefur í vetur. Verðskuldaði brottrekstur. Eg hlustaöi á lýsing- una á leiknum er hann var leikinn miðvikudaginn 17. apríl og þar kom fram að mörg ljót brot Liverpool spUara undir lokin sýndu að þeir sáu sæng sína upp reidda og ætluöu að „Skrlfa af þekkingu og heilindum um ensku knattspymuna," segir bréfritari. koma einhverjum leikmanna United út af. Þessi leikkafU var ekki sýndur í sjónvarpinu. Einnig var því sleppt er McDonald var bókaður vegna ljótsbrots. United leikmenn létu þennan óþverra ekkert á sig fá en spiluðu til sigurs. Hughes og Robson áttu og góðan leik ásamt besta markveröi í ensku knattspyrnunni, McGrath. Eg vU að lokum beina þeim tUmæl- um til Jóns G. Haukssonar að skrifa af þekkingu og heUindum um ensku knattspyrnuna í stað þess að vera með skítkast í garð andstæðinganna. Lesendur Lesendur F®sturey*fogarvégur^í Famkvæmda Lesend hringdl: -- JsSrSSK mm björtura aui?um til fr« UUÖ ve~ - - ■*« 4 txsaari , ^SmSSS^1 Leiðir liggja til allra átta Ferðalangur skrifar: „Aðeins fáein orð til að þakka Hjör- leifi Olafssyni athugasemdir hans við fyrra bréf mitt varðandi veg i Gríms- nesi og Biskupstungum. Skelfing er ég glaður aö það skuU vera von á almennUegum vegum um þessar slóðir. Leyfi mér þó að gera eina athuga- semd. Mér finnst ástæða til að merkja vegi sem verið er að vinna við og eru e.t. v. sérlega illfærir af þeim sökum og benda á aðra leið. Væri jafnvel ekki úr vegi að segja á skUtinu ef um er að ræða lengri leið. Vegfarendur þekkja ekki alltaf þá vegi sem hægt er aö aka um hin ýmsu byggðarlög. Annars er aUtof Utið um góöar merk- ingar á íslenskum þjóðvegum. Maður kemur oft að „stórum” gatnamótum þar sem er ekkert skUti. Ef maöur er ekki því kunnugri er ómögulegt að segja til um hvert leiðir Uggja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.