Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Qupperneq 11
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
11
Litið inn á kennaranámskeið í Varmárskóla:
„Kennarar áhugasamir þrátt
fyrir vandræði sín”
ATARI
A520ST
Nú til sýnis á Heimilinu ‘85.
Fyrsta sending.væntanleg í byrjun október. Pantanir óskast
staðfestar.
UMSAGNIR í BRESKUM TÖLVUBLÖÐUM:
JOHN LAMBERT 1 ELECTRONICS & COMPUTING,
JÚLÍ ‘85__________________________________________
“Atari has used an original and elegant method of memory
management which should make the ST faster than any
other PC on the market - in any price bracket".
“The specification outstrips nearly all computers up to, and
including, the IBM PC“.
“It is difficult to find fault with this machine ... Pd certainly
buy one“.
GARY EVANS Í SAMA HEFTI AF E. & C.________________
“Extremely elegant
future“.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
-minnið 512K
- miðverk 68000, 8MHZ
- skjáupplausn 640 x 400
- fjöldi litamöguleika 512
o.fl.
ÚTSÖLUSTAÐIR:____________
Bókabúð Braga, Laugavegi
118, Reykjavík.
Rafbúð Sambandsins,
Ármúla 3, Reykjavík.
Sjónvarpsbúðin, Keflavík.
points the way to computers of the
MARC0
HF. Langholtsvegi 111 Pósthóf4330 104Reykjavík »687970 -687971
SG-einingahús á Selfossi:
Fjöldauppsagnir
„Salan hefur nánast dottið niður og
er orsök vandans fyrst og fremst sú aö
Húsnæðisstofnun ákvaö í maí að hætta
að greiða út lán til einingahúsa á 10
mánuðum. Þau eru nú greidd á 18
mánuðum eins og önnur húsnæðislán,”
sagði Guðmundur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri SG-einingahúsa á Sel-
fossi.
Um mánaðamótin sagði fyrirtækið
upp 15 iðnaðarmönnum en hafði áður
sagt upp 11 aðstoðar- og verkamönnum
sem unnu aö einingahúsasmíði. Enn
eru ráðnir 19 starfsmenn hjá fyrir-
tækinu til smíða og afgreiðslu í bygg-
ingarvöruverslim SG.
„Þessar uppsagnir eru fyrst og
fremst til öryggis. Það er von okkar aö
það takist að afla nýrra verkefna og
endurráða stærsta hlutann aftur,”
sagði Guðmundur. Hann sagði enn-
fremur að skjótari afgreiðsla hús-
næðislánanna hefði á sínum tíma verið
tekin upp í samræmi við lítinn bygg-
ingartíma einingahúsanna. Fólk hefði
séð sér verulegan hag í að komast und-
ir þak á skömmum tíma. Eftir að af-
greiðslutíminn hefði verið lengdur í
vor hefði fjármagnskostnaður við kaup
á einingahúsum aukist verulega og
sala á þeim minnkað.
„Eg held að það megi segja sömu
sögu af flestum einingahúsaframleið-
endum,” sagði Guðmundur.
„Við höfum rætt við félagsmálaráð-
herra og ég held að honum sé ljós
vandinn. Eins höfum viö átt tal við
formann stjórnar Húsnæðisstofnunar.
Nú er verið að athuga málin, en ég tel
ekki líkur á að þessu verði breytt til
batnaðar á næstu mánuðum.
>JKH.
Tölvan sem allir hafa beðið eftir.
Fyrir skömmu var fyrsti Seat bíllinn afhentur hjá Tögg hf. til hjón-
anna Magneu Ingvarsdóttur og Gisla Ólafssonar. Er hann tiundi bill-
inn sem þau kaupa hjá fyrirtækinu. DV-mynd VHV.
er þessa dagana fyrir kennara 6 til 12
ára nemenda. Námskeiðið er haldiö í
Varmárskóla í Mosfellssveit og eru
þátttakendur um 300 kennarar úr bæj-
um og hreppum í nágrenni Reykjavík-
ur, nánar tiltekið úr skólum frá Hafn-
arfiröi norður á Kjalarnes.
„Þátttakan fór fram úr björtustu von-
um og sýnir aö kennarar eru áhuga-
samir þrátt fyrir vandræði sín,” sagði
Kristín H. Tryggvadóttir kennsluráð-
gjafi en hún hefur veg og vanda af
skipulagningu námskeiðs sem haldið
Námskeiðið hófst með fyrirlestrum
en síðan skráði fólk sig í einstök nám-
skeið sem fjölluðu um afmarkaðri
þætti skólastarfsins. Dagskránni í
Varmárskóla lýkur á föstudag en hún
verður endurtekin fyrir kennara af
Suðurnesjum eftir helgi. -JKH.
„Já, já, það er gaman að þessu,”
sagöi Indriði Jónsson, kennari við
Snælandsskóla, þegar blaðamenn DV
hittu hann á kennaranámskeiðinu.
Indriði hafði valið sér námskeið í
myndmennt í almennri kennslu og
var i óöaönn aö útbúa mynd með að-
ferð sem hann kallaöi mónóprent.
„Eg á að kenna teikningu nokkra
tíma í vetur og mig langaði til að
læra eitthvað í sambandi við það,”
sagði Indriði.
Spurður um aöbúnað kennarastétt-
arinnar sagði hann: „Það er mjög
illa búið að henni varðandi laun.
Maður heyrir alltaf um fleiri og fleiri
sem hætta vegna launanna. Það er
óhætt að segja að það sé þungt hljóð í
mönnum og það er víst að framboð á
góðum kennurum minnkar á næst-
unni ef kjörin verða ekki bætt.”
-JKH.
„Umræður og spurn-
ingar í kennslu
eru viðfangsefnið”
Indrioi Jónsson með mónóprent-
mynd sína.
Sigrún Aðalbjarnardóttir flytur fyrirlestur sinn um umræður og spurningar
í kennslu.
Einn leiðbeinendanna á kennara-
námskeiðinu er Sigrún Aðalbjarnar-
dóttir. Hún vinnur um þessar mundir
að doktorsritgerð í þroskasálfræði við
Harvardháskólann i Bandaríkjunum
og tekur þar til umfjöllunar hugmynd-
ir barna um samskipti sín við kennara
og vini.
„Umræður og spurningar í kennslu
eru viðfangsefnið,” sagði Sigrún, þeg-
ar hún var spurð um fyrirlestur sinn á
námskeiðinu. „Við viljum laða fram
hinn heillandi hugarheim barna og leit-
umst því við aö veröa okkur meðvit-
andi um þær spurningar sem við spyr j-
um nemendurna. Þannig er áhersla
lögð á að reyna fremur að fá fram f jöl-
breyttar hugmyndir nemenda og
þjálfa rökhugsun þeirra. Því er öllum
tillögum þeirra tekið vel í stað þess að
leita að hinu eina rétta svari í formi
beinna yfirheyrslna. Það eykur sjálfs-
traust þeirra og sjálfstæða hugsun.”
Þegar Sigrún var spurð hvort það
væri vænlegt aö snúa sér að kennslu
hér heima að fenginni doktorsnafnbót
svaraöi hún því til að hún spyrði sjálfa
sig oft þeirrar spurningar. „En ég hef
unniö lengi að kennslumálum hér á
landi og þetta er mitt áhugasvið.
Markmið mitt er að stuðla að því að við
uppalendur skiljum betur hugsun
barna þannig að við getum komiö bet-
ur til móts viö þarfir þeirra og
þroska.”
-JKH.
„MAÐUR HEYRIR ALLTAF
UM FLEIRIOG FLEIRISEM
HÆTTA VEGNA LAUNANNA”