Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 12
12 DV. FÖSTUDAGUR6. SEPTEMBER1985. — Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSONog INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14,SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF., Áskriftarver.ö á mánuði 400 kr. Verö í lausasölu virka daga 40 kr. Helgarblaö45 kr. „Burt, það erég” Landsþing Landssambands framsóknarkvenna sam- þykkti athyglisverða ályktun fyrir síðustu helgi. Lands- þingið sagði, aö kona skyldi vera í fyrsta eða öðru sæti hvers framboðslista Framsóknarflokksins í komandi sveitarstjórnar- og alþingiskosningum. Við uppröðun í önnur sæti framboðslistanna minnti landsþingið á þann yfirlýsta vilja Landssambands framsóknarkvenna, að stjórnir, nefndir, ráð og listar á vegum flokksins veröi að helmingi skipuð konum. Hið síðastnefnda skírskotar til fyrri „Húsavíkursamþykktar” framsóknarkvenna. Fari framsóknarmenn eftir þessari samþykkt kvenna- anna mundi margur landsfrægur framsóknarþingmaður- inn verða að víkja úr sæti, jafnvel þótt svo færi, að Fram- sókn héldi þingstyrk sínum í næstu kosningum. Nú er eng- in kona í þingflokki framsóknarmanna. Davíð Aðalsteinsson í Vesturlandskjördæmi viki fyrir konu, Ölafur Þ. Þórðarson í Vestfjaröakjördæmi, Stefán Guðmundsson á Norðurlandi vestra, Guðmundur Bjarna- son á Norðurlandi eystra, Jón Kristjánsson á Austurlandi og sjálfur ráðherrann Jón Helgason á Suðurlandi. Er þá reiknaö með, að þingmenn í efstu sætunum sætu sem fyrr í hverju kjördæmi, sem þó þyrfti ekki að vera. Þessi talnaleikur er skemmtilegur. Vissulega væri landsmönn- um hollt, að þingmenn eins og Ölafur Þ. Þórðarson og Jón Helgason vikju fyrir framsóknarkonum. Verra en nú er getur það ekki orðið. Varaformaöur Framsóknarflokksins, Halldór Ás- grímsson ráðherra, segist „ánægður með þann áhuga, sem konur innan flokksins sýna flokksstarfinu með álykt- un sinni”. Hann vísar þó frá sér að afgreiða ályktunina og skírskotar til þess, aö það sé „mál kjördæmasambands- ins í hverju kjördæmi að ganga frá framboðslistum” Væntanlega reynir fyrst á þetta í næstu sveitarstjórnar- kosningum á vori komanda. Að öllum líkindum munu framsóknarkarlarnir í sveitarstjórnum ekki standa upp fyrir konum, svo að heitið geti. Reynir þá á þær yfir- lýsingar framsóknarkvennanna, að þær muni bjóða fram BB-lista sér á parti en innan flokksins. Athyglisverð var ræða Sigrúnar Magnúsdóttur, for- manns Félags framsóknarkvenna í Reykjavík og vara- borgarfulltrúa, sem NT birti undir fyrirsögninni: „Ég er — ég get — ég verö — ég vil”. Þetta var framsöguræða um framboðsmál á landsþinginu. Sigrún sagði: „Við erum ung og tiltölulega fámenn Landssamtök framsóknarkvenna.” Nei, fjölmenninu er ekki fyrir að fara í þessum samtökum, sem hyggjast ganga svo langt. Sigrún sagði einnig, að framsóknarkonur væru með fræga samþykkt í fórum sínum, Húsavíkursamþykktina. Þær væru bundnar af stórum orðum og kröfum. „Verum vissar um vald okkar, þegar við viljum,” sagði hún þó og vitnaði í því efni til kvæðisins Elfan eftir Davíð Stefáns- son, þar sem segir meðal annars: „Burt, það er ég. Víki það ekki, þá veltur hún fram/vefur um björgin hvítan hramm. . .” Vissulega munu margir landsmenn álíta eins og fram- sóknarkonur, að hreinsun væri aö því, að eitthvað af framsóknarkörlunum hyrfi af Alþingi. En ólíklegt er, að það verði framsóknarkonur, sem koma því í verk. Hitt er sennilegra, að karlarnir láti ekki undan konunum en kjós- endur sjái um að fækka þeim. Haukur Helgason. BJÓROG HOLLUSTA Rökin Rök dómsmálaráöherra og lög- reglustjóra reyndust — eins og öll rök svokallaðs Áfengisvarnaráös — fyrirfram gefin og stóöust ekki þegar til kastanna kom. Rökin meö bjórnum eru einfald- lega alltof sterk, m.a. vegna þess aö hann er einasta áfengiö sem hægt er að drekka talsvert magn af án þess að missa ráð og rænu. Þetta þýöir aö hætta á misnotkun og þar með hættan á ofurölvun (sem er stærsta hættan samfara áfengis- neyslu) er minnst, jafnvel minni en eftir borövínsneyslu. I raun þýöir þetta — hvað sem læknaprófessorar segja — mun minni hætta á alkóhólisma því tíö ofurölvun er og veröur ávallt fyrsta stig áfengissýkinnar. Þar viö bætist aö bjórinn er holl- asta áfengiö í bókstaflegri merkingu vegna þess aö í honum eru bætiefni, þ.á m. B-vítamín sem viö þurfum nauðsynlega á að halda. Auk þess er bjór auövitaö sérlega svalandi — ekki síst yfir sumartím- ann — og fyrir þá sem kunna með hann aö fara eitt besta svefnmeðal sem til er. ,,Bjór er einfaldlega skásta áfengi sem fáanlegt er. Ráðlegg ég öllu ungu fólki sem notar áfengi á annað borð að láta hann ganga fyrir ef kosturerá." um viö ekki einu sinni þeim sem næstlægstir eru. Þau rök aö bjórinn stuðli aö auk- inni unglingadrykkju eru einnig út í hött vegna þess aö (a) hún er nú þeg- ar of mikil og (b) drekki þeir á annað borð er best aö þeir haldi sig þá við bjórinn. Engin rök og engar rannsóknir eru til sem benda til þess aö íslenskir unglingar muni drekka meira áfengi ef bjórinn kemur. Þvert á móti bend- ir ýmislegt í gagnstæða átt. Lokaorð Hví bjór? Bjór er einfaldlega skásta áfengi sem fáanlegt er. Ráðlegg ég öllu ungu fólki sem notar áfengi á annaö borö aö láta hann ganga fyrir ef kostur er á. Þvættingur Áfengisvarnaráös, lög- reglustjóra, dómsmálaráðherra og annarra lögmætra yfirvalda um hiö gagnstæöa getur þaö látið sem vind um eyrun þjóta. Fyrr eöa síðar mun koma aö því aö hér koma upp yfirvöld sem sjá ljósið í myrkrinu. Þaö er því ekki um ann- aö aö ræða en aö þreyja þorrann þangað til. Ekki skal þó örvænta. Nú þegar eru margir hlynntir bjórnum, þ.á m. forsætisráðherra og fimmtán alþing- ismenn (nöfn þeirra veröa birt meö næstu grein). FRJÁLSLYNDI í FRAMKVÆMD íslands og þeim er tjáö aö bjór sé bannaöur á Islandi eru viöbrögöin Um allan heim er diskókynslóðin — með Bandaríkin í broddi fylkingar — aö afneita sterkum drykkjum og snúa sér aö veikari og hollari veigum og hafna jafnvel áfenginu alfariö. Aöeins eitt land á Vesturlöndum sker sig úr í þessari þróun: ísland. Hér eigum við ennþá heimsmet í því að fá mestan hluta áfengis okkar (um 75%) úr þessum sterku drykkj- um. Þaö sem verra er: I þessu eina landi er dómsmálaráðherra — með fulltingi lögreglustjóra — á fullu aö drepa alla viöleitni í þessa jákvæðu og sjálfsögöu átt. JON ÖTTAR RAGNARSSON DÓSENT A ,,Fyrr eöa síðar mun koma aö því að hér koma upp yfirvöld sem sjá ljósið í myrkrinu. Það er því ekki um annað að ræða en að þreyja þorrann þangað til.” Mótrökin Mótrökin hafa einkum veriö þau að bjórinn muni auka heildarneysluna og að hann muni stuöla aö aukinni ungiingadrykkju. Hafa þau veriö margsinnis hrakin. Sé verðstýringu haldið til streitu eins og hingaö til er nákvæmlega engin hætta á því aö bjórinn auki heildarneysluna aö ráði eins og hald- ið hefur veriö fram. Auk þess er heildarneysla okkar á vínanda sú lægsta á Vesturlöndum. Jafnvel þótt hún ykist lítillega næö- ávallt á einn veg: Undrun og kæföur hlátur. Þegar þeim er síðan tjáö aö viö leyfum hins vegar sterka drykki og fáum 3/4 okkar vínanda úr brennd- um drykkjum nær meðaumkunin fljótlega yfirhöndinni. Sem betur fer hafa flestar þjóöir einhverja ámóta sérvisku sem hægt er að benda á áöur en þetta fólk af- skrifar okkur sem hreina útkjálka- menn. En ástæöan fyrir því aö viö ætlum að fá bjór er þó ekki þessi, heldur hitt aö viö vitum aö hann mun bæta áfengisvenjurnar og draga úr áfeng- issýki. . . hvaö sem dómsmálaráð- herra og lögreglustjóri segja. Jón Óttar Ragnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.