Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Side 8
30
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd
Þessar myndir teljast allar ólög-
legar hérlendis. Engu að siður er
hœgt að fá þœr með lítilli fyrirhöfn
á hinum ýmsu myndbandaleigum
landsins.
ÓLÖGLEGT
- ENVINSÆLT
Líklega er hið svokallaða ólöglega
efni með því vinsælla sem mynd-
bandaleigurnar hafa upp á að bjóða.
Þessar spólur liggja ekki frammi í
hillum leiganna heldur eru geymdar
undir afgreiösluborðum eöa í bak-
herbergjum. Sumar leigurnar eru
með myndaalbúm þar sem
viðskiptavinirnir geta skoöaö úrvalið
og valið sér mynd.
En hvaða myndir eru þetta?
Police, Purple
og Beverly
Myndbandasíðan fór á stúfana og
aflaði sér upplýsinga um nokkrar af
þessum myndum. Sumar þeirra hafa
nýlega verið sýndar í kvikmynda-
húsum, aðrar hafa ekki sést hér
ennþá.
Af þeim sem sýndar hafa verið hér
ber fyrst aö telja myndir Austur-
bæjarbíós, Police Academy og
Purple Rain. Þessar myndir ku hafa
verið komnar á markað nokkru áður
en kvikmyndahúsið tók þær til sýn-
inga. Sömu sögu má segja um Ghost-
busters Stjömubíós. . Háskólabíó
hefur undanfarið verið aö sýna
myndir sem jafnframt hafa verið á
boðstólum á myndbandamarkaðn-
um. Enn standa yfir sýningar á
Beverly Hills Cop en hún var til á
myndbandi hér áður en bíóið hóf
sínar sýningar. Killing Fields og
Indiana Jones and the Temple of
Doom hafa einnig verið á markaði
hér í nokkurn tíma.
Fleiri myndir má nefna eins og t.d.
Reuben Reuben Bíóhallarinnar, The
dead Zone, Lassiter, Company of
Wolves. Allar þessar myndir voru
komnar hér áður en kvikmyndahúsin
tóku þær til sýninga.
Óheiðarlegt og óeðlilegt
Þá eru það myndimar sem ókomn-
ar eru í kvikmyndahús. Meðal
margra má þar telja upp Ice Man
með Timothy Hutton, The Idol-
maker, Terror by Ashes með Micha-
el Caine og Clint Eastwood, Purple
Hearts með Ken Whal, Tresure of
Domm með Donald Pleasence,
Captein Invincible með Alan Arkin
o.fl.,o.fl.
Oþarft er að taka fram hversu
miklu tjóni þetta þjófstart veldur
rétthöfum myndanna. Þær eru í
sumum tilfellum búnar að vera í allt
að 6 mánuði á markaði hér áður en
kvikmyndahúsin taka þær til sýn-
inga. Að vísu hefur þetta orðið til
þess að kvikmyndahúsin kappkosta
að hafa stöðugt á boðstólum nýjar
myndir. Engu að síður er hér um
óheiöarlega og mjög óeölilega sam-
keppni að ræða.
Segir meira af ólöglegu efni á
næstu myndbandasíðu.
-ÞJV.
Myndir:
1. Romancing the Stone
2. Rita Haywarth
3. Splash
4. Kill Joy
5. Rhine Stone
6. Conan 2
7. The Question
8. The Natural
9. Juggernaut
10. The Wilby Conspiracy
Þættir.
1. Return to Eden
2. Atlanta Childmurders
3. Once upon a Time in America
4. Evergreen
5. Hollywood Wives
6. Mallence
7. Widows
8. Chiefs
9. Strumparnir
10. Falcon Crest
l>
o
Vinsœldalisti DV er byggflur á upplýsingum frá 10 myndbandaleigum
vifls vegar um landifl.
Tónlist
★ ★ ★ ★ Frábær
★ ★★ Góð
★ ★ Miðlungs
★ Léleg
0 Afleit -ÞJV
Leikstjóri: Robert Butler.
Aðalhlutverk: Tuesday Weld, Ron Leibman.
Tími: 105 mín.
Þetta er dálitið skrýtin mynd. Spurningin er:
hver er í rauninni sekur?
Ung móöir (Weld) verður fyrir þeirri
óhugnanlegu reynslu að börn hennar eru myrt á
hroðalegan hátt. I fyrstu liggja móðirin og fyrr-
um eiginmaður hennar undir grun. Lögreglu-
maðurinn sem rannsakar málið kemst svo fljót-
lega á þá skoðun að móðirin hafi ein myrt böm
sín. Margir eru til að taka undir þennan órök-
studda grun enda er konan litin hornauga vegna
lausláts lífemis síns. Það fer að lokum þannig
að lögreglan ákveður að konan sé sek þó svo að
fullnægjandi sannanir séu ekki fyrir hendi. Kon-
an er ákærö og ríkissaksóknarinn vinnur málið
fyrir réttinum. Það er margt gott í þessari
mynd. Leikur Weld og Leibman er t.a.m. alveg
prýðilegur. Hins vegar er erfitt að vera sáttur
við niðurstöðu myndarinnar. Málið er allt of
flókið til að áhorfandinn geti dæmt um hvort
konan er í raun sek eða saklaus. Aðalatriöið er
hvort hægt er að dæma einhvem fyrir það sem
hann er. Það er spumingin.
Leikstjóri: Richard Floischor.
Aóalhlutverk: Charles Bronson.
Tíml 103 min.
Maður hefði svo sem mátt vita það. Bronson í
hlutverki melónubónda sem hefur „fengið nóg”
af kerfinu. Einn á móti öllum með riffilinn í
hendi.
Það er í raun óþarft að tala um nokkum sögu-
þráð í þessari mynd. Atburðarásin er auka-
atriði, aðalatriðin eru skotbardagar og dráp. Eg
taldi að gamni mínu hve margir voru drepnir.
Þegar upp var staðið voru þeir 12. Virðingar-
leysið fyrir mannslífum er algjört. Áður var víst
sagt aö Bronson væri einn á móti öllum. Þaö er
ekki öldungis rétt því einhver konuræfill er
hangandi utan í honum og hann segir henni sög-
ur af misheppnuðu hjónabandi sinu. Þess á milli
keyrir hún bílinn með hann skjótandi á allt
kvikt. „Það er ekki nein tilviljun að Bronson er
einmitt maður sem gefur þessari átakamynd
lif,” segir á kápu. Hvílikt skrum. Það er ekkert
sem réttlætir morð og Bronson gefur engum lif
ef út í það er fariö. .
Þetta er afleit mynd. Ofbeldið sett í öndvegi
og síðan reynt að réttlæta það. Sveiattan.
Tími: 120 mln.
Christiane F. komst í sviðsljósið fyrir einum
sex árum. Ástæðan? Heróínneysla.
Hér er sögð saga stúlku sem kemst í kynni við
eiturlyf á fermingaraldri. Reyndar er um leið
sögð saga fjölda annarra unglinga sem svipaö
er ástatt fyrir. Allt er notað, hass eöa spítt, og
neysla Christiane eykst stöðugt. Að lokum
prófar hún heróín til þess að komast inn í sama
hugarheim og strákurinn sem hún elskar.
Heróínið grípur þau bæði heljartökum og kostar
þau nærri lífið.
Þetta er átakanleg mynd. Áhorfandinn er
leiddur inn í heim volæðis og eymdar þar sem
unglingar eru skipulega að murka úr sér lífið.
Þrátt fyrir þessa átakalýsingu finnst manni
þetta á köflum ótrúlegt. Þetta virðist allt svo
f jarlægt. En er það reyndin?
Það er varla hægt að f jalla um þessa mynd án
þess að minnast á tónlist Bowie. Hún hæfir vel
þessari mynd, sérstaklega lagiðHeroes.
Þetta er saga bamanna sem sögöu í einfeldni
sinni: „Ég ætla bara aðprófa þetta einu sinni.”
TUESDAY WELD
Collection 1977-1982.
Timl: 58 mln.
Hljómsveitin Stranglers hefur staðið í eldlínu
rokksins í rúm 8 ár. Og tónlist þeirra hefur
vissulega breyst á þeim tíma. Þeir voru
framverðir nýbylgjunnar þegar sú tónlistar-
stefna kom upp í kringum 1977. Hljómsveitin
hélt tryggð viö þá stefnu fram yfir 1980 þegar
skyndilega var kúvent. Nýir tímar kalla á nýja
tónlist og Kyrkjaramir fóru að spila fágað rokk.
Eins og titillinn gefur til kynna er á þessu
tónlistarmyndbandi að finna safn laga
hljómsveitarinnar á 5 ára tímabili. Upp-
tökurnar hafa sumar sést í sjónvarpinu hér,
aðrar ekki. Kannski eins gott því víst er að
íslenskir sjónvarpsáhorfendur myndu hneyksl-
ast á hljómleikaútgáfu lagsins Nice and Sleazy.
I því dansa fáklæddar stúlkur á sviðinu meðan
hljómsveitin leikur lagið. En hvað sem því líður
þá gefur þetta lagasafn góða mynd af þvi sem
Stranglers hafa verið að gera í gegnum árin.
Bestu lög: Strange little girl, Get a grip on
yourself, Golden Brown.