Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Síða 30
42 DV. FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1985. Menning Menning Menning Menning Helgi Skúlason leikur Jón Hreggviösson. ÍSLANDSKLUKKAN Þjóðloikhúsið ÍSLAND8KLUKKAN Loikgeró Lérusar Pálssonar oftir skáldsógum Haildórs Laxnoss. Loikstjóri: Svoinn Einarsson. Lolkmynd og búnlngar: Sigurjón Jóhannsson. Lýslng: Ami J. Baldvinsson. Tónlist: Jón Nordal. Þegar Lárusi Pálssyni flaug í hug aö gjöra sjónleik úr róman Halldórs Laxness um Jón Hreggviðsson, Arnas Ameus og Snæfríöi Islandssól var ekki örgrannt um aö ýmsum þætti hiö nýja leikhús þjóöarinnar færast nokkuö mikiö í fang. En Halldór haföi þá aðeins sett saman einn miðlungi góðan sjónleik, og hann var jú okkar maöur, þótt styr stæði um hann og enn væru menn æstir út af afdráttarlausum skoðunum hans. En Lárus sneiö úr sögunum þrem sjónleik, sem vakti strax í apríl 1950 mikla hrifningu í sýningu sem lifði lengi i minnum manna, og mun jafnvel enn þann dag i dag í blámóöu liðins tíma varpa skugga sínum á þriöju uppfærslu Þjóö- leikhússins á leikgerð Lárusar. Ekki þýðir aö deila um þaö aö Islands- kiukkan á oft eftir að veröa leikin á islenskum leiksviðum, en sjaldan hefur veriö aö því spurt hversu góö leikgerð Lárusar er, hverjir eru gallar hennar og kostir. Sagan Það stingur lesanda skáldsagnanna þriggja strax i augu hversu samtölin viröast henta leikrænum flutningi, þaö er kostur vel skrifaðra samtala í sögum. Enn stingur það lesandann að hann þykist sjá sögusviöiö allt ljóslif- andi i huga sér, gil og lautir, hallir og stofur, heiðar og fljót. Þetta ginnti á sinum tíma Lárus til glimu viö leikgerö textans. En í raun eru samtöl sagnanna ekki upplögð til flutnings af sviði, þau skortir hreyfingu, og þótt dramatisk framvinda sögunnar þyng- ist með hverri síöu, þá er hún hulin í samslungnum vef skáldskapar Halldórs. Komin á sviö er hún brota- kennd, kveikjur í atburðarásinni dofna og hverfa jafnvel: eftir standa skýrt mótaðar persónur sem leikendur veröa að fylla upp i af bestu getu og sögusviö sem fátækleg eftirlíking leik- sviðsins getur aldrei nálgast. Senuskipti Höfuöverkur leikstjórans sem tekst á viö sjónleikinn eru hin tíðu senu- skipti: Þingvellir, kotið á Rein, dýflissan á Bessastöðum, Almannagjá — allt yfir í hallir og torg Hafnar og er þá margt ótalið. Alltaf hefur sú leiö verið farin að hafa hlut fyrir heild, sýna með einföldum myndum hiö margbreytilega sögusvið. Sviðs- breytingar hafa löngum hleypt snuröu á þráö sýningarinnar, þær geröu þaö í gærkvöldi, þótt hugvitsamleg tilraun leikmyndarhöfundar hafi átt aö bjarga sýningunni frá slikri hættu. Og breyting leikstjórans á leikgerö Lárusar þar sem bætt er inn kynningum á stað og stund, jafnvel með lýsingum á atferli persónunnar, titlum hverrar sögu ofan á allt annað, sú tilraun mistókst gersamlega og setti á sýninguna klunnalegan brag sem ekki er sæmandi slíkum skáldskap. Sigurjón Jóhannsson byggir leik- myndina upp af þrem þáttum: í for- grunni tveim gryfjum, um mitt svið þristrendingum, sem keyra má fram og til baka eftir þörfum, og snúa svo við blasi réttur flötur, veggfóöur, tré- þiljur, húsgafl, og svo ákastmyndum sem nýttar eru, i öllum atriöum utan- húss, nema á Þingvöllum — þar er himinbláminn einn til sýnis. Hér rek- ast á þrjú form og ganga ekki saman: eftirliking, stilisering og svo doku- menter-stíll. Leikmyndina lýsir svo Ami Bald- vinsson jafnri lýsingu, átakalitilli og drungalegri, sem þjónar illa þeim örlagamiklu tiöindum sem gerast á þessu sviði. Litabrigöi eru fá, hrynjandi í beitingu ljósa vart eftir- tektarverö. I tvígang beitir Sveinn Einarsson hljóöi í sýningunni til að skapa andrúmsloft, eða til aö boöa innkomur. Manni er spum: hví ekki oftar? Af nógu er að taka. Leikhljóð hefðu lífgað mikiö uppá allt þetta daufa sviö, ef skipulega er sneitt hjá þeim áhrifa- valdi, hvers vegna er þá gripið til hans í þessi tvö skipti? Aftur á móti er skotiö inn stefum eftir Jón Nordal endrum og sinnum, þau hentuöu vel á sínum stöðum og vom falleg áheymar. Ágallar Þannig koma snemma brotalamir i ljós á sýningunni, bara í sviösmynd og því formi sem sett er um leikinn. Þær kunna aö sýnast smávægilegar, en þegar öll kurl koma til grafar, ráöa þær miklu um úrslit, lif og áhrifa- magn þessa sjónleiks drjúga kvöld- stund. Sýningin verður löng, eftirtekt áhorfandans dofnar og leikendur fá ekki notið sín i endalausum innkomum, töfum vegna kynninga eða sviös- breytinga. Hver er ástæðan fyrir svona löguöu? Kjarkleysi, íhaldssemi, óskýr metnaður þeirra listamanna sem ráða útliti og stefnu leiksins? . Því er erfitt að svara án þekkingar á innviðum þess starfs sem liggur aö baki sýningu sem þessari. En árangurinn blasir viö og undan honum geta áhorfendur ekki flúið, komi þeir í leikhús á annað borð. Leikendur Allur fjöldinn af leikurum í sviðs- setningu Sveins Einarssonar sýnir heldur sviplítinn leik. Það er eins og sá þunglamalegi svipur sem ræður ríkjum í umgerö leiksins sligi leikenduma. Stöku sinnum sprettur fram persóna, sem ekki lætur kúgast: Amar Jónsson leikur Sigurð dóm- kirkjuprest á tempraðan hátt, bældan en bráðan til sinna bragða. Gaman er að sjá Arnar aftur á sviöi, heilan meö velskapta persónu. Siguröur Sigur- jónsson bregður upp ýkjufárri mynd af Jóni Grindvíkingi, stöðugri í undir- gefni og forvitni um undur nátt- úrunnar: þeir Hjalti Rögnvaldsson Leiklist Páll B. Baldvinsson sem leikur nafna hans Marteinsson eiga fágaöa spretti í sínum atriðum. Róbert Amfinnsson leikur Eydalín lögmann af kaldrifjaöri heims- mennsku, synd að gervi þeirrar per- sónu skyldi ekki betur samsamað frá- bærri lýsingu sögunnar. Valdimar Helgason leikur í þriðja sinn varð- manninn Jón af yndisþokka sem hon- um einum er laginn. Guðrún Stephen- sen umskapar flagiö sem Amar kvæn- ist til fjár, í umkomulausa konu sem á alla samúð áhorfanda. En þá em líka upp taldir þeir sem vinna lítinn sigur á sinum ferli i þessari sýningu. Aðalleikendur Sveinn hefur bmgöið á þaö ráð aö fá nýja menn til starfa í sýninguna, sem er furðulegt. Bæði er að fastir starfsmenn Þjóöleikhússins geyma innan sinna raða fleiri en einn og tvo menn sem leikið geta Amas Ameus og Magnús í Bræðratungu. Svo getur Þjóöleikhús heldur ekki leyft sér að sækja vinnumenn á aðra bæi meðan húskarlar sitja aðgerðaiausir i skála og drepa tímann. Ekki síst meðan húsið býr við rýran fjárhag og vill fá meir. Fyrir utan þá lögboðnu skyldu sem á þvi hvílir, að húsiö skuli stuðla að listrænum þroska þeirra starfs- manna sem ráðnir em. Því er á þetta minnst að þeir Þor- steinn Gunnarsson og Harald G. Har- alds em hvorugir i essinu sinu í hlut- verkum Ameusar og Magnúsar. Har- ald nær sér nokkuð á strik í drykkju- skap Magnúsar, en spjátrungshætti hans og hroka miðlar hann ekki. Þorsteini Gunnarssyni reyndist líka um megn að sýna okkur þann sjarmer- andi mann sem forfærði unglings- stúlku um sumamótt vestur í Breiða- firði, svo eftirminnilega að hún fylgdi honum allar götur síðan. Heldur ekki þann mann sem hefur „hina klofnu tungu 3náksins” og er eitt augnablik í brima valdafíkni reiöubúinn að gerast erlendur þjónn á sínu elskaða landi bókanna. I Áma er að finna drög að öðrum veraldlegum herra sem í næstu skáld- sögu Halldórs, Atómstöðinni, gekk skrefi lengra en þessi kæruleysislegi bókamaður. Leitaði Sveinn Einarsson ekki langt yfir skammt aö Amas Ameus f þetta skiptið? Tinna Gunnlaugsdóttir tekur við hlutverki Snæfríðar sem réttborin. Satt að segja hef ég beðiö þess að henni gæfist kostur á svo góðum bita, sem hentaöi fasi hennar og burðum, málmýkt hennar og hörku. Sárt þótti mér að sjá hana ráöalausa lengi vel í þessari sýningu og get ég ekki annaö en álasað leiðbeinendum hennar um að láta þetta tækifæri svo fara. Hér vantaði viða herslumun, litla hreyfingu, staðfasta vissu um merk- ingu undir oröanna hljóöan til að stýra svipbrigöum og hljómfalli. Svipuð áfellisorð hitta Helga Skúla- son sem leikur Jón Hreggviðsson sem tilfinningalitla skepnu. Það er rangt að Jón hafi ekki ríkar tilfinningar. Harður og harkalegur textaflutningur, alger skortur á þeim makindum sem eru persónunni eðlislæg, slíkir ágallar gera persónuna utanveltu í atriðum sögunnar. Og þegar Helgi sýnir loks kumpánlegan svip i hinu fræga atriði við eldiviðarskýliö við ágætan mótleik Guörúnar Stephensen, þá blússar hann í gegnum textann af fullkomnu miskunnarleysi fyrir gullnum reglum eintalsins, stígandi og risi, með þögn- um til áherslu. Þannig . . . Islandsklukkan heldur áfram aö vera átakanlegt og yndislegt skáld- verk. Á dauöustu setningum þessarar sýningar má heyra perlur íslenskrar sagnageröar — undrið stærst verður eftir sem áður sköpun þessa sagna- bálks, sem engar leiksýningar geta apaðeftir. Við eigum ekki nema einn mann. POPP SMÆLKI Sæinú! Væntanlega hefur þaö ekki fariö fram hjá lesendum að sá ást- kæri dúett sem kallar sig Wham! hefur uppá síð- kastiö verið aö spóka sig austur I Kína og mengað þar andrúmsloftið með sinni vesturlensku popp- tónlist einsog kinverskir ráðamenn kalla það. Það þykir hins vegar tíðindum sæta að kínverskt popp- fyrirtæki hefur gert hljóm- plötusamning við Wham! og ku það vera í fyrsta.sinn í Kína sem slíkur samn- íngur er gerður við hljóm- sveit frá Vesturlöndum. . . ^Snælda með lögum Wham! er þegar komin út í Kina og önnur fyigir bráð- lega. . . Enn vinnur Bob Geldof baki brotnu að stór- hljómleikum í sumar með þátttöku alira risanna í ■poppinu til styrktár, iSþtópíusöfnúninni. Engar dagsetningar hafa enn verið nefndar en Ijóst þykir að af hljómleikunum verður og er þá gjarnan talað um tvenna hljómleika samtímis í Bretlandi og Bandarlkjunum, * . Og úr því að Eþíópíusöfnunina bar á góma: Pat Benater, sem sakir óléttu sinnar kom því ekki við aö syngja með USA for Africa, hefur ákveðið að ágóði af laginu We Belong renní óskiptur í söfnunina. . . Style Coun- sil hefur frá þvi í des- ember verið önnum kafin í hijóðveri að taka upp söngva á væntanlega breiðskífu. Uppá band munu komin rúmlega tuttugu iög. Paul Weller hefur af sinni heimskunnu hógværð sagt að mörg laganna séu svo frábær að erfitt hafi verið að velja lag á nýja smáskífu. Að lokum varð þó lagið Walls Come Tumbling Downl sett á skífuna smáu. Stóra platan kemur I maí og Style Counsil heldur síðan austur fyrir járntjald, til Póllands nánar tiltekið, til þess að myndsetja plötuna; það heitir víst Ifka að búa til video. . . Orð- rómi um dúett "þeirra Alison Moyet og Paul Young hefur verið neitað af hálfu útgáfufyrirtækis þeirra, CBS. Pvi er þó ekki neitað að hugmyndin er góð. . . Big Country fer inni hljóðver fljótlega til þess að táka upp sína þriðju plötu. Smáskífu þaðan er þó að vænta fyrr. . . Einstaklega gott orð fer af breska dúettinum'Go West og enn ein fjQ'ðurin bættist í þeirra hatt á dögunum er leitaö var til þeirra strákanna um lag fyrir Chaka Khan. . . lan Dury hefur reist The Block- heads upp frá dauðum. . . önnur breíðskífa Dead Alive er rétt ókomin og heitir; Youthquake. . . Búiðíbili... -Gsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.