Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 2
2
Lokað fyrir rafmagn hjá Baldri hf. í Keflavík:
„EKKISKULDAÐ
NÓGU LENGI ”
— segir f ramkvæmdastjórinn, en fyrirtækið er senn
að hætta rekstri
„Þaö var ósköp eðlilegt aö þeir
lokuðu rafmagninu á okkur, viö skuld-
uöum," sagði Björn Olafsson,
framkvæmdastjóri Baldurs hf., fisk-
vinnslufyrirtækis í Keflavík.
Þaö var á mánudaginn sem lokaö
var á rafmagn fyrirtækisins, slíkt
hefur aldrei gerst áöur hjá því. „Ætli
þaö sé ekki þaö aö viö höfum ekki
skuldaðnógulengi,” sagðiBjöm.
„Það er bara að sjá hvað það verður
opiðlengi.”
— En á fyrirtækið í vandræðum eins
og svo mörg önnur á Suðurnesjum, er
þaö aö legg ja upp laupana?
„Það hefur gengiö bölvanlega eins
og hjá öllum hér, en viö erum ekki á
hausnum. Fyrirtækiö stendur meira að
segja mjög traustum fótum eignalega
séö.
En viö erum samt aö hætta þessu,
ætlum aö reyna aö selja þaö ef það er
þá hægt. Það er aðeins timinn sem
sker úr um hvenær við hættum.”
Baldur hf. á fjóra báta, sá nýjasti,
Gissur hvíti, bættist við í flotann í vet-
ur. „Viö erum aö selja hann til Blöndu-
óss, þeir taka viö kaupsamningnum
fráívetur.” f
Og enn hefur frystihús Baldurs hf.
ekki verið opnaö, en þvi var lokað fyrir
um ári. „Viö höfum unnið allt í salt-
fisk.” — Fæst nokkuö fyrir hann? „Já,
þetta er allt í lagi ef þú ert með góðan
fisk.”
Hætti Baldur hf. starfsemi missa um
40 manns vinnuna. „Hjá okkur hafa
unniö um 16 í saltfiskverkuninni og við
höfum haft 23 sjómenn.”
-JGH.
ÆvarPetersen fuglafræðingur:
DV. FÖSTUDAGUH 7. JUNI1985.
Sfldarbragginn 6 Djúpuvfk sem nú skal verða hótel
DV-mynd Póll
„Menn sjá stjörnur
yfir þessu”
„Menn sjá stjörnur yfir þessu,”
sagði Ævar Pedersen fuglafræöingur
þegar DV bar undir hann hugmyndina
um að Islendingar hæfu fálkaút-
flutning til að sporna við eggja- og
fuglaþjóðum. „Þetta er ekki svona
einfalt. Það myndi þýða grundvallar-
stefnubreytingu í sambandi við fugla-
friðunarmál. Við erum að safna upp-
lýsingum um þetta en ég er alls ekki
bjartsýnn á að þetta verði nokkurn
tímaaðveruleika.”
Fálkahald er sport aöalsins í Araba-
löndum og mörg þúsund ára hefð þar
um slóöir. I Evrópulöndum var sterk
hefð fyrir fálkahaldi og danakonungur
leyföi mönnum aö veiöa fálka á Islandi
og selja þá allt fram til ársins 1770.
Ævar sagði að í Arabalöndum væri
þaö stöðutákn að eiga sem besta og
flesta fálka. „Arabarnir vilja ekki
ræktaöa fálka þeir vilja bara villta
fugla sem þeir þjálfa af mikilli elju.
Þeir fara með fálkana á veiðar og
reyna að láta þá fljúga á bráðina og
drepa hana. Fálkamir eru alveg eins
og þjálfaðir veiðihundar.”
Mikil eftirspum er eftir villtum
fálkum í Arabalöndum og fæst hátt
verð fyrir fuglinn, nálægt hálfri
milljón íslenskra króna.
Að sögn Ævars Pedersen geta fálkar
lifað i tiu til 20 ár. Fálkinn er fugl sem
lifir á norðlægum slóðum og endist
ekki lengi í heitu loftslagi. Sagöi Ævar
að það væri misjafnt eftir fuglum hvað
þeir gætu lifað lengi við slíkar
aðstæður.
-EH.
Eru börn þingsköp?
I miðri umræöu um verslun ríkisins
með áfengi, mál sem fjármálaráð-
herra mælti fyrir í neðri deild, kvaddi
Kristín S. Kvaran (BJ) sér hljóðs um
þingsköp. Þingforseti sem þá stundina
gegndi því starfi, Karvel Pálmason
(A), gaf þingmanni leyfi til að taka til
máls.
Kristín kvaðst hafa þá fyrr um
morguninn haft samband við mennta-
málaráðherra, Ragnhildi Helgadóttur,
vegna frétta í fjölmiðlum um ástand
mála á dagvistarstofnunum. Þingmaö-
ur fór fram á í viðtali við ráðherra að
þetta mál yrði rætt utan dagskrár sem
ráðherra kvaöst ekki vera tilbúinn til.
Því ræddi þingmaður í ræðustól „um
þingsköp”. Og fleiri tNcu til máls. For-
seti þingdeildarinnar margítrekaði,
reyndar eftir ræðulok hvers þing-
manns, að menn töluöu eingöngu um
þingsköp. Fór dágóður tími forseta í þá
útlistun fyrir þingmönnum. Og allir
töluðu „um þingsköp” eins og þaö hét.
Reyndar var vart greindur munur á
umræðunni sem þarna fór fram og um-
ræðu utan dagskrár. Þetta tiltekna
dæmi er nokkuð táknrænt fyrir þennan
vinnustaö. Stjómarandstæðingar sem
til máls tóku voru auk Kristínar upp-
hafsmanns, þau Guðrún Helgadóttir,
Jóhanna Sigurðardóttir, Kristín Hall-
dórsdóttir og Svavar Gestsson. Tóku
þau öll í sama streng aö ræða þyrfti úr-
bætur í dagvistarmálum en samkvæmt
fréttum fjölmiðla er ástand á þessum
stofnunum mjög slæmt. Flótti úr
fóstrustéttinni er óeðlilegur sem rekja
mátillágralauna.
Menntamálaráðherra sagöi að
launamál fóstra væri sveitarstjómar-
mál en hún skyldi gera það sem í henn-
ar valdi væri og hennar ráöuneytis til
að gera bragarbót á þessum málum.
Greindi ráðherra frá aðgeröum sem
þegar eru í gangi í ráðuneytinu.
A þingpöllum var hópur þolenda sem
máliö snerist um, fóstrur og börn frá
dagvistarstofnunum.
Kristín S. Kvaran sem sjálf er fóstra
upplýsti að nú í fyrsta skipti í 40 ára
sögu Fósturskólans væri aðsókn að
skólanum dræm.
Fóru stjórnarandstæðingar fram á
utan dagskrár umræðu um málið í dag.
Að lokinni þessari umræðu um
„þingsköp” hélt áfram umræða um
verslunríkisinsmeðáfengi...
-ÞG
Þrenn lög:
Frádráttur meðlags, siglingalög og
stuðningur við tónlistarskóla
Aö minnsta kosti þrjú frumvörp urðu
að lögum frá Alþingi í gær. Tvö mál
voru afgreidd í efri deild og eitt í neðri.
I neðri deildinni var hinn nýi lagabálk-
ur um siglingalög samþykktur. Laga-
greinarnar eru hátt á þriðja hundrað-
iö.
I efri deild var frumvarp um breyt-
ingu á tekju- og eignaskatt. Þetta er
þingmannafrumvarp stjómarand-
stæðings því flutningsmaður er Jó-
hanna Sigurðardóttir. Þetta frumvarp
felur í sér breytingar á meðlags-
greiðslum til samræmis við ákvæði
bamalaga um framfærsluskyldu. I
gildandi lögum um tekju- og eigna-
skatt er meðlagsgreiðendum heimilað-
ur frádráttur frá skatti sem nemur
helmingi meðlagsgreiðslna meö bami
til 17 ára aldurs. Samkvæmt bamalög-
um er framfærsluskylda lengd til 18
ára aldurs en í lög vantaði ákvæði um
frádrátt greiðenda þetta eina fram-
lengda ár.
Hitt frumvarpið sem afgreitt var
sem lög frá efri deild er um fjárhags-
legan stuðning viö tónlistarskóla. Viö
áður gildandi lög sem samþykkt voru
1975 hafa komið fram ýmsir annmark-
ar sem leiörétta varð með nýjum lög-
um.
-ÞG
Djúpavík:
HÓTEL í SÍLDAR-
BRAGGA
;Frá Páli Asgeirssynl, Isafirði:
Flestir landsmenn þekkja eflaust til
Djúpuvikur á Ströndum. Þeir sem ekki
þekkja staðinn muna e.t.v. eftir
sjónvarpsleikriti Hrafns Gunnlaugs-
sonar, Blóðrauðu sólarlagi, en það var
tekið á Djúpuvík. Nú eru tvö ár síðan
síðasti íbúinn á Djúpuvík hætti að hafa
þar fasta búsetu.
Nú virðist sem þessi gamla
höfuöborg síldarævintýranna sé að
lifna við á ný. Hlutafélagið Magnús
Hannibalsson hf. hefur keypt hluta af
mannvirkjum á Djúpuvík, þar á meðal
gömlu síldarbræðsluna og verbúöir
sem henni fylgja. Ein þeirra er
kvennabragginn svokallaði sem áður
! hýsti stúlkur sem unnu við söltunina.
Þessa dagana eru nokkrir bjartsýnis-
,menn í óðaönn að innrétta kvenna-
braggann sem hótel. Þar sem áður
bjuggu allt að 100 konur ætla nýju
hótelhaldararnir að hýsa 18 manns f 9
tveggja manna herbergjum.
Einnig er gert ráð fyrir nokkru
svefnpokaplássi. Að sögn Ásbjamar
Þorgilssonar, sem gekk með okkur um
eignina, er stefnt að því að opna hótelið
þann 17. júní næstkomandi. Þrír til sex
starfsmenn verða á hótelinu og hefur
Amdís Guðnadóttir verið ráðin hótel-
stjóri. Asbjöm var spurður um
hugsanlega fiskirækt sem Magnús
Hannibaldsson hf. hefur veriö orðaður
við en hann varðist allra frétta og
sagði þau mál vera í skoöun.
Ekki verður hér lagöur neinn dómur
á hvort grundvöllur sé fyrir hótel-
rekstri á Djúpuvík. Ef framtak þeirra
félaga verður til aö auka feröamanna-
straum norður á Strandir þá er það vel
því þetta af skekkta hérað býr yfir mik-
illi náttúrufegurð.
-EH.
Útvarpslagafrumvarpið:
Auglýsingarnar í hendur
útvarpsréttarnefndar
„Það hafa ýmsar hugmyndir verið
ræddar sem ráðherrar þurfa að taka
afstööu til,” sagði Haraldur Olafsson,
formaður menntamálanefndar efri
deildar, um útvarpslagafrumvarpiö.
Nefndin hefur fundað undanfama
daga nær daglega og von manna er að
frumvarpið verði afgreitt úr nefnd um
helgina og síðan tekið á dagskrá efri
deildarámánudag.
„Eg hef haft hugmyndir um að út-
varpsréttamefndinni verði falið að
taka auglýsingaþáttinn í sínar hendur,
en enn er þetta aðeins hugmynd,”
sagði Haraldur. Síöan sagði hann aö
boðveitutillögur margar hafi verið
ræddar og menn á þvi að boðveitukerf-
in eigi að vera í eign sveitarfélaga.
„öll byrjunarlög hafa annmarka og
margt er ófyrirséð,” sagði Haraldur
einnig og því hefði verið lagt til í nefnd-
inni að nefnd sérfróðra manna yrði
skipuð til aö fylgjast með lögunum og
framkvæmd þeirra. Auglýsingamáliö
sem er viökvæmasti þáttur frumvarps-
ins og hefur valdiö mestum deilum inn-
an stjórnarþingmanna sagði hann að
reynt yrði að finna annan flöt á.
-ÞG
Bjórinn:
HIK OG VOMUR
Allsherjarnefnd efri deildar fjallaði
á fundi sinum í morgun um bjórfrum-
varpið. Þar svifu margar hugmyndir
yfir vötnum, til dæmis um að leggja
þetta mál undir dóm þjóðarinnar með
atkvæöagreiðslu.
Dálitlar vomur hafa verið í hópi
stuöningsmanna bjórsins vegna lítils
meirihlutafylgis við afgreiðslu frum-
varpsins í neðri deild. Niöurstaða
þeirra atkvæðagreiöslu var 20 með
bjórnum og 16 á móti honum.
Bindindismenn í hópi þingmanna
munu vera andvígir þjóöaratkvæða-
greiðslu um bjórinn.
-ÞG