Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Side 19
DV. FÖSTUDAGUR6. SEPTEMBER1985. 31 íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Fyrirað írra” m ekki geta þegið ðsla vegna meiöslanna í olnboga og þarf aö reyna aö beita mér ööruvísi en þaö hef- ur ekki gengið nægjanlega vel upp á síðkastið. Tíminn sem mótiö er á er einnig mjög slæmur fyrir mig. Ég byrjaði keppnistímabiliö snemma og mótið mun lengja þaö um mánuð. Ut- litið er því dökkt og ég held að ég geti sagt aö spjótkastið sé ekki mitt sport eins og málin standa. Eg mun þó hugsa minn gang mjög vel áöur en ég dreg þátttöku mína til baka,” sagöi Einar dapur í bragöi. ;s keppni iníNjarðvík sen á Hondu 480 meö 209 stig og í þriöja sæti er Marteinn Pétursson Suzuki 450 meö 204 stig. Keppnin getur gefið hverjum keppenda allt aö sex til sjö stig svo að úrslit eru alls ekki ráöin. nn Nyström ka meistaramótinu gott form. Connors hefur hrapaö niður í fjórða sæti hjá tölvu alþjóða tennis- sambandsins en hefur unniö góða sigra á þessu móti og svo gæti farið að þessir tveir tennisjöfrar mætist í úrslitum keppninnar. I tvenndarkeppni sigruöu Wendi Turnbull og John Lloyd þau Zinu Garrison og Marcel Freeman en þau Lloyd og Turnbull hafa lengi þótt besta parið í tvenndarkeppni í tennis. -SigA., „Algjört happdrætti hvernig fer” — segir Einar sem telur sig ekki nógu vel undirbúinn fyrir Grand-Prix mótið í kvöld. Fjórir geta komist fram úr Einari f spjótkastskeppninni. Aouita og Slaney hafa forystu í stigakeppninni „Ég lít á þetta eins og hvert annað héraðsmót. Ég reyni að hugsa eins lítið um keppnina eins og mögulegt er og vona einungis að meiðslin versni ekki og að það verði ekki margir spjótkast- arar sem komist fram úr mér í stiga- gjöfinni. Ég hef fengið þrjár sprautur síðan á Brussel mótinu og mér hefur ekki gengið vel á æfingum. Kastaði 72 metra lengst á æfingunni í dag. Það er algjört happdrætti hvernig fer á mótinu en ég verð aðeins að vona að eitt 80 metra kast fljóti með,” sagði Éinar Vilhjálmsson, spjótkastarinn kunni. Grand Prix mótið í kvöld sker úr um það hvort Einar nær að halda forustu sinni í spjótkastinu en sjálfur telur hann það ólíklegt. Hvern telur þú sigurstranglegastan? „Það er erfitt aö segja. David Ottley hefur tekið sér tveggja vikna hvíld frá keppni og hann ásamt Tom Petranoff eru mjög líklegir sigurvegarar. Þá er Duncan Atwoodbúinn að undirbúa sig í allt sumar fyrir mótið og gæti sigraö. Eg er enn í efsta sæti með 43 stig, Ottley er með 38, Petranoff og Atwood hafa 37 stig og Englendingurinn Roald Bradstock hefur hlotið 32 stig. Þeir geta allir komist fram úr mér því gefið er tvöfalt fyrir þetta mót á móts við önnur Grand-Prix mót. Sigurvegarinn á þessu móti hlýtur 18 stig, annaö sætiö gefur 14 stig, það þriöja tólf og síðan koll af kolli. Þrátt fyrir mikinn stjörnufans eru þó fjölmargir sem ekki munu mæta. Hafa þá annaðhvort dregið sig úr úr keppn- inni vegna meiðsla eða af öðrum ástæöum. Fremstan ber aö nefna f jór- faldan ólympíumeistarann frá því í fyrra, Carl Lewis, en hann hefur ákveðið að taka ekki þátt í mótinu. Ástæðan er sú að Lewis hefur átt við þrálát meiðsli að stríða og á því ekki neina möguleika á sigri í keppninni. MarokkóbúinnSaidAouita, heimsmet- hafinn í 1500 og 5.000 metra hlaupi, mun líklega ekki mæta en hann meiddist í tvö þúsund metra hlaupinu á mótinu í Rieti á italíu í fyrrakvöld. Mílumethafinn Steve Cram frá Bret- landi mun ekki heldur taka þátt en hann á viö slæm meiðsli í káifa að stríða. Keppi Said Aouita ekki á mótinu má búast við gífurlega harðri baráttu um fyrsta sætiö í karlaflokki. Einar á möguleika á sigri, hann er nú tólf stigum á eftir Marokkóbúanum. Bandaríkjamaðurinn Doug Padilla er í öðru sæti með 45 stig. Margir aðrir eru í baráttunni um hnossið, 25 þús. Banda- &tdk Steve Cram — meiddur. ríkjadollara, sem veittir eru fyrir fyrsta sætið. Svo kann að fara að úrslit- in ráðist í 5 þúsund metra hlaupinu en þar mætast líklega Padila og Sidney Maree. Ovíst er enn hvort Maree velur frekar að hlaupa 1500 metrana eöa fimm þúsund. Maree hefur nú hiotið 41 stig. Þrír aðrir keppendur hafa hlotið 41 stig en það eru þeir Sergei Bukha, Calvin Smith og Pierre Quinon. I kvennaflokki þykir flestum sem Mary Slaney muni vinna nokkuð öruggan sigur. Hún hefur forystu og mun keppa í þrjú þúsund metra hlaupi. Næstar á eftir henni í stigakeppninni eru þær Stefka Kostadinova frá Búlgaríu, Genowefa Blaszak frá Pól- landi og Judy Brown-King frá Banda- ríkjunum. Hvað um það. Þetta kemur ekki í ljós fyrr en á morgun. Þá munu eflaust ófáir Islendingar setjast fyrir framan sjónvarpstækin sín og fylgjast með beinni útsendingu frá keppninni. Utsendingin hefst klukkan 16 en spjót- kastskeppnin mun að öllum líkindum byrja um kl. 18.30. -fros. Asgeir og félagar mæta Saarbruckem — í 6. umferð v-þýsku deildakeppninnar. Uerdingen leikur gegn Bochum og efsta liðið Werder Bremen mætir nýliðum Niirnberg sem hafa komið mjögá óvart Ásgeir Sigurvinsson og féiagar hjá v- þýska liðinu Stuttgart munu mæta Saarbrucken á heimavelli um helgina og Uerdingen, liö Atla Eðvaldssonar og Lárusar Guðmundssonar, mun mæta Bochum á útivelli. Aðalleikur helgarinnar er viðureign liðanna í 1. og 2. sæti, Werder Bremen og Nurnberg. Bæði liðin hafa leikið mjög vel á þessu keppnistímabili, sér- staklega hefur frammistaða nýliða Nurnberg komið á óvart. Reiknað var með því fyrir keppnistímabilið að liðiö mundi lenda í harðri fallbaráttu en svo hefur ekki oröiö raunin hingað til. Bremen liöið er mjög sterkt um þessar mundir og kannski líklegast til sigurs. Rudi Völler, v-þýski landsliðsmaður- inn í liði þeirra, hefur verið mjög drjúgur við aö skora á þessu keppnis- tímabili en hann hefur gert sex mörk í þeim fimm leikjum sem búnir eru. Leikur risanna Bayern Munchen og Hamburger verður vitanlega einn af stærri viðburðum en bæði liöin hafa átt frekar erfitt uppdráttar. Hamburger liðið virðist þó vera að koma til en þeir unnu stórsigur, 4—1, á Borussia Mönchengladbach í fyrrakvöld. -fros. Hörkuleikur á Akureyri — er KA og ÍBV mætast Í2. deild. Úrslitaleikir Í3. og4. deild um helgina Tvo si. daga hefur verið f jallað ítar- lega um baráttuna í 1. deild knatt- spyrnunnar. Það er þó ekkert minna að gerast í öðrum deildum knattspyrn- unnar. I dag er stórleikur í toppbarátt- unni í 2. deild. Tvö efstu liðin, KA og ÍBV, mætast á Akureyri kl. 18.00. Þá etur Breiðablik, sem á einnig góða möguleika, kappi við Fylki á sunnu- daginn. I þriðju deild verður leikinn fyrri úr- slitaleikur deildarinnar. Þá mætast Einherji, sigurvegari B-riðils, og Selfoss, sigurvegari A-riðils, á Vopna- firði. Sigurvegarinn úr tveggja leikja viðureign þessara liða hlýtur meist- aratitil 3. deildar en bæði liöin komast upp. 14. deild fer aðeins einn úrslitaleikur fram og verður hann á laugardaginn á Akureyri. Þá mætast IR og Reynir frá Árskógsströnd. Athygli skal vakin á að leikur Þróttar og Þórs í 1. deild hefur verið færður fram um tvo tíma á laugar- daginn. Hann verður nú klukkan tvö en þetta er gert til hagræðingar fyrir hina fjölmörgu norðanmenn sem koma til með að ferðast suður vegna leiksins. Dagskráin í leikjum helgarinnar er á þessa leið. Laugardagur 7. september 1. deild Akranesvöliur ÍA—Víkingur kl. 14.30 Kaplakrikavöllur FH—Fram kl. 14.00 Keflavíkurvöllur IBK—Valur kl. 14.00 Laugardalsvöllur Þróttur—Þór kl. 14.00. 2. deild AkureyrarvöllurKA—IBV kl. 14.00 Isaf jarðarvöllur IBI—KS kl. 14.00 Olafsfjarðarv. Leiftur—Skallagr. kl. 14.00 4 deild Akureyrarv. ReynirÁrskstr.—IR kl. 14.00 1. d.kv. Akranesvöllur IA—KA kl. 11.30 Kópavogsvöllur UBK—IBI kl. 14.00 Sunnudagur 8. september 1 deild Laugardalsvöllur KR—Víðir kl. 14.00 2. deild Kópavogsvöllur UBK—Fylkir kl. 16.00 Njarðvíkurv. Njarðvík—Völsungur kl. 14.00 3. deild Vopnafjarðarv. Einh.—Selfoss kl.16.00 l.d.kv. KR-völlur KR-KA kl. 17.00 -SigA. Björgólfur þarf trúlega oft að naga neglumar i leikjum ÍSI vetur. DV-mynd S. Björgólf ur og Haukur þjálfa ÍS Björgólfur Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari karialíðs íþróttafélags stúdenta í blaki. Haukur Valtýsson hefur verið ráðinn þjálfari kvcnnaliðs IS. Þeir Björgúlfur og Haukur sóttu saman þjáifaranámskeið erlendis í sumar með iandsliðsþjálfurum sterkra þjóða. Leikmenn stúdentaliðanna gera sér því vonir um aö þeim félögum takist að ieiða liðin langt í vetur. Taisverðar breytingar hafa orðið á mannskap hjá karlaliði ÍS. Indriði Arnórsson, Stefán Magnússon og Friðbert Traustason vcrða ekki með í vetur. Stefán leikur mcð KA og Friðbert hefur tekið að sér þjálfun hjá Víkingi. i staðinn hafa stúdentar fengið Guðmund Kærnested sem aftur hefur tekið fram blakskóna cftir árshvíld. .________________________-KMU. Verður ÍA meistari á morgun ? ■ A morgun, laugardag, geta úrslit ráðist í I. deild kvenna í knattspyrnu. Þá leika á Akra- nesi lið IA og KA og nægir þeim fyrrnefndu jafntefli til að tryggja sér meistaratitilinn. Athygli er vakin á því að leikurinn hefst kl. 11.30 en ekki kl. 17.00 eins og auglýst hefur verið. Punktamót í Grafarholti GR gengst á sunnudag fyrir punkta- móti í golfi á Grafarholtsvelli. Um er að ræða innanfélagsmót og verða leiknar 18 holur með fullri forgjöf. Byrjað verður að ræsa keppendur út klukkan 9 á sunnudagsmorgun og veröur ræst til klukkan hálfeitt. Magnús með Víkingsstelpur I kynningu DV á þjálfurum 1. deildar kvenna í handbolta í gær gleymdist að geta um þjálfara Víkingsliösins. Það er hinn hávaxni og geðþekki Magnús Guömundsson sem þjálfar það í vetur. -fros. Oldungagolfmót — á Grafarholtsvelli Samtök eldri kylfinga gangast fyrir golf- móti á Grafarholtsvelli á laugardaginn. Keppt verður í þremur flokkum. Flokki 50— 55 ára, flokki 55—60 ára sem munu keppa af hvítum teigum og flokki 60 ára og eldri sem munu keppa á bléum teigum. Mótið byrjar klukkan 10. Eldri kylfingar cru nú í óðaönn að æfa sig undir Evrópu- meistaramótið í golfi sem fram fer í Aigarve i Portúgal dagana 2.-—1. október. -fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.