Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Qupperneq 5
22
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
27
Hvað er á seyði
um helgina
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavikurproiasis-
dæmi sjómannadaginn 2. júní 1985.
* ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guösþjón-
usta í safnaðarheimili Arbæjarsóknar
kl. 11.00. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Sum-
arferð safnaðarins á sunnudag, 2. júní.
Farið verður frá Breiðholtsskóla kl.
9.30. Safnaðarnefndin.
BÚSTAÐAKIRKJA. Guðsþjónusta kl.
10.00. Ath. breyttan tíma. Organleikari
Guðni Þ. Guömundsson. Sr. Olafur
Skúlason.
DÓMKIRKJAN. Sjómannamessa kl.
11.00. Biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, prédikar og minnist
drukknaöra sjómanna. Sr. Hjalti Guð-
mundsson þjónar fyrir altari. Sjómenn
lesa úr ritningunni. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
ELLIHEIMILEÐ GRUND. Messa kl.
10.00. Sr. Árelíus Níelsson.
FELLA- og HÓLAKIRKJA. Guösþjón-
usta kl. 11.00. Sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir messar. Organleikari
Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sóknar-
prestur.
FRÖORKJAN I REYKJAVtK.
Sjómannadagsmessa kl. 14.00.
Fríkirkjukórinn syngur, organleikari
Pavel Smid. Bænastundir eru í kirkj-
unni þriðjud., miðvikud., fimmtud. og
föstudaga kl. 18.00 og standa í stundar-
f jóröung. Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA. Safnaðarferð í
Þjórsárdal sunnudaginn 2. júní. Messa
í Stóra-Núpskirkju kl. 2.00. Lagt af
stað frá Grensáskirkju við Háaleitis-
braut kl. 10.00 f.h. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA. Messa kl.
11.00. Altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Þriðjudag, fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN. Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. KarlSigurbjömsson.
HÁTEIGSKIRKJA. Messa kl. 11.00.
Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA. Guösþjónusta
kl. 11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA. Guðsþjónusta
kl. 11.00. Prestur sr. Pjetur Maack.
Organleikari Kristín ögmundsdóttir.
Ljóðakórinn annast söng. Sóknar-
nefndin.
LAUGARNESKIRKJA. Messa kl.
11.00. Altarisganga. Sigriður Jónsdótt-
ir, sem leyst hefur organista kirkjunn-
ar af í 2 ár, hættir nú störfum. Veröur
þetta því jafnframt kveðjumessa fyrir
hana. Þriðjudag 4. júní, bæna-
guðsþjónusta kl. 18.00. Sóknarprestur.
NESKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Frank M. Halidórsson. Miðvikudag
5. júní, fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELJASÖKN. Guösþjónusta kl. 11.00 í
ölduselsskóla. Fyrirbænasamvera
fimmtudaginn 6. júní kl. 20.30 í Tinda-
seli 3. Sóknarprestur.
HRUTAFIRÐI
GISTING
VEITINGAR
95-1150___A
Karlakór Akureyrar:
Suður til
að syngja
Karlakór Akureyrar fer um helg-
ina í söngferð suður fyrir heiðar.
.Tónleikar verða haldnir í Hlégarði í
Mosfellssveit klukkan 21.00 á föstu-
dagskvöldiö, klukkan 13.30 á laugar-
dag í Selfossbíói og klukkan 18.00 um
kvöldið í Hafnarf jarðarkirkju.
Á söngskrá karlakórsins eru bæði
innlend og erlend lög, þar á meðal
nýtt lag eftir söngstjórann, Atla
Guðlaugsson. Á tónleikunum verður
einsöngur, tvísöngur og fram kemur
tvöfaldur kvartett kórfélaga.
Undirleikari Karlakórs Akureyrar
er Antonía Ogonovsky.
JBH/Akureyri.
Karlakór Akureyrar sem heldur í söngferð á suðvesturhornið. Fyrir
miðju í fremstu röð eru undirleikari og stjórnandi.
Fimm sýningar á
Kjarvalsstöðum
— verða opnaðar samtímis á morgun
Listunnendur fá nóg að sjá og skoða á Kjar-
valsstöðum næstu vikumar. Á morgun, laugar-
dag, verða hvorki fleiri né færri en fimm sýning-
ar opnaðar á Kjarvalsstöðum og verða þær
opnar daglega kl. 14—22 fram til 17. júní.
• I vestursal sýna 18 félagar Listmálarafélags-
ins málverk.
• I austursal sýnir Tryggvi Ámason grafík-
myndir.
• I vesturforsal sýnir Myriam Bat-Yosef
málaöa hluti ýmiss konar.
• I austurforsal sýnir öm Ingi skúlptúra og
myndverk.
• Og fyrir framan kaffistofuna verður sýning á
þeim sex tillögum sem valdar voru til frekari út-
færslu í hugmyndasamkeppni um hlutverk og
mótun Arnarhóls.
Sjöundi göngudagur FÍ:
Gengið frá
Höskuldarvöllum
— hljómsveit leikur við upphaf
Hp } K' u í o4 o. r s l L l r
£ L o/ 6 o r rj
göngunnar
Sjöundi göngudagur Ferðafélags-
ins er á sunnudaginn. Að venju hefur
verið valin leið sem er brattalitil og
torfærulaus svo aö fólk á öllum aldri
geti komiö með og notið göngunnar.
Eins og sést á meðfylgjandi korti er
leiðin í hring frá Höskuldarvöllum
um Oddafell, í Sogaselsgíg og með-
fram Trölladyngju aö upphafsstað.
Gangan tekur um tvær klst. og er þá
rólega farið.
Brottfarartímar eru kl. 10.30 og kl.
13.00 frá Umferöarmiðstöðinni,
austanmegin. Ekið veröur að
Höskuldarvöllum þar sem gangan
hefst og lýkur einnig. Fólk á eigin
bilum er velkomið í gönguna.
Skólahljómsveit Mosfellssveitar
leikur í upphafi göngu.
(jtc n g / c
og söguferð
Náttúruvemdarfélag Suðvestur-
lands fer tvær ferðir laugardaginn 1.
júní um nágrenni Grindavíkur. Þetta
er liður í ferðaröðinni „Umhverfið
okkar”, framhald ferðar er félagið
fór í fyrrasumar. I tilefni herferðar-
innar „Vemdum fjörur og vatns-
bakka”, sem Landvemd og Náttúru-
verndarráö standa fyrir, förum við
fyrri ferðina sem skoðunarferð um
fjörur vestan Grindavíkur. I þá ferð
verður lagt af stað frá Norræna
húsinu kl. 9.00 og grunnskólanum í
Grindavík kl. 9.45. Lífríki fjörunnar
verður skoðað undir leiðsögn Erlings
Haukssonar sjávarlíffræðings. Þetta
er kjörin ferð fyrir alla sem kynnast
vilja undraheimi fjörulífsins. Far-
gjald verður 300 kr. en 200 fyrir þá
sem koma í bílinn í Grindavík. Frítt
fyrir böm í fylgd fullorðinna. Þeir
sem fara í þessa ferð geta farið í
seinni ferðina án aukagjalds.
Ferðinni lýkur kl. 12.30 við grunn-
skólann í Grindavík og kl. 13.15 við
Norræna húsið.
• Sama dag kl. 13.30 verður farið
frá Norræna húsinu og kl. 14.15 frá
grunnskólanum í Grindavík í
náttúruskoðunar- og söguferð um
Grindavíkursvæðið. Leiðsögumenn
verða Jón Jónsson jarðfræðingur,
sem fer yfir jarðfræði svæðisins og
nýtingu jarðvarmans, Ámi Einars-
son líffræðingur fræðir okkur um
gróðurfar og dýralíf. Einnig verða
með sögu- og örnefnafróðir menn um
svæðið. Ekið verður út á Reykjanes,
rætt verður um fiskeldisstöðvar sem
eru að rísa á svæðinu, gjárnar sem
sett hafa svip á umhverfið, s.s.
Silfurgjá og lífríki þeirra. Þessari
ferð lýkur um kl. 19.00 við barnaskól-
ann í Grindavík og um kl. 20.00 við
Norræna húsið. Fargjald verður það
sama og í fyrri ferðinni.
Ungir norrœnir einleikarar:
Eggen leikur
á píanó
— í Norræna húsinu á sunnudaginn
Á sunnudagskvöldið, kl. 20.30,
verða haldnir þriöju tónleikamir í
tónleikaröð Norræna hússins, Ungir
norrænir einleikarar.
Áriö 1985 er, sem kunnugt er, bæði
alþjóðaár æskunnar og tónlistarár
Evrópu. I tilefni af því hefur
Norræna húsið boöið ungu tónlistar-
fólki, einum frá hverju Noröurland-
anna, að koma fram í sérstakri
tónleikaröð í Norræna húsinu.
Tónlistarfólkið er valið úr hópi
þeirra sem komust í úrslit í tónlistar-
keppni Sambands norrænna tónlist-
arháskóla í Osló haustiö 1984, en
einungis framúrskarandi tónlistar-
menn komast í þá keppni.
Nú er röðin komin að norska
píanóleikaranum Christian Eggen.
Hann fæddist 1957, byrjaöi snemma
að læra á píanó og útskrifaðist 1978
úr tónlistarháskóla ríkisins í Noregi
eftir 5 ára nám hjá Robert Riefling.
Hann fór ungur að koma fram
opinberlega, fyrst sem píanóleikari,
13 ára, á tónlistarhátíöinni í Harstad.
Síðan hefur hann margsinnis komið
fram bæði sem einleikari og stjóm-
andi hljómsveita. Eftirlætisverkefni
hans eru Vínartónskáldin — einkum
Mozart —, en hann hefur einnig
fengist við nútímatónlist, bæði flutt
verk sín og annarra.
■jamm
Þórarinn
með tón-
leika í
Reykjavík
I kvöld kl. 20.30 mun Þórarinn
Sigurbergsson gítarleikari halda
einleikstónleika i Langholtskirkju,
og eru þetta hans fyrstu tónleikar í
Reykjavík. Aðgöngumiðar eru seldir
viö innganginn.
Á efnisskrá tónleikanna veröa
m.a. verk eftir meistara barokk-
tímabilsins, Bach og Scarlatti, og
verk eftir spænska tónskáldið Al-
beniz.
Birgir sýnir
lEden
Birgir Schiöth teiknikennari hefur
opnað sjöttu einkasýningu sína á
Elfar Guðni
sýnir á
Selfossi
A morgun, laugardag, opnar Elfar
Guðni málverkasýningu í Safnahúsi
Selfoss. Þetta er ellefta einkasýning
Elfars en hann hefur m.a. haldið sýn-
ingar á Stokkseyri, Selfossi, Hvera-
gerði, Reykjavík og Keflavík.
Á þessari sýningu verða nær
eingöngu vatnslitamyndir, málaðar
á síðustu tveimur árum. Sýningin er
opin um helgar frá kl. 14—22 og virka
daga frá kl. 17—22. Henni lýkur 9.
júní.
Birgir Schiöth.
teikningum. Birgir sýnir í Eden og
em teikningar hans fjölbreyttar að
ef nisvali. Þetta eru sölusýning.
STOKKSEYRARKIRKJA. Messa kl.
10.30. Sr. Ulfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA. Messa kl.
2.00. Sr. Olfar Guðmundsson.
Breyttur messutími
í Bústaðakirkju
Frá og með næsta sunnudegi, 2. júní,
verða messur í Bústaðakirkju kl. 10 ár-
degis. Og verður það svo sumar-
mánuðina alla. Þetta var reynt í fyrsta
skiptið síðastliöið sumar en áður hafði
verið messaö kl. 11 árdegis á sumrin.
Féll bæði kirkjugestum og starfsfólki
þessi tilhögun svo vel að samþykkt
hefur verið að halda henni áfram.
Það kom vel fram í fyrra að margir
komu við í Bústaðakirkju og sóttu
messu áður en haldið var úr bænum.
Enda er sjálfsagt að koma þann veg
klæddur sem hentar fólki hverju sinni.
Messan hefst á sunnudaginn kl. 10,
séra Olafur messar og Guöni Þ.
Guðmundsson annast orgelleik og kór-
stjóm.
Ferðalög
ÚTI VIST
10 Á R A
Útivistarferðir
Helgarferðir
31. maí—2. júní
1. Þórsmörk. Gönguferðir við allra
hæfi. Mjög góð gisting í Otivistar-
skálanum Básum.
2. Eyjafjallajökull (1.666 m).
Skemmtileg jökulganga. Gist í Oti-
vistarskálanum. Oppl. og farmiðar á
skrifst. Lækjarg. 6a, símar: 14606 og
23732. (Opið virka daga kl. 10—18.)
Helgina 14.—17. júní verða Skafta-
fell, öræfajökull og snjóbílaferð á
Vatnajökul aftur á dagskrá.
Afmælishátíð í Básum (Otivist 10
ára) veröur 21,—23. júní. Pantið
tímanlega. Sjáumst!
Útivist á Þingvelli
á sunnudaginn
Ferðafélagið Otivist efnir á sunnudag-
inn 2. júní til ferðar á Þingvelli.
Leiðsögumaöur verður Bjöm Th.
Bjömsson, listfræðingur og höfundur
Þingvallabókarinnar. Þátttakendum
gefst kostur á að kynnast þjóðgarðin-
um á annan hátt en flestir eru vanir.
Farið verður í tvær stuttar og
þægilegar gönguferöir þar er taka um
eina klukkustund hvor. Sú fyrri er um
Langastíg og Stekkjargjá að Fur'u-
lundinum, en hin síðari um Skógar-
kotsleið að gömlu eyöibýlunum
Skógarkoti og ÞórhaOastöðum. Sú
ganga endar viö VeUankötlu. Brottför
í feröina er kl. 13 frá Omferðarmiö-
stööinni aö vestanveröu. Á sunnudag-
inn er einnig gönguferð þar sem farið
er um gömlu þjóðleiðina Leggjabrjót
úr Hvalfirði yfir til ÞingvaUa. Sú ferð
hefstkl. 10.30.
Sunnudagur 2. júní
Kl. 10.30. Brynjudalur-Leggjabrjót-
ur.
Gengin gamla þjóðleiöin tU Þingvalla.
Fararstjóri: EgiU Einarsson. Verð 400
kr.
Göngudagur
Ferðafélags íslands
— sunnudag 2. júní
Ferðafélagið efnir tU göngudags í
sjöunda sinn sunnudaginn 2. júni.
Ekið verður að HöskuldarvöUum,
þar hefst gangan, sem er hringferð.
Gengið yfir OddafeU, áð í Sogasels-
gíg og hringnum lokað á Höskuldar-
vöUum. Gangan tekur um 2 klst.
Brottfarartímar eru kl. 10.30 og kl.
13.00 frá Omferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Frítt fyrir böm í fylgd
fuUoröinna. Verö kr. 150. Fólk á eigin
bílum er velkomið í gönguna.
Á sunnudaginn fara aUir suður á
HöskuldarveUi og ganga með Ferða-
félagi Islands. Létt ganga fyrir unga
sem aldna. Missið ekki af skemmti-
legri gönguferð.
I upphafi göngunnar leikur skóla-
hljómsveit MosfeUssveitar.
Ferðafélag Islands.
Tilkynningar
Egill Snorrason,
fyrirlestur 1985,
veröur fluttur í Odda, hugvisindahúsi H.I.,
stofu 101 föstudaginn 31. maí 1985 og hefst kl.
17.30. Fyrirlesari er prófessor öivind Larsen,
Oslo og nefnist erindi hans: „De skjuite linjer
í medicinens historie”.
öllum er heimill aðgangur.
Svefnpoki tapaðist
Appelsínugulur svefnpoki tapaöist af bíl á
'leiðinni Reykjavík — Hverageröi laugardag-
inn 25. maí sl. Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 82787 eftirkl. 18. Fundarlaun.
Kvennadeild SVFÍ
í Reykjavík
verður með kaffisölu sunnudaginn 2.
júní kl. 14. Þær sem vUdu gefa kökur
vinsamlegast komi með þær fyrir há-
degi á sunnudag.
Vortónleikar
Samkórs Kópavogs
Samkór Kópavogs heldur sina árlegu
vortónleika í Kópavogskirkju laugar-
daginn 1. júní kl. 16.00. MikU gróska
hefur veriö í starfsemi kórsins í vetur
og hefur hann sungið víða.
Að þessu sinni syngur kórinn ein-
vörðungu íslensk lög eftir þekkta ljóða-
og lagasmiði, svo sem Jón Ásgeirsson,
Inga T. Lárusson, HaUdór Laxness,
Emil Thoroddsen og Sigvalda Kalda-
lóns.
Söngstjóri Samkórs Kópavogs er
Stefán Guðmundsson.
Stórhljómleikar
í Tónabæ
I dag föstudaginn 31. maí verða haldn-
ir stórhljómleikar í Tónabæ undir
merkinu Rokkárás. Þar koma fram
þrjár helstu rokkhljómsveitir Islands
um þessar mundir, DrýsiU, Fist og
Gypsy.
Húsið verður opnaö kl. 9 og tónleik-
unum lýkur kl. 2. Miðaverði er stiUt í
hóf og kostar miöinn aðeins 250 kr..
Forsala aðgöngumiða verður í hljóm-
plötuverslun Kamabæjar, Austur-
stræti, og hljómplötuversluri Fálkans,
Laugavegi 24.
Opið hús hjá AFS
Skiptinemasamtök AFS á Islandi
halda opiö hús sunnudaginn 2. júní nk. í
félagsmiöstööinni Bústöðum við Bú-
staðaveg. Það er haldiö í tengslum við
undirbúningsnámskeið þeirra nema
sem fara út á vegum samtakanna nú i
sumar og munu þeir sjá um skemmti-
atriði. Opið hús er sem fyrr segir í
félagsmiðstöðinni Bústöðum og hefst
kl. 20.30. AlUr velunnarar samtakanna
velkomnir.
Konur vilja frið
2. landsfundur Friðarhreyfingar
íslenskra kvenna verður haldinn
laugardaginn 1. júní kl. 1 e.h. að
Hamragörðum við HofsvaUagötu.
Konur
viljaftiö
Friðarhreyfingin hefir nú starfað í
rúm 2 ár og er þetta annar lands-
fundurinn. Friðarhópar kvenna víðs
vegar af landinu og frá hinum
ýmsu kvenfélögum, stéttarfélögum
og kvennasamtökum allra stjórn-
málaflokka og óháðra einstaklinga
eru grunneiningar friðarhreyfingar-
innar. Hópamir starfa sjálfstætt á
sem breiðustum grundveUi að
sameiginlegu takmarki okkar allra:
friði og afvopnun á jörðu hér.
Guðsþjónusta og
kaffisala
í Vindáshlíð
Sumarstarf KFUK í VindáshUð
hefst sunnudaginn 2. júni með guös-
þjónustu í HaUgrímskirkju í Vindás-
hlíð í Kjós. Guðsþjónustan hefst kl.
14.30 og mun hr. Sigurbjöm Einars-
son biskup annast hana.
Að guðsþjónustu lokinni verður
kaffisala.
Sumarstarf KFUK hefur rekið
sumarbúðir í VindáshUð frá árinu
1948, eða í 37 ár.
Fyrst var hafist handa við bygg-
ingu svefnskála og matskála. Síðan
voru sett upp starfsmannahús og nú í
dag er leikskáU í byggingu, en hann
er að mestu tUbúinn. Einnig er
kirkja í Vindáshlíö og var hún flutt
frá Saurbæ á HvaUjarðarströnd.
Á hverju sumri dvelja um 500
stúlkur í Vindáshlíð. Fyrsti hópur
sumarsins fer í Vindáshlið miðviku-
daginn 5. júni.
Á sunnudaginn eru alUr velkomnir
í Vindáshlíð.
Rúmgott að Staðarfelli
Nýlega var stofnað styrktarfélag Staðarfells
á fjölmennum fundi á Hótel Loftleiðum.
Meðal stofnfélaga eru einkum fyrrum vist-
menn á meöferðarheimili SÁA aðStaðarfelli í
Dölum, aðstandendur þeirra og margir vel-
unnarar. Félaginu er ætlað að styrkja starf-
semina að Staðarfelli sem þegar hefur sannað
ágæti sitt. Rúmlega tólf hundruð
einstaklingar hafa verið i eftirmeðferö að
Staöarfelli vegna alkóhólisma og hafa margir
þeirra snúið lífi sínu til betri vegar.
Félagar í nýstofnuðu styrktarfélagi hafa
ekki setið aðgerðarlausir. Félagið var stofnað
21. aprO síðastliðinn og í maimánuði héldu
stjómarmenn vestur að Staðarfelli meö þrjá-
tíu rúm sem þeir færðu meðferðarheimilinu
aðgjöf.
Mlkill hugur er i félagsmönnnm og dagana
21. til 23. júní næstkomandi verður haldin fjöl-
skylduhátiö að Staðarfelli og þar ætla fyrrum
vistmenn, aðstandendur og aðrir velunnarar
staðarins aö samgleðjast með glæsibrag i
gjörbreyttu lífi.
(A myndinni má sjá formann styrktar-
félags Staöarfells, Eifu Bjömsdóttur, ásamt
forstöðumanninum, Guðmundi Vestmann,
fyrir framan meðferðarheimilið að Staðar-
felli).
Ný VERA er komin út
Ot er komið þriðja tölublaö VERU á þessu
ári. I þessari nýju Veru er gluggað í málefni
unglinganna, ekki síst stelpnanna. Starfs-
menn unglingaheimila og athvarfa spjalla
saman um tilveru ungiinganna og þaö sem
þeim þykir einkum einkenna veröld krakk-
anna. I grein um kynlíf er veifaö réttinum til
að segja nei. I annarri grein, um skólamál, er
vakin athygli á þeirri mismunun sem strákar
og stelpur verða fyrir í skólanum og í enn
einni grein í þessum málaflokki er f jallað um
tónlistarkonuna Cyndi Lauper.
Kvenráðgjöfin fjallar að þessu sinni um
hjúskaparslit og sambúöarslit. Samtalið
endalausa um kvenfrelsisbaráttuna er að
þessu sinni við Guðrúnu Agústsdóttur. Eftir
að hafa rætt við konur, sem valið hafa sérleg
kvennaframboð í baráttunni fyrir frelsinu,
þótti Veru vel við hæfi að leita svara hjá konu
sem gengið hefur i raöir stjómmálaflokks. Að
síöustu skal getiö um borgarmálin og þing-
málin sem eiga sinn staö vísan i Veru að
venju.
Vera kostar í lausasölu 130 krónur. Askrift-
arsíminn er opinn allan sólarhringinn og er
(91-) 22188. Heimilisfang Veru er Kvennahús-
ið við Vallarstræti, 101 Reykjavík, en Kvenna-
húsiö er opið alla virka daga frá kl. 14—18 og
þar er líka tekiö á móti áskriftarbeiðnum í
síma 21500.
íslenskar smásögur
VI. bindi
Þýðingar
Ot eru komnar hjá Bókaklúbbi Almenna
bókafélagsins lslenskar smásögur VI. brndi,
þýöingar. Ritstjóri og veljandi sagnanna er
Kristján Karlsson. Með þessu bindi er lokið
þessari ritröð bókaklúbbsins sem ber heitið
Islenskar smásögur.
I þessu 6. bindi eru sögur eftir 29 öndvegis-
höfunda heimsbókmenntanna á þessari öld.
Hinn elsti, Bertolt Brecht, fæddist árið 1898 og
sá yngsti, sænski höfundurinn Ingvar Orri, er
fæddur 1932. Höfundarnir eru af ýmsum þjóð-
emum.
Kristján Karlsson ritar eftirmála um smá-
söguna og eðli hennar og síðan er höfundatal
fyrir bindið og þýðendatal fyrir allt verkið.
Bókin er 482 bls. að stærð og prentuð í Odda.
Með þessu bindi er, eins og áður segir, lokið
smásagnaritröð bókaklúbbsins. Þrjú fyrstu
bindin eru smásögur eftir islenska höfunda,
frá Jónasi Hallgrimssyni til Thors
Vilhjálmssonar, samtals 73 höfunda, og þrjú
síðari bindin eftir jafnmarga erlenda
höfunda. Verkið er samtals 2583 bls. að stærð.
Ritstjóm alls verksins hefur Kristján
Karlsson annast og jafnframt valið sögurnar
nema í II. bindi þar sem Þorsteinn Gylfason
hefur annast valið.
Nemendur í
húsmæðraskólanum Ósk
á ísafirði
veturinn 1954—55
Ef þið hafið áhuga á að hittast helgina 8.-9.
júní nk. á Isafirði vegna 30 ára afmælisins
hafið þá samband sem allra fyrst. Lillý, sími
'94-3633, Jóna Valgerður, s. 94-7175, Guðbjörg
(Lilla), s. 91-44674 og Asta, s. 91-611175. og
686611.
Eyrnalokkandi
kvennaráðstefna
um hugmyndafræði 1. og 2. júní í Valsskála
við Kolviðarhól. Erindi og umræöur. Fram-
sögur flytja Helga Sigurjónsdóttir, Inga Dóra
Bjömsdóttir, Kristín Astgeirsdóttir, Sigur-
veig Guðmundsdóttir og Sólrún Gísladóttir.
Þátttaka tilkynnist í Kvennahúsið, Hótel
Vík fyrir föstudag í síma 21500 og 13725. Allar
konurvelkomnar.
Kvennalistinn og Kvennaframboðið
í Reykjavík.
Óháði söfnuðurinn —
fjölskylduskemmtun
Laugardaginn 1. júni kL 15 gengst Oháði
söfnuðurinn í Reykjavík fyrir fjöl-
skylduskemmtun í Menningarmiðstöö-
inni viö Geröuberg í Breiöholti. Meöal
þeirra sem koma fram er hinn
óviðjafnanlegi Omar Ragnarsson,
jasshljómsveit Árna Elfars og Dúa
Einarsdóttir, söngkona og fleiri.
Kynnir veröur Bryndís Schram.
Aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn og kosta kr. 250 fyrir fullorðna
en kr. 100 fyrir böm yngri en 12 ára.
Hvað er á seyði
um helgina
Þessi skemmtun er haldin til fjáröfl-
unar fyrir söfnuðinn en nú er unnið aö
lokaátaki við viðgerðir og endurnýjun
á kirkju og safnaðarheimili Oháöa
safnaöarins. Allir safnaðarmeðlimir
og velunnarar safnaöarins eru hvattir
tilaðkoma.
Aðalfundur
Verkamannafélags
Reyðarfjarðar
haldinn 17. maí 1985, skorar á iðnaðarráð-
herra og alþingi aö taka nú þegar á þessu ári
ákvörðun um byggingu kísilmálmverksmiðju
við Reyðarfjörð. Fundurinn bendir á þá stað-
reynd að brostinn er á fólksflótti úr byggðun-
um við Reyðarfjörð og því óhjákvæmilegt að
brugðist verði við þessari þróun og byggðin
treyst með nýsköpun atvinnulífs.
í Kristskirkju
Fimmtu tónleikarnir í tónleikaröð
Félags íslenskra organleikara, Kirkju-
kórasambands Islands og Söngmála-
stjóra Þjóökirkjunnar verða í Krists-
kirkju í Landakoti mánudaginn 3. júní
kl. 20.30.
Að þessu sinni hef jast tónleikamir á -
Preludiu og Fúgu í C-dúr sem Glúmur
Gylfason leikur. Þá leikur Orthulf
Prunner sálmforleikinn Komm, heilig-
er Geist, Herre Gott sem er einn hinna
18 stærri sálmforleikja meistara
Bachs. Orthulf leikur einnig 3 aðra for-
, leiki úr sömu syrpu.
Sigríöur Jónsdóttir, David Knowles
og Guðni Þ. Guömundsson leika einnig
4 af hinum þekktu og sérlega fögru
sálmforleikjum. Kristín G. Jónsdóttir
leikur Canzonu í d-moll og að lokum
leikur Guðni Þ. Guðmundsson hina
frægu Toccötu og Fúgu í d-moll.
Fyrri tónleikar hafa verið vel sóttir.
Fyllum kirkjuna og njótum meist-
araverka J.S. Bachs í vönduðum flutn-
ingi og umhverfi sem hæfir. r
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
PÓNIK OG EINAR
OG DANSBAND ÖNNU
VILHJÁLMS.
FÖSTUDAGS OG |
LAUGARDAGSKVÖLD. j
KVÖLDVERÐUR KL.
8-10.
HÚSIÐOPIÐ TIL KL. 3.|