Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Síða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR6. SEPTEMBER1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta í Fljótaseli 6, þingl. eign Guðjóns S. Garöarssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingast. rikisins, Útvegsbanka íslands, Baldurs Guölaugssonar hrl. og Guðjóns S. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta í Grettisgötu 62, þingl. eign Eiriks Óskarssonar og Oddbjargar Óskars- dóttur, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Gjaldheimt- unnar í Reykjavik á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta i Vaðlaseli 12, þingl. eign Úlfars G. Jónssonar, fer fram eftir kröfu Ara ís- berg hdl. og Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 15.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á Selja- braut 18, þingl. eign Jósefs G. Ingólfssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta I Kötlufelli 11, þingl. eign Gisla Jósefssonar, fer fram eftir kröfu Tómasar Þorvaldssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta I Kötlufelli 9, þingl. eign Bylgju Scheving, fer fram eftir kröfu Róberts Árna Hreiöarssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta í Kambaseli 31, þingl. eign Guðlaugs J. Guðlaugssonar, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Ara ísberg hdl. á eigninni sjálfri mánudag9. september 1985 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta í Hagamel 21, þingb eign Guðrúnar Þ. Magnúsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Róberts Árna Hreiðarssonar hdl. og Gjald- heimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta i Gyðufelli 14, þingl. eign Snorra Ársælssonar, fer fram eftir kröfu Út- vegsbanka Islands, Búnaðarbanka Islands og Gjaldheimtunnar i Reykja- vík á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 13.30. / Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 48., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á hluta í Asparfelli 8, tal. eign Jóns L. Magnússonar, fer fram eftir kröfu Veð- deildar Landsbankans, Landsbanka Islands, Iðnaðarbanka islands, Ævars Guömundssonar og Sigríðar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á hluta i Strandaseli 7, þingl. eign Gunnlaugar Gunnlaugsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Ásgeirs Thoroddsen hdl., Veðdeild- ar Landsbankans, Guöjóns Steingrimssonar hrl., Skúla J. Pálmasonar hrl. og Landsbanka Islands á eigninni sjálfri mánudag 9. september 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Menning Menning Menning Skáldið Þór Eldon og teiknarinn Margrét Örnólfsdóttir. Skeyti um dauðann Þór Éldon: 23hundar. Medúsa 1985,24 bls. 1 þessu kveri eru 13 ljóö, flest mjög stutt. Margrét Örnólfsdóttir hefur skreytt bókina fimm myndum af stíl- færöum, útflúruöum hundum i þvögu. Þaö er samkvæmt titli bókar- innar, en titillinn snertir ljóöin ekk- ert, aö séö verði, enda var hann skýröur svo á útgáfudegi, aö þá varö skáldiö 23 ára, í lok hundadaga. Þaö er Medúsulegt aö ganga svona upp í tilviljunum og aukaatriöum. En viö lestur þessara ljóða kemur oft í hug titill þeirrar bókar Þórs sem birtist næst á undan þessari: Dauðaljóðin. Lítumástutt dæmi: kópasker 8. júní1945 desnos dáinn stop koma kvöld stop köld stop segöu stop stop Dagsetningin lýtur aö því aö þenn- an dag dó franski súrrealistinn Robert Desnos, nýkominn úr fanga- búöum nasista, of aðframkominn af næringarskorti til aö honum yröi bjargaö. Ljóöiö er greinilega sím- skeyti þessa efnis, en hvers vegna til Kópaskers? Ef til vill er þessi litli bær viö Noröur-Ishafiö fulltrúi þeirra byggöu bóla sem fjærst eru miðdepli atburöa þeirra sem helst vekja athygli, gæti táknaö Island. Og þangað berst samdægurs fregnin um dauöa súrrealísks ljóöskálds, sem fyrir sitt leyti gæti hér veriö fulltrúi listarinnar. Dauðinn ríkir í hverju orði, jafnvel hversdagslegt sím- skeytamál „stop” veröur þrungið honum í þessu samhengi, einsog oröin sem ríma, orka hvert á annaö: kvöld, köld. Ljóöiö verður æ þrengra og minna í sniöum eftir því sem á líöur, einnig þaö atriði miölar tilfinn- ingunni fyrir dauöanum. Hér þykir mér mikiö sagt í ákaflega knöppu oröalagi. Dauöinn er sínálægur í þessum ljóöum, en einnig lostinn. I samræmi viö þaö ber mest á litaheitunum: svartur, blár, rauöur, hvítt; og tengd Bókmenntir Örn Ólafsson orö: nætur, kvöld, blóö, logar, eld- hjarta, skínandi, við brennum. Mið- ljóöiö í syrpu þriggja ljóöa: Þrír himnar yfir mér sýnir vel hvernig þessum orðum er beitt, litirnir eru staðarákvarðanir, og miðlægir á annan hátt, þannig skynjar lesand- inn yfirþyrmandi tilfinningu, því næstum allt höföar til skynjunar, einnig af því hve óljóst samhengið er, stokkið úr einu í annaö. Þar ráöa hugrenningatengsl feröinni, t.d.: hár-hverfisteinn-auga. I endurtekn- ingunum sjáum viö skynjunina breytast, á eldinum einkanlega. Þaö er eins og annað, samhengiö er ekki röklegt, en í textanum eru ekki rof, hann rennur fram í síbylju, þannig ræöur tilfinningin ferðinni. Þaö er helsti ljóður bókarinnar, hve stutt hún er, en við skulum vona að hún veröi þá lesin þeim mun vand- legar. Hún fæst víst hvergi nema í Gramminu. Örn Ölafsson. ég stóö undir þaki hússins þaki hvítt? nei meö gluggum hér sefur þú inní bláu hættulegu en rúmiö mjúkt þú varst mýkri svart blátt blátt og kastanían ilmar það er þitt hár hár þitt hverfisteinn og auga líka mjög hættulegt en svart blátt? annaö bíöur hjá huliö skýjum skugga reyks þú brennur viö bæöi brennum eldur hvítur innra gulur annars ekki rauöur heitur sviti er eldsins söngur eldsins spegill spegill af eldi gullnum steyptur ég er þreyttur ég aldrei aftur aldrei þú aldrei ég Karl Kvaran í Listmunahúsinu: EINN Á BÁTI „Ég átta mig betur á hvað ég er aö gera ef ég sýni einn. Mér finnast líka litlar einkasýningar koma betur út en stórar samsýningar,” sagöi Karl Kvaran listmálari sem á morgun opn- ar sýningu í Listmunahúsinu við Lækjargötu. Það hefur vakið athygli aö Karl sýnir ekki að þessu sinni meö Septemhópnum sem hann er þó félagi í. „Ég er í félaginu en tek ekki mikinn þátt í því sem þau eru aö gera,” segir Karl. Á sýningunni í Listmunahúsinu er 30 túskmyndir og nokkur olíumálverk. „Olían hefur þann möguleika aö hægt er að mála yfir verkin aftur og aftur, jafnvel eftir nokkur ár ef svo býður viö aö horfa. Þegar blekið er not- aö veröur ekkert aftur tekiö. Mér finnst dálítiö gott aö hafa blekið meö til til- breytingar. Annars held ég mig viö oliuna. Hér er t.d. mynd sem ég sýndi á Kjarvalsstöðum árið 1979. Þá var hún meö sterkum litum og flóknum formum. Þetta er enn sama léreftið en ég hef verið aö mála myndina af og til síðan þá. Nú eru bara tveir litir eftir í henni og formin miklu einfaldari,” seg- ir Karl til aö undirstrika ágæti olíunn- ar. Nú átt þú meira en 40 ár aö baki í myndlistinni. Hvað finnst þér um þróunina á þessu tímabili? „Ég hef alls engar áhyggjur af þróuninni. Ég hugsa aldrei neitt út í þau mál. Viö, þessir gömlu afstrakt- málarar, erum kannski þeir síðustu í þeirri grein. Annars fylgist ég ekki vel með sýningum ungra manna. Þó virö- ist vera fráhvarf frá afstraktlistinni núna. Það er allt í lagi ef menn kjósa aörar aöferöir, mín vegna. Mynd verö- ur ekki góð við þaö eitt að vera máluð í ákveönum stíl heldur hvernig til tekst hverju sinni,” sagði Karl Kvaran að lokum. GK Karl Kvaran — kann best við litlar einkasýningar. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.