Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
21
igulkerin eru opnufl ðflur en rétturinn er borinn fram og innmaturinn er
hrognin þvi kjötið er næstum ekkert.
DV-mynd VHV
Villti tryllti Villi
aftur af stað
Unglingastaður fyrir 16 ára og eldri
Unglingar í Reykjavík og
nágrenni geta nú aftur farið að sækja
skemmtistaðinn Villta, tryllta Villa
við Skúlagötu en hann hefur gengið
undir nafninu Safarí.
Eigendur skemmtistaðarins hafa
ákveðið að breyta innréttingum
skemmtistaðarins og koma upp nýju
diskóteki fyrir næsta haust. Það er
gert til að lífga upp á skemmti-
staðinn í hinni hörðu samkeppni í
Reykjavík.
Það verður byrjað á því að gera
skemmtistaðinn að unglingastað í
sumar. Ef sú tilraun heppnast vel, þá
getur farið svo að staðurinn verði
áfram unglingastaður, án vínveit-
inga.
Þafl mé fastlega reikna með þvi
afl margir unglingar sæki Villta,
tryllta Villa nú um helgina.
Eigendur skemmtistaðarins hafa
ákveðið að nota sumarið til að fram-
kvæma ýmsar hugmyndir sem þeir
hafa á prjónunum.
Villti, tryllti Villi verður opnaður
aftur í kvöld — fyrir 16 ára og eldri.
Það verður opið á föstudags- og
laugardagskvöldum fyrir þann
aldurshóp, en fyrirhugað er að opna
á sunnudögum fyrir unglinga 14 ára
og eldri, þá á milUkl. 20 og 23.30.
-sos
Russnesk myndlist
— síðustu sýningar um helgina
Sýningunni „Myndlist í Sovét-
Rússlandi”, sem haldin er í húsa-
kynnum MlR, Menningartengsla Is-
lands og Ráðstjórnarríkjanna, að
Vatnsstig 10, lýkur um helgina. Sýn-
ingin hefur verið vel sótt og vakið
athygU, einkum hin fagurlega mál-
uöu lakkskrín sem á sýningunni eru,
26 talsins. A sýningunni eru einnig 62
grafíkmyndir eftir 20 rússneska
myndlistarmenn.
I húsakynnum MlR er einnig uppi
sýning á um 400 bókum, útgefnum í
Sovétrikjunum á síöustu misserum,
m.a. fjöhnargar listaverkabækur og
myndbækur.
Sýningarnar verða opnar um
helgina, laugardag og sunnudag kl.
14—19 og er þá lokið, þar sem senda
þarf sýningargripi og myndir utan
bráðlega. Aðgangur er ókeypis.
60 ára verður á morgun, laugardag-
inn 1. júni, Lilja Sveinsdóttir kennari
frá Vestmannaeyjum, búsett að Neðri-
Hundadal i Dalasýslu. Hún tekur á
móti gestum í Bauganesi 13 Skerjafirði
ámorgun eftirkl. 16.
80 ára er i dag séra Jón M. Guðjóns-
son, fyrrverandi prófastur á Akranesi.
Hann tekur á móti gestum i nýja safn-
aðarheimilinu við Laugarbraut á
Akranesi milli kl. 16 og 19 í dag. I tilefni
afmælisins kemur út í dag veglegt af-
mælisrit tileinkað séra Jóni.
MADDAMA
ÍGULKER I MATINN!
— boðið upp á ígulker á matseðli Hótel Holts
til reynslu í tvær vikur
Má bjóða þér maddömu Igulker í
matinn? Ef þig langar að prófa er
hægt aö bragða gufusoðin ígulker á
Hótel Holti þessa dagana. Sér-
kennilegur réttur og að sumra áliti
ekki aölaðandi í útliti svona við
fyrstusýn.
Igulkerin hafa verið á matseðlin-
um á Hótel Holti til reynslu í tvær
vikur og það eru alltaf einhverjir
sem hafa hugrekki til að reyna nýja
réttinn. Matreiðslan er ekki flókin,
ígulkerin eru gufusoðin í fimm
minútur, opnuð og borin fram meö
ristuöu brauðL Bragöið minnir einna
helst á rauðmaga — ef eitthvaö — og
innmaturinn úr ígulkerinu er hrogn-
in því kjötið er lítið sem ekkert.
Þama er á ferðinni mjög við-
kvæmt hráefni sem geymist í ör-
skamman tíma. Kafað er eftir þvi
við Isaf jarðardjúp og það sent í flugi
Sveitaball:
Kaktus
að Hvoli
Eina sveitaballiö, sem verður
austan fjalls nú um helgina, verður
að Hvoli. Það hefst kl. 22 annað kvöld
— laugardagskvöld og stendur til kl.
02.00. Það er hljómsveitin Kaktus
semsérumfjörið. -SOS
í bæinn. Eftir nokkra daga er þetta
ekki lengur hæft til matar — þrír
dagar er einna lengstur geymslutími
fyrir neyslu. Með því að sjóða nokk-
urt magn saman og frysta síðan má
lengja geymsluþolið eitthvað en þá
er ekki um sama mat að ræöa og ef
neytt er á fyrstu tveimur sólarhring-
unum eftir veiðina. Igulkerin þurfa
að vera lif andi við suðuna.
Sem áður sagði er hægt að fá að
bragða á þessu á Hoitinu og kostar
ígulker í forrétt 195 krónur. Oþarfi er
að láta vígaiegt útlit fæla frá því
þarna er á ferðinni ágætismatur og
skemmtileg tilbreyting frá hinum
sigilda rækjukokkteil. Og svo geta
þeir, sem hrífast verulega, sett upp
sundgleraugun og hafist handa við
eigin ígulkerjatínslu. Góða skemmt-
un og verði ykkur að góðu!
baj
Létið ekki vigalegt útlitið fæla fré — þetta er herramannsmatur og bítur
ekki.
|»6rskabarett
í síðasta sinn
___,laugard.gsKvöW
f östudags- og
WVíssiö
eKKi
af
Þórskabarett
býður upp á
góða skemmti-
krafta
* Guflrún Alfreflsdóttir, Saga
Jónsdóttir, Guðrún Þóröardóttir,
Július Brjénsson og Kjartan
Bjargmundsson.
★ Ástardúettinn Anna Vilhjélms og
Einar Júliusson.
■k Tvær hljómsveitir: Dansband
önnu Vilhjélms og Pónik og
Einar.
■k Matur framreiddur fré kl. 20.
Pantifl borfl timanlega ■ sima