Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Síða 15
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985,
15
Menning Menning Menning Menning
M BERGIN
LOFTÞJÖPPUR
Eftirtaldar stærðir
fyrirliggjandi á
lager með loftkút og
þrýstijafnara
130 l/mín.
200
300 -“-
500 -”-
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
Vesturþýsk gæöavara
á hagstæöu verði
LANDSSMIÐJAN HF.
ISÖLVHÓLSGOTU 13 - 101 REYKJAVlK
SlMI (91) 20680 - TELEX 2207 GWORKS
Gefin fyrírheit
Golf:
Dægradvöl
almúgamanna
sem auðkýfinga
Kynning á íþróttinni
Orgeltónleikar Björns Steinars Sólbergssonar í
Kristskirkju 1. september.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Toccata í F-
dúr BWV 540, þrír sálmforleikir- Wachet auf, ruft
uns die Stimme BWV 645, Wer nur den lieben
Gott Iðsst walten BWV 647, Ach bleib bei uns,
Herr Jesu Christ BWV 649; Tríósónata nr. 5 í C-
dúr BWV 529 J. Alain: Choral dorien og Litanies;
M. Duruflé: Prelude et fugue sur ie nom d'Alain
op.7.
Frá því Björn Steinar Sólbergsson
hélt sína fyrstu tónleika, í þann mund
að ljúka námi suður í Róm, hafa menn
fylgst með ferli hans af áhuga. Að lok-
inni Rómardvölinni hélt hann til París-
ar til frekara náms, ráðgerir að ljúka
þar námi að ári og mun þegar vera
ráðinn til að taka við starfi á Akureyri
aönámiloknu.
Á þessum tónleikum glímdi Björn
Steinar við gamla Bach og tvö af leið-
andi trúarskáldum Frakka á þessari
öld, þá Alain og Duruflé. Hann hóf leik-
inn með Toccötu í F-dúr BWV 540 og
lék síðan þrjá sálmforleiki, BWV 645,
647 og 649. Þekktastur sálmforleikj-
anna þriggja og vinsstastur er sá fyrsti
þeirra, Vakna, Síons verðir kalla.
Síðan lauk Bach þætti tónleikanna með
Tríósónötu í C-dúr BWV 529. Þaö fer ekki
á milli mála, aö Björn Steinar Sól-
bergsson hefur tamið sér önnur tök við
leik á verkum Bachs og annarra
meistara barokktímans en við eigum
yfirleitt að venjast hér í norðrinu. Okk-
ar heimastíll er „Arfurinn frá Leipzig”
(sem alls ekki má skilja á sama nei-
kvæða hátt og almennt er gert í nor-
rænni tónmenntakennslu nútímans).
En stíll Björns Steinars ber léttara og
að mörgu leyti ferskara yfirbragð.
Franskt, segjum við gjarnan, en þess
ber þó að geta að Bjöm Steinar hafði
þegar tamið sér slíkan stíl í einhverj-
um mæli áður en hann hélt til náms í
Frakklandi. Leikur hans hefur samt
yfir sér tign og hina innri ró sem
„Arfinum frá Leipzig” gjarnan fylgir.
Þegar bílar mætast er ekki nóg
að annarvíki vel útávegarbrún
og hægi ferð. Sá sem á móti
kemur verður að gera slíkt hið
sama en notfæra sér ekki til-
litssemi hins og grjótberja
hann. Hæfilegur hraði þegar
mæst er telst u.þ.b. 50 km.
jUMFERÐAR
RÁÐ
Lífsreynsla:
Grímur lætur
rigna
hjá Gaddafí
Grímur Jónsson á
Isafirði vann
eitt sinn við
að búa til
rigningu
í Líbýu
lanw
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
Upphaf
sjónvarpsins
Skemmtilegar myndir
sem sýna
að ýmislegt
hefur breyst
Get bæði
unnið
undir
pressu og
mjög mikið
Viðtal við
Sigrúnu
Stefánsdóttur
Svo þegar þessir tveir ólíku straumar
blandast saman hjá einum organista
getur útkoman orðið býsna góð.
Að loknum Bach lék Björn Steinar
frönsk tuttugustu aldar verk. Dóríski
kórallinn eftir Alain er hreint snilldar-
verk. Litanies eru það einnig og leikur-
inn fyllilega í samræmi við þaö.
Prelúdíuna og fúguna samdi Duruflé
til minningar um Alain. Fúgunni klúðr-
ar Duruflé að vísu en þó eru innan um í
verkinu rismiklir kaflar sem ánægju-
legt er á aö hlýða — þá kannski sér-
staklega þegar svo vel er spilað. Það
sem mestu máli skiptir er jú hvernig
Tónlist
Eyjólfur Melsted
leikið er. Ferill Björns Steinars Sól-
bergssonar hefur verið stöðugt klifur á
brattann. Hann hefur greinilega tamið
sér stíl þeirra skóla sem hann hefur
numið við en þó án þess að glata sínum
persónueinkennum, heldur hefur hans
eigin stíll fremur skerpst. Hver þekkir
ekki þá erfiöleika sem margir ungir
listamenn hafa þurft að glíma við um
áraraöir að námi loknu, að spila sig frá
sínum skóla? Þessir tónleikar voru
engin undantekning hjá Birni Steinari
— hann hefur jafnan með leik sínum
gefið fyrirheit um enn betri leik næst
og staðið við þau. Eg hlakka því enn
sem fyrr til aö hlýða á leik hans aftur.
EM
.Ferill Björns Steinars Sólbergssonar hefur verið stöðugt klifur á bratt-