Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Side 17
íþróttir íþróttir íþróttir Enginn bók- aður í Aþenu — og allir leikmenn Liverpool geta því tekið þátt í úrslitaleiknum við Juventus íEvrópubikarnum Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV á Englandi: Það var ekkert mál fyrir Liverpool að tryggja sér rétt í úrslit Evrépubik- arsins gegn gríska liðinu Panathinaik- os í Aþenu á miðvikudag. Þó urðu leik- menn Liverpool að fara hægt í sakirn- ar — fimm leikmenn liðsins í hættu að missa af úrslitaleiknum ef þeir yrðu bókaðir. En englnn var bókaður. Mark Lawrenson, sem lék á miðj- unni, var langbesti leikmaður Liver- pool og hann skoraöi eina mark leiks- ins í Aþenu á 60. mín. eftir samvinnu við annan Ira, Ronnie Whelan. 1—0 og samtals 5—0 í báðum leikjunum. Lið Liverpool var þannig skipað: Grobbe- laar, Neal, Beglin, Lawrenson, Niehol, Hansen, Gillespie, Dalglish, Whelan, Waish(Johnston69. mín.) ogWark. DV. FÖSTUDAGUR 26. APRIL1985. Sigurður Pétur Sigmundsson, FH, sigurvegari í víðavangshlaupi ÍR annað árið í röð „Þetta var talsvert erfitt. Ég er ekki í nógu góðri æfingu, en sigurinn var þó aldrei í hættu. Ég átti nóg eftir þegar í Hljómskálagarðinn kom og ég stefni á að vera í toppþjálfun í lok maí,” sagði Sigurður Pétur Sigmundsson, FH, hafnfirski hagfræðingurinn, eftlr að hann hafði sigrað i 75. víðavangshlaupi IR í gær. Annað árið í röð sem Sigurður Pétur sigrar í víðavangshlaupinu. Rúmlega hundrað keppendur voru í þessu afmælishlaupi IR og tæplega 100 luku hlaupinu. Talsvert hvasst var og heldur kalt þegar hlaupið fór fram en þátttaka hefur sjaldan eða aldrei verið betri og fjöldi áhorfenda fylgdist með hlaupinu. Þar mátti sjá ýmsa sem fylgst hafa með víðavangshlaupinu í áratugi enda ef hlaupiö stór liður í borgarlífinu á sumardaginn fyrsta. Á sér langa og merka hefð. Meðal keppenda voru um 20 frá sjónvarpinu og þegar Sigrún Stefáns- dóttir, hinn kunni fréttamaöur, kom í mark sagði hún. „Erfitt jú, það varsvo hvasst,” en Sigrún blés þó varla úr nös. Svo létt reyndist henni hlaupiö, semerá fjórðakm. Jón Guðlaugsson, HSK, kom sprækur í mark að venju. I 27. sinn, sem hann hleypur í víðavangshlaupi IR og ,,ég ætla að halda áfram til alda- móta, auðvitað”, sagði Jón. Þá var þarna ansi harðskeyttur strákur, Bjami Davíðsson, aöeins 13 ára, en var þó mjög framarlega. „Eg hef hlaupið áður í víðavangshlaupi IR og vona að ég eigi eftir að vera oft með í framtíðinni,” sagði Bjarni. Greinilega efni í sigurvegara eftir nokkur ár. Hrönn ánægð „Eg er mjög ánægð með hlaupið — Sigrún Stefánsdóttir, f réttamaðurinn kunni, kemur brosandi í mark. DV-mynd Brynjar Gauti. fyrsta hlaup mitt í vor,” sagði Hrönn Guömundsdóttir, IR, sem kom lang- fyrst stúlknanna í mark. „Þetta er allt að koma hjá mér aftur,” sagði hún ennfremur en Hrönn missti alveg úr tvö ár vegna meiðsla. „Eg átti ekki möguleika í Sigurð Pétur, — hann hafði forustuna allt hlaupið og var greinilega mjög sterkur lokakaflann. Hins vegar er ég nokkuð ánægður með annað sætið. Hef lítið sem ekkert æft, — var við kennslu á Laugarvatni í vetur,” sagði Jón Diðriksson, nú FH, en hann varð sigur- vegari í víöavangshlaupinu 1978. Hefur undanfarin ár stundaö háskólanám í Þýskalandi en kom heim sl. vor. Nú sá ég þig hlaupandi á Fríkirkjuveginum rétt fyrir hlaupiö. Hvaö skeði? — „Það var ekkert, var aðeins seinn fyrir en það skipti engu máli. Þetta var aðeins skokk og ég var kominn að rásmarkinu þremur mínútum fyrir hlaupið,” sagði Jón og hlóvið. FH sigraði 1 3ja manna sveitakeppni sigraði FH, þeir Sigurður P., Jón Dikk og Jóhann Ingibergsson. Sveitin hlaut 11 stig en ár og dagur er síðan önnur sveit en IR hefur sigrað. A-sveit IR hlaut 16 stig, B-sveit IR 30.1 5 manna sveitum sigraöi IR — hlaut 31 stig. FH 34.110 manna sveitum sigraði IR með 55 stig. I sveitakeppni kvenna, 3ja manna sveitir, sigraði IR. Hlaut 6 stig. I sveitinni voru Hrönn, Guðrún Zoéga og Guðrún Ásgeirsdóttir. Fyrstir í hlaupinu urðu: 1. Sig. P.SigmundssonFH 13:05,2 2. JónDiðriksson.FH 13:12,2 3. HafsteinnOskarsson, IR 13:30,5 4. MárHermannsson, UMFK 13:32,2 5. Guðm. Sigurðsson, UBK 13:58,5 6. Steinn Jóhannsson, IR 13:59,0 7. SteinarFriðgeirsson, IR 14:00,0 8. Bragi Sigurðsson, Armanni 14:11,1 -hsím. Jón Guðlaugsson lýkur sínu 27. viða- vangshlaupi IR. Úrslitin á þriðjudag — milli FH og Víkings íbikarkeppninni „Ég er að fara og athuga málið — auðvitað á úrslitaleikurinn í bikar- keppni HSt að vera í Laugardálshöll,” sagði Júlíus Hafsteln, formaður íþróttaráðs Reykjavíkur, í samtali við DV. Fyrlrhugað er að úrslitaleikur FH og Víkings verði á þriðjudagskvöld. Ef að likum lætur er það leikur sem gæti dregið að mikinn fjölda áhorfenda. Nú stendur yfir iðnsýning i Laugardals- höll, víst frá Borgarnesi. „Við stefnum að þvi að leikurinn verðl á þriðjudag og í Laugardalshöll, — munum gera aUt sem i okkar valdi er tU að af þvi geti orðið,” sagði Jón Erlendsson, framkvæmdastjóri HSt. Ekki getur orðið af því að úrsUtaleik- urinn í 2. flokki karla í bikarkeppninni verði þar jafnframt því fjórir af leik- mönnum Víkings i meistaraflokki leika einnig i 2. flokki. hsim. Sigurður Pétur kemur í mark í víðavangshlaupi IR. Næstur er Jón Diðriksson en fjær má greina þriðja og f jórða mann. DV-mynd Brynjar Gauti. Bílar á skulda- bréfum: BMW 316 árg. '84, 315 árg. '82, 628 csi árg. '82. Mercedes Benz 280 SE árg. '78, 280 SLC árg. '80. Ciíroen GSA Paiias árg. '82,'81. Datsun King Cab pickup, árg.'84.______ Honda Accord EX árg. '82, Civicárg. '80, '83. Peugeot504 station, 7 manna, árg. '78. Mitsubishi Starion turbo árg. '82._____ Isuzu Trooper áeg. '82. Sýnishorn úr söluskrá: Honda Accord árg. '78, '79, '80, '82. Civic árg. '80, '81, '82,'83. Daihatsu Charade árg. 79, '80,'81,'82,'83, Charmant árg. '79 station. Góð kjör. Fiat Uno 45 S, árg. '83, '84. 55 árg. '84. Toyota Corolla árg. 79, '80, '81. Tercel 4wd. árg. '83, '84, '85.___________ Opið laugardaga kl. 10-18. SB BÍLASALAN BL/K Skeifunni 8 Sími 68-64-77. e Hafnfirski hagfræðing- urinn fyrstur í mark Iþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.