Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Page 36
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985.
Réttirá
næsta leiti
réttaö í Aðaldal
um helgina
Fyrstu réttir haustsins veröa nú
um næstu helgi og ríöa Þingeyingar
á vaöiö meö Hraunsrétt í Aöaldal á
laugardaginn.
Fyrir borgarbörn og unglinga á
suövesturhorninu má geta þess aö
réttaö verður i Fossvallarétt viö
Lækjarbotna sunnudaginn 22.
september,í Heiðarbæjarréttí Þing-
vallasveit daginn eftir, Húsmúlarétt
viö Kolviðarhól mánudaginn 23.
september, Kaldárrétt við Hafnar-
fjörö laugardaginn 21. og Nesjavalla-
rétt i Grafningi miðvikudaginn 18.
september.
Hrossaréttir verða í Víöidals-
tungurétt í Vestur-Húnavatnssýslu
laugardaginn 28. september, Skarðs-
rétt í Skagafirði sunnudaginn 29.
september, Reynisstaöarrétt í
Skagafiröi sama dag og í Laufskála-
rétt í Skagafiröi laugardaginn 5.
október..
-EIR.
Engin ákvörðun um greiðslujöf nun lána hjá Iff eyrissjóðum:
91
Verið er að skjóta
flugu með fallbyssu
11
— segir Pétur Blöndal, f ormaður Landssambands líf eyrissjóða
Ennþá hefur engin ákvoröun verið
tekin um það hvort lífeyrissjóðir
munu grípa til þess aö beita greiöslu-
jöfnun lána á sama hátt og gert hefur
verið hjá Húsnæðisstofnun. Þessar
upplýsingar fengust hjá Landssam-
bandi lífeyrissjóöa og Sambandi al-
mennra lifeyrissjóöa.
„Þetta var til umræðu hjá okkur á
ráöstefnu í vor og mönnum sýndist
að það form sem Húsnæðisstofnun
hefur tekiö upp myndi ekki leysa
neinn vanda,” segir Pétur Blöndal,
formaöur Landssambands lífeyrissjóða.
Hann bendir á aö launataxtar hafi
hækkaö meira en lánskjaravísitalan
undanfarin tvö ár. Og ef launaskriöiö
sé tekiö meö hafi tekjur hækkaö tölu-
vert meira en lánskjaravísitalan.
„En þaö sem veldur húsbyggjendum
mestum vanda er þaö veröhrun sem
orðiö hefur á eldri húsum. Menn eru
oft að fjármagna nýbyggingar meö
sölu eldri húsa. Þaö er sá hópur sem
er í vandræðum en ekki þeir sem ein-
göngu hafa tekiö lán,” segir Pétur.
Hann segir að dæmigerður vandi
sé eitthvaö á þennan hátt: Þú byggir
þér hús sem á aö kosta 3 milljónir.
Þú átt íbúö á 2 milljónir og ætlar aö
brúa það sem á vantar meö sparnaði
og lánum. Aö ári liönu er nýja húsiö
komið upp í f jórar milljónir en íbúöin
er enn metin á 2 milljónir. Þarna hef-
ur myndast gat upp á eina milljón
sem ekki veröur brúaö með 3 þúsund
krónum sem hugsanlega kæmu út úr
greiöslujöfnun lána.
„Þaö stoppar enginn í þetta gat
fyrir þig, ekki einu sinni vinur litla
mannsins.
Eg tel aö þaö sé neikvætt aö taka
upp flóknar reglur sem gefa litla
lausn. Eg held að í sambandi viö
greiðslujöfnun heföi veriö miklu
skynsamlegra aö láta fólkið fá 20
þúsund krónur í aukalán. Mitt mat er
aö með greiðslujöfnuninni sé veriö aö
skjóta flugu með fallbyssu,” segir
Pétur Blöndal.
Steingrímurá Hólmavík:
„Hér treysta
i
\
f
i
4
4
menna
Þotumar biðu
sjálfa sig”
í löngum röðum
í gær var óvenjumikiö af einkaþot-
um á Reykjavíkurflugvelli. Þegar
mest lét stóöu þar hvorki meira né
minna en 12 stykki. „Þetta er þaö
mesta sem ég man eftir,” segir Sveinn
Björnsson hjá Flugþjónustunni.
Norræni fjárfestingabankinn var meö
tvær af þessum vélum á leigu og sjást
fulltrúar bankans á annarri myndinni
hverfa upp í vélar sínar að loknum
fundarhöldum í Reykjavík. Þá eru sjö
af þessum vélum á vegum norrænna
fulltrúa sem hér sitja bankaráðstefnu.
Aö lokum voru tvær frá tveim banda-
rískum fyrirtækjum sem hér voru í
erindagjöröum.
APH DV-mynd KAE.
EINANGRUNAR
GLER
66 6160
LOKI
Bjórsúpu í forrétt, eft-
irrétt og með aðalrétt-
inum, takk!
Mögulegur mótleikur bjórlíkiskráa:
Bjórlíkið f ram-
reitt sem súpa
Eigendur veitingahúsa, sem fram
aö þessu hafa haft bjórlíki á boö-
stólum, verða nú að fara huga að
því aö skrúfa fyrir bjórlíkiskranana
því eins og kunnugt er hefur dóms-
málaráðherra bannaö sölu þessa
drykks frá og með 15. september.
Flest bendir til þess aö veitingahúsa-
eigendur fari aö fyrirmælum ráö-
herra. En þeir hafa r.áð undir rifi
hverju og meðal hugmynda um víð-
brögð viö banninu er að grípa til þess
ráös aö sel ja bjóriikiö sem súpu!
Þessi hugmynd hefur verið viðruö
á veitingastaðnum Gauki á Stöng.
Þar segja menn að engin regla sé til
um þaö hversu mikið áfengismagn
megi vera í súpum. Það sé því ekkert
einfaldara en að halda áfram sölu
bjórlíkis í súpugervi. Kannan er þá
framreidd á skál með servettu og
skeið. Svo ráða menn að sjálfsögöu
hvort þeir drekka „súpuna" eða
borða hana meö skeiö. Ekki hefur
verið ákveðið hvort þetta verður
gert.
Vitað er aö forráðamenn staða sem
selja bjórliki hafa rætt sin á milli
hvernig bregðast skuli viö bjórbanni
dómsmálaráöherra.
„Líklegast er aö farin verði lög-
lega leiðin og bjórlíkið blandað á
staðnum,” segir einn himQdarmaöur
DV. „Við nennum ekki aö vera ergja
mann sem misnotar vald sitt. Svo
gæti þetta jafnvel orðið til þess að
salan ykist, því fólk mun sjá
nákvæmlega hvað sett er í pilsner-
inn. Þá getur það ekki lengur grunað
mann um að það sé verið aö svindla á
blönduninni.”
APH
„Þetta var ágætur fundur. Menn eru
ánægðir með margt og gagnrýna
annað. Eg get ekki sagt það að ég hafi
verið óánægður með þennan fund,”
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráöherra við DV í morgun. Hann
hélt í gær stjórnmálafund á Hólmavík
þar sem mættu allt aö 50 manns úr ná-
grenninu.
„Menn eru ánægöir meö þann
árangur sem náöst hefur í viöur-
eigninni við verðbólguna. Hér á
Hólmavík er ekkert atvinnuleysi og
nægur kvóti.
Hins vegar kemur minnkandi
kaupmáttur við hér eins og annars
staðar og menn aö sjálfsögöu ekki
ánægðir meö það,” sagöi Steingrímur.
Hann sagði einnig aö bændur heföu
rætt mikiö um þær breytingar sem
geröar hafa verið á framleiösluráös-
lögunum og hvernig staöiö hefði verið
aö gerð þeirra.
„En almennt er nú staöreyndin sú að
hér á Ströndum eru menn vanir að
treysta á sjálfa sig en kref jast ekki alls
af ríkinu,” sagöi Steingrímur sem
setur nú stefnuna á Bíldudal þar sem
kj ördæmaþing hefst í kvöld. APH
Dagsbrún
hættir
bónusvinnu
Verkamannafélagiö Dagsbrún í
Reykjavík tilkynnti í gær að félags-
menn þess myndu leggja niður bónus-
vinnu í fiski frá næsta fimmtudegi í
samúðarskyni með bónusverkfalli,
sem þrettán verkalýðsfélög víðs vegar
um land hafa boöaö í næstu viku.
Verkalýösfélögin eru á Skagaströnd,
Siglufirði, Raufarhöfn, Vopnafirði,
Neskaupstaö, Eskifirði, Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði, Breiðdalsvík, Hornafiröi,
Stokkseyri, Þorlákshöfn og Akranesi.
-KMU.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4