Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Side 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
HNOSSGÆTIFRÁ JAPAN
FRA SJÖ ÁRA TIL SJÖTUGS
„Þaö or mjög góö aösókn aö skól-
anum lijá okkur. Haldin eru tvö nám-
skoið á vetri, þrjá mánuði hvort,"
sagöi Svanhildur Jakobsdóttir er DV
spuröi liana um gítarskóla Olat's
Gauks sem hún kynnti á heimilissýn-
ingunni. Gítarskólinn or tíu ára um
þessar mundir.
„Jú, þaö er heilmikið um aö full-
oröiö fólk sé feimið fyrst í staö on þaö
er fljótt aö fara af því. Allir eru meö
heyrnartæki i tímum og heyra í raun-
inni aðeins í sjálfum sér.
Það er hægt aö kenna fólki á gítar
jafnvel þótt það geti kannski ekki
iært mikið í hljómlist aö ööru leyti.
Þaö má alltaf kenna því nokkur grip.
Nemendurnir hjá okkur læra nótur
og aö leika eftir þeim. Sumir vilja
þaö ekki og þá fara þeir bara aðrar
leiöir, læra fleiri grip,” sagöi Svan-
hildur.
Nemendurnir eru á öllum aldri,
yngstu 7 ára og sá elsti um sjötugt.
Hefur aukist að fullorðiö fólk sæki
skólann á seinni árum.
Hver tími er 45 inín. einu sinni i
viku og kostar hvert námskeiö 5.900
kr. A meðan á sýningunni stendur er
veittur afmælisafsláttur, þá kostar
námskeiöiö 5.000 kr.
A. Bj.
Eriendir aðilar hafa sýnt
framleiðslunni áhuga
Viö hliöina á Hafnarsíld voru full-
trúar frá Síldarvinnslunni hf. í Nes-
kaupstað. Þar var boöið upp á reykt-
ar sjávarafuröir, m.a. hráa reykta
ýsu og reykta síld.
„Eg reyki þetta sjálfur og sé um
alla dreifingu og sölu,” sagöi Júlíus
Haraldsson.
„Viö höfum ekki áöur tekið þátt í
svona sýningu. Þaö kom mér á óvart
hve vel þetta hefur gengiö hér. Þaö
er svona þrisvar sinnum meira af
f ólki sem hér kemur en viö áttum von
á.
Margir kaupmenn hafa komiö hér
og falast eftir viöskiptum og erlendir
aöilar hafa sýnt áhuga. Þetta lofar
allt mjög góöu,” sagöi Júlíus.
Stöðugur straumur fólks var í sýningardeildir Austfirðinganna og
bragðprufur af islenskum sjávarafurðum runnu út.
DV-mynd PK
SILDARRETTIR
FRÁ HORNAFIRÐI
„Við ætlum aö opna sælgætisversl-
un, en ekki venjulega sjoppu, og
veröur á boðstólum þetta japanska
„gotterí”,” sagöi Linda Haraldsdótt-
ir í samtali viö DV. Hún var í sýning-
ar- og söludeild splunkunýs fyrirtæk-
is er nefnist Gotterí og hefur á boö-
stólum afar spennandi, japanskt sæl-
gæti, búiö til úr hráefnum úr ríki
náttúrunnar.
Alls eru á boöstólum 49 tegundir
sem seldar eru eftir vigt og kosta 100
g allt frá 25 kr„ þurrkaöir banana-
bitar, upp í 110 kr., makademus hnet-
ur, einhverjar dýrustu hnetur í
heimi.
Þetta sælgæti var flutt til Japan
frá Kína í byrjun 8. aldar og kynnt
sem hnossgæti. Mikið af því er búiö
til úr hrísgrjónum í ýmsum mynd-
um, kryddaö meö sesamfræjum og
sjávarsalti. Þarna er einnig að finna
alls kyns hnetur, innbakaöar og
kryddaöar meö margvíslegum
bragötegundum.
Sælgæti þetta er mjög vinsælt vest-
an hafs og hefur einnig rutt sér til
rúms á Noröurlöndunum. Þaö er þá
oftast selt í sérverslunum eða í sér-
deildum stórmarkaöanna.
Dreifingu annast Bonitas sf., sem
hefur síma 686291 og er að leita sér
aö húsnæði fyrir þetta nýstárlega og
sérstæöa sælgæti.
A. Bjv
„Viö tókum þátt í sýningunni á
Egilsstöðum í vor en höfum ekki
áður verið með hér í Laugardalshöll-
inni,” sagði Ástvald Valdimarsson, í
sýningardeild Hafnarsíldar á Heim-
ilinu ’85, er DV bar að garði.
Hafnarsíld, sem ei á Höfn í Horna-
firði, hefur verkað saltsíld fyrir er-
lendan markað undanfarin ár. Einn-
ig hefur fyrirtækiö selt framleiðslu
sína á innlendum markaöi, mest úti
á landi, en einnig eitthvað í stór-
mörkuöunum í Reykjavík.
„Þaö hefur verið mikil aösókn
hér í deildina hjá okkur. Meiri en við
áttum von á. Við höfum gefið fólki að
bragða á framleiðslunni og einnig
selt sö.d í fötum á sérstöku veröi.
Þetta hefur gengiö þaö vel að senda
hefur þurft eftir aukabirgðum,”
sagði Ástvald.
Fimm manns voru í sýningardeild
Hafnarsíldar og höfðu allir nóg að
gera við að tala við gestina og útbúa
bragöprufurnar ofan í þá.
A.Bj.
Japanska hrisgrjóna- og hnetusælgætið er selt í glærum kössum þannig að viðskiptavinirnir geta séð
hvað þeir eru að kaupa. DV-mynd PK
Frönsk skraut- og nytjalist
SKRAUTRITUN,
ÆTTFRÆÐIOG
TÖLVUVINNSLA
— meðal námsgreina íTómstundaskólanum
Frönsku Arcoflam pottarnir, sem fást hjá Tékk-Kristal, hafa þegar getið sér mjög gott orð. Þeir eru til
margs nýtir og má jafnt nota þá á venjulegar eldavélar og í örbylgjuofna. Þeir eru úr sérstakri gier- og leir-
blöndu sem heldur mjög vel i sér hita þannig að þegar þeir eru notaðir á venjulegri eldavél verður að gæta
þess að hafa ekki of mikinn hita. DV-mynd PK
Hjónin Óli Gaukur og Svanhildur með dóttur sina Önnu Mjöll.
Einhver nýstárlegasti skólinn á
höfuðborgarsvæðinu er líklega Tóm-
stundaskólinn. I honum er hægt að
læra nánast allt milli himins og jarð-
ar. Nefna má sem dæmi skrautritun,
videotöku og myndbandagerð, aug-
lýsingagerð, leiklist, þætti úr stjórn-
málasögu, pottaplöntur, Island áriö
2000, ættfræði, bókmenntaklúbb,
gerð og úrlestur stjörnukorta, rit-
vinnslu, tölvunámskeið, þjálfun aö
koma fram í sjónvarpi o.s.frv.
Á annað hundrað manns sóttu
Tómstundaskólann í fyrravetur en
hann tók til starfa eftir áramótin.
„Langvinsælust er skrautritun og
námskeiö er nefnist stofnun og rekst-
ur fyrirtækja. Videomyndagerðin er
einnig mjög vinsæl að ógleymdri ætt-
fræðinni,” sagði Gunnar Rafn Sigur-
björnsson, einn af þremur eigendum
Tómstundaskólans. Hinir tveir eru
sr. Birgir Ásgeirsson og Þóröur Vig-
fússon.
„Hver tími kostar 130 kr. og nám-
skeiðin eru allt frá 12 upp í 40 stundir.
Skemmstur tíminn fer í pottaplönt-
urnar en þaö hefur verið vinsælt
námskeið. Lengstur tími fer í ætt-
fræöina,” sagöi Gunnar Rafn.
Breyting hefur verið gerö á rekstri
Tómstundaskólans sem nú er rekinn
í samvinnu við Menningar- og
fræðslusamband alþýðu. Skólinn hef-
ur aösetur að Laufásvegi 7, Þrúö-
vangi. A. Bj.
Skólastjóri Tómstundaskólans er Ingibjörg Guðmundsdóttir.
„Við tókum þátt í fyrstu heimilis-
sýningunni sem haldin var áriö 1970
og svo aftur núna,” sagði Kristján
Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri
heildverslunar Amaro á Akureyri, er
DV heimsótti sýninguna í Laugardal.
í sýningardeild Amaro gat aö lita
margs konar glermuni frá fyrirtæk-
inu Duran. Þaö framleiðir fimm teg-
undir af gleri, venjulegt gler, kristal,
höggþétt gler, eldfast og nýja undra-
efnið sem er í Arcoflam pottunum.
„Þetta franska fyrirtæki er frægt
fyrir fegurð og tærleika glersins sem
það framleiöir. Um er að ræða bæði
skraut- og nytjahluti. Þessir munir
fást í búsáhaldaverslunum um allt
land og veröiö er mjög hagstætt mið-
aö við sambærilegar vörur,” sagði
Kristján.