Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 30
42 DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985. SKÍFUR ÚRVALSDEILDIN APPETITE - Prefab Sprout (KITCHENWARE) Þó þetta sé langt frá þvi aö vera hiö fullkomna popplag sem öll smáskífuframleiðsla snýst um er Appetite eins og önnur lög af meistara- verkinu Steve McQueen nokkrum gæðaflokkum ofar en önnur popplög nú um stundir. Ég á ekki von á þvi að sjá Appetite ofarlega á vinsældalistum, til þess er það einfaldlega alltof gott. BETTER THAN THEM - NEWMODELARMY =EMI) Þetta eru ungir, frískir, sprækir, spriklandi fjörugir, bitrir, reiðir, ákafir Bretar sem hrífa mann með fínum lag- línum og einhverjum kröftugustu söngvum i breska rokkinu um langt skeið. Þetta lag stendur No Rest auð- vitað dálítið að baki en má eflaust hlusta á það 1132 sinnum án þess að leiðast. DANCING IN THE STREETS - DAVID BOWIE/MICK JAGGER (EMI) Hvað er sosum hægt að segja þegar tvær helstu skrautfjaðrir ,,ellipoppsins" taka sér snúning eftir gömlum Motown-smelli Mörtu og Vandellas? Þegar ofan i kaupið bætist að þetta er allt i þágu góðs málefnis og gömlu mennirnir hafa sjálfir mest gaman af — eru þá ekki aðfinnslur óviðeigandi? Ég bara spyr. DON'T STOP THE DANCE - BRYAN FERRY(EG) Þeir eru fleiri afarnir I poppinu en Jagger og Bowie. Ferry er af sömu kyn- slóð og kann betur en flestir aðrir að sameina snilld og stíl. Hér er komið á smáskifu mest grípandi lagið af breið- skifunni Boys And Girls og auðvitaö fyrsta flokks vara. 1. DEILD '69 BRYAN SUMMER OF ADAMS IA&M) Ekki beinlínis minn tebolli einsog Bretinn segir en fer þó langleiðina með það að sætta mig við tónlist þessa kanadíska rokkara. Fyrri lög hans hef ég reynt að leiða hjá mér eftir bestu getu en þetta lag er skrambi gott, góö- ur texti og grípandi viðlag. I THOUGHT l'D NEVER SEE YOU AGAIN - WORKING/WEEK (VIRGIN) Working Week hefur ekki náð að skapa sér það nafn í breska tónlistarlíf- inu sem hún á skilið. Fönk og sól og dálitill djass er uppistaðan, hér syngur Julie Roberts ballöðu sem hvaða hljóm- sveit sem er gæti verið sæmd af — kannski ekki beinlinis ógleymanlegt lag en næsta númer við. Umgjörð lagsins samt einum of stöðluð fyrir minn smekk. FALLISTAR YOU'RE THE ONE FOR ME — D TRAIN (PRELUDE) Einsog staða Vikings er i 1. deildinni er það auðvitað einsog að nefna snöru i hengds manns húsi að tala um fallista. En ég spái þessu lagi ekki langlífi. Það kom út fyrst árið 1981 og Paul Hardcastle (N-N-N-nineteen) varð svo skotinn í þvi að hann „rímixaði" það einsog það heitir á fagmálinu þegar slikt var ámálgað við hann. Hann hefði mín vegna mátt láta það ógert. TAKES A LITTLE TIME - TOTAL CONTRAST (LONDON) Ekki batnar það. Breskt fönk sem hljómar einsog hundraö önnur lög, ger- samlega ópersónulegt og gerilsneytt lag sem á hvergi annars staðar heima en á diskótekum og flytjendurnir eru al- ger andstæða þess sem ég ímynda mér fina tónlistarmenn. Tak þennan kaleik frá mér! 1. SKAMMTUR ROKKSOGUNNAR PRESLEY OG FJORIR AÐRIR FRUMHERJAR I eina tíö gátu poppskrifarar gengiö að sínum lesendum vísum. Þeir voru einlægt aö skrifa fyrir jafnaldra sína. Þá var rokkiö ungt og aðeins unga kyn- slóðin haföi meðtekiö þaö útlenda fyr- irbæri sem kallaöist rokk og ról. Full- oröna fólkið sló sér á lær, fussaði og sveiaöi og sendi synina hárprúöu nauö- uga viljuga til hárskerans. En rokkiö hélt sínu striki — og nú er svo komiö aö rokkið höföar til fólks sem er komið hátt á fimmtugsaldur! Hafi tildæmis sjónvarpiö haldiö aö þaö væri aö gera unglingum sérstakan greiöa á ári æsk- unnar með því aö sýna rokkþáttinn Síö- asta valsinn, kveöjuhljómleika the Band um daginn — þá hefur þaö skot geigað. Rokkaödáendur um og yfir þrí- tugt þekktu the Band, ekki unga fólkið í dag. Svona er breiddin orðin mikil í rokk- inu. Meira aö segja Bítlarnir eru ungu kynslóðinni í dag eitthvert framandi fyrirbæri sem hún kann lítil deili á en veit þess meira um Madonnu og Duran Duran sem aftur Bítlakynslóöinni, aö ég tali nú ekki um aðdáendur Prella gamla, þykir lítill fengur í og ljær tæp- ast eyra nema tilneydd. Enginn ber lengur brigöur á þaö aö rokkið er mikilvægt túlkunarform, ekki bara æskunnar heldur líka fullorö- ELVIS PRESLEY inna — og eftir nokkur ár getum viö bætt öldnum í þennan hóp. Því ekkert fær stöövaö rokkið úr þessu og engin rök hníga í þá átt aö viö ákveðinn aldur veröi rokkiö sem hjóm eitt. Viö eigum eftir aö spila okkar rokk á elliheimilum eftir fimmtíu ár, veriöi viss! Miðaö viö eilífðina er rokkiö ferlega ungt. Aðeins um þrjátíu ára. I eyrum okkar hljóma þó fyrstu rokklögin sem aftan úr grárri forneskju og Eddie Cochran, Carl Perkins og Gene Vinc- ent eru nöfn sem ég býst við aö fæstir unglinga komi fyrir sig. En nú skal úr því bætt því einsog margir vita hefur Almenna bókafélagið hafiö útgáfu á „sögu rokksins”, samtals þrjátíu tvö- földum breiðskífum. Fyrsti skammt- urinn er kominn, annars vegar heil plata með rokkkónginum sjálfum, Elv- is Presley, og hins vegar nokkur lög frá fjórum frumherjum: Bill Haley, Little Richard, Fats Domino og Buddy Holly. Allt eru þetta merkar og fágæt- ar heimildir um fyrstu spor rokksins og augljóslega ekkert sparaö til þess aö gera þetta mikla safn sem vegleg- ast. Ég bíö spenntur eftir næsta skammti. -Gsal SCRITTIPOLITTI - CUPID & PSYCHE ’85 AFSKAPLEGA GOD TONUST Þeir sem hafa fylgst meö listapoppi heimsins aö undanförnu kannast ef- laust við lagiö Word Girl meö hljóm- sveitinni meö skrítna nafniö, Scritti Politti. Þetta er ákaflega hugljúft lag enda hljómsveitin ákaflega hugljúf eins og maður kemst aö þegar hlustaö er á breiöskífuna Cupid & Psyche ’85. Fyrrgreint lag um orðastelpuna er aö sjálfsögðu að finna á þessari plötu en þar fyrir utan eru mörg önnur af- bragðsgóö lög á plötunni. Lykilpersóna Scritti Politti er söngv- arinn og lagasmiöurinn Green Gart- SCRITTI POLITTI DAVID KNOPFLER - BEHIND THE LINES David Knopfler er yngri bróöir Mark Knopflers sem er allt í öllu í Dire Straits. David byrjaöi feril sinn í Dire Straits, en um leiö og fyrsta plata hljómsvátarinnar fcr að vekja athygli hætti hann í henni, hefur sjálfsagt fundist hann vera í skugganum af stóra bróöur. Eftir nokkur ár og tvær sólóplötur stendur hann enn í skugga bróður síns og þarf engan aö undra sem hlustar á nýjustu plötu hans, Be- hind The Lines. Það er nefnilega nokkrum erfiðleik- um bundið aö þekkja þá bræöur í sund- ur. Stundum fannst mér ég vera aö hlusta á Dire Straits, nema hvaö lögin náðu ekki þeim gæðum sem lög Mark Knopflers innihalda. Ekki þar fyrir aö plata David sé eitthvert rusl. Hún er í heild hin áheyrilegasta. David Knopfl- er er ágætt tónskáld og góöur hljóm- borðsleikari. Þaö háir honum og mun alitaf há honum aö vera svona líkur stóra bróöur í röddinni. Það er leitt. Fyrri plata Davids var fljót að falla í gleymsku og hræddur er ég um aö það veröi einnig örlög Behind The Lines, þótt mér finnist hún eiga betra skiliö. Þaö eru níu lög á plötunni og eru lög og textar eftir David. Lögin eru nokkuö misjöfn aö gæðum. Þau bestu, eins og Heart To Beat, Prophecies og The Stone Wall Garden, eiga þaö vel skiliö aö heyrast. Þessi lög eru ágæt tónsmíð og flutningur hinn besti. Ef David Knopfler á eftir aö ná toppnum sem einstaklingur verður hann aö breyta tónlist sinni. Eins og er líkist hún um of tónlist Dire Straits og meðan svo er verður erfitt fyrir hann aö ná vinsældum. HK. POPP I SMÆLKI Sælnú! Nýjustu tölur úr kjör- dæmi Bruce Springsteens herma að platan hans, Born in the USA, hafi selst í rúmlega tólf milljónum eintaka i heiminum til þessa. Fyrir utan Bandaríkin hefur Brúsi átt mestu fylgi að fagna i Vestur Þýskalandi, Ítalíu, Noregi, Finn landi. Suður Afriku og Belgiu en þar var títtnefnd skifa samtals i 21 viku á toppi breiðskífulista... IVlenn velta nú mjög fyrir sér fúlg unum sem stórpoppararnir hafa handa á rnilli eftir að Nlichael Jackson yfirbauð Paul McCartney á dögunum og hreppti útgáfufyrir tækið ATV Music. Þessi kaup færa Jackson líka réttinn á ýms um smærri útgáfum, meðal ann arra Northern Songs þar sem megnið af fjársjóói Bitlanna er geymt, 251 lag nákvæmlega. i þessum pakka er lika Lawrence Wright Music. útgáfa sem meðal annars á réttinn á mörgum þekkt ustu lögum Duke Ellingtons og Hoagy Carmíchaels... Þrjár i hópi þekktustu söngkvenna poppsins eru með breiðskífur i burðarliðnum, þær Diana Ross, Sheena Easton og Stevie Nicks. Barry Gibb semur og stjórnar upp tökum á plötu Diónu Ross og tttil lagið, Eaten Alive, er sanuð i fé side og er oft sett samasemmerki milli nafns hans og hljómsveitarinnar Green Gartside = Scritti Politti. Green þessi er mjög sleipur lagasmiður og syngur aukinheldur mjög vel meö nokkuö sérstæðri rödd sinni. Sumir myndu eflaust segja aö hann væri væminn og það gæti hann án efa verið ef hann semdi slepjulegar ballöður. En svo er guöi fyrir aö þakka aö hug- ur Greens stendur til annars og því er hann = Scritti Politti jafnafbragösgóö hljómsveit og raun ber vitni. Tónlist Greens hefur á sér mjúkt yfirbragð en skemmtileg notkun á hljóðgervlum og trommum forða henni frá aö verða væmin og vellukennd. Sem fyrr segir er tónlistin á Cupid & Psyche ’85 afskaplega hugljúf og eru flest lögin gædd þeirri náttúru góöra laga aö vera sífellt aö koma manni á óvart meö nýjum blæbrigðum sem ekki höföu heyrst fyrr. Svona plötur dvelja langdvölum á fóninum hjá manni. -SþS- A LITLA MOGULEIKA { DAVID KNOPFLER lagi fyrir fyrrnefndan Michael Jackson... Von er á tvófaldri liljómplötu rneð ýmsum listamönn urn i nafni Dave Clark og ku eiga aó liBÍta: Time. Þar mun að finna lagið SIib's So BBautifui, dúett Stevie Wonders og Cliff Rich ards... Smáskífur á næstunm. China Crisis lYou Did Cut Mel, Madness (Yesterday’s Men), Marillion (tavender). Scritti Politti (Perfect Way), Sister Sledge (Dancing On the Jagged Edge) og Stephen Tin Tin Duffy (Unkiss That Kiss)... Eftir tæpan hálfan mánuð verða haldnir stórhljóm leikar i Los Angejes til styrktar rannsóknum á AIDS, alnæmi. Þar koma meóal annarta frarn Rod Stewart, Cyndi Laupet, Stevie Wonder, Tina Turner, Yoko Ono, Kenny Rogers. Dolly Parton, Dionne Warwick og margir aðrir heimskunnir flytjendur... Micha el Jackson enn og aftut: Á fyrstu videospólu með Frank Sinatra, setn út veróur gefin innan tiðat, verður meðal annars að finna spjall milli þessara tveggja risa i dægurtónlist aldarinnar... Einn breskur útvarpsþulur staðhæfði aö lagið How Could You Believe Me When I Said I Loved You, When l’ve Been A Liar All My Life væri lengsti titill á lagi í popp sögunni. En það var snarlega rekið ofaní hann þvi lengsti titillinn er (og haldið nú andanum): l'm A Cranky Old Yank In A Cranky Old Tank On The Streets Of Yoko hama With My Honululu Mama Doin' Those Beat - 0, Beat 0, Flat On My Seat D Hirohito Blues; lagið eftir Hoagy Carmichael. Búið í hili. . -Gsal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.