Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
Oéc-ns.
ontiosiusML
FÆRSLUSKJAL
GJALDKERA
Hringdi íDjúp, lenti íBolungarvík...
Þessi mismunur felst aöallega í því • Þannig lítur greiðsluseðill bankans út. Rangir vextir og þeir tvireiknaðir
aö bankinn gerði skyssu í útreikn- inníkostnað.
Maöur nokkur kom á ritstjórn DV
þann 3. ágúst og var ekki allskostar
ánægöur meö viöskipti sín viö Lands-
banka íslands. Var hann að koma úr
aðalbankanum þar sem hann haföi
greitt inn á innheimtuvíxil en fram-
lengt eftirstöövarnar í mánuð. meö
leyfi eigandans.
Bankinn reiknaði:
víxill pr. 3.9. 10.322,00
afborgun 1.822,00
nýr vixill 8.500,00
forvextir 31% 219,60
kostnaður:
sti.gjald 0,25% 23,00
innheimtukostnaður 116,00
burðargjald 58,00
kostnaður 416,60
vextir 219,60
vextir og kostnaður alls 636,20
afborgun 1.822,00
Samtals greitt 2.458,20
afborgun +vextir
Manninum þótti aö vonum undarlegt
aö þaö væri dýrara fyrir sig að greiða
inn á víxiiinn en draga það í mánuð aö
borga og fá dráttarvexti. Næmu þeir
387 kr. en kostnaöurinn viö innborgun
og framlengingu kr. 636.20. Mismunur-
inn er 249.20 kr.
Starfsmenn bankans stóðu fast á
sínu og kváöu allt meö felldu í út-
reikningum sínum. Fór maðurinn viö
svo búið.
Ef upphæðin sem maöurinn innti af
hendi, 2.458,20, hefði verið ávöxtuö á
Kjörbók Landsbankans, sem er óbund-
in og ber 34% vexti, hefðu tekjur hans
vegna þess numið 69,65 krónum. Þá lít-
urdæmiöþannig út:
kostnaður og vextir 636,20
dráttarvextir (3,75% á mánuði) 387,00
mismunur 249,20
fórnarvextir (Kjörbók í mán. 34%)69,65
alls fórnað fyrir betri skilvísi 318,85
IPr LANDSBANK3 ISLANDS
GREIÐSLUSEÐILL
VEGNA ViXILS
0101 16
GREITT
-3SEP 1985
landsbankunn
A&albanki
£7*7.60 Y/Tío ............. x
Dýrt að vera skilvís
ingum sínum. Blaöamaöur DV fór
hinsvegar þannig aö:
vixill pr. 3.9. 10.322,00
afborgun 1.822,00
nýr víxill pr. 3.10. 8.500,00
forvextir 32,5% 230,20
kostnaður:
sti.gjald 0,25% 23,00
innheimtukostnaður 116,00
burðargjald 58,00
kostnaður alls 427,20
afborgun 1.822,00
Samtals greitt 2.249,20
Bankinn rukkar hinsvegar 2.458,20
Ofgreitt til banka 209,00
Utreikningar þessir voru bornir und-
ir fulltrúa í Ijandsbanka íslands og
staðfesti hann aö um mistök heföi ver-
iö aö ræða. Sé litið framhjá þeim og at-
hyglinni aöeins beint aö því hve miklu
maöurinn tapaði á því aö greiöa inn á
skuld sína í staö þess aö draga þaö í
mánuö (og gengið út frá þeirri for-
sendu aö eigandi víxilsins láti hann
vera áfram í bankanum en fari ekki
meö hann til lögfræöings í innheimtu)
veröur dæmiö þannig ef fórnarvextir
eru reiknaöir af þeirri upphæð sem rétt
er, 2.249,20 kr.:
kostnaður og vextir 427 20
dráttarvextir (3,75% á mánuði) 387,00
mismunur 40 20
fórnarvextir (Kjörbók í mán. 34%)63*70
alls fórnað vegna betri skilvisi 103 90
Fulltrúi Landsbankans sagði aö
maðurinn gæti sótt 209 krónurnar sínar
strax. Þá vaknar sú spurning hvort
'ekki megi fara aö reikna vinnutap og
bensínkostnaö inn í dæmiö. . .
-AÖH
„Karlar að ræða um lax”
— ólag á símakerf inu á ísafirði
,,Ég ætlaöi aö hringja inn í Djúp en
þá vissi ég ekki fyrr en ég lenti inn á
samtali í Borgarfiröi, líklegast, þaö
voru einhverjir að ræða um
lax,” sagöi kona ein á ísafiröi í gær.
Ölag komst á símakerfið á lsafiröi í
byrjun vikunnar, mánudag og þriöju-
dag. Bilunin var fólgin í því að þaö
heyrðist á milli númera.
„Þetta var bilun í stööinni en þaö er
búiö aö gera viö hana,” sagöi Krist-
mann Kristmannsson, símstöövar-
stjóri á isafirði, í gær. „Ég veit
ekki betur en aö þaö hafi verið örfá
númer þar sem þetta kom fyrir.”
Gert var viö bilunina í fyrradag.
Kristmann sagöi aö þettá gæti komið
fyrir annað slagið. „Þaö þarf ekki
annaö en aö símalínur bili þannig aö
þær liggi saman til aö svona nokkuð
geti komiö fyrir.”
-JGH
staðavegar og Grensásvegar þurfti að flytja tvo á slysadeitd, en þeir
reyndust lítið meiddir. Hér sést hvar verið er að festa sendiferðabilinn
við dráttarkrana eftir áreksturinn.
DV-mynd S.
Úrskurður íkærumáli vegna Suðurgötu 7:
Meðferð byggingar-
nefndar óhögguð
— „Voðalegt af f élagsmálaráðherra
að ganga ílið með lögbrjótum,”
segireinníbúanna
„Mér finnst voöalegt af félagsmála-
ráöherra aö ganga í lið með lögbrjót-
um. Þaö er lögbrot aö vaöa inn á ann-
arra eigur og þaö á aö gera meö þvi aö
brjóta niður steinvegg, sem er þinglýst
eign okkar, og leggja lóðir okkar undir
aðkomu fyrir slökkviliösbíla,” sagöi
Anna Jónsdóttir, íbúi viö Suðurgötu 15.
Félagsmálaráöherra hefur nú afgreitt
kæru íbúa við Suðurgötu og Tjarnar-
götu á hendur byggingarnefnd Reykja-
víkurborgar vegna afgreiðslu á
byggingarleyfi fyrir hús á lóðinni
Suöurgötu 7. Niöurstaöa félagsmála-
ráöuneytisins er sú aö meöferð
byggingarnefndar veröi látin standa
óhögguö.
„Þetta veröur óbreytt nema aö þaö
er ákveðiö aö steinveggurinn milli
Tjarnargötu 10 og Suðurgötu 15 veröi
rifinn og jafnhár tréveggur reistur í
staöinn í því skyni að slökkviUð geti rif-
ið hann niður.” sagöi Árni Vilhjálms-
son hdl. en hann kæröi málið fyrir hönd
íbúanna.
„I úrskurðinum er sæst á nýtingar-
hlutfall nýju byggingarinnar og fjar-
lægöina milli húsanna og mér virðist
aö þaö sé ekkert hægt aö gera í þessu
máli frekar. Þaö sem stendur eftir er
aö þessar nýju reglur um grenndarrétt
viröast ekki vera nema formsatriði eitt
þar sem aö ekkert tillit hefur veriö tek-
ið óska nábúanna.”
Anna Jónsdóttir sagðist ekki eiga
von á aö íbúarnir treystu sér til frekari
málareksturs. „Það er enginn leikur
fyrir einstaklinga aö höföa mál gegn
opinberum aöilum,” sagöi hún. „I
krafti meirihluta síns í borgarstjórn
hefur Sjálfstæðisflokkurinn vaöiö
áfram í þessu máli. Fulltrúar allra
hinna flokkanna í borgarstjórn
greiddu atkvæði gegn byggingu í þess-
ari mynd.
Það er svo enn einn dónaskapurinn
aö af frétt Ríkisútvarpsins um máliö
mátti skilja að nágrannarnir heföu
verið á móti byggingu á þessum staö.
Þaö er ekki nema hálfur sannleikur.
Við vildum fyrst og fremst verja
eignarréttokkar.”
-JKH.
Gagnrýni Flugleiða tekin til greina:
FLUGSTÖÐ N0RÐAN VIÐSKÝLILANDHELGISGÆSLU
Falliö hefur verið frá hugmyndum
um aö staðsetja flugstöö á Reykja-
víkurflugvelli við Hótel Loftleiöir út
frá suðurgafli flugturnsins. I tillögum,
sem borgarskipulag mun leggja fyrir
skipulagsnefnd og borgarráð innan
fárra vikna, er gert ráö fyrir aö flug-
stöð rísi á svæðinu fyrir noröan flug-
skýli Landhelgisgæslunnar.
„Það sýndi sig aö þaö varð ansi
þröngt um hana þarna viö flugturninn
þegar búið var að taka til greina allt
sem þyrfti helst aö vera í nánd viö
hana,” sagöi Þorvaldur Þorvaldsson,
forstöðumaður borgarskipulags.
I reitnum viö skýli Landhelgisgæsl-
únnar er í tillögunum gert ráö fyrir,
auk flugstöövar, framtíöarflugskýlum
fyrir atvinnuflug og verkstæöis-
byggingum, fraktafgreiöslu og aöstööu
fyrir minni flugfélög. Ennfremur er
gert ráð fyrir aö Landhelgisgæslan
geti áfram verið á sínum stað með
meginflugstarfsemi sína.
Málefni Reykjavíkurflugvallar
komu talsvert t;l umræðu í byrjun árs-
ins í kjölfar kynningarfundar, sem
borgarskipulag og flugmálastjórn
héldu með kjörnum fulltrúum borgar-
búa. Þar voru kynntar skipulagshug-
myndir sem geröu ráö fyrir flugstöð
viö Loftleiöahóteliö.
Flugleiöir gagnrýndu þessar hug-
myndir og sögðu þær gera ráö fyrir
stórlega skertu athafnarými atvinnu-
flugs og aö í reynd yröi þaö með öllu
ófullnægjandi. I bréfi til Birgis Isleifs
Gunnarssonar alþingismanns, for-
manns nefndar um langtímaáætlun í
flugmálum, lagði stjórnarformaöur
Flugleiða ríka áherslu á aö flugstööin
yröi reist í reitnum norðan við Land-
helgisgæsluna, eins og skipulag frá ár-
inu 1976 geröi ráö fyrir.
Flugmálanefnd Birgis Isleifs hefur
haldiö fundi meö hagsmunaaðilum um
staösetningu flugstöövar. Viröist nú
vera komin almenn samstaða um staö-
setninguna.
-KMU.
• Flugstöð Reykjavikurflugvallar er
nú áætlaður staður i reitnum norðan
flugskýlis Landhelgisgæsluhnar.
Gæsluskýlið er til hægri á myndinni
en Hótel Loftleiðir og flugturninn
sjást efst til vinstri.
DV-mynd KAE.