Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Blaðsíða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Menningarverd- launin afhent í hádeginu í dag voru áttundu Menningarverðlaun DV veitt við málsverð í Þingholti, Hótel Holti. Eins og venjulega voru viðurkenn- ingar veittar fyrir afrek í sex list- greinum á liðnu ári. Að þessu sinni hlutu verðlaunin Einar Kárason rithöfundur fyrir skáldsögu sína, Gulleyjuna, Hafliði Hallgrímsson, tónskáld og sellóleikari, fyrir hljómsveitarverkið Poemi og út- setningar á íslenskum þjóðlögum, Guðrún Gísladóttir leikkona fyrir leik sinn í Agnes, barn Guðs og Reykjavíkursögum Ástu, Magnús Kjartansson myndlistarmaður fyr- ir sýningu sína í Listmunahúsinu, Hjörleifur Stefánsson arkitekt og Finnur Birgisson, skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, fyrir skipulag fyrir Ákureyri og Karl Óskarsson kvikmyndagerðarmaður fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar Hvítir mávar og fleiri mynda. Þriggja manna dómnefndir, skip- aðar gagnrýnendum DV og öðrum sérfræðingum, tilnefndu listafólk til verðlaunanna. Verðlaunagripina hannaði Jón Snorri Sigurðsson gullsmiður en þeir eru í formi frístandandi skúlpt- úra. Nánar verður sagt frá verð- launaveitingunni í blaðinu á morg- un. -ai Vinnudeila ívélaverkstæði Síldarvinnslunnar á Neskaupstað: STARFSMENN ÍHUGA FJÖLDAUPPSAGNIR Launadeila er nú komin upp milli starfsmanna vélaverkstæðis Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað og for- ráðamanna Síldarvinnslunnar. íhuga starfsmennirnir nú fjöldaupp- sagnir vegna hennar. Forsaga málsins er sú að skömmu fyrir áramót fóru starfsmenn véla- verkstæðisins til forstjórans og báðu hann um 15% launahækkun á þeim forsendum að slíkt tíðkaðist á öðrum sambærilegum stöðum. Forstjórinn tók vel í þessa bón. Síðan liðu ein- hverjar vikur. Eftir áramót komst þó skriður á málið aftur. Þá var starfsmönnum tjáð að þeir myndu frá 15% launa- hækkun. Ekki var þeim þó greint frá þeim böggli sem fylgdi skammrifinu, það er að jafnframt yrði tekið af þeim 10% óþrifaálag sem þeir höfðu haft. Raunverulega fengu þeir því ekki nema 5% hækkun. Þessu undu starfsmennirnir ekki og hættu samstundis að vinna næt- urvinnu. Þá sögðu þeir upp eftir- vinnu með eðlilegum fyrirvara, sem er hálfur mánuður. I síðustu viku komu svo fjórir starfsmenn frá vélaverkstæði á Eg- ilsstöðum til vinnu í Neskaupstað. Þeim hafði verið sagt að um mann- eklu væri að ræða. Að sögn starfsmanna vélaverk- stæðisins er nú verið að huga að fjöldauppsögnum. Höfðu þeim borist óljósar fregnir af því að menn væru væntanlegir úr Reykjavík til að ganga í störfin á vélaverkstæðinu. - JSS Arnarholl notaður fyrlr bflastæði Arnarhóll hefur orðið illa fyrir barðinu á ökumönnum undanfarið. Hafa menn lagt bílum sínum upp um allan hól og valdið með því miklum skemmdum á grasinu. Fyrir tilstilli gatnamálastjóra fóru nokkrir lögreglumenn á staðinn og könnuðu aðstæður. Engir bílar voru teknir í þessari könnunarferð enda ætlunin fyrst og fremst að kanna hvaða bílar þetta væru og fylgjast Lögreglumenn að kanna aðstæður við Arnarhólinn. DV-mynd S. með hvort sömu aðilar legðu þarna Síðan þessi athugun var gerð hefur oft. Auk þess þótti sýnt að ekki væri lögreglan hins vegar látið fjarlægja hægt að fjarlægja bílana án þess að nokkra bíla og sektað eigendur valda frekari spjöllum á hólnum. þeirra. -VAJ Fyrsta ref abúið f Breiðdal Frá Sigursteini Melsteð, fréttarit- ara DV á Breiðdalsvík: Sett hefur verið á stofn refabú að Felli í Breiðdal. Komu fyrstu dýrin, Kaupmannahafnarlögreglan lét í gær rýma hús í nágrenni skrifstofu sovéska flugfélagsins Aeroflot í borginni. Þar á meðal var aðalskrif- stofa Flugleiða. í anddyri skrifstofu Sovétmann- anna fannst plastpoki sem enginn vissi hvaðan var kominn. Óttaðist lögreglan að í pokanum leyndist sprengja. Var því gripið til allra 67 talsins, frá Birkihlið og Hlíð á Héraði fyrir nokkrum dögum. Virð- ast þau kunna vel við sig á nýja staðnum. þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar þykja þegar ótti um sprengjutilræði vaknar. Þegar sérfræðingar lögreglunnar könnuðu innihald pokans reyndist það vera bæklingar frá bandarísku flugfélagi. Var þá viðbúnaði hætt enda hafði engin tilkynning um sprengju í húsinu borist. -GK Það þurfti að aka fjarðarleið með dýrin af því að Breiðdalsheiði fæst ekki rudd. Dýrin fá þurrfóður eins og er en með aukinni fóðurgjöf er nauðsynlegt að fá fóður frá Egils- stöðum. Að sögn Guðrúnar Þorleifsdóttur í Felli getur það skipt sköpum fyrir þessa búgrein hér á suðurfjörðum að samgöngur séu góðar yfir heiðina og hún verði opnuð reglulega á veturna. Þá væri hægt að sækja fóðrið að Birkihlíð á móti fóðurbíl frá Egils- stöðum. Leiðin frá Felli að Egilsstöð- um fjarðarleið er um 135 km en milli Fells og Birkihlíðar um heiðina 60 km. Það munar um minna. Það hefur lengi verið kappsmál manna hér að fá heiðina rudda a.m.k. einu sinni í viku. Ætti það ekki að vera mikið mál því þetta er ekki snjóþungur fjallvegur. Og nú er þörfin enn brvnni. BÆKUNGAR í STAÐ SPRENGJU Atvikið þegar Flugleiöaþoturnar nærrírákustsaman: Saksóknarí vill f rekarí rannsókn Ríkissaksóknari hefur sent flug- atvik það þegar nærri lú við árekstri tveggja Flugleiðaþotna þannti. sept- ember 1984 aftur til Rannsóknarlög- reglu ríkisins til frekari rannsóknar. „Það eru nokkur atriði sem við vildum að könnuð yrðu sérstaklega,“ sagði Þórður Björnsson ríkissak- sóknari. I rannsóknarskýrslu loftferðaeftir- lits Flugmálastjórnar, sem opinberuð var þremur mánuðum eftir atvikið, kemur fram að aðeins hafi munað nokkrum metrum að ekki varð árekstur milli vélanna. Um borð voru samtals 403 menn. Þoturnar hófu sig til flugs af Kefla- víkurflugvelli með aðeins einnar mínútu millibili. DC-8 þota fór á undan. Boeing 727-þota klifraði hins vegar hraðar og dró þá fyrri uppi. Flugstjóri Boeing-þotunnar sá hvert stefndi. Tilkynnti hann það flugumferðarstjóra, sem hins vegar reyndi að fullvissa flugmennina um að lágmarksaðskilnaði væri haldið. Rifust Boeing-flugstjórinn og flug- umferðarstjórinn á flugbylgjunni drjúga stund meðan stórhætta var á árekstri. Þegar Boeing-þotan skaust undan hægri væng DC-8 þotunnar í nokkurra metra fjarlægð blindaði sólin flugmennina. -KMU Forsetafundur JC-hreyfmgarinnar í Evrópu á Hótel Loftleiðum. JC-félagar í álfunni eru nú 38.000 talsins. Evrópuforsetar JC funduðu í Reykjavík: Heimsfríöarhlaup með Olympíueldinn Á fundi Evrópuforseta JC-hreyf- ingarinnar í Reykjavík fyrir skemmstu var kynnt heimshlaup, „Earth-Run“, sem alþjóðastjórn JC og samband Evrópuforseta hreyfing- arinnar styðja sérstaklega. Hlaupa á með ólympíueldinn frá Los Angeles umhverfis jörðina, i tilefni alþjóðlegs árs friðar 1986, og á hlaupinu að ljúka við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York næsta nýárs- dag. Það var eina íslenska JC-félagið eingöngu skipað konum sem stóð fyrir fundi Evrópuforsetanna, JC-Vík. Fulltrúar komu frá 18 Ev- rópulöndum. Einnig kynntu tveir japanskir fulltrúar næsta heimsþing JC i Nagoya í Japan. Loks tóku þátt í fundinum tveir fulltrúar frá al- þjóðastjórn JC. Aðalmál fundarins var að fjalla um tillögur nefndar sem miða að sterkara sambandi Evrópu- forseta og auknum áhrifum þeirra innan alþjóðahreyfingarinnar. JC-félagar í Evrópu eru nú 38.000. Á þessum fundi var kynnt framboð Árna Þ. Arnason.ar, JC-Reykjavík, til embættis alþjóðlegs varaheims- forseta. Landsforseti JC á íslandi þetta starfsár er Grétar D. Pálsson, JC-Stykkishólmi. -HERB Straumur i raf magnsbfl Straumur fólks hefur verið í portið að baki húsnæðis Innkaupastofnun- ar ríkisins að undaförnu til að skoða rafmagnsbílinn víðfræga sem nú er þar geymdur. Rafmagnsbíllinn hefur verið í eigu Háskóla íslands og Gísli Jónsson prófessor haft yfirumsjón með þeim tilraunum sem farið hafa fram varðandi hagnýti hans og gildi. Háskólinn hefur nú ákveðið að selja bílinn og hefur hálft hundrað tilboða borist til Innkaupastofnunar- innar. Eru þau af ýmsum toga, það hæsta hljóðar upp á 230 þúsund krónur. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.