Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1985, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 7. JONI1985. SKÓLASTJÓRI - KENNARI Okkur bráðvantar skólastjóra og kennara við Grunnskól- ann Drangsnesi næsta skólaár vegna ársleyfis skóla- stjóra. Hvernig væri að minnsta kosti að kanna kjörin í símum 95-3215 og 95-3236. Lausafjáruppboð Opinbert uppboð á reiðhjólum og öðrum óskilamunum i vörslu lög- reglunnar í Hafnarfirði fer fram föstudaginn 7. júní 1985 og hefst kl. 16.00að Flatahrauni 2, Hafnarfiröi. Munir þessir veröa til sýnis á sama stað mánudaginn 3. júní og þriðjudaginn 4. júní kl. 14.00—17.00. Þar og þá eiga menn þess kost að sanna rétt sinn til munanna. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn f Hafnarfirði. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla. Umsóknar- frestur til 25. júní. VIÐ FJÖLBRAUTASKÓLANN í BREIÐHOLTI, kenn- arastaða í dönsku, ensku, eðlisfræði, félagsfræði og tvær stöður í hjúkrunarfræðum. VIÐ FJÖLBRAUTASKÓLANN Á AKRANESI, kennara- staða í málmiðnagreinum. VIÐ FJÖLBRAUTASKÓLA GARÐABÆJAR, kennara- staða í líffræði og hálf kennarastaða í spænsku. VIÐ MENNTASKÓLANN AÐ LAUGAVATNI, kennara- staða í náttúrufræðum. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Reykjavík, 4. júní 1985. Menntamálaráðuneytið. *BRUnHBÚTHf6ilC ÍSUH105 Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055 Tilboð óskast í eftirtaldar bif reiðir er skemmst hafa í umferðaróhöppum. Ford Fiesta 1000 árg. 1985. Mitsubishi L-300árg. 1983. Mitsubishi Tredia GLS árg. 1983. Volvo 244 GL árg. 1982. Volvo244GLárg. 1979. Toyota Carina Lift Back árg. 1982. BMW316árg. 1981. Daihatsu Charadeárg. 1980. Lada 1300 Sárg. 1982. Lada 1500st. árg. 1981. Wartburgárg. 1980. Fiat 127 árg. 1985. Einnig Kawasaki GPC 750 bifhjól árg. 1982. Bifreiðirnar verða til sýnis að Smiðjuvegi 1, Kópavogi, laugardaginn 8. júní nk. kl. 13.00—17.00e.h. Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir kl. 16. mánudaginn 10. júní nk. Jfú cr rétli limitm til ai ptanta i gariinn. Trjáplöntur, mnnar oq rójir m þcgar.; Einniq sumarblöm i bgrjun júni. CróJrarstöSin lundur, ^ ysms Jtftrt« Ktl*nohtltm KtMur^ U>riurlll ndj'lt*'** > <rilfröm*r /• MM Wtrícii >Caca-Cota itríktríiruf. Lundur% Menning Menning Menning NÁLÆGD ÞORRA Þorri Jóhannsson: Hættuleg nálægft. Skákprent 1985,32 ljM. ERFIÐANÆGJA Nú nenniröu aðsegja það að fá mig til að muna hvað ég sagðl rétt fyrir siðasta augnablik ogendurtaka enn á ný. En loks er ég mættur að dansaeráleiðinni aö klæðast gulu engu og hugsa um hvernig sé að reisa svalir. Eftir aö mig hætti aö dreyma í jólalögum og sumarlegum líkkistum hef ég staðnaö héma i alla nóttoggert við kassettur á tindinum f yrir ofan parisarhjólið. Á sveittum skóm sýg ég sígarettur ennþáþóttteninga- spil geri mig sturlaöan, gamlar konur sýnastelta mig á röndum. I strætó hef ég andað viö erfiða nautn mólningu allra þessara rosknu kvenna hérisólinnL Berskjaldað saklaust margra heima dulið gófumenni hefur deyft sig ó skeljaðri hjákonu sinni en hefurgefiðsér of margar aldir til þess eins að melta vímuþessa.þótt ekki séu lopapey sur viö hans hæfi. Upplituðu tússpenna- gleraugun fara mér ekki vel hérna við arininní spilaborginni, i erfiöu ánægjunnL Byrjið daginn vel og vaknið við vonda tóniist, samt hef égaldreirætt slysafréttir Dagblaðanna. Núorðinnmargorðurum...? En tilvist min er langsótt líking. Þessi texti er af súrrealisku tagi, ekki er rökrétt samhengi, heldur raöast saman myndir sem virðast oft ekkert eiga samelginlegt. „Er þá svona einfalt að gefa formúlu fyrir skáldskap”, kann einhver að spyrja. Nei, það er ekki einfalt aö skapa, og enga formúlu hægt að finna um þaö. Lesandinn ruglast i rimlnu gagnvart svona texta, gefur rökhugsun sina frá sér, en stekkur frá mynd til myndar, eins og i draumi. En til þess að áhrífin verði merkileg, þarf skáldlð að vanda sig mjög.bæði i þvi hvernig hann gerir hverja mynd og hvernig hann raðar þeím niður. Það þarf að nást æöra samhengi bak við yfirborðið, samhengi sem ræðst ef til vill einkum af hugrenningatengslum sem fylgja einstökum orðum, stílblæ þeirra, af fínlegustu dróttum myndanna, af hljómfallinu, i stuttu máli sagt, æðra samhengi ræðst af ýmsu því sem minnst ber á í ljóölnu. Þetta leiðarljós finnst mér vanta i ofanrituðum texta. Þótt einstakar likingar geti verið smellnar (t.d. „Á sveittum skóm”, „andað málningu roskinna kvenna i strætó”, „klæðast gulu engu og hugsa um hvemig sé aö reisa svalir”) — þá sýnast mér aðrar út í hött, og samband myndanna sömu- leiöis, t.d. lopapeysurnar, tússpenna- gleraugun, kassettuviögerðin á tindinum fyrir ofan parísarhjólið. Og kemur nokkuð út úr þvi að afmarka Bókmenntir Örn Ólafsson merkingu orðsins „gáfumenni”, í þessu samhengi, með þessum fjórum ókvöröunarliöum? En þessl texti er síður en svo dæmigerður fyrir bókina. Flest ljóö hennar eru af allt ööru tagi: SÝNING Er ég i raun framleiösla þessararforvitni? þessaratilviljana? þessara viðbragða? Vissulega óttast ég allt ókomið. Asýningumykkar hef ég sjaldan nennt aðstaldraviö og oft skelf ur hönd min viöútrás. Já.já fáðuþérbara dagblaötilaökíkjaí, myndtilaðskoöa. Þetta finnst mér vera af tagi blaða- greina, og raunar mestöll bókin. Höfundur kemur með huglelðingu um stöðu sina í samfélaginu, en að þvi má síöan eitt og annaö finna. Hvorttveggja er auðvitað hefðbundin yrkisefni skálda — og greinahöfunda. Eg tel þennan höfund til seinni flokksins, því hér er ekkert sýnt, aðelns sagt fró, talað um. Stundum falla orð, sem yfir- leitt eru útlæg úr prentmáli; skíta, ríða, en hverju breytir það? Textinn verður ekki vitund persónulegri við það, áfram er þetta afstrakt huglelðing. Og þegar afstaöa höfundar til yrkisefnisins er af þessum toga, þá stoöar ekkert að sáldra myndmáli i textann, hann verður ekki skáldskapur við það: ANNARS KONAR VERULEIKI UM SVART Svartrökkur einhvers konar snertanleg sönnun um svart. Svörtsólá glitrandi punkti. Inni í ruslakássu gulra heima fölnaðs höfuös er ekki hefur tæmst ekki opnast í margar innrí aldir. Aftökur eru heillandi á myndböndum. Eg elska þær varla nærri. Lifið er biö eftir einhverju erkemurekki þvi þegar þaö kemur er þvi lokið. Það er ekki til siös hér aðhafahægðir grettandi sig við opnar dyr. Nú kann einhver að svara mér því til að þetta séu bara opin ljóð og Þorri megi skrifa þau eins og aðrir. Hér er ekki rúm til aö fjalla almennt um þó stefnu enda getur stefna ekki réttlætt einstaka texta, þeir verða að standa á eigin fótum, hver og elnn. Vissulega fjalla opin ljóð um hversdagslíf á hversdagslegan hátt. En það er allur gangur á því, hvemig það er gert. Frá Umsvölum eftir Jóhann Hjálmarsson gengur svo langt i þessu, að útkoman verður hreinn niðurrifsskáldskapur (súbversíf), sýnist mér, lesandinn er geröur meðvitaður um hversdagsleik- ann, sem verður framandi, allt annað en sjólfsagður. — En raunar sé ég ekki aö Þorri sé neitt aö laga sig eftir skáldum opinna ljóöa. Þetta er þríðja bók höfundar, gefin út af Skákprenti, og út af fyrir sig á það forlag lof skilið fyrir að sækja fram af djörfung og dug. Bókin er prýdd mögnuöum hryllings- myndum eftir Oskar Thorarensen, þar sýnist mér listamaöur halda á penna. ISLENSKIR ORGANISTAR LEIKA BACH - FIMMTA LOTA Islensklr organlelkarar flytja orgelverk Johanns Sebastlans Bach — Tónlelkar 1 Kristsklrkju 3. JúnL Flytjendur: Glúmur Gylfason, OrthuU Pmnner, Slgriður Jónsdóttlr, David Knowles, Krlstin G. Jónsdóttir, Guðnl Þ. Guðmunds- son. •Afram halda islensklr organistar ótrauðlr að leika orgelverk Bachs, en eins og kunnugt er hafa þeir sett sér það mark að leika þau öU á fimmtán tónleikum. Fimmtu tónleikana í röð- innl héldu þeir í Krlstskirkju á mánu- dagskvöld. Það kvöldlö léku sex organistar, hlnn sjöundi forfallaðist. Aður hef ég rætt um galla þess fyrir- komulags að stefna svo mörgum organistum saman til aö spila hver á eftir öðrum í elnni runu. Einhvem veg- inn var nú eins og minna bæri á göllum þess fyrirkomulags á umræddum tón- leikum. Hygg ég að þaö stafi meðal annars af því að bæði var efnisuppröö- unln skynsamlegri en fyrr á tónleikum þessarar tegundar og svo hinu aö það var elns og elnstaklingarnir innan þessa heldur ólíka hóps bættu hver annan upp. Þama var til dæmis ekki verið aö klessa saman tvelmur nemendum sama prófessorsins hlið vlð hlið með kelmlik verk svo að hvorugur fengl notið sinna persónueinkenna við orgeliö. Aðeins i elnu tilviki fannst mér aöstandendum tónleikanna mistakast í uppsetningu efnisins þetta kvöldið og það var þegar lnn var skotið flutnlngi Kristínar G. Jónsdóttur á Canzonu í d- moll á milli leiks Orthulfs Prunners á röð sólmforlelkja, Alleln Gott in der Höh’ sei Ehr. En Kristín, sem i form- festu slnni reyndist svo mátulega ólík Tónleikar Eyjólfur Melsted stærðfræðingnum Prunner, náöi að byggja upp góða stigandi i leik sinum. Það er sénstök ónægja aö úr kynjamls- munun skulidragaíröðumorganista. Of lengi hefur þátttaka kvenna verið bundin við troöin harmónium eingöngu og of oft hafa þær vikið fyrlr „organistum”, karlkyns, þegar pipu- orgél hafa veríð fengln i kiricjumar. Þær Krlstín og Slgriður Jónsdóttlr vom verðugir fulltrúar kvenna á þessum tónleikum. Yfir leik þeirra var engu minni reisn en annarra og heyrir þaö vonandi brátt sögunni tll aö eitt- hvað sé merkilegt við það að kven- maöurspilláorgel. Hvort sem þaö var nú vlljandi, eða fyrir tilviljun, tókst skipuleggjendum tónleikanna að komast hjá skólatón- leikasvlpnum þetta kvöldið. Þeir hófust með rísmiklum leik Glúms Gylfasonar á Prelúdíu og fúgu í C-dúr (merktrí VII nr. 37 og likast til stuðst viö Peters sem fyrr). Svo skiptust þau á svo ólfkir organistar sem Sigriður, David Knowles og Orthulf Prunner um sálmforleikina og tókst þeim almennt vel upp. Lokaoröið átti Guöni Þ. Guðmundsson, sem hitaöl sig upp fyrir þá alfrægu Toccötu og fúgu í d-moli með nettum sálmforleik um Föður vorn í hlmnaríki. Meðferð hans á þessu vinsæla og vel þekkta stykki var mjög svo persónuleg eins og vænta mátti. Ekki alveg eins i ökkla og eyra og margir telja aö beri, ekki þanið eins og ekki spilað upp á eins sterkar andstæð- ur í registration og oft heyrist, en húmorinn skein i gegn. Það er næsta ótrúlegt á hve marga vegu mó spila Bach án þess að skemma— þaö fengu menn aö heyra i þessari vel heppnuðu fimmtu lotu organistamaraþonsins. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.