Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985. 5 Gíf urleg harka á myndbandamarkaðnum og... Víg í sjónmáli? eigendur myndbandaleiga óttast kollsteypu í kjölfar nýju sjónvarpsstöðvanna Gífurleg samkeppni ríkir nú á mynd- bandamarkaðnum. Um tíu leigur hafa lækkaö verðið á myndböndum, leigja bandiö nú á 60 krónur í stað 120 til 150 krón,a áður. Mikillar hræðslu gætir einnig hjá eigendum myndbandaleiga við nýju útvarpslögin, þeir óttast koll- steypu nái nýjar sjónvarpsstöðvar miklum vinsældum. „Staða leiganna er mjög misjöfn, sumar hafa haslað sér völl og eru sterkar, aörar virðast eiga í stöðugum vandræðum og hjá þeim eru eigenda- skipti líka hvaö tíðust,” sagði Kári Ei- ríksson, framkvæmdastjóri mynd- bandadeildar Háskólabíós í gær. Kári sagðist telja að nú færi að koma verulegur kippur í útleigu myndbanda. „Það er venjan á þessum árstíma.” Varðandi sumarið sagði Kári að það hefði ekki orðið jafnslæmt og menn heföu óttast. „Um tíma var þetta þó mjögslæmt.” „Ég tel útilokað að leigurnar haldi út að leigja myndbandið á 60 krónur, það er engan veginn nægilegt verð til að eðlileg endurnýjun eigi sér stað á myndböndum.” Mikil vanskil voru hjá myndbanda- • Um tíu myndbandaleigur í Reykja- vik hafa lækkað verð á myndbönd- um um helming og leigja bandið nú á 60 krónur. Harkan er í algleym- ingi en eiga nýju sjónvarpsstöðv- arnar eftir að drepa myndbanda- leigurnar á einu bretti? leigunum viö dreifingarfyrirtækin í vor og féllu víxlar unnvörpum. „Það eru talsverð vanskil ennþá og oftast hjá sömu leigunum.” Og Kári bætti við: „Það er reyndar ' eins og vanskil loöi við þennan bransa, sennilega er þaö mest vegna þess að til er fólk sem enn trúir því aö hægt sé að verða ríkur á einni nóttu með því að stofna myndbandaleigu.” Eigendur margra myndbandaleiga óttast nú mjög nýju útvarpslögin og spá sumir þeirra kollsteypu á mark- aðnum er þau taka gildi. „Menn óttast aö nýju sjónvarpsstöðvarnar nái svo miklum vinsældum að fólk minnki verulega að leigja sér myndbönd.” Kári telur að myndbandaleigum eigi eftir að fækka í Reykjavík. „Það er of mikið af leigum, það viðurkenna all- ir.” Hann telur þó að leigurnar hafi lifað sumarið af og segist ekki heyra mikið um aö leigur séu auglýstar til sölu. En baráttan heldur áfram. Lækkað verð, myndbandstæki takir þú þrjú myndbönd og ekki má gleyma utan- landsferð hjá einni leigunni, hafir þú heppnina með þér. -JGH Meira út en inn Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu sjö mánuði þessa árs er hagstæður um 79 milljónir króna. Fyrir sama tímabil í fyrra var halli á viðskiptum við útlönd um627m.kr. Utflutningsverðmæti þetta tímabil í ár er 15 prósentum meira á föstu gengi en var í fyrra. Þar af var verðmæti sjávarafurða 23 prósentum meira en verðmæti áls 21 prósenti minna og kís- iljárns 17 prósentum minna en í fyrra. Annar vöruútflutningur var 26 prósent- um meiri að verðmæti en fyrri hluta síðasta árs. Vöruinnflutningur var 9 prósentum meiri nú að verðmæti en fyrir sama tíma í fyrra. I júlímánuði einum voru fluttar inn hingað til lands vörur fyrir 2.811 millj- ónir króna. En við fluttum út vörur fyr- ir aðeins fleiri krónur eða 3.344 m.kr. Þannig að vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður um rúmar fimm hundruð milljónir króna. Minni bílainnflutningur Aðeins hefur orðiö breyting á sam- setningu innfluttra vara og mest ber á minni bílainnfiutningi. Dregið hefur úr hátollatekjum ríkissjóðs þar af leið- andi. II l/letmái nuðurh ■ r ja I celand Seafood Að sögn Bolla Þórs Bollasonar er vöruskiptajöfnuðurinn í samræmi við þjóðhagsspár. Spáð var að almennur vöruinnflutningur landsmanna á árinu næmi 22 milljörðum króna. Utlit er fyr- ir nú að sá innflutningsliður nemi 24 milljörðum í árslok. I samtali við Hallgrím Snorrason hagstofustjóra kom fram að aukinn út- flutningur hefur verið m.a. á lagmetis- vörum fyrstu sjö mánuði þessa árs svo og prjónavörum og sútuðu skinni. Tæp- lega fjörutíu prósent aukning hefur verið á sölu lagmetisvara og sútuðum skinnum og um tíu prósent aukning var á söluverðmæti lopa og bands. Fyrstu þrjá mánuði ársins var gífur- leg aukning á vöruinnflutningi. Sú aukning er m.a. rakin til kjara- samninga í desember og aukins kaup- máttar launþega í byr jun ársins. Síðan hefur dregiö úr og samdráttur var í vöruinnflutningi í júnímánuði. -ÞG Oskar Magnússon, DV, Washington: Ágústmánuður síðastbðinn var met- mánuður hjá Iceland Seafood, dóttur- fyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjun- um. „Við seldum fyrir 13 milljónir og 46.000 dollara í ágústmánuði. Það er aukning um 7,7 prósent, miðað við sama mánuö í fyrra,” sagði Guðjón B. Ölafsson forstjóri í samtali við DV. I ágúst í fyrra nam salan 12,1 milljón dollara. Guðjón sagði að ef ekki hefði komið til skortur á karfa hefði salan getað orðið enn hærri. Heildarsalan í ágúst í magni var 9.790.000 pund. I ágúst 1984 var hún 9.084.000 pund. Af verksmiðjuframleiddri vöru voru nú seld 6.126.000 pund fyrir 6.763.000 dollara. I fyrra voru sambærilegar töl- ur 5.701.000 pund fyrir 6.221.000 doll- ara. Nú voru seld 2.906.000 pund af flök- um fyrir 4.550.000 dollara en í fyrra voru seld 2.598.000 pund fyrir 4.100.000 dollara. „Heildarsala okkar á fyrstu átta mánuðum þessa árs nemur 87.563.000 dollurum. Sambærileg tala fyrir fyrstu átta mánuði ársins 1984 var 79.184.000 dollarar. Þetta er söluaukning um 10,6 prósent á fyrstu átta mánuöum árs- ins,”sagðiGuðjónB. Olafsson. -Þ6G Á höf uðdag skipti um Frá Reginu Thorarensen, Gjögri: Veðrátta hér hefur farið batnandi síöan á höfuödaginn 29. ágúst. En gamla fólkið trúði því einmitt að þá skipti um, hefðu rigningar og kuldar verið langvarandi. Hér hafa verið nær stanslausar rign- ingar síðan 20. júlí. Sláttur hófst á flestum bæjum um miöjan júlí. Spretta var ágæt. Nokkrir bændur eru enn ekki búnir með heyskap sinn hér í Árneshreppi. Þeir sem byrjuðu seint eiga enn hey úti. Sá ég núna í morgun, er ég fór norður í hreppa, galta sem á að þurrka víða á túnum. Og svo var það fyrir nokkrum dögum, er ég kom á stórbýli eitt, að það varð að láta vagninn bíða meðan vatnið seig úr heyinu. Það er alltaf hægt aö slá í þessari vætutíð, en aftur á móti verra að koma þessum nýtísku þungu tækjum út á túnin. Síðustu daga hefur mátt heita þurrt og í dag og í gær hefur verið þurrk- flæsa, en kalt. Pepsi Áskorun! Um allan heim hefur fólk tekiö áskorun írá Pepsi-cola og borið saman Pepsi og aöra kóladrykki. — Undantekningarlitiö varö Pepsi fyrir valinu. Pepsi-cola skorar á þig.... aö gera samanburð. Takið Pepsi Áskorun i Látið bragðið ráða DANS cn DANS - DANS - DANS - DANS - DANS - DANS < Q I cn 2 < Q C/) 2 < Q CO 2 < Q CO 2 < Q KEFLAVIK - GRÓFIN - kennt á miðvikudögum og laugardögum Barnadansar og leikir fyrir börn frá 3ja ára aldri. ^Samkvæmis- og gömludansarnir. íkDisco/jass og freestyle fyrir alla krakka. HAFNARFJÖRÐUR IÞRÓTTAHÚSIÐ v/STRANDGÖTU kannt á fimmtudögum og laugardögum. Kefiavík: Innritun í dag, föstudag 6. sept. og á morgun, laug- ardag 7. sept. kl. 13—19 báða dagana. Sími 4799 Verið velkomin. Audur 'Waraldsdóllir dansskóli # 12 tíma námskeið, eingöngu rokk, tjútt og jitterbug. Kvennatímar í léttum jass-hreyfingum viðgóða tónlist. Fólag íslenskra danskennara FÍD. I SNVQ ~ SNVO ~ SNVQ - SNVQ - SNVQ - SNVQ - SNVQ Hafnarfjörður: v/Strandgötu i dag, föstudag 6. sept. og á morgun, laugardag 7. sept. kl. 13—19 báða dagana. Sími 51711. o > 2 ín o > 2 co I o > 00 o > 2 C/) o > 2 co

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.