Alþýðublaðið - 23.06.1921, Side 1

Alþýðublaðið - 23.06.1921, Side 1
Gefið út aí Alþýðiaflokkaum. s 1931 Fimtudaginn 23. júnf. 141. tölubl. Aðgöngumiðar að aðalíundi H.f. Eimskipafélags íslands 25. þ. m., verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í dag kl. 1—5 siðd. í Báruhúsinu. Innilegt þakklæti votta eg öllum þeim sem með nærveru sinni sýndu hluttekningu við jarðarför konunnar minnar, Ingirfðar Eiriksdóttur. Simon Simonarson. Ríkislánið. Menn hefir furðað á því að ekkert skyldi enn heyrast um rík- islánið, þrátt íyrir það þó Jón Magnússon væri heim kominn. Furðað á því, að blað háns hér skyldi steinþegja um hin miklu af- rek hans í málinu hjá sambands þjóðinni við Gyrarsund, En hér á eftir fer skýringin, sem vegna sím- slitanna kemur svona seint. Símsk. frá Khöfn V/e. Nationaltidende segja, að samn- ingar Jóns Magnússonar við fjár- málaráðuneytið og höfuðbankana hafi að þessu sinni engan árang- ur borið, en sé þó ekki lokið. Er álitið líklegt að lánið fáist þó á einhvern hátt. Islenzki ráðherrann á að gera ýmsar athuganir. í næsta mánuði [eftir konglj kemur hann svo hingað aftur, til að halda áfram samningunum og binda væntanlega enda á þá. [Frá fréttaritara vorumj. Ekkert7 liggur ái Kongurinn kemur og þá er sjálfsagt að kasta frá sér nauðsynjaverkunum og veita hans hátign móttöku, enda þó annar gæti sem bezt staðið fyrir athöfninni. En tildrið má sín meira hjá sumum mönnum, en alt annað. Ástandið versnar sennilega ekki svo mikið, þó alt sé látið reka á reíðanum, einn mánuð enn. Forsætisráðherra er orðinn því svo vanur að fara sér ekki óðsiega að neinu, nema því að sitja meðan kóngurinn er hér að engan skyldi furða á þessari breytni hans. Og honum verður það vafalaust fyrir- gefið á þingi, af þeim þjónustu sömu öndum, sem hanga f frakka- lafi hans eins og skælinn krakka- hópur, hve nær sem færi gefst að viðra sig upp við hann. Annað skeyti dagsett 15. þ. m. frá fréttaritara vorum í Khöfn hljóðar svo: Ritstjórn Berlinske Tidende seg- ir í skýringum við einkaskeyti frá íslandi um ríkislánsgreinarnar f Tímanum og fl. blöðum: Oss er það ekki kunnugt, að frá æðri stöðum dönskum (betydende D'.nske Side) sé gefin hin minsta ástæða til ofanritaðra árásagreína í nefndum íslenzkum blöðum og ef óyfirvegaðar blaðaðreinar hér hafa gefið ástæðu til þessarar óánægju á íslandi þykir oss það leitt. Annars vonum vér, að Jón Magnússon forsætisráðherra, sem er á leiðinni heim, muni ekki veitast erfitt að sýna fram á að í meðferð þessa máls hafi ekkert verið gert sem ástæða sé til að vekja óánægju á ísiandi. Svo mörg eru þau orð. Blaðið vill, sem von er, gera lítið úr þeim ummælum, sem staðið hafa í dönskum blöðum um ísland, og kallar þau „óyfirvegaðar blaða- greinar." Söm er gerðin þessara blaða og viðleitnin til þess að rýra og gera lítið úr getu íslendinga. Blaðið treystir J. M. til þess að sýna fram á að í meðferð máls- ins hafi ekkert verið gert sem vakið geti óánægju á íslandi, En hvað hefir hann gert? Eða blað hans? Ekkert, bókstaflega ekkert. Frá þeirri hlið er almenningur duiinn alls, og því, sem haldið hefir verið fram af andstæðingum stjórnarinnar, hefir ekki verið mótmælt. Vér viljum engar ölmusur þyggja af Dönum og ekki heldur taka hjá þeim lán með verri kjörum en alrnent gerist. Og vér höldum fast við þá skoðun, að hyggilegra hefði verið að leita láns fyrst amarsstaðar en í Danmörku. En Danir eiga vitaniega enga sjálfráða sök á því, að Jón Magn- ússon leitar fyrst til þeirra. Hon- um einum verður kent um það og kjarkleysi hans. Og úr þvf sem komið er getur hann ekki snúið aftur. En íslendingar krefjast þess, allir sem einn maður, að forsætis- ráðherra þeirra komi fram sem fulitrúi þeirra einna, hvott sem um sambandsrfkið er að ræða eða önnur ríki; og þeir krefjast þess, að hann í þessu máli komi hreint fram og með fullri röggsemi og taki engum afarkostum — engum sérstökura nauðungar skilyrðum — þegar hann tekur ríkislánið.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.