Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 7
Viðtal við John Waters kvikmyndaleihstjóra (og klámhund?) Að halda með Spánverjum — Zico-vinafélagið fer á knattspyrnuleik DV. FÖSTUDAGUR14. JUNI1985. ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Ögmundur Kristinsson prentari sést hér að störfum. OÐRUM HNOTTUM? — Sagtfrá kenningum dr. Helga Pjeturss og rætt við fylgismenn hans Ég er það sem |',' þeir kalla B-maður — Rættvið Jóhann G. Bsrgþórsson, forstjóra Hagvirkis, laxaræktanda ognú einn eigenda BÚH er á seyði um helgina?- Hvað er á seyði um helgina Galleri Borg, Pósthússtræti 9 Næstu viku verða til sýnis í Gallerí Borg verk þeirra Kjarvals, Ásgríms Jónssonar, Gunnlaugs Blöndal, Katrínar Jónsdóttur, Nínu Tryggva- dóttur og fleiri. Auk þess veröa þar nokkrar eldri myndir núlifandi lista- manna. Myndirnar veröa til sölu. Galleríiö er opiö virka daga kl. 12—18 og um helgar kl. 14—18. Árbæjarsafn Safniö er opið frá kl. 13.30—18 alia daga nema mánudaga. Galleri íslensk list, Vesturgötu 17 Jóhannes Geir listmálari sýnir 10 olíumálverk og 46 olíukrítarmyndir. Sýningin er opin daglega kl. 9—17 og umhelgarkl. 14—18. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning, opin á þriöjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-16. Listasafn Einars Jónssonar v/Njarðargötu Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30—16. Höggmyndagaröurinn er opinn dag- lega frá kl. 11—17. Listasafn islands Þar stendur yfir 100 ára afmælissýning safnsins. Á sýningunni eru 110 verk, öll í eigu safnsins, eftir frumherjana Asgrím Jónsson, Þórarin B. Þor- láksson, Jóhannes S. Kjarval og Jón Stefánsson. Sýningin er opin um helgina kl. 13.30—22 en virka daga kl. 13.30-16. Mokka Kaffi v/Skólavörðustíg Jón Axel Björnsson sýnir graf- íkmyndir á Mokka næstu þrjár vikur. Þetta er í fyrsta skiptið sem Jón Axel sýnir grafíkmyndir, en hann hefur eingöngu sýnt akryl- og olíumálverk fram að þessu. Myndimar á Mokka eru unnar í kopar, dúk og tré. Nýlistasafnið, Vatnsstig Engin tilkynning hefur borist um sýningu þessa helgi. Listamiðstöðin v/Lækjartorg Engin tilkynning hefur borist um sýningu þessa helgi. Þjóðminjasafnið Þar eru til sýnis myndir eftir Sölva Helgason. Opiö á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 13.30—16. úgmundur Kristinsson spáir um úrslit 1. deildarleikja: „Þetta verður mikill baráttuleikur" — segir ögmundur um leik Víkings gegn KR. Valsmenn fara til Akureyrar í kvöld — Þetta veröur mjög erfiöur leikur — mikill baráttuleikur, sagöi ög- mundur Kristinsson, markvörður Víkingsliðsins, sem mætir KR í 1. deildar keppninni í knattspymu á morgun. — Leikurinn verður ekki jafnteflisleikur. Annaö hvort liðið fer með sigur af hólmi. Eg vona að það verðum við Víkingar sem fögnum sigri. Urslit leiksins munu skera úr um það hvort liðið verði að berjast á botninum f ram eftir sumri, sagði ög- mundur. ögmundur sagði að Víkingsliðið hefði æft mjög vel að undanfömu og vonaðist hann eftir því að Víkingar sýndu góðan leik gegn KR. — Nú hafið þið fengið þrjú stig? — Já, en ég tel að það séu þó ekki þau þrjú stig sem við áttum að fá. Að öllu eðlilegu hefðum við átt aö leggja Víði að velli en tapa fyrir Vais- mönnum. Þaðfóröfugt. Þááttumvið að ná stigi á Akureyri — gegn Þór. — Hver er ástæðan fyrir hinu slæma gengi Víkings? — Það eru hinar miklu manna- breytingar sem hafa átt sér stað. Við misstum markaskorarana okkar — þá Heimi Karlsson og Kristinn Guðmundsson. Þá er Ragnar Gísla- son hættur og örnólfur Oddsson fór aftur til Isafjaröar og Omar Torfa- son í Fram. ögmundur sagði að búast mætti 1 við geysilega harðri baráttu í 1. deiidarkeppninni í sumar. — Hvað hefur komiö þér mest á óvart? — Það er Framliðiö sem er geysi- lega sterkt. Eg vissi að Framarar yrðu sterkir en ekki svona sterkir. Þeir em með góða liðsheild, sem leikur skemmtilega knattspyrnu. Þá hafa einstaklingar eins og Omar Torfason og Guðmundur Steinsson náð sér vel á skrið — hafa sýnt stór- leiki. Umferð útisigranna Ingi Björn Albertsson, sem var spámaður okkar fyrir stuttu, spáði tveimur leikjum rétt — sigri Skaga- manna yfir Þrótti og jafntefli Kefla- víkurogKR 1—1. Nú er komið að ögmundi að spá um úrslit leikjanna í 1. deildar keppninni um helgina. Eins og áður þá þarf hann ekki að spá um leik KR—Víkings í tölum en um aðra leiki verður hann að spá í tölum. Þór—Valur: — Valsmenn vinna 2—0 fýrir norðan. Mér finnst Þórsarar ekki eins sterkir og þeir hafa verið undanfarm tvö ár. Vals- menn eru aftur á móti mjög gott lið. Víðir—Fram: — Framarar halda áfram að skora mörk eins og þeir hafa gert. Eg spái því að þeir vinni í Garðinum3—1. FH—Akranes: — Þetta verður mikill markaleikur. Skagamenn vinna 4—2 í Kaplakrika. Þróttur—Keflavik: — Þróttarar eru lélegir. Eg spái Keflavík sigri 2— 1. Eins og sést á þessari spá ög- mundar, þá eru f jórir útisigrar og sá fimmti veröur ef Víkingar ná að leggjaKRaövelli. -SOS Leikir helgarinnar Heil umferð verður leikin í 1. og 2. Sunnudagur: deildarkeppninni í knattspyrnu um Þróttur—Keflav. helgina. l.DEILD: 2.DEILD: Föstudagur: Þór—Valur kl. 20 Laugardagur: KA—Njarðvík kl. 14 Laugardagur: Skallagr.—Fylkir kl. 14 Víðir—Fram kl. 14 Isafj.—Breiðabl kl. 14 FH—Akranes kl. 16 Siglufj.—Völsungur kl. 14 KR—Víkingur kl. 14 Vestmey.—Leiftur kl. 14 ★ Opiðfrá kl. 22 til 3. * H'ió .Urn fJöriA Láttu ekki vanta! — fjöriðerí á f östudags- Þórscafé og laugardags- kvöldum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.